föstudagur, desember 30, 2005

listi

Ég skrifaði lista á Þorláksmessu yfir það sem ég ætti að nota tímann í milli jóla og nýárs. Og raunar ekki yfir það sem ég ætti að gera heldur yrði að gera. Nú er ég farin að halda að listinn hafi öðlast sjálfstæðan vilja og ákveðið að vera listi yfir það sem yrði ekki gert... Nema ég hafi bara skrifað það sem ég var hrædd um að myndi "gleymast"? Alla vega hefur mér tekist að finna ýmislegt annað að gera en skrifa heillangt jólabréf á þýsku eða senda fyrirspurn til Tækniháskólans í München; m.a. fara í gegnum 81 myndbandsspólu í eign fjölskyldunnar og uppfæra spólulistann (tók 2 daga), fara í bíó (mörgæsamyndin er flott!), taka góðan tíma í ræktina (fékk vikuprufu í WorldClass sem árskortshafinn mamma fékk með jólakortinu frá WorldClass), fara sem sérlegur ráðgjafi pabba í jakkafatakaup, baka hinn árlega óhemjutímafreka trönuberjakastaníuhring og horfa meira á sjónvarp en góðu hófi gegnir. Hvað WorldClass varðar þá er ég alls ekki týpan í þessa líkamsræktarstöð, en nýt þess samt í botn að púla á róðrarvélinni enda eina líkamsræktargræjan sem ég gæti hugsað mér að eignast fyrir utan góða dýnu. Sundið er mín hilla. Það er hins vegar gott að geta hent sér út í almennilegar maga-, bak-, liðleika- og teygjuæfingar à la Vadim (sundþjálfarinn minn). Fékk nett nostalgíukast í þessu :)

mánudagur, desember 26, 2005

gemsi

Líney Halla er komin í tölu gemsaeigenda, þrátt fyrir langa og harðvítuga baráttu. En látið ykkur ekki detta í hug að ég muni hafa friðarspillinn á mér! Heimilisgemsum á Laugalæk 3 hefur fjölgað um einn.
En jú, ég fékk tólið í jólagjöf frá ástkærum foreldrum mínum (því miður, grettan/mæðusvipurinn þegar ég opnaði pakkann náðist ekki á mynd ;) ). Mömmu var víst farið að finnast þessi "samgemsanotkun" orðin eitthvað óhentug t.d. þegar hún fékk skeyti, stödd lengst uppi á fjöllum, um að dóttir hennar skyldi gera svo vel og mæta á tangókvöld. Hmm... Og þegar ég var svo sokkin niður í hið mikla lærdómssvarthol fram yfir 21. desember og alls ófær um að hugsa upp eitthvað sem mig vantaði og passaði í jólapakka þá var þetta útkoman. 1+1 samasem, eh, 2.1 ;)
Nýja númerið má finna hér og bráðum líka hér.

Ég er enn með magaverk af hlátri yfir "jólakortinu" frá Kristjönu (Líkamsrækt með Jane Fonda, útgefin 1983, og spá fyrir árið 2006 sem segir m.a. að það muni innihalda mikið af eplum og tómötum ;D ). Einnig er ég alveg að rifna af stolti yfir útskornu klukkunni sem ég fékk frá afa og ömmu í Sigtúni (afi sker út í tré; ef ykkur vantar flotta gjöf þá getið þið haft samband við afa, hann hefur svolitlar áhyggjur af því að hann sé að fylla allt hjá afkomendum og öðrum ættingjum af útskornu dýrgripunum sínum; afi vill alls ekki fá borgað nema fyrir efniskostnaði, hitt er bara gaman :) ). Það skondnasta við jólagjafirnar í ár var hins vegar að ég gaf Bjarnheiði Amélie á DVD - sem hún hefði einmitt gefið mér ef hún hefði ekki barasta gleymt að kaupa diskinn ;D Ég pantaði einfaldlega Chaplin og/eða Buster Keaton úr Tiger í staðinn...

Mjög óvísindalegar rannsóknir sýna að því færri jólagjafir/-kort sem ég fæ, þeim mun lukkulegri verði ég með þær. Bunkinn minn hefur aldrei verið jafnlítill og ég aldrei jafnánægð með innihaldið :)

Annars vona ég að þið hafið það ákaflega gott yfir hátíðarnar :) og leggist ekki í bólið með kvef eins og aumingjans Bjarnheiður systir. Hún missti af allra besta ofáti ársins - jólasúkkulaði ömmu og afa í Sigtúni!

laugardagur, desember 24, 2005

kertasníkir


Þrettándi var Kertasníkir,
-þá var tíðin köld,
ef ekki kom hann síðastur
á aðfangadagskvöld.

Hann elti litlu börnin,
sem brostu glöð og fín,
og trítluðu um bæinn
með tólgarkertin sín.





-- Gleðileg jól! --

föstudagur, desember 23, 2005

ketkrókur


Ketkrókur, sá tólfti,
kunni á ýmsu lag. -
Hann þrammaði í sveitina
á Þorláksmessudag.

Hann krækti sér í tutlu,
þegar kostur var á.
En stundum reyndist stuttur
stauturinn hans þá.




Skatan hjá afa og ömmu í Sigtúni brást ekki frekar en fyrri Þorláksmessurnar. Ég fæ sko ekki kvef um jólin, hann passar að hafa skötuna nógu svakalega kæsta hann afi ;)
Svo hentist ég til að hjálpa Unni (MH vinkonu) að bera dótið sitt upp í nýju íbúðina sína á 3. hæð á stúdentagörðunum. Ágæt líkamsrækt það og með þeim skemmtilegri ;D Til hamingju með íbúðina Unnur! Hvað heitir annars íbúðarfélaginn?
En nú er fram undan tiltekt og Laugavegsrölt á Þorláksmessukvöldi :)

fimmtudagur, desember 22, 2005

gáttaþefur



Ellefti var Gáttaþefur,
- aldrei fékk sá kvef,
og hafði þó svo hlálegt
og heljarstórt nef.

Hann ilm af laufabrauði
upp á heiðar fann,
og léttur, eins og reykur,
á lyktina rann.



*geeeisp* buxur, sokkar, peysa..., hm hvar er peysan? æjá, þvottahúsið, sturta í gær, ... *geisp*, náttbolurinn... á hann ekki að fara í óhreint núna? ég svaf út svo þá er laugardagur..., nei haha það er fimmtudagur! - ég er í jólafríi :-D [hér hljómi gleðisöngur MH (þótt kristilegt innihald hans komi gleði minni lítið við)]
Farin til ömmu að ná í laufabrauðsjárnið og mót fyrir gyðingakökurnar :)

miðvikudagur, desember 21, 2005

gluggagægir



Tíundi var Gluggagægir,
grályndur mann,
sem laumaðist á skjáinn
og leit inn um hann.

Ef eitthvað var þar inni
álitlegt að sjá,
hann oftast nær seinna
í það reyndi að ná.

þriðjudagur, desember 20, 2005

bjúgnakrækir


Níundi var Bjúgnakrækir,
brögðóttur og snar.
Hann hentist upp í rjáfrin
og hnuplaði þar.

Á eldhúsbita sat hann
í sóti og reyk
og át þar hangið bjúga,
sem engan sveik.



Mamma bakaði smákökur í gær. Namminamminamm :) Ég eeeeelska súkkulaðibitakökurnar hennar.
Svo eftir prófið á morgun, þegar ég er búin að hrópa svo sem eitt 'húrra!' og kjafta einhvern helling, þá ætla ég að drífa mig heim og búa til deig í gyðingakökur. Hef sérhæft mig í þeim síðustu 3 árin eða síðan ég spjallaði lengi við ömmu í Sigtúni um jólasmákökurnar og komst að því að þetta væru uppáhaldssmákökurnar hans pabba. Amma var þá hætt að baka þær, enda heilmikið maus og nóg af öðrum ómissandi kökursortum til að baka, svo ég ákvað að spreyta mig á þeim. Þið hefðuð átt að sjá glampann í augunum hans pabba þegar ég sagðist ætla að baka gyðingakökur. Jiiiminn, ég er svo góð dóttir ;) Haldið þið ekki að amma hafi svo líka bakað þær eftir rabbið okkar, svo pabbi hefur verið sérstaklega hamingjusamur síðustu þrjú jól, smákökulega séð, og fengið kynstur af gyðingum á báðum stöðum :D

mánudagur, desember 19, 2005

skyrjarmur



Skyrjarmur, sá áttundi,
var skelfilegt naut.
Hann hlemminn o´n af sánum
með hnefanum braut.

Svo hámaði hann í sig
og yfir matnum gein,
unz stóð hann á blístri
og stundi og hrein.




Eftir rúmar 6 klst mun ég bara eiga eitt próf eftir; *gleði* :)

sunnudagur, desember 18, 2005

hurðaskellir



Sjöundi var Hurðaskellir,
- sá var nokkuð klúr,
ef fólkið vildi í rökkrinu
fá sér vænan dúr.

Hann var ekki sérlega
hnugginn yfir því,
þó harkalega marraði
hjörunum í.




Prófahárgreiðslan í ár er flétta. Ákaflega þægileg og gefur afsökun fyrir hléi á um klukkutíma fresti því hárið á mér er svo sleipt að það rennur úr fléttunni fljótt aftur.

Bjarnheiður lauk prófum í gær og er þotin norður til afa og ömmu. Pabbi bakaði sitt ljúffenga jólahreindýrapatè í snatri í gærkvöldi svo Bjarnheiður gæti tekið eitt stórt fat með sér fyrir ættingjana þar. Þau mega ekki svelta, oseiseinei ;) Hér angar því allt í dýrindis kæfulykt svo ég er gloooorsoltin ;P

laugardagur, desember 17, 2005

askasleikir



Sá sjötti, Askasleikir,
var alveg dæmalaus. -
Hann fram undan rúmunum
rak sinn ljóta haus.

Þegar fólkið setti askana
fyrir kött og hund,
hann slunginn var að ná þeim
og sleikja á ýmsa lund.




Mikið var gaman að sjá snjóinn í morgun. Ég dauðvorkenni krökkunum hérna fyrir sunnan; það er varla nokkurn tíma almennilegur snjór hérna lengur. Í minningunni eru margir gleðidagar við snjóhúsa-, snjókarla- og snjókerlingabyggingar, snjókast og skíða- og sleðaferðir í Dalbrautar- og Ártúnsbrekkurnar. Ég held það hljóti að hafa verið meiri snjór þá, enda hefur loftslag hlýnað, eða sitja bara snjódagarnir eftir í kollinum? Man reyndar eftir einu ári þegar ég var orðin mjög óþolinmóð að fá almennilegan snjó í október og mamma þurfti þó nokkra ákveðni til að sannfæra mig um að ég gæti fyrst farið að búast við almennilegum snjó í nóvember. Nú geta krakkarnir ekki búist við honum fyrr en í janúar eða febrúar!
Hérna er ég 6 ára í garðinum hjá afa og ömmu í Ásabyggð (nú býr Hlynur og fjsk þar); voða stolt við litla snjókarlinn minn - mamma var ekki alveg viss, en ég sýndi henni að það var sko víst nógur snjór til að gera snjókarl! Nóg af þrjósku í litlum kroppi ;)


föstudagur, desember 16, 2005

pottaskefill



Sá fimmti, Pottaskefill,
var skrítið kuldastrá.
- Þegar börnin fengu skófir
hann barði dyrnar á.

Þau ruku upp, til að gá að
hvort gestur væri á ferð.
Þá flýtti' ann sér að pottinum
og fékk sér góðan verð.




Í dag hefði Szymon Kuran, fiðluleikari, tónskáld, málari, þúsundþjalasmiður, nostrari og snillingur almennt, orðið fimmtugur. Blessuð sé minning hans.

fimmtudagur, desember 15, 2005

þvörusleikir



Sá fjórði, Þvörusleikir,
var fjarskalega mjór.
Og ósköp varð hann glaður,
þegar eldabuskan fór.

Þá þaut hann eins og elding
og þvöruna greip,
og hélt með báðum höndum,
því hún var stundum sleip.



Ég ætla norður til afa og ömmu á Akureyri eftir áramótin. Fer væntanlega 3. janúar. Get þá líka heimsótt Hlyn frænda og fjölskyldu í Ásabyggð og séð nýju frænkuna, hana Unu Móeiði (fæddist 11. nóvember) og kannski litið við á Ásveginum til Halls frænda og fjölskyldu. Svo er nefnilega skíðaferð Stiguls á Akureyri helgina 6.-8. janúar, svo þetta smellpassar :) Og nú vantar mig bara far norður ;)

----------- 14:37:00 -------------
Bjarnheiður hefur staðið í konfektgerð í gær og í dag. Ég gerðist sjálfskipaður smakkari ;) Slúrrrp! suðusúkkulaði, 70% súkkulaði, rjómasúkkulaði, súkkulaðifylling, pistasíumarsipan, koníakmarsipan, núggat/appelsínufylltar döðlur og von er á marsipanfylltum döðlum, kannski mozartkúlum, [einhverju sem ég gleymi] og því besta af öllu - kókoslengjum; *doijngs-doijngs* ég hlakka til!

miðvikudagur, desember 14, 2005

stúfur



Stúfur hét sá þriðji
stubburinn sá.
Hann krækti sér í pönnu,
þegar kostur var á.

Hann hljóp með hana í burtu
og hirti agnirnar,
sem brunnu stundum fastar
við barminn hér og þar.



Helmingur prófanna er búinn. Aflfræðin var niðurdrepandi; ég er ósátt við sjálfa mig og ósátt við prófið. Ég las ekki rétt undir það og/eða var mjög óheppin með prófspurningar. Eftir er próf í afar fræðilegri stærðfræði sem ég hef lítið getað sinnt í vetur og kjarneðlisfræði-/ljósfræðipróf þar sem við höfum einungis óljósar hugmyndir um í hverju muni verða prófað. Bjart framundan? Ég held ekki...
Er farin í sund að synda pirringinn og leiðann úr mér - og finna kannski Pollýönnu aftur.

þriðjudagur, desember 13, 2005

giljagaur




Giljagaur var annar,
með gráa hausinn sinn.
- Hann skreið ofan úr gili
og skauzt í fjósið inn.

Hann faldi sig í básunum
og froðunni stal,
meðan fjósakonan átti
við fjósamanninn tal.


Fyrsta prófið er búið. Það var heldur betur klikk. Heilinn er á bráðamóttökunni. Þetta verður vonandi skalað upp því annars er von á stórum fallhóp m.v. "úff!", "hjálp!", "hvað var þetta?", "uh, hvar er ég?" o.s.frv. eftir prófið. Hins vegar gerði ég bara mitt besta að ég held(?) svo ég get hugsað "fjandans dæmi!" samviskubitslaust ;)
Aflfræði, here I come!

mánudagur, desember 12, 2005

stekkjastaur



Stekkjastaur kom fyrstur,
stinnur eins og tré.
Hann laumaðist í fjárhúsin
og lék á bóndans fé.

Hann vildi sjúga ærnar,
- þá var þeim ekki um sel,
því greyið hafði staurfætur,
- það gekk nú ekki vel.



Eftir nær stanslausan skammtafræðilestur í um 5 klst voru málstöðvarnar orðnar svo haltar að ég þurfti um mínútu til að hita þær upp þegar ég talaði í símann. Aumingja konan í bankanum... ;)

laugardagur, desember 10, 2005

hvatning

Bjarnheiði langar svo ógurlega mikið til að tjá sig á skvettuskoppinu sínu en finnst að ég eigi að segja fyrst frá. Ég er jú svo þæg og góð lítil systir, finnst nú samt hálfasnalegt að pikka þetta inn :S En jæja:
Ég brosti allan hringinn síðasta miðvikudagskvöld (:-) Þá var ég nýbúin að lesa tölvupóst frá Erni Helgasyni um að ég hefði fengið hvatningarverðlaun Eðlisfræðifélags Íslands fyrir góðan árangur í námskeiðunum Eðlisfræði 1 og 2. Verðlaunin fékk ég svo afhent í gær á aðalfundi félagsins. Ég hafði annars ekki minnstu hugmynd um þessi hvatningarverðlaun, þ.e. ég var búin að steingleyma að þau væru til því okkur var víst sagt frá þessu í námskeiðinu Eðlisfræði 1. Munduð þið af eðlukyni eftir þessu???

föstudagur, desember 09, 2005

búhú

Haldið þið ekki að ég hafi verið orðin veik á sunnudagskvöldið! Ooooohhhh... Ég var búin að hlakka ógurlega til að spila á þessum tónleikum :( Fór kvöldið áður að spila (fyrir Svaninn) þegar kveikt var á jólatrénu á Álftanesi, sem ég kenni að mestu um ásamt heldur betur neikvæðu svefnbókhaldi. Reynið að spila á íííískalt blásturshljóðfæri í hitastigi við frostmark (Kristjana, þú þekkir þetta; Ásta kannski líka?). En fyrst við vorum að spila þarna þá var líka svolítið svekkjandi að út af einhverju hljóðnemaveseni (hvað annað) þá gátum við bara spilað þrjú lög, þá þurfti að kýla dagsskrána áfram - akkúrat þegar hljóðfærin voru orðin sæmilega heit og velhljómandi og við komin í stuð!
En skítt með það; ég er orðin hress á ný (þ.e. ég kemst í sund í dag ;) ) og Bjarnheiður var svo væn að taka Svanstónleikana upp á "smádisk" (mini disc) fyrir mig þ.a. ég gat skemmt mér í rífandi sveiflu við að klára nokkur verkefni í vikunni :)
Eitthvað sem ég þarf að gera milli jóla og nýárs er að þvo trompetinn minn. Mér líst ágætlega á þessa hugmynd hjá Viggó, þótt ég sé ekki alveg viss um hversu árangursrík hún sé... ;D



laugardagur, desember 03, 2005

tónleikar

Þeir sem hafa tíma, eru með tímabundið ógeð á lærdómi, hafa gaman af blús/svíng/melódískri tónlist o.s.frv. eru hjartanlega velkomnir á tónleika lúðrasveitarinnar Svansins í salnum Ými við Bústaðaveg, sunnudaginn 4. desember kl 20.00.
Já, ég veit, ég er alveg ógurlega ótímanleg með þessa tilkynningu, en betra er seint en aldrei :) Líka eins gott að tilkynna þetta sem víðast því tímasetningin var röng í Fréttablaðinu í gær (sagt að tónleikarnir væru í dag, laugardag).
Ég get lofað skemmtilegum tónleikum, því ég er búin að æfa þetta síðan í september og aldrei fundist lögin jafn skemmtileg og falleg og nú (og nei, það er ekki bara vegna þess að þau voru óæfð þá!). Tónleikarnir verða heldur ekki hriiiikalega langir; 4 lög fyrir hnébeygjur og 5 lög eftir spjall.
Mæli með tónleikunum sem smá pásu fyrir lokasprett sunnudagslestursins á VR-II ;)

fimmtudagur, desember 01, 2005

tvíkynja

Ýmislegt styður það að ég sé strákastelpa. Þetta "átreiðanlega" netpróf hefur bæst í hópinn:

Your Brain is 53.33% Female, 46.67% Male

Your brain is a healthy mix of male and female
You are both sensitive and savvy
Rational and reasonable, you tend to keep level headed
But you also tend to wear your heart on your sleeve



Heilinn í mér ku sem sé vera tvíkynja. Magnað.

miðvikudagur, nóvember 30, 2005

saga heimsins

Hvort saga heimsins er löng eða stutt virðist ákaflega afstætt. Hérna er stysta útgáfa sem ég hef séð:

Quantum fluctuation. Inflation. Expansion. Strong nuclear interaction. Particle-antiparticle annihilation. Deuterium and helium production. Density perturbations. Recombination. Blackbody radiation. Local contraction. Cluster formation. Reionization? Violent relaxation. Virialization. Biased galaxy formation? Turbulent fragmentation. Contraction. Ionization. Compression. Opaque hydrogen. Massive star formation. Deuterium ignition. Hydrogen fusion. Hydrogen depletion. Core contraction. Envelope expansion. Helium fusion. Carbon, oxygen, and silicon fusion. Iron production. Implosion. Supernova explosion. Metals injection. Star formation. Supernova explosions. Star formation. Condensation. Planetesimal accretion. Planetary differentiation. Crust solidification. Volatile gas expulsion. Water condensation. Water dissociation. Ozone production. Ultraviolet absorption. Photosynthetic unicellular organisms. Oxidation. Mutation. Natural selection and evolution. Respiration. Cell differentiation. Sexual reproduction. Fossilization. Land exploration. Dinosaur extinction. Mammal expansion. Glaciation. Homo sapiens manifestation. Animal domestication. Food surplus production. Civilization! Innovation. Exploration. Religion. Warring nations. Empire creation and destruction. Exploration. Colonization. Taxation without representation. Revolution. Constitution. Election. Expansion. Industrialization. Rebellion. Emancipation Proclamation. Invention. Mass production. Urbanization. Immigration. World conflagration. League of Nations. Suffrage extension. Depression. World conflagration. Fission explosions. United Nations. Space exploration. Assassinations. Lunar excursions. Resignation. Computerization. World Trade Organization. Terrorism. Internet expansion. Reunification. Dissolution. World-Wide Web creation. Composition. Extrapolation?
Ég held ég leggi ekki í íslenskun alveg í bráð, en þið sem skiljið írsku getið kíkt hingað...

ví!

Ég er búin að fara yfir síðasta skiladæmaskammtinn í línulegri algebru. *Mikil gleði* :)

Fann líka núna áðan oggulítið fleiri upplýsingar um námskeiðin í tækniháskólanum í München (TUM, sem mig langar til að læra við sem Erasmus stúdent á næsta skólaári) svo ég veit betur hve erfitt púsluspil ég hef fyrir framan mig þar. Næsta skref er að senda tölvupóst út og biðja um nánari upplýsingar um þau námskeið sem vantaði lýsingu á og fara svo og tala við nokkra kennara við HÍ um hvað er sambærilegt við hvað. Held samt að ég einbeiti mér að því að klára 2 verkbækur, einn fyrirlestur og sæmilega stórt verkefni og huga svo að prófunum svona í bili...
Bjarnheiður sótti annars líka um við TUM (í stærðfræði náttúrlega) svo ef við komumst þar báðar að væri það auðvitað "tær snilld". Gætum þá mallað ofan í hvor aðra, rifist/rökrætt og talað íslensku við einhvern í beinni :) Krossa putta!

e.s. Ykkur sem gæti hafa dottið "Oktoberfest"+"frí gisting" í hug verð ég því miður að hryggja; það er mjög ólíklegt að ef ég fer út, þá verði ég komin með húsnæði fyrr en um miðjan október, þ.e. eftir Oktoberfest...

mánudagur, nóvember 14, 2005

geisp

Sæl verið þið.
Það er heldur langt síðan ég babblaði eitthvað síðast. Um síðustu helgi ætlaði ég að rabba um skemmtilega ,,tilraun" sem ég, Hulda Soffía og Hanna gerðum í aflfræði, en steingleymdi því svo barasta. En ég bæti þá úr því núna:

Við brunuðum sem sé upp í Heiðmörk í leit að þvottabretti á malarvegunum þar. Vorum svo heppnar að finna eitt slíkt í fyrstu beygju á veginum. En hvað vorum við að leita að þvottabretti? Jú, við ákváðum að flippa svolítið og gera verkefni um þvottabretti á malarvegum í aflfræðinámskeiði sem við erum í. Er hægt að finna einhvern fullkominn hraða fyrir hvert þvottabretti fyrir sig, svo hristingurinn og hossingurinn verði sem minnstur? Við ókum þarna fram og til baka á 20, 30, 40, ... km/klst ferð og reyndum að meta hvort við hossuðumst meira eða minna í hvert skipti. Mjöööög gaman ;) Svo vorum við svo hraustar að standa úti í slyddurigningu og kulda og mæla fjarlægð milli öldutoppa, hæð þeirra, malarsamsetningu (datt meira að segja í hug að fá að stelast í þurrkofninn og sigtastaflann á Vatnamælingum Orkustofnunar til að kanna kornastærðina til hlítar, drepfyndin tilhugsun hvernig kennurunum hefði litist á það, hehe - við Hanna höfum sko sambönd ;) ). En svo rúlluðum við í bæinn, heim til mín í hádegismat og eftir smá þvottabrettarabb héldum við vestur í háskóla að hlýða á Lárus Thorlacius flytja fyrirlestur um uppruna alheimsins. Afar skemmtilegur fyrirlestur um áhugaverðar (fríkaðar) pælingar um fyrstu sekúndubrotabrotin í lífi alheimsins eftir stóra hvellinn. Hápunkturinn var samt í fyrirspurnartímanum þegar alveg mögnuð Anna Einarsdóttir þuldi upp það helsta af lífshlaupi sínu og gortaði pínu af syninum og ætlaði alveg að fara yfir um, því henni datt allt í einu í hug að vetnisvæðingin myndi raska jafnvægi vetnis, helíums og liþíums í alheiminum (sem Lárus minntist á) svo við gætum hreinlega ekki andað mikið lengur (þurfum vetni til þess - hún vinnur á öndunarfæradeild) ef sú mikla áætlun yrði gerð að veruleika! Hvernig henni tókst það, var spurning sem birtist í hverju einasta auga í salnum - nema hennar... og reyndar Lárusar líka, því hann var alveg pollrólegur þegar hann benti henni ákveðinn á að hlutföllin sem hann talaði um ættu við ALheiminn, ekki þetta pínupínupínupínupínuagnaragnarsmá snefilefni sem jörðin væri á þeim skala. En hvernig Lárusi tókst að halda andlitinu þarna uppi á sviði er alveg ótrúlegt, því við hin engdumst um og táruðumst af (þöglum) hlátri. Við héldum svo hlátrinum áfram yfir þvottabrettaverkefninu, ég var farin að halda að Hulda og Hanna hefðu gefið mér hláturgas...

En þessi laugardagur var einn af fáum ljósum dögum. Ég fór að sofa klukkan hálf fjögur aðfaranótt föstudagsins síðasta vegna þrefaldra dæmaskila. Og í kvöld (eh, nótt...) er það klukkan hálf þrjú út af óþolandi eðlisfræðiskýrslu og þvottabrettisverkefninu, sem því miður er ekki eins drepfyndið lengur ;P Ef þið viljið finna mig í jólafríinu, leitið að mér í rúminu...

Góða nótt.

föstudagur, október 28, 2005

gleði gleði gleði

Fyrir um 5 mínútum tókst mér að leysa heilt dæmi í tvinnfallagreiningu og ég ræð mér ekki fyrir kæti *júhú-víhí-veihei*:D (ha? er ég að fara yfir um? jah, það má kannski alveg vera...) Eins og gefur að skilja er það sjaldgæfur atburður að ég hafi leyst dæmi í "tvinnfó" og sé meira að segja svo til handviss um að það sé rétt og án óþarfa málalenginga, króka og útúrdúra (sem ég er alger snillingur í í þessu fagi!), þ.e. leshæft fyrir Reyni kennara. Svo er bara að krossa putta að sú sannfæring haldist þangað til ég hef hreinskrifað lausnina - og fengið hana aftur til baka frá Reyni... *hóst* ;)

miðvikudagur, október 19, 2005

orð kvöldsins

Ég var að koma heim af lúðrasveitaræfingu (reyndar aukabrassæfingu en það er bara aukaatriði...) og sem ég ræsti bílinn hljómaði: "Góðir hlustendur, Orð kvöldsins." og stefið góðkunna byrjaði. Já, góðkunna því þegar ég var í menntó (ahh, þeir sælu tímar...) þá fór ég mjög oft að hátta akkúrat um það leyti sem Orð kvöldsins eru á dagsskrá (rétt fyrir 10). Ég var búin að steingleyma þessu, en stefið minnti mig á það. Mundi við það líka að þá komst ég í sund 6 sinnum í viku, æfði mig (næstum) almennilega á trompet, skemmti mér í hljómfræði, náði að skila öllu í skólanum og gera allt sómasamlega og fara þetta snemma að sofa að það var í grunni sálartetursins eiginlega alltaf gaman að vera til. Í fyrra fór svo sannarlega að halla undan fæti: Sund 4 sinnum í viku, oft að sofa um og eftir miðnætti, trompetæfingar svo slappar að trompettímarnir voru mest megnis spjalltímar (ákaflega skemmtilegir spjalltímar að vísu, eeen...), hljómfærðin, tjah, það hefði mátt gefa meiri tíma í þetta, náði að skila öllu með herkjum og sko ekki að gera allt sómasamlega og lífið bara alls ekki eins bjart. Núna fer ég í sund tvisvar í viku (hreinn og klár skandall), í leikfimi um aðra hverja viku, það að fara að sofa um og eftir miðnætti er frekar regla en undantekning og skil og dæmareikningar eitthvað sem er alls ekki 100%. Garg! Af hverju þarf að skemma svona skemmtilegt nám með einhverju Kleppspensúmi?

Minningin um Orð kvöldins yljar að innan.

mánudagur, október 17, 2005

málæði Bjarnheiðar systur

... hefur fært út kvíarnar og er nú einnig komið á rafrænt form. Hvað gerir hún ekki fyrir litlu systur? Oohhh, ég á svo góða systur ;D

laugardagur, október 15, 2005

... ágúst, oktember, septóber, ...

Ég veit að þið hafið beðið alveg svakalega spennt eftir lokamassa tómatsósunnar: 4.857 kg! Algert met á þessum bæ og mikið *slúrp* hlakka ég *kjamms* til að borða hana :P

Ég held að mánuðirnir hafi eitthvað ruglast á því í hvaða röð þeir eru, svona veðurfarslega séð. Mér finnst september hafa byrjað í gær (viltu ekki bara halda upp á afmælið þitt aftur, Ásta?). Held ég tali um septóber (núna) og oktember (undanfarnar vikur). Svona oktember er náttúrlega tómt klúður því haustlitirnir eru/voru ekki nærri eins fallegir, ef þeir á annað borð komu. En kosturinn er að mér finnast þessar 10°C núna vera hreinasta hitabylgja. Njótum septóber meðan varir!

laugardagur, október 08, 2005

tómatsósa

Í dag sauð ég tómatsósu úr m.a. 5,5kg af tómötum, 6 laukum og 14 hvítlauksrifjum. Ég er nokkuð að spennt að sjá hve mörg kíló þetta verða af sósu. Mest hef ég soðið 3,8kg af sósu árið 2001 en ég er nokkuð viss um að ég slái metið núna. Held ég muni líka leggja undir mig heila skúffu í frystiskápnum, ef ekki meira...

laugardagur, október 01, 2005

geggjun

Brjálaðasta vika sem ég hef nokkurn tíma upplifað er liðin. Hallelúja! Það er ekkert skrítið að fólk tali um að þessi skóli (n.t.t. raunvísinda- og verkfræðideild) sé geðfjandsamlegur.

Pollýanna: Nú get ég alltaf litið til baka og hugsað: "Jæja, þetta er þó ekki eins slæmt og vikan í lok september 2005."
Svartsýnispúkinn: Þetta er bara staðbundið hágildi, alls ekki víðfeðmt...

Ég held með báðum. Ég get þó alla vega gripið til Pollýönnu þangað til sannleikur Púkans kemur í ljós ;)

fimmtudagur, september 29, 2005

nördapróf

Ég stóðst ekki mátið að tékka á þessu ;)

I am nerdier than 79% of all people. Are you nerdier? Click here to find out!

Verst að mér er ómögulegt að muna hvað ég fékk síðast. Þessi tala ætti þó vonandi ekki að týnast svo ég get bara hafið samanburðarrannsóknir eftir sossum eitt ár :D

þriðjudagur, september 20, 2005

klukk!

Bloggeltingarleikurinn æsispennandi berst víða... En ég hef sem sé verið klukkuð af Kristjönu sem þýðir að ég verð að segja 5 staðreyndir um sjálfa mig.

1) Ég átti að vera strákur og heita Einar eftir föðurafa mínum. En ég varð stelpa og fékk því nafnið Líney eftir móðurafasystur minni (lést í bílslysi 39 ára, 1958) og Halla eftir móðurafa mínum (Hallur). Einar afi hefur líka fengið nafnið sitt því einn langafastrákurinn hans heitir Einar Páll (býr við götuna Einarsnes í húsi að nafni Pálshús, sem, ótrúlegt en satt, er algerlega óviðkomandi nafninu hans). Það passar meira að segja við postulana því afi heitir Einar Pétur :)

2) Ég er svo lík systur minni (Bjarnheiður, tveim árum eldri) að margra mati, að fólk ruglast ákaflega oft á okkur. Annað dæmi um að foreldrar mínir kunna bara eina barnauppskrift...

3) Ég var 8 ára þegar ég ákvað að ég vildi læra á trompet. Píslin ég, óendanlega feimin, var meira að segja svo ákveðin að ég talaði við lúðrasveitarstjóra skólans, Stefán Þ. Stephensen, og spurði hvort ég mætti ekki byrja strax, þótt yfirleitt mætti ekki hefja námið fyrr en 9 ára. Í stuttu máli leit hann vinalega niður á krílið og sagði að ég skyldi bíða í eitt ár, ég væri of smá og svo væri ekkert kornett (trompet sem hefur lent í smá bílslysi) laust. Ég beið, bekkjarsystir Bjarnheiðar systur skilaði kornettinu sínu (takk, Stefanía!), ég byrjaði 9 ára og var komin á kaf í litla og stóra lúðrasveit í lok vetrar. Hef spilað á trompet síðan ég var 11 ára, í mismiklum mæli þó.

4) Ég eeeelska sund, þótt ég þurfi einstaka sinnum að taka mér 5-7 daga frí til að fá ekki leið á því. Ótrúlegt hvað pirringur og leiðindi geta minnkað mikið á einum kílómetra...

5) Til er einhver formúla út frá hæð barna þegar þau eru tveggja ára, sem segir hversu há þau loks verða (*2 fyrir stelpur og *2+10cm fyrir stráka, að mig minnir). Mamma trúði því varla þá að ég myndi rétt slefa yfir 1,60m. Ég er 1,57m í dag.

Ég klukka Örnu og Kötlu, Gunna hinn, Gunna Silla og Bjarnheiði (sem hér með skal stofna blogg eða upplýsa hvar það er að finna!).

sunnudagur, september 11, 2005

afsakið hlé

Sýndist vera kominn tími á póst. Mánaðarhlé er helst til langt hlé...
Skólinn er kominn á fullt (les: við erum að drukkna), ég er með hóp 1. árs verkfræðinema í stoðtíma í línulegri algebru og er komin í lúðrasveit. Hefði jafnvel farið í hljómfræði III ef ég væri bara ekki í skólanum á sama tíma og hún er kennd. Held það sé eins gott...
Ég keypti mér miða á 13 tónleika með Sinfó um daginn, 4 fyrir jól og 9 eftir jól. Hefði meira að segja getað valið fleiri, en ákvað að peningalega og tímalega séð væri þetta orðið ágætt. Þið ættuð endilega að kíkja á dagsskrána hjá þeim í vetur. Það er líka hægt að fá mjög góðan bækling (eiginlega bók) á skrifstofunni í Háskólabíói þar sem hægt er að lesa margt skemmtilegt um flytjendur, höfunda og tónverk vetrarins. Svo er jú ekki verra að fá um 30-50% afslátt út á að vera yngri en 26 ára... ;)
En nú þarf ég að skjótast út í búð eftir smjörva áður en pabbi fer á límingunum (hverju er ekki hægt að stressa sig yfir?). Svo furðulegt sem það er, þá fékkst ekki smjörvi í Nóatúni og við verðum að vona að okurbúllan 10-11 eigi hann til.

laugardagur, ágúst 06, 2005

ferðir og flakk

Sæl, hvernig hafið þið það? Vonandi glimrandi gott. Eins og alltaf. Ég sakna ykkar slatta mikið. Hef verið svo lítið heima og ekki komist í matarboð og partý og skemmtiferðir o.s.frv. Held ég hafi heldur aldrei ferðast jafn mikið um Ísland á einu ári. Vel við hæfi eftir langa fjarvist frá elsku gamla Fróni á síðasta ári.

Ég byrjaði á að segulmæla á Snæfellsnesinu í tvo daga. Þá tók við ættarmót í Ísafjarðardjúpi og að því loknu heilmikill flækingur um Hellisheiði og Hengil í smáskjálftamælingum. Næstu ferð var heitið á Kárahnjúkasvæðið (gist við Hraunaveitu og unnið undir Þrælahálsi), 5 daga segulmælingaferð þar sem allar Evrópureglur um vinnutíma voru þverbrotnar og svo endað með skoðunarferð um göng og stíflu í blíðskapar veðri. Áfram var segulmælt og nú í 3 daga í Skagafirði (Hrollleifsdal og Hjaltadal). Evrópureglum hent út um gluggann sem fyrr. Sú ferð endaði með tveim dýrðardögum hjá afa og ömmu á Akureyri og ferð á síldarævintýrið á Siglufirði með fjórum frændsystkinum. Enn er eftir ein segulmælingaferð í Eyjafjörðinn og aldrei að vita nema ég flakki eitthvað meira. Gaman gaman.

Og nú verð ég að hætta því við erum á leið upp í Mosfellsdal á grænmetismarkaðinn þar og að hlusta á upplestur á Gljúfrasteini. Sjáumst.

laugardagur, júlí 09, 2005

vinna, vinna - víhí!

Jamms, nú er ég eiginlega í smá vandræðum því mér finnst sumarvinnan svo svaaaakalega skemmtileg að ég gleymi mér algerlega, og tímanum þar með! Þetta er eiginlega að verða að áhugamáli ;P Bráðsmitandi yfirvinnuveira þarna á Orkugarði... Neinei, kannski ekki svo afskaplega "slæmt" en Kanarnir og vinnan á Henglinum eru mjög skemmtileg, forvitnileg, lærdómsrík... (ég vann í dag lau. og fer að hitta Jonathan, annan prófessoranna, á morgun sun. til að skoða forrit hjá honum, fyrir utan að þvo ÍSOR-bílinn sem við vorum á). Krakkarnir eru yfirsighrifnir af landslaginu, útsýninu og kindunum; ein mælistöðin er kölluð "Sheep". Aðrar sem nefna má er "Devil's Road" (lélegur vegur), "Fluffy Land" (mosinn yfir hrauninu), "Death Valley" (ekki hugmynd hvers vegna!), "Sigvaldi in the Rain" (Sigvaldi gekk þvers og kruss um svæðið í grenjandi rigningu með GPS tæki til að finna norður, því þau gleymdu áttavitanum), "High Way #1" (segir sig sjálft). Alls eru um 20 stöðvar dreifðar um Hengil/Hellisheiði og krakkarnir munu næstu 5 vikurnar hossast milli þeirra á pallbíl, eftir misgóðum vegum sem gerðir hafa verið til að koma upp háspennulínum frá Nesjavallavirkjun eða fyrir framkvæmdirnar við Hellisheiðarvirkjun, og safna saman gögnum og tékka hvort tækin virki vel. Svo er bara að skipuleggja starfið vel svo þau fái frídaga reglulega til að skoða sig um :)

Ferðinni austur var frestað fram á fim. eða fös. því segulmælirinn bilaði - hvað annað! Og auðvitað áttu framleiðendurnir ekki til annað tæki, hvorki til að lána né selja!!! Baah, mælirinn sendur vestur um haf með hraðpósti og kemur vonandi aftur á mið. því okkur (og Kárahnjúkafólkinu) liggur á. Borun og Skagafjörðurinn og margt fleira bíður. Annars er nokkuð skondið að ef mælingarnar á Kárahnjúkum takast vel, þá má vel vera að það þurfi ekki bara að mæla þennan 1,5km kafla, heldur heila 30km. Sem þýðir að við Tobba mættum alveg taka okkur frí frá skólanum og vinna eins og berserkir fyrir jól ;) Hehe, glætan!

mánudagur, júlí 04, 2005

Hengillinn

Þessa vikuna mun ég aðstoða hóp kennara og nemenda frá UNC (University of North Carolina) í smáskjálftamælingum á Hengilssvæðinu. Í dag rúntuðum við um svæðið og settum upp mælistöðvar. Aumingja fólkið vann víst líka í því í gær í öllu rokinu og rigningunni. Það er líka alveg dæmigert að þau höfðu séð myndir frá hópnum sem kom hingað í fyrra (voru í Kröflu) þar sem sást endalaus sól og blíða og þar sem veðrið var skaplegt fyrir hádegi í gær, áður en þau fóru af stað "út í náttúruna", þá héldu þau að það myndi ekkert rigna og urðu hundrennandidrullublaut og köld. Úgh! Í dag voru þau öll með regnjakka...

Þetta er reglulega skemmtilegt fólk og gott að vinna með þeim. Drepfyndið að byrja að vinna með þeim í morgun þegar einn eldri nemendanna, Matt, sýndi mér hvernig þau setja saman mælistöðvarnar. Það var svo hriiiiikalega "idiot proof" hvernig hann fór í gegnum þetta skref fyrir skref. Alveg skelfilegt. Hann afsakaði sig að vísu, en virtist samt þurfa á því að halda sjálfur því þótt öll tengi væru þannig að það var ekki hægt að setja þau í vitlausar innstungur, þá reyndi hann einstaka sinnum að stinga þeim inn á vitlausum stað ;) Svo kenndi ég Matt að segja "takk", "bless", "bjór" og "einn" (honum fannst mikilvægt að geta beðið um "einn bjór"). Sé til hvort hann muni þetta á morgun :) Svo tvítékkar, þrítékkar, krosstékkar og "ég veit ekki hvað"-tékkar fólkið hlutina. Soldið óskipulagt. En alveg svakalega flottur búnaður.

Á morgun munum við setja niður eina til tvær stöðvar, kannski færa nokkrar og ná í gögn úr öðrum. Nóg að gera. Kennararnir fara svo eftir u.þ.b. viku, á sun. og þri., en þá verða nemendurnir eftir (fram í ágúst) og sjá um að rúnta á milli mælistöðvanna, ná í gögnin og athuga hvort allt sé í lagi.

Upphaflega átti ég að vera með þeim í tvær vikur, en sú áætlun breyttist (eins og allar aðrar áætlanir á ÍSOR ;) ) því stór hópur mælingafólks frá ÍSOR er að fara á Kárahnjúka 11. júlí (hmm, það var alla vega dagsetningin síðast þegar ég vissi :P). Ragna, sem sér um að halda utan um tímasetningar verkefna og pota saman áætlunum, þorði held ég ekki að prenta út áætlunina sem gilti frá síðustu viku því hún var viss um að hún myndi breytast þá og þegar. Sem var svo auðvitað raunin: Inn rann nýtt verkefni. Einhvern tíma eftir Kárahnjúkaverkefnið (1 vika) förum við Tobba í rúma viku í Skagafjörðinn í segulmælingar. Það er sko nóg að gera hjá okkur í segulstússinu - mælingar, gagnavinnsla og skýrslugerð. Svo á Tobba líka að aðstoða einhvern rannsóknarhóp í Kröflu í júlí/ágúst en þar sem við vitum enn ekki með vissu hvenær sá hópur kemur og Tobba mun að öllum líkindum fara í eitt keppnisferðalag í viðbót í sumar (óvíst hvenær), þá er þetta allt fremur óljóst enn! Sumarvinnan mín er yndi :)

ættarmót

Um helgina var ættarmót hjá Gromsurum á Reykjanesi við Ísafjarðardjúp. Við fjölskyldan fórum ásamt afa og ömmu og svo komu einnig Gunna systir pabba, Summi maðurinn hennar og dóttir þeirra Dagga ásamt tveim börnum (5 og 1 árs), manni og peru (aupair). Þetta voru allir sem mættu af ættleggnum okkar (vantaði a.m.k. 20 aðra). Við Bjarnheiður reyndum að halda uppi heiðri græna leggsins á íþróttamóti Gromsara (snúsnú, reiptog, fótbolti ...) með hjálp Döggu í reiptoginu og dóttur hennar Diljár í snúsnúinu. En við tvær gátum varla myndað 8 manna grænt fótboltalið. Svo við sameinuðumst appaelsínugula leggnum. Þá vorum við 5. Fengum að lokum að láni nokkra hressa krakka í öðrum litum. "Appelsínugræna liðið með rauðu og ljósbláu ívafi" var afar skemmtilegt lið, því hjá okkur fengu krakkarnir sko að spreyta sig; engar fullorðinstruntur að valta yfir þau ;) Svo þegar úrslitaleikirnir nálguðust var farið að spara rauðu og ljósbláu krakkana og þá voru leikmannaskiptin svo tíð að ég veit ekki hvort ég sá alla sem léku fyrir okkur í síðasta leiknum. Á eftir skunduðum við svo í það sem ég held að sé stærsti heiti pottur landsins; 52x12,5 m laug/heitur pottur. Aaahhhhh.....

Á leiðinni suður hossuðumst við yfir Þorskafjarðarheiði (í stað þess að fara Hólmavíkur og Stranda megin) og komum við í sveitinni á Stað. Víííí :)

föstudagur, júní 17, 2005

Það er fallegt að sjá tunglið á vinstri hönd og sólina á þá hægri (eða öfugt) en mengunarskýið við sjóndeildarhring er ljótt.

Gleðilega þjóðhátíð! :)

lauflétt skipulag

- dagbókarlegur pistill -

Mán. 6. júní: Ég mætti með dót í þriggja daga vinnuferð. Fannst þetta samt svolítið skrýtið því Tobba, sem átti að fara með í ferðina, kæmi í vinnuna þennan dag eftir 2 vikna "frí" (mælingaferð+skýrslugerð í samb. við HÍ). Tobba ekki mætt kl 10. Spurði Knút (verkefnisstjórann) um Tobbu og hvenær yrði farið. Hann vissi ekkert um Tobbu en "þið farið ekkert fyrr en á mið. eða fim., þurfið að læra á nýja segulmælingatækið og svona". Ágætt. Tobba enn ekki mætt á hádegi. Hm, var stúlkan veik? Hringdi í gemsann. Hún svaraði úti í Austurríki - var að keppa í skylmingum! Úbbsasí. Ég fiktaði bara í tækinu og skannaði inn gömul mæligögn.
Þri. 7. júní: Skannaði. Tobba mætti kl 10. Töluðum við Ingvar sem færi með okkur í ferðina. Sagði að við færum ekki fyrr en eftir helgi. Fórum niður á tún í Laugardalnum og prófuðum græjuna. Virkaði vel en smá vesen með GPS staðsetningu.
Mið. 8. júní: Ákváðum að fara í ferðina á mán. 13. júní. Ingvari leist svo vel á nýju græjuna að hann taldi að við yrðum bara einn dag og þyrftum því ekkert að gista. Ferðinni heitið á Snæfellsnes. Lásum leiðbeiningabækling tækisins betur. Fórum aftur niður á tún og nú með GPS tæki með okkur. Meira labb og prófanir. Gaman gaman.
Fim. 9. júní: Bæklingurinn lesinn enn betur (í tætlur). Fórum í þriðja sinn niður á tún og lærðum á horngler (t.d. notað til að pota niður 3 stikum þ.a. þær myndi rétt horn (90°)) og reyndum að láta tækið beina okkur rétt á milli stika. Tókst vægast sagt illa því ónákvæmnin í GPS staðsetningum þess var um 8 metrar - í báðar áttir! Ákváðum að stika mælisvæðið og leyfa leiðsögninni í tækinu að eiga sig.
Fös. 10. júní: Túnið enn mjög vinsælt. Fórum þangað núna til að setja límbandsmerki á 25 m fresti á tvær tæplega 500 m langar appelsínugular snúrur. Ákaflega gaman í góða veðrinu.

Mán. 13. júní; 14½ klst vinnudagur. Ókum vestur. Stunduðum hnélyftur dauðans í mosa-sinu-risa-þýfi & mýrlendi. Brennslan gríðarleg og matarlystin eftir því, en vinnan gekk auðvitað fyrir maganum. Við kláruðum ekki nærri því mælinguna. Náðum að stika þetta 400x600 m mælisvæði og mæla 3/8 þess. Þá var rafhlaðan í tækinu á einhvern óskiljanalegan hátt barasta búin. Við heim.
Þri. 14. júní; 16 klst vinnudagur. Ég og Tobba vorum sendar á Snæfellsnesið á ný og kláruðum þar mælingarnar í dúndurgóðu veðri. Brennslan hélt áfram og jókst enn þegar rafhlaðan gafst upp á nýjan leik og við bættum á okkur 2-3 kg ytri rafhlöðu til að klára fjandans mælingarnar. Vorum rosa ánægðar í lok dagsin, brunuðum í bæinn og nutum dýrðlegs sólarlags á leiðinni. Var þreytt næstu daga en allt gekk vel.

Í dag spilaði ég svo í útskrift "Global eManagement" Háskólans í Reykjavík. Nei, ekki á trompet! Ég barði litla handtrommu við leik blokkflautukvartettsins sem Bjarnheiður systir spilar í. Við lékum þegar fólkið kom til athafnarinnar, þau fjögur léku smá verk í athöfninni og svo lékum við aftur þegar fólkið kom inn í salinn þar sem það borðaði saman kvöldmat. Það var ákaflega gaman að spila fyrir þau, heilmikið stuð í þessum endurreisnardönsum, og allt mjög vel skipulagt og fínt (t.d. átti kvartettinn að leika í athöfninni kl 18:23 í 9 mínútur...). Skemmtilegt að gera svona :)

fimmtudagur, júní 02, 2005

í vinnunni

Jú, þetta var eitthvað gagnlegt sem ég var að gera. Kláraði verkefnið loksins í gær. Var að forrita í gnuplot (teiknar upp töluleg gögn og föll) og C. Ég þekkti gnuplot eitthvað en kunni ekkert í C, nema hvað það er frekar líkt og Java sem ég hef einhvern grunn í. Þetta var pínu skrautlegt. En mjög gaman. Hélt fjórum sinnum að ég væri búin að klára, en fann þá stóra galla. Allamalla. Nú er þetta þó búið. Það sem ég var annars að gera var að breyta þessu í þetta .
Myndirnar líta miklu betur út á skjánum (þurfti að afrita þær, líma inn í Paint og vista sem jpg...), en þetta gefur smá hugmynd.

Síðan hef ég verið að lesa um segulmælingatæki því ég fer væntanlega í þriggja daga mælingaferð á mánudaginn. Vííí :)

En núna er ég verkefnalaus og finn ekki verkefnisstjórann minn. Hmmm...

sunnudagur, maí 29, 2005

skemmtilegt

Gleymdi að segja ykkur frá því hvað margt skemmtilegt kemur til af því að við Íslendingar erum svo lítil þjóð. Fyrir 2-3 árum komst ég að því að þáverandi kærasti Hörpu (yngri dóttirin á Stað, '82 módel) væri eldri sonur umsjónarkennarans míns í 5.-7. bekk, Þóru Melsted. Yngri sonur Þóru, Bjarki, var svo kúarektor á Stað í a.m.k. tvö sumur, enda held ég að það séu fáir sem heillast ekki af því að vera á Stað. (Ég var kúarektor á Stað sumurin '97-99'). Ég hafði ekki hitt Þóru síðan ég lauk 7. bekk, jafnvel þótt hún kenndi enn við Laugarnesskóla og ég hjólaði reglulega þar framhjá næstu 7 árin. En þegar ég var núna fyrir vestan, skutluðust Þóra og pabbi hennar með Bjarka að Stað (Bjarki í æfingaakstri). Svo var ég svo heppin að fá far með Bjarka og foreldrum hans til Reykjavíkur þegar þau komu að ná í hann.
Merkilegt hversu langt maður þarf að ferðast til að hitta fólk sem þó er svo nálægt...

Annars er það að frétta af mér að ég er farin að gera eitthvað gagnlegt í vinnunni (vona ég a.m.k. ... ;) ) og klossfestist í Harry Potter í vikunni. Las fjórðu og fimmtu bókina (á ensku). Á síðustu blaðsíðunum í bók fimm, í dag kl 14.15, hringdi góð vinkona pabba. Jamm, sonur hennar, prófessor Finnur, hafði gleymt að hringja í m.a. okkur og bjóða okkur í útskriftarveisluna sína kl 15.00 í dag (ákaflega líkt Finni, hehe). Pabbi og mamma eru núna um það bil að lenda (voru í Svíþjóð og Danmörku) en Bjarnheiður var að vinna á Árbæjarsafni í dag. Svo ég gleypti í mig það sem eftir var af Harry Potter, blaðaði í ljóðabókum Sigfúsar Daðasonar (pabba finnst hann góður, ég treysti smekk hans) og fann prýðilegt ljóð fyrir nýstúdent. Sem betur fer áttum við gjafakort sem hentaði því ég hafði engan tíma til að hrista eitt slíkt fram úr erminni, litum og pappír. Ég skrifaði upp ljóðið, nagaði pennan *smjatt*, skrifaði (vonandi) eitthvað viturlegt í kortið og setti í umslagið *sleik*. Skipti um föt í snatri o.s.frv., hækkaði hnakkinn á hjólinu (Bjarnheiður á bílnum) og hentist af stað á Skeiðarvog með aðra hönd á stýri en hina á mjöðminni svo faldurinn á sumarkjólnum fyki örugglega ekki upp... Mætti í veisluna rúmlega fjögur. Og var ekki svikin. Finnur og fjölskylda eru yndisleg. Og vinir og ættingjar þeirra afar skemmtilegt og indælt fólk. Jafnvel þótt ég sjái þau varla nema þriðja hvert ár eða svo (vinina og ættingjana sko), þannig að þau muna tæpast eftir mér, þá er alltaf gaman að spjalla við þau og hlusta á þau. Svo var líka svo gott veður og við sátum úti og sleiktum sólskinið. Bjarnheiður kom að verða kl sex, dauðþreytt úr vinnunni með vinnukonufléttur út í loftið en var fljótt lífguð við með veitingum og spjalli. Hjólinu potuðum við í skottið á bílnum...

mánudagur, maí 23, 2005

komin heim

Ég er komin heim með lambalykt á höndunum, óhrein vinnuföt í fulla þvottavél, strigaskó sem lykta eins og heilt fjárhús og roða í kinnum. Dásamlegt. Hef reyndar ekki sofið neitt ákaflega mikið síðustu vikuna (fór alltaf á fætur kl 7 til að taka við af næturvaktarfólkinu í fjárhúsunum og yfirleitt ekki að sofa fyrr en um eða yfir miðnætti vegna skemmtilegra bóka) og var því heldur sybbin svona fyrsta vinnudaginn í dag :-S En það var svosem allt í fína. Mér líst ágætlega á þetta á ÍSOR, en það er nú voða lítið hægt að dæma um það eftir einn dag. Get fyrst farið að gera mér hugmynd um hvernig sumarið verður eftir svona viku eða tvær...

fimmtudagur, maí 12, 2005

eftir-próf plan

Það er alltaf svo skemmtilegt með prófin hvað maður man eftir mörgu skemmtilegu sem hægt er að gera. Bækur (allar aðrar en námsbækur) og bíómyndir verða alveg einstaklega áhugaverðar ásamt gönguferðum, spjalli og vefrápi. Sem betur fer á ég engan tölvuleik sem ég hef sérstakan áhuga á...

Og auðvitað er ég komin með skemmtilega "eftir-próf" dagskrá:
fös. 13.5.
- kl 16.30 klára síðasta prófið (hæ hó og jibbíjei og jibííjei!)
- kl 17.00 síðasti trompettími vetrarins, og sá síðasti í TSDK (í bili a.m.k.)
- [kvöldmatur]
- kl 19.00 hlusta á tvo fiðlunemendur í hálfgerðu vorprófi
- sundsprettur
- afmæli hjá Hófí (stærðfræðidömu)
lau. 14.5.
- pakka í snarhasti og bruna vestur í sveitasæluna fyrir hádegi
15.5. - 22.5. hlaða batteríin og gleyma flestu öðru en sauðburði, mjöltum og öðrum sveitastörfum
mán. 23.5. fyrsti vinnudagurinn á ÍSOR

Ég hlakka til!!!

sunnudagur, maí 08, 2005

Llamist af hlátri

Góða skemmtun:

The Llama Song

mánudagur, apríl 25, 2005

rúgbrauð með rjóma á

fyrsta vers:

LINEYHALLA
L is for Lovable
I is for Industrious
N is for Nutty
E is for Extraordinary
Y is for Yummy
H is for Happy
A is for Adaptable
L is for Legendary
L is for Loving
A is for Articulate

annað vers:

LINEYHALLA
L is for Logical
I is for Industrious
N is for Nice
E is for Entertaining
Y is for Young
H is for Hyper
A is for Altruistic
L is for Lucky
L is for Lovesick
A is for Arty

þriðja vers:

LINEYHALLA
L is for Likeable
I is for Influential
N is for Nutty
E is for Easy
Y is for Young
H is for Heavenly
A is for Adaptable
L is for Lively
L is for Lovesick
A is for Adventurous

... þau eru ekki eins.

Hvaða vers veljið þið?

eftirá

Skemmtilegt hvað kemur út úr svona nafnamaskínum. Minnir svolítið á stjörnuspána í Mogganum ;)

Ég steingleymdi að blogga frama minn síðustu vikur:
1) Ég fékk sumarvinnu á ÍSOR (Íslenskum orkurannsóknum) við að forrita í Linux-skeljum og fara í vinnuferðir út á land.
2) Ég var kosin skorarfulltrúi 1. árs eðlisfræðinema.

Vinnuna á ÍSOR fékk ég, skilst mér, vegna þess að sá sem sá aðallega um ráðningarnar þekkir pabba og veit að hann er klár í Linux (= dóttirin er það líklega líka) en svo vona ég að það sé líka vegna þess að áhugi minn á forritun kom fram í starfsumsókninni. Svo þið getið ímyndað ykkur um hvað umræðurnar við matarborðið munu snúast hjá okkur pabba í sumar ;) En ég hlakka gríðarlega til :D Þekki líka a.m.k. helming hinna sumarkrakkanna héðan úr HÍ, sem eru allir sérlega skemmtilegt fólk.
Skorarfulltrúi þýðir svo að ég mæti á skorarfundi í eðlisfræðiskor þegar þarf að halda þá. Hef þar atkvæðarétt, tek þátt í umræðum um það sem er að gerast í skorinni og gæti hagsmuna okkar nemendanna, ásamt Ómari sem er fulltrúi 2. árs nema. Ég er búin að mæta á einn fund og líst ágætlega á þetta. Kynnist líka nýrri hlið á prófessorunum og hækka kynjahlutfallið á fundunum úr 0% í ca. 9% ;)

Annars er ég að reyna að byrja í próflestri en gengur hálfbrösulega. Ég er alltof róleg eitthvað enda sýnist mér ég hafa 6 daga til að lesa fyrir erfiðasta prófið, 5 fyrir það næsterfiðasta og 3 fyrir sitthvort meðalþunga prófið, ef ég gef skít í það léttasta og rifja upp í ½-1 dag fyrir það (held ég þurfi svei mér þá ekkert að lesa fyrir prófið...).

Loks mæli ég með útiveru þessa dagana, t.d. trjásetu eins og Ásta vinkona stundaði um daginn. Um að gera að sækja sér krafta í vorið eftir veturinn :)

þriðjudagur, apríl 19, 2005

hitt og þetta

Er veðrið ekki yndislegt í dag? Vindurinn er hlýr! Ég fer bara að halda að það sé komið almennilegt vor og [krossa puta] bráðum sumar! Svei mér, ef ég tími nokkuð að vera hjátrúarfull og óska þess að það komi næturfrost aðfaranótt fimmtudagsins (sumardagurinn fyrsti...) ;)

Á sunnudegi fyrir rúmum tveim vikum fluttu pabbi og mamma næstum allt úr þvottahúsinu. Á mánudagsmorgni fyrir viku huldi Bjarnheiður stigapallinn við forstofuna, stigann niður í kjallara og gólfið í kjallaraholinu með byggingaplasti og límdi sem vitlaus væri með málaralímbandi upp á vegg. Þetta var allt gert vegna „yfirvofandi“ skólplagnaframkvæmda í raðhúsalengjunni okkar. Borunin hófst svo í okkar húsi ekki fyrr en núna í gærmorgun. [Við erum rosalega fegin að vera úti á enda og vera þar með síðust í röðinni, því þvottahúsgólfið er búið að vera opið í að verða tvær vikur hjá þeim fyrstu í röðinni núna (t.d. ekki hægt að þvo þvott o.fl.).] Við Bjarnheiður klæðum okkur því í útiskó til að komast í herbergin okkar til að sofa. Nokkuð sérstakt. En mamma er arfapirruð og undin eins og gaddavír yfir framkvæmdunum, borhávaðanum og öllu rykinu og veseninu. Hvernig væri hún ef við hefðum verið fyrst í borunarröðinni?
Ég flúði hins vegar til ömmu og afa í Sigtúni í gær eftir skóla og steinsofnaði á sófanum hjá þeim, við tifið í klukkunni í stofunni; tikk takk tikk takk. Enn soldið slöpp eftir að smá kvefpest um helgina.

Hugi frændi fermdist borgaralega á sunnudaginn. Bjarnheiður var fulltrúi okkar fjölskyldu við athöfnina og skemmti sér konunglega. Tvær bráðefnilegar rokksveitir úr röðum fermingarbarna, Felix Bergsson, Halldóra Geirharðsdóttir / Barbara trúður, Sigrún Valgarðsdóttir o.fl. Það óð svoleiðis á henni þegar hún var að lýsa öllu fyrir okkur :D Við gáfum Huga 50+10 lítra bakpoka og buff fyrir hárlubban í fermingargjöf. Við Bjarnheiður pökkuðum þessu inn eins og skútu (Hugi er siglingakappi) með buffið sem [landa]kort. Skútan hét náttúrlega Gjöf EA ;) Hugi var reglulega ánægður með Gjöfina og við þá auðvitað líka :) Svo var líka ákaflega skemmtilegt að amma kom með Huga og fjsk. frá Akureyri og hún gisti hjá okkur þessa daga, mið.-sun. (Hlynur, Kristín, Hugi og Lóa gistu hjá Gunna og Huldu).

sunnudagur, mars 20, 2005

páskafrí

Ég held að það hlaupi allsvakalegt páskafrí í mig á þriðjudaginn svo ég geri ekkert af viti, nema jú mæta á k-tu afleiðuna (þó einhverjir telji vafasamt hversu vitlegt það er...) En ég ætla þá að njóta þess í botn :) Má reyndar vera að ég muni liggja sveitt yfir #%"$&#% verkbók fram eftir þriðjudeginum, en krossum putta :P

Svo liggur ljóst fyrir að miðvikudagurinn fer í þreytu og "vaáááá-engin-skil-á-morgun"-spennufall. Svo sé ég fram á að ég raði mínum 5 námskeiðum niður á jafnmarga frídaga til að ná því upp sem einfaldlega komst ekki fyrir í námsbylnum sem geisað hefur frá áramótum (hve mörg ykkar hugsuðu eða reyndu að rifja upp málsgreinina: "Stríð geisaði og hermennirnir geystust fram á vígvöllinn"??? Sé glottið á Arngrími [íslenskukennara] fyrir mér ;D ) en gleymi því svo að skóli sé yfirleitt til á páskadag. Líkurnar á að planið haldist eru ~0,1.

Hm, þetta er nú frekar klikkuð tilvera. Ég er a.m.k. fegin að hafa hent mér út í aupair-störf (í Þýskalandi, jan-júl 2005) því annars myndi ég efast um að ég hefði gott af þessu. En þar sem ég veit að ég GET plumað mig í einhverju allt öðru en skóla þá róast ég eitthvað. Furðulegt ekki satt?

fimmtudagur, janúar 20, 2005

ekkert er svo með öllu illt að ei boði gott...

Bjarnheiður systir er búin að vera veik síðan á mánudaginn. Eyminginn hefur legið í bælinu með allt að 39°C hita og örugglega að farast úr áhyggjum yfir verkefnaFJALLINU sem hefur hlaðist upp eins og Himalajafjallgarðurinn á meðan hún lá bjargarlaus undir þessari skyndiárás miskunnarlausra hálsbólgukvikinda sem nýttu sér missvefn og skrall vel heppnaðarar skíðaferðar síðustu helgar til hins ýtrasta. En þótt líkaminn sé ofurseldur sýklastríði gildir svo sannarlega ekki það sama um hugann. Og hjá Bjarnheiði systur var hugurinn ákaflega virkur, myndi ég ætla. En þar sem hún hefur ekki smíðað sér bloggsíðu, fær hluti hins frábæra afraksturs hugar hennar að fljóta inn á mína.
ATH. Ef þú ert með harðsperrur í magavöðvunum og vilt ekki reyna á þær, lestu þetta þegar vöðvarnir eru aftur orðnir mjúkir og fínir...

Innlegg Bjarnheiðar:

Sem ég lá með hita drjúgan part úr viku og gat ekki annað fór ég að velta ýmsu fyrir mér - meðal annars því hvernig það nú væri að senda álíka póst og þennan hér að neðan á fólk sem sendir manni leiðinlega FWD: pósta (dæmi um leiðinlega FWD: pósta eru svona "bad-luck-year-if-you-dont-send-it-to-at-least-50-friends-of-yours"-leiðindi... sem geta notabene leitt til þess að maður verði 50 vinum fátækari... ef maður sendir það áfram þ.e.a.s.)


---
EKKI SENDA ÞETTA ÁFRAM!!!

Lúðvík (48) sendi þetta ekki áfram og fann 50-kall á gólfinu á Núllinu!
Jóna (21) sendi þetta ekki áfram og fékk að smakka nýja pastasósu á smakkstandi 10-11!
Rútur (2) fékk senda heim fría prufu af nýju extra-super-ultra-plus bleyjunum!
Arnfríður (93) mundi skyndilega hvar hún hafði lagt frá sér gleraugun!
Draumey (51) fann sína innri gyðju!

Ert þú að hugsa um að senda þetta EKKI áfram...
...á 100-200 þúsund manns? Hey! Þú getur nú gert betur en þetta, ha?!
...á milljón-milljarð manns? Jæja - þetta er bara allt að koma hjá þér
...á NEINN? (einmitt - ekki sálu) Já! Þetta er rétta hugarfarið! Svona leiðinlegan póst og alla hans líka á ENGINN skilið að fá!

Hvernig fékkst þú þá þennan póst?
Jú, hann var sendur AFTUR Á BAK - sem RE: póstur við leiðinlegum FWD: pósti
Ekkert svona aftur, takk.
Góðar stundir...
---

Jæja þá vantar mig bara betrumbætur og niðurrif (dæmi um niðurrif: þetta er alveg ömurleg hugmynd, farðu nú að sofa :P )

Kveðjur frá
Bjarnheiði :)

Þetta er ykkur velkomið að klippa, líma og senda eins og hugsuðurinn stingur upp á.

E.S. Þeir sem ekki vita, þá er Núllið almenningsklósettin í Bankastrætinu og hafa þau sum sé heimilisfangið Bankastræti 0, 101 Rvk.

miðvikudagur, janúar 05, 2005

öflug ýta

Merkilegt hve auðvelt er að ýta hlutunum á undan sér, þegar maður er einu sinni byrjaður á því. Hversu oft ætli ég hafi ekki hugsað eða sagt: „Nei, ég hef ekki sekúndu til þess núna. Geri það um helgina / eftir stóra verkefnið / eftir próf / milli jóla og nýárs / eftir áramót /...“. Kannist þið við þetta? Og þetta á ekki bara við einhver stórverkefni eins og að hreinsa til í hillunum, henda eldgömlum lúðrasveitarnótum í blaðagáminn og hinu blaðadótinu í kassa og upp á háaloft (þar sem það mun hreiðra um sig þar til ég kemst á eftirlaun eða foreldrar mínir flytja), heldur líka eitthvert smotterí eins og að fara í banka og stoppa í sokkabuxur. Verkefnin og smásnúningarnir eru hreinlega orðin rótgróin bak við eyrað á mér eða á hinum og þessum minnismiðanum, vilja einfaldlega ekki strikast út. Ég er orðin svolítið þreytt á þeim...