listi
Ég skrifaði lista á Þorláksmessu yfir það sem ég ætti að nota tímann í milli jóla og nýárs. Og raunar ekki yfir það sem ég ætti að gera heldur yrði að gera. Nú er ég farin að halda að listinn hafi öðlast sjálfstæðan vilja og ákveðið að vera listi yfir það sem yrði ekki gert... Nema ég hafi bara skrifað það sem ég var hrædd um að myndi "gleymast"? Alla vega hefur mér tekist að finna ýmislegt annað að gera en skrifa heillangt jólabréf á þýsku eða senda fyrirspurn til Tækniháskólans í München; m.a. fara í gegnum 81 myndbandsspólu í eign fjölskyldunnar og uppfæra spólulistann (tók 2 daga), fara í bíó (mörgæsamyndin er flott!), taka góðan tíma í ræktina (fékk vikuprufu í WorldClass sem árskortshafinn mamma fékk með jólakortinu frá WorldClass), fara sem sérlegur ráðgjafi pabba í jakkafatakaup, baka hinn árlega óhemjutímafreka trönuberjakastaníuhring og horfa meira á sjónvarp en góðu hófi gegnir. Hvað WorldClass varðar þá er ég alls ekki týpan í þessa líkamsræktarstöð, en nýt þess samt í botn að púla á róðrarvélinni enda eina líkamsræktargræjan sem ég gæti hugsað mér að eignast fyrir utan góða dýnu. Sundið er mín hilla. Það er hins vegar gott að geta hent sér út í almennilegar maga-, bak-, liðleika- og teygjuæfingar à la Vadim (sundþjálfarinn minn). Fékk nett nostalgíukast í þessu :)














