miðvikudagur, janúar 30, 2008

forystusauður

Jamm, ég hef forystuna á þessu heimili í sauðshætti. Hreinlega mala Sigurð í þeirri grein. Sem betur fer er þetta nú yfirleitt sauðmeinlaus sauðsháttur í mér, svo aðalafleiðingin er sú að líf okkar lengist um nokkrar mínútur eftir duglega hláturroku. Me-e-e.

mánudagur, janúar 28, 2008

skammtafræði hvað?

Sigurður er að læra þýsku hérna í háskólanum, þ.e. dusta rykið af menntaskólaþýskunni svo náms- og samstarfsmöguleikar í t.d. Þýskalandi og Sviss lendi ekki úti í kuldanum. Við vorum að pæla í fallbeygingum lýsingarorða. Ég kom með þessa almennu reglu að beygingin sé veik ef ákveðinn greinir er á undan lýsingarorðinu (=skaftpottsreglan gamla góða) en ef greinirinn er enginn, þá sé beygingin sterk. Sigurður kinkaði kolli við meltinguna á þessu. Svo bætti ég við að reyndar væri beygingin líka veik ef t.d. óákveðið persónufornafn væri á undan lýsingarorðinu. "Skammtafræði hvað?" heyrðist þá handan frá eldhúsborðinu :D Ég segi það. Ég var ekki einu sinni komin að því að beygingin sé hins vegar sterk ef t.d. eignarfornafn kemur á undan lýsingarorðinu... Gott ef það var ekki eitthvert hringl á sumum þessara fornafna eftir því hvort um eintölu eða fleirtölu er að ræða. Skammtafræði hvað?!?

sunnudagur, janúar 27, 2008

vrrrúmms

Það er aldeilis kraftur í þessu veðri, minn sann! Nei nei, engar skemmdir eða óhöpp hér, allt í fínasta lagi. Það verður bara seint sagt að húsendinn okkar standi í skjóli... Ég varð þreytt á endalausu hjakki í gluggunum í dag og lokaði því þeim glugga sem fær mest að kenna á því hjá Kára karlinum. Eftir nokkrar klukkustundir varð heldur loftlaust svo ég opnaði rifu á svaladyrnar fyrir skyndiloftræstingu. Svússsj. Það liðu ekki nema nokkrar sekúndur og þá var endinn á öðrum gardínuvængnum í stofuglugganum kominn út og búinn að velta kertakrúsinni frá afa í Sigtúni um koll í gluggakistunni. Ég var ekki lengi að loka dyrunum á ný og var því fegnust að kertastjakinn var óbrotinn (er úr gleri). Hélt fyrst að eitthvað hefði hreinlega fokið út um gluggann. Enginn smáræðis súgur. Svo voru gluggarnir auðvitað hamraðir duglega í éljahryðjunum - ratatatata! Sannkölluð stórskotahríð. Svei mér þá ef ljósin blikkuðu ekki líka tvisvar í dag. Þegar Sigurður kom heim um kvöldmatarleytið eftir að hafa rölt úr VR-III hingað niður á garðana (innan við 5 mínútna spotti), þá var eiginlega eins og einhver hefði spúlað hann... Alltaf stuð á fróni á þorranum ;)

miðvikudagur, janúar 23, 2008

borgar-ó-stjórn

Eruð þið líka búin að fá nóg af klækjunum í borgarstjórn? Þá getið þið fengið smá útrás hérna... Annars minntist amma í Sigtúni á það að einhver í útvarpinu hefði talað um soldið skemmtilegan lið í sveitarstjórnarlögum: Ef illa gengur að koma saman stjórn í einhverju sveitarfélaginu, þá ku nágrannasveitarfélög mega koma inn í dæmið. Ðaldég Gunnar I. Birgisson myndi fíla sig vel í Reykjavík: "Það er gott að búa í Kópavogi... hm, og Reykjavík".

föstudagur, janúar 18, 2008

notalegheit, hangilæri og gönguskíði

Ég var ekki í neinum tíma í háskólanum í gær og fannst ég hafa ósköp lítið að gera (sem er auðvitað ranghugmynd, það er fullt að gera, bara ekki brjálæðislega hryllilega mikið að gera...). Þar sem ég átti erindi austur í bæ klukkan ellefu, þá hringdi ég í ömmu og afa í Sigtúni og athugaði hvort ég mætti ekki kíkja í hádegismat. Það voru jú að verða tvær vikur síðan ég sá þau síðast. Þar beið mín steiktur fiskur, hrásalat og notalegheit. Það var meira að segja svo notalegt að ég nennti ekkert að fara strax eftir matinn og fann mér það til afsökunar að "leika" mér að ljósmyndaprentaranum ásamt afa. Ég hafði nefnilega tölvuna með, svo í stað þess að prenta beint út úr myndavélinni þeirra, þá skelltum við myndunum á tölvuna mína og prentuðum nýjustu myndirnar með jöfnum, hvítum kanti, afa til mikillar ánægju. Amma bættist síðan í hópinn til þess að setja myndirnar í myndaalbúmið og skrifa myndatexta.

Um hálffimm í gær fékk Sigurður að vita að það væri búið að skella kjötfjalli ofan í pappakassa og senda suður, Flytjandi væri kominn með hann í afgreiðsluna hérna fyrir sunnan. Hann skrapp að ná í hann. Pappakassinn var auðvitað ekkert lítill, raunar á við 2/3 af frystinum okkar. Í honum leyndist, innan um helling af lambalærissneiðum, -kótelettum og -hrygg, þetta líka fallega og flennistóra hangilæri. Svei mér þá, við héldum fyrst að það kæmist ekki einu sinni inn í frystinn. Það reyndar gekk, en þá komst hin frystivaran ekki fyrir... Svo þá var hafin leit að frystiplássi - hjá pabba og mömmu, auðvitað. Ojú, lærið rétt svo passaði inn í frystiskápinn þeirra. Um leið var ákveðið að lærið yrði matreitt hjá þeim, því við eigum ekki græjur til að elda svona flykki ;) Meðan Sigurður hringdi í móður sína til að þakka fyrir okkur (og reyndar aðallega spyrja hvernig í ósköpunum þeim hefði dottið í hug að senda svona stórt hangilæri... ;D) náðum við pabbi í gönguskíðin hennar Bjarnheiðar niður í kjallarageymslu svo ég gæti tekið þau með vestur eftir.

Núna áðan skellti ég mér á gönguskíðin inn Skerjafjörð að Skeljanesi og svo til baka út á Ægissíðu. Það var einfaldlega dásamlegt! Laaaanga lýsingarorðið úr Mary Poppins á einstaklega vel við hérna - supercalifragilisticexpialidocious ;) (þekkir einhver íslensku þýðinguna á orðinu?) Verst að ég man akkúrat núna að ég gleymdi að teygja á. Ojamm. Eeen ég vandaði mig mikið við að rétta úr öxlunum meðan ég skíðaði, mamma 0;) Farin í sturtu...

mánudagur, janúar 14, 2008

úr bálki hrakfalla prófessor Líneyjar

Í morgun reyndi ég að hringja í lækni til að panta tíma. Fékk að heyra í hinni ofurhressu símsvararödd um að allar línur væru uppteknar. Svo var loksins svarað. "Kcchhrrssgóchssðanscchhrsjdachhgkrrchrr..." heyrðist á hinum endanum. Ööö, ha? Líney: "Halló, halló?" Að lokum var lagt á þarna hinum megin. Ég prófaði að hringja í Sigurð og komst að því að gemsinn væri í fína lagi. Spurning hvort símanum hjá læknastofunni væri svona illa við farsíma eða hvort hann væri almennt bilaður.

Um hálf ellefu í dag mætti ég á Orkugarð til að gera sérverkefnið mitt klárt til útgáfu. Þarna hófst ansi skemmtileg flétta. Ég þurfti að finna Hrafnhildi útgáfustjóra ÍSOR, en ég kannaðist ekkert við hana og spurði því eftir "Hrafnhildi sem sér um útgáfumál hjá ÍSOR" í afgreiðslunni. Var þar vísað á Hrafnhildi í sameiginlegu þjónustunni fyrir ÍSOR og OS. Hún sagði mér að hún sæi ekki lengur um útgáfumál, það væri hún Lára uppi á 3. hæð (OS) sem sæi um slíkt. Nú jæja. Ég tölti þangað, til þess að komast að því að Lára sæi auðvitað bara um útgáfumál fyrir OS, ekki ÍSOR. Það væri hún Brynja sem sæi um slíkt á ÍSOR. Ájæja. Ég vissi þó hver Brynja væri. Niður á 2. hæð hélt ég og fann Brynju. Hún tjáði mér að hún sæi ekki lengur um svoleiðis á ÍSOR, heldur hún Hrafnhildur. Æi-nei... Þá rann upp ljós fyrir Brynju í hvað flækju ég hefði lent - það væri sko Hrafnhildur þessi nýja sem væri útgáfustjórinn. Ahm. Loooksins komst ég í réttar hendur!

Svo leið dagurinn við að snyrta og snurfusa skýrsluna mína og koma henni á rétt form (hún er sko rúmar 30 bls í 11 punkta letri...). Einn ljós punktur var að pabbi var ekki á fundi úti í bæ í hádeginu, heldur á Orkugarði, svo ég fékk matarmiða hjá honum til að þagga niður í görnunum.

Um tuttugu mínútur í fjögur, þ.e. 10 mínútum seinna en ég ætlaði að leggja af stað upp í HÍ til að mæta í tíma, þá hrökk ég upp og spanaði út í bíl. Þar rann að kona á station-bíl og bakkaði honum inn u.þ.b. hálfu stæði frá hliðinni á mér. Meðan ég dustaði snjóinn af bílnum juðaði hún sínum bíl a.m.k. fjórum sinnum fram og til baka og endaði svo nálægt mér að hún gat ekki opnað hurðina almennilega og þurfti að smeygja sér út. Greip piparkökubox úr aftursætinu meðan ég ræsti bílinn og fór. Þá leit ég í kringum mig og sá að helv**** bey**** hafði lokað mig pent inni í stæðinu, með Ford-trukk fyrir aftan mig og LandCruiser til hinnar hliðarinnar (bil milli bílaraða þarna er naumt skammtað, svo það er ekkert grín að hafa Econoliner fyrir aftan sig...). Frábært! Ég ákvað nú samt að reyna og færði bílinn varlega fram og aftur og fór meira að segja svo langt að stuðarinn snerti bæði Fordinn og Krúsann. En sénsinn! Svo ég kom bílnum aftur á sinn stað í stæðið (nei, hjúkket! ég var ekki búin að festa hann á ská milli allra bílanna) og hringdi í pabba til að athuga hvort hann gæti reddað lyklum að Fordinum til að færa hann tæpan hálfan metra innar í sitt stæði eða hjálpað mér við að koma bílnum út. Hann fann ekki lykla fyrir Fordinn, en kom út þar sem ég plantaði honum í bílstjórasætið meðan ég stóð og veifaði höndum. Eftir 3 atrennur tókst þetta. Jiminn, það sem ég var fegin. Hins vegar var ég orðin alltof sein í tíma við þessa töf og lenti að auki í upphafi 4-umferðarinnar miklu á Miklubraut. En tjah, í tímann komst ég þrátt fyrir brasið, sem var indælt.

Þegar ég kom heim fattaði ég að ég hafði gleymt bæði að hringja í lækninn úr einum af fastlínusímum Orkugarðs og líka að setja bréf í póst (það er pósthús í sömu byggingu og Orkugarður). Éssörí...

þriðjudagur, janúar 08, 2008

pistill í bjarnheiðskum stíl

Jæja... Jólin búin, nýtt ár gengið í garð og skólinn barasta byrjaður. Ðaldégnú. Fyrsta einkunnin skilaði sér fyrst núna í morgun, sem er pínu pirrandi, en þó vel skiljanlegt vegna óvenju "frívænnar" jólalegu og flandurs kennaranna til útlanda að leita uppi snillinga á borð við sjálfa sig. Þetta skilar sér allt á endanum.

Ég kýldi á maraþonjólakortagerð og smákökubakstur strax að loknu síðasta prófinu. Svo var farið í árlega jólaverslunarferð, með tilheyrandi stunum, æi, jæji, grettum, gjafaheilabrotum og sjálfsvorkunn. Ferðin gekk prýðilega fram til um klukkan fimm. Gjafirnar röðuðust einhvern veginn af sjálfu sér á hvern ættingja og mér tókst meira að segja að finna jólagjöf handa sjálfri mér, Sigurði til mikils léttis (ég er alger vandræðamanneskja þegar kemur að því að finna gjöf handa sjálfri mér). En nú nú, um fimmleytið lögðum við af stað úr miðbænum upp í Intersport á Ártúnshöfða til að athuga með síðustu gjöfina, þ.e. gjöf handa Sigurði frá mér. Við þóttumst vita að Hringbraut/Miklabraut væri stífluð og komum okkur út á Sæbraut í von um oggulítið betra umferðarflæði. Okkur til mikillar hrellingar komumst við að því að umferðin þar var á um 10 km/klst hraða frá mótum Sæbrautar og Laugarnesvegar og alla leið svo langt sem augað eygði. Við lulluðum þetta í um hálftíma en gáfumst upp þegar við vorum komin að Holtavegi, beygðum þar út úr bílaröðinni og komum okkur heim til pabba og mömmu þar sem við sátum um stund og sögðum "ga-a-a-a-a!" Mjah, kannski ekki alveg, en svona því sem næst ;) Við vorum boðin í fisk þangað um sjöleytið en matseldinni var einfaldlega flýtt til að bjarga sálarheill okkar. Jólakortavinnu og jólahreingerningu var lokið í kringum miðnætti og þá var barasta hrunið í bólið.

Okkur tókst að koma okkur af stað um hálf tíu morguninn eftir og að loknu smá snatti komumst við gegnum Mosfellsbæ um hálf ellefuleytið. Ferðinni var heitið norður á Ærlæk með smá stoppi á Akureyri og við hreinlega brunuðum þetta (á tiltölulega löglegum hraða) því færðin var eins og um haust - allir vegir auðir en rigningarsuddi mest alla leiðina til Akureyrar, nokkuð þurrt eftir það. Í Grundargerði var laufabrauðsskurður í fullum gangi hjá afa og ömmu, Hlyni, Kristínu, Huga, Lóu og Unu litlu (sem veitti andlegan stuðning ;) ). Við skiluðum nokkrum jólagjöfum og jólakæfu pabba af okkur og fengum heitt súkkulaði, brauð og kökur í hressingu. Náðum alla leið á Ærlæk um sex, hálf sjö en pústuðum þó ekki lengi, því klukkan átta var sýning unglingadeildar Öxarfjarðarskóla á söngleiknum Wake me up before you go go. Sýningin var snilld. Auðvitað hengu einsöngvararnir misvel í nótunum og sumir voru betri leikarar en aðrir, en ég skemmti mér konunglega :) T.d. var þetta mun skemmtilegra heldur en sýningin Leg í Þjóðleikhúsinu sem við Sigurður sáum fyrir ekki svo löngu. Og Sylvía stóð sig eins og hetja. Mig grunar að það hafi verið fleiri en einn og fleiri en tveir sitjandi í salnum sem voru að rifna af monti ;)

Sylvía söngdíva :)

Baldur í Klifshaga fór á kostum í hlutverki Tomma litla.

Svo hófst hin hrikalega skekking á sólarhringnum. Háttatími um þrjú, fjögur að nóttu og fótaferðatími eftir hádegi varð venja. Afslöppun, ýmislegt stúss úti í fjárhúsum, ótæpilegt sjónvarpsgláp, ofát, (fremur árangurslítil) framhaldsnámsleit, jóla-hitt og jóla-þetta og ýmislegt fleira létu dagana líða hratt og örugglega hjá. Það voru rjúpur í matinn á aðfangadag, þrátt fyrir litla veiði þetta árið, því það voru til nokkrar ársgamlar í frystigeymslu fjölskyldunnar á Ærlæk hjá Fjallalambi. Það er svo langt síðan ég fékk rjúpur að ég man ekki hvenær það var! En mikið voru þær góðar :)

Leiðinlega fólkið sem ekki vildi tala við Sylvíu sína. Sko bara, við erum meira að segja í stíl!

27. desember steig ég upp í rútu sem hélt í heldur blindum byl inn að Húsavík, þar sem önnur rúta flutti mig til Akureyrar til afa og ömmu. Þar náði afslöppunin hámarki, eins og búast mátti við :) Sund, spil, labbitúrar, bóklestur, heimsóknir í Ásabyggð og hellingur af mat einkenndu þá dvöl.

Ég gleymdi alveg að taka myndir í þetta sinn, en hér er ein síðan í fyrra af afa og ömmu á göngu í Kjarnaskógi.

Áður áætluð sunnanför þann 30. desember frestaðist til 31. desember út af hinu stuðmikla veðri. Þrátt fyrir hvassviðri og hálku á heiðum og blindhríð á Holtavörðuheiði, þá tókst okkur Sigurði og Hörpu að komast klakklaust til höfuðborgarinnar. Harpa hélt ásamt kærastanum sínum, honum Magga, áfram á Flúðir til foreldra hans en við Sigurður vippuðum okkur í sparifötin og renndum inn á Laugarnesveg til pabba og mömmu og Bjarnheiðar, þar sem sú síðastnefnda var að springa úr spenningi fyrir okkar hönd yfir innihaldi nokkurra jólagjafa sem þar biðu okkar. Ég á nú alveg dásamlega systur :D Nújæja, þegar pakkarnir höfðu verið opnaðir og við búin að hlæja dátt að glettnislegu innihaldi þeirra (afsakið, heldur langt að útskýra), þá fórum við í Sigtúnið til Gunnu frænku og Summa í hinn árlega áramótakalkún. Smjatt! Kvöldið þar leið ákaflega vel með sprengfullum mallakút og helling af bombum á himni, þrátt fyrir heldur hryssingslegt og lítt flugeldavænt veður. Og já, áramótaskaupið var nú ekki svo slæmt. Hvorki frábært né lélegt. Alla vega hló ég yfir meirihluta þess, að ég held, sem telst nokkuð gott. Það eina er að þessi atriði sem gera grín að sjónvarpsþáttum fara gjarna fyrir ofan garð og neðan hjá mér því ég horfi agalega lítið á svoleiðis, fyrir utan að t.d. (h)eldra fólk og vinnualkar grípa þau sjaldnast (af sömu sökum og ég), svo þau pirra mig pínulítið.

Frá áramótum hefur tíminn einhvern veginn liðið við át, svefn, sjónvarpsgláp og verslunarferðir við skoðun+kaup á leirtaui og hnífapörum. Við fengum nefnilega diska og skálar að gjöf frá móðursystrum Sigurðar og hnífapör frá foreldrum hans og vildum fullvissa okkur um að þetta væri það sem við værum sáttust við á markaðnum (jú jú, við erum bæði með hryllilega fullkomnunaráráttu í flestum fata- og búsáhaldainnkaupum sem passar ekki alveg nógu vel við hátt stig óþols á verslunarferðum... :P ;) ). Nújæja, hnífaparaviðskiptin urðu hin skemmtilegustu því við það að skila&skipta og skila unnum við okkur inn um 6500 kr. Ha, hvernig? Jú, við skiluðum fyrst hnífapörunum sem við fengum í jólapakkanum og fengum um 10.000 kr inneignarnótu. Hins vegar stóð á hillunni í verslunninni að viðkomandi hnífapör væru á tilboði, þ.e. hnífaparapakkarnir tveir áttu að kosta samtals 6000 kr og það var líka verðið sem foreldrar Sigurðar greiddu fyrir amboðin. Sem sé 4000 kr komnar þar. Við sáum í verluninni ágætis hnífaparasett, þ.e. svona hnífaparatösku með hnífum, göfflum, skeiðum, teskeiðum, kökugöfflum, súpuausu o.s.frv. og keyptum hana. Greiddum fyrir hana tilboðsverð, tæpar 6000 kr. Morguninn eftir sáum við að þótt hnífarnir væru vel öflugir, þá voru skeiðarnar og sérstaklega gafflarnir heldur veiklulegir og með vöðvabolta (aka böðul ;) ) eins og Sigurð á heimilinu myndi það þýða margar beyglaðar skeiðar og gaffla innan árs. Svo við fórum og skiluðum töskunni - og fengum inneignarnótu upp á venjulegt verð, 8500 kr! Þar bættust því við 2500 kr. Samtals fengust 6500 kr. (Ojú, hér hefðum við getað tekið upp á því að endurtaka þennan leik aftur og aftur og mokgræða, en við erum nú ekki svo óheiðarleg...!) Hnífaparasettið sem upphaflega kostaði 6000 kr var því orðið 12500 kr virði, þannig séð, svo við ákváðum að leita að verslun sem seldi ofurlítið sterklegri hnífaparasett. Römbuðum fyrst inn í Tékk Kristal, eftir ráðfæringar við foreldra á báðum vígstöðvum. Fundum þar hnífaparasett (tösku) sem uppfyllti allar kröfur - og kostaði 11900 kr á tilboði, gamla verðið var 17900 kr. Þ.e. ef menn vilja reikna okkur sem mest í hag, þá breyttust 6000 kr hnífapör í 18000 kr hnífaparasett ;D Síðustu daga hefur Sigurður ekki talað við mömmu sína án þess að vera spurður hvort hann sé enn í braskinu og hún móðir mín hlær dátt og líkir okkur við Silla í Spaugstofunni (níski kallinn sem gernýtir öll tilboð og passar vel upp á rétt sinn sem neytandi). Mikið stuð, mikið stuð ;)