Sýnir færslur með efnisorðinu ferðir. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu ferðir. Sýna allar færslur

föstudagur, júní 29, 2012

þrír fjórðu og einn mánuður

Í dag er síðasti dagurinn sem ég ætla að þrjóskast við að reyna að vinna. Nokkuð viðeigandi því í dag er akkúrat mánuður í settan dag(!). Í næstu viku verð ég því komin í sumarfrí og get loksins spýtt í lófana með að klára blómateppið, litlu peysuna, lopapeysuna hennar Láru frænku, barnateppið úr blómateppisafgöngunum o.s.frv. Ekki það, ég hef sosum verið í hálfgerðu fríi þessa viku líka, en þó náð að gera eitthvað vinnutengt. Þarf "bara" að klára hlutina af í dag og koma þeim áfram á vinnufélagana...

Annars er náttúrlega ýmislegt búið að gerast síðan ég bloggaði þarna fyrir löngu. Það tókst að gera svona næstum allt fyrir Íslandsför. Einhvern veginn tókst okkur að troða öllu okkar hafurtaski ofan í tvær töskur, flugfreyjutösku og bakpoka án þess að vera með yfirvigt (í innrituðum farangri, það er að segja, ehemm... ;) ). Svo fór brottfarardagurinn í tiltekt og maraþonþrif á íbúðinni. Svo sannarlega hægt að mæla með því að fara í burtu í lengri tíma og leigja út íbúðina sína á meðan - leiðir til þess að afskekktustu krókar og kimar eru þrifnir og ótrúlegasta samansafn af (hálf)ónýtu dóti trillar út í ruslagám. Eina sem pirrar mig er að við náðum ekki að þrífa gluggana... En hvað um það, við lögðum af stað í rólegheitum og komumst stresslaust út á flugvöll tæpum 3 tímum fyrir brottför. Þurftum meira að segja að bíða í um korter þar til opnað var í farangursmóttökunni. Svo var nægur tími til að rölta um Kastrup, fá okkur að borða og svona. Við reyndumst svo heppin að fá eina sætaröð út af fyrir okkur í flugvélinni, svo ég gat kúrt mig niður í tvö sæti mest alla leiðina - orðin ansi þreytt eftir hasar daganna á undan. Þar sem ég lá þarna á bakinu skemmti krílið Sigurði með því að hendast um bumbuna og stinga hælunum lengst út í loftið. Gasalegt fjör ;)

Svo hefur tíminn farið í þetta venjulega, hitta fjölskylduna, borða skyr og fisk og lakkrís, fara í sund o.s.frv. ásamt því að vinna og koma sér smátt og smátt fyrir í íbúðinni hennar Bjarnheiðar systur (sem hún náði að skrifa undir kaupsamning á 6 klst áður en hún tók flugið yfir á meginland Evrópu!). Þetta er fallegasta íbúð, allt ytra byrðið nýuppgert (þ.e. útveggir, gluggar, svalir) en innréttingin og gólfefnið eru orðin ansi lúin, auk þess sem þarf að mála hana. En það er allt eitthvað sem má endurnýja og laga í rólegheitum allan ársins hring. Það var bara skverað inn rúmi, eldhúsborði, tveim stólum, eldhúsdóti og smá samansafni af húsgögnum í stofuna - svona þegar Sigurður var búinn að jafna sig að mestu á kvefinu sem tók á móti honum á Íslandi og ég var tekin við því...

Tengdó renndu í bæinn í gær í smá kaupstaðarferð áður en heyskapur fer á fullt skrið. Við fórum með þeim út að borða á Silfurtunglinu þar sem Maggi kærasti Hörpu systur Sigurðar kokkar. Ansi hreint notalegur veitingastaður. Það var rólegt þar í gærkvöldi, svo Maggi hafði tóm til að koma og sitja með okkur og rabba um stund. Ekki amalegt það og maturinn auðvitað sva-ha-ha-kalega góður. Mæli með þriggja rétta tilboðinu á Silfurtunglinu! (Sjávarréttasúpa, lungamjúkir lambaskankar og súkkulaðikaka með súkkulaðimús og hnetuís á bara 4000-kall.)

Jæja, best að koma sér að verki, svona ef ég á að ná að klára allt í dag! ;)

sunnudagur, desember 12, 2010

stekkjastaur



Stekkjastaur kom fyrstur,
stinnur eins og tré.
Hann laumaðist í fjárhúsin
og lék á bóndans fé.

Hann vildi sjúga ærnar,
- þá var þeim ekki um sel,
því greyið hafði staurfætur,
- það gekk nú ekki vel.



Úbbs, Stekkjastaur komst ekki til bloggbyggða sökum dagsferðar til Dresden. Ég er sem sé í heimsókn hjá Bjarnheiði systur í Berlín og við skelltum okkur í dagsferð til Dresden í gær með félagi erlendra doktorsnema við Humboldt-háskólann, til að skoða borgina sem eitt sinn var á á heimsminjaskrá UNESCO og elsta jólamarkað Þýskalands. Ég var að vísu hálflasin og raddlaus og því hálfsofandi eins og gengur, en hva, ég hélt augunum opnum á réttum stöðum og augnablikum... Verð þekkt hér eftir sem þögla og sofandi systir hennar Beu (Bjarnheiðar) ;)

miðvikudagur, desember 16, 2009

pottaskefill


Sá fimmti, Pottaskefill,
var skrítið kuldastrá.
- Þegar börnin fengu skófir
hann barði dyrnar á.

Þau ruku upp, til að gá að
hvort gestur væri á ferð.
Þá flýtti' ann sér að pottinum
og fékk sér góðan verð.



Æ-æ-æ og ó-ó-ó, nú klikka ég alveg á blessuðum jólasveinunum. Þessi er tveim dögum of seinn :P Vandamálið er að ég man alltaf eftir að setja þá inn þegar ég er einvhers staðar víðsfjarri tölvum og netsambandi eða slíkar græjur eru uppteknar eða ég er aaaaalveg að fara að sofa. Úbbosí. En alla vega, daginn sem þessi sveinn hefði átt að birtast hérna var ég að jafna mig eftir seint flug auk eins og hálfs tíma seinkunar (við fórum að sofa rétt fyrir fjögur, þ.e. um fimm að morgni miðað við sænskan tíma :/ ). Skellti mér í jólaklippinguna og að ná í fyrirframjólagjafir handa Bjarnheiði og pabba og mömmu (Jólin hennar Hafdísar, sem er alger snilldardiskur) og kíkti líka til afa og ömmu í Sigtúnið.

laugardagur, febrúar 28, 2009

allt á fullu

Jæja já. Kominn tími á blogg. Langt blogg. Ég hef verið á svolitlu flandri undanfarið og haft alveg hreint helling að gera. Sjáum nú til eftir hverju ég man...

Kaffihús og kjaftagangur

Föstudagsskyndiboðin héldu áfram með smá hliðrun. Þ.e. fyrsta laugardaginn í febrúar fékk ég sms frá Drífu (sérdeilis hressri bekkjarsystur úr grunnskóla, sem er líka í námi í Lundi) um að Tinna (ein besta vinkona mín í grunnskóla) væri í heimsókn og að þær ætluðu á kaffihús eftir um klukkutíma, einn og hálfan - hvort ég væri með? Ekki spurning. Var að vísu akkúrat þarna búin að koma mér í stellingar til að hrista eitt stykki fyrirlestur fyrir ráðstefnu í Potsdam (sjá síðar) fram úr erminni, en hva, glærurnar máttu alveg bíða ;) Mér tókst að finna stelpurnar innst í hinu ógnarlanga Ariman kaffihúsi þar sem þær sátu ásamt kærustu Drífu frá Belgíu (sem ég man ekki hvað heitir því ég er núorðið gersamlega vonlaus með nöfn á fólki sem ég hitti bara einu sinni - einhver sem veit nafnið?). Úr varð sérlega skondin og skemmtileg stund þar sem við skiptumst á helstu fréttum (ég held ég hafi ekki rabbað almennilega við Tinnu og Drífu síðan í gaggó, eh?!), fórum í keppnina "hver hefur kysst flesta?" þar sem ég skíttapaði (sá eini sanni dugir skammt í slíkum samanburði), nýttum spilastokk sem Drífa lumaði á til að rifja upp gaggóspilið mikla 'forseta' (hvað annað? ;) ) og kjöftuðum um heima og geima, en sem minnst um kreppu. Það er virkilega gaman finnst mér að hitta núna þá sem ég var með í grunnskóla og gaggó. Ég hef haldið sama sem engu sambandi við flest þeirra, því ég var á svo gersamlega annarri bylgjulengd en þau í gaggó. Það gerir það ennþá skemmtilegra að hitta þau núna því ég sé svo mikinn mun á þeim frá því, eh, 2000 (gavöð, á síðust öld!) og á móti finn ég náttúrlega hvað ég er allt önnur en þá. Þar fyrir utan eru "krakkarnir" upp til hópa sérlega skemmtilegt fólk. Mikið stuð :) Vonandi að ég nái 10 ára endurfundunum á næsta ári, ég missti af þeim síðustu út af sumarvinnunni...

Gautaborg

Nú jæja, svo var það bara vinna vinna vinna vinna... allt til fimmtudagsins 19. febrúar þegar 12 manna hópur hélt frá Lundi til Gautaborgar til að gera (þ.e. horfa á) verklega tilraun í skammtaupplýsingatækni (quantum information, QI). Fimmtudagurinn fór eingöngu í ferðalög, fyrirlestur um tilraunina og að fara út að borða með QI-fólkinu í  Chalmers. Ég náði þó að hitta Jóa í hádeginu og skófla niður hádegisverði með honum. Á föstudeginum fórum við í skoðunarferð kringum hreinherbergið í Chalmers (hreinherbergið í HÍ er eins og kústaskápur í samanburði...), skoðuðum tæki og tól og horfðum á sýnitilraunina sem dró okkur til Gautaborgar.

Ég var laus upp úr klukkan eitt og hafði þá allan heimsins tíma til að draga Jóa frá skrifstofunni og öllum lestarpælingum (meistaraverkefnið hans snýst um eyðingu út frá samskeytum lestarteina). Eftir að ég var búin að losa mig við bakpokann upp í íbúðina hans skelltum við okkur niður í bæ. Jói í leit að langermabol og nýrri íþróttatösku og ég í leit að púðursykri (sjá síðar) og myndavélartösku. Okkur tókst að finna þetta allt saman, húrra fyrir okkur! ;) Við fórum á pítsu/kebabstað um kvöldið með Palla þar sem Palli og Jói fengu sér stærsta kebab sem ég hef séð. Palli gat ekki klárað sitt, sem segir held ég allt um stærðina á rúllunni. Skömmu fyrir níu byrjaði svo fólk að tínast inn í íbúðina hans Jóa í það sem varð sérdeilis skemmtilegt Íslendingapartý. Það er sem sé hellingur af fólki sem ég þekki eða kannast við í Gautaborg að læra m.a. verkfræði og stærðfræði. Þvílíkt gaman að hitta liðið aftur :) Við vorum um 20 í ponsulitlu stúdíóíbúðinni hans Jóa þegar mest var. Þröngt mega sáttir sitja ;) Þarna var tónlistin hæfilega hátt stillt, ólíkt því sem gerist í sænskum partýum, og kjaftagangurinn þvílíkur. Fatta Svíar ekki að þetta er langskemmtilegasta fyrirkomulagið - eða hafa þeir kannski ekkert að tala um? Maður spyr sig... Aumingja Jói var dauðþreyttur eftir að hafa vaknað snemma til að mæla lestarteina fyrir hádegi í 10 gráðu frosti og sat í lok partýsins um kl hálf tvö með fjórum stærðfræðingum að kjafta um m.a. mál- og tegurfræði og líkindafræði. Úbbs... ;)

Daginn eftir kíktum við Jói aðeins í bæinn með Sveinbirni (sem hafði lánað mér dýnu til að lúra á, takk!) og hittum svo Ragga og Elínu á ljósmyndunarsölusýningu um tvöleytið. Þar skoðuðum við ógrynni af myndavélum, myndavélatöskum, ljósmyndum, linsum og ég veit ekki hvað og hvað þar til lappirnar voru við það að detta af okkur fimmmenningunum. Fjúff! En gaman var það :) Eftir þau átök var málið að sporðrenna einum hammara á mann. Að því loknu var kominn tími fyrir mig að bruna í lestina til Lundar sem hafðist allt á tilsettum tíma, úje.

Potsdam og púðursykur

Ég hafði þá einn dag til að kasta ferðamæðinni, því eldsnemma á mánudagsmorgni var ferðinni heitið á tveggja daga jarðeðlisfræðiráðstefnu í Potsdam, þ.e. lokaráðstefnu um I-GET samvinnuverkefni fjölmargra stofnana og fyrirtækja tengdum jarðhitarannsóknum. Sumarvinnuverkefnið mitt síðustu þrjú sumurin er sem sé hluti af I-GET, svo ég átti næst síðasta erindið á ráðstefnunni. Kishor, Indverjinn sem leigir hérna í sömu íbúð og ég (sko mig, búin að ná nafninu hans ;) ), flaug fyrir tilviljun með sömu vél og ég til Berlínar. Við vorum því auðvitað samferða til Kastrup, en jiminn eini hvað ég hefði verið til í að vera laus við það. Hver er með munnræpu klukkan sex að mánudagsmorgni??? Þegar ég þarf að vakna um fimm til að mæta í flug, þá vil ég helst bara horfa út um gluggann á lestinni og þegja, jafnvel fá mér kríu. En nei, Kishor var í banastuði svo ég neyddist til að vera með eyrun sperrt allan tímann til að skilja enskuna hans og koma með "yes", "no", "interesting" og "wow, great!" á færibandi því hann fattaði alls ekki að ég vildi rólegheit. Mikið var ég glöð að losna við hann í hendur vinnufélaga hans á Kastrup! Fjúff.

I-GET ráðstefnan var svo alger snilld. Heilmikið af áhugaverðum erindum sem ég skildi heilmikið af (ólíkt erindunum á ráðstefnunni í Þrándheimi, dúddúrú...) og svo var auðvitað algert æði að hitta allt fólkið í GFZ aftur (þar sem ég vann sumurin 2006 og 2007 í 6 vikur í senn). Þar fyrir utan gekk erindið mitt vel og við fengum talsverð viðbrögð jafnvel þótt við hefðum átt tvö síðustu erindin á ráðstefnunni (Harald GFZ-vinnufélagi minn átti síðasta erindið). Frábært :)

Nú kem ég að púðursykrinum. Bjarnheiður systir er algert yndi, eins og allir vita. Hún kynntist henni Anne í Freiberg og þær eru prýðisgóðar vinkonur. Anne er núna að vinna lokaverkefnið sitt hjá GFZ í Potsdam. Anne þykir púðursykur mjög góður, en hann fæst ekki í Potsdam eða Berlín (eða a.m.k. hefur hann ekki fundist þar). Því þótti Bjarnheiði alveg tilvalið að ég myndi færa Anne púðursykur til Potsdam fyrst ég var á leið þangað. Fullkomið plan ;) Anne var reyndar á námskeiði í Berlín alla síðustu viku en ætlaði að ná af mér í lok umræðna á mánudagskvöldinu. Það hafðist ekki, því ég gleymdi að svipast um eftir Anne og hún var svolítið sein. En hún hitti hina ofurindælu Angelu sem gaf mér eitt sinn kakóbolla (sjá neðst hérna) og Angela bauð Anne barasta að vera með í kvöldverðarboði ráðstefnunnar. Þar hitti ég því Anne og sat og kjaftaði við hana og Harald allt kvöldið sem gerði það að verkum að kvöldið gat ekki klikkað.

Heima á ný

Anne gaf mér baðolíukúlur fyrir að færa sér púðursykurinn. Það var algert skot úr í loftið hjá henni sem hitti beint í mark, því ég hef loksins baðkar á heimilinu í fyrsta skipti í mörg ár. Ég elska að komast í sjóðandiheitt, langt bað með svona baðolíukúlum :) Skellti mér í svoleiðis á þriðjudagskvöldið eftir langan dag og slakaði vel á. Afslöppunin krafðist þess reyndar að ég skrúbbaði baðkarið með lítið þynntu ajax-i áður en ég fyllti það af vatni, en bara betra að reyna aðeins á vöðvana fyrir slökun ;)

sunnudagur, nóvember 30, 2008

dragið andann djúpt: myndablogg!

Eins og mín alvitra eldri systir hefur margsinnis bent á, þá er myndaskorturinn á síðunni agalegur. Hér kemur því dágóð romsa...

Byrjum í Þrándheimi (3.-5. nóv) þar sem ég fór að hlusta á, kynnast og kjafta við helling af eðlisfræðingum á Norðurlöndunum. Eðlisfræðingar er alþekktir fyrir grín og glens og lét þessi velhærði Rússi ekki sitt eftir liggja.


Að vísu vildi fartölvan hans fyrst ekki tengjast skjávarpanum, en hann kunni ráð við því: Hamra og berja hraustlega á lyklaborðið. Þetta líktist nokkurs konar hjartahnoði. Lífgunartilraunirnar báru árangur, eins og sést á myndinni hér að ofan, en eitthvað segir mér að sá skeggjaði þurfi u.þ.b. eitt nýtt lyklaborð á viku...

Að loknum öllum erindunum síðasta daginn gátum við fengið okkur göngutúr um bæinn áður en við héldum í flugið. Þar rákumst við meðal annars á þetta fyrirbæri


sem við skildum lítið í hvað væri, en viti menn


þetta reyndist vera hjólalyfta, til þess að flytja örþreytta hjólreiðamenn á þægilegan máta upp þessa hræðilega bröttu brekku


Erum við að tala um snillinga? :D Verst að lyftan var lokuð (kominn vetur), svo hjólreiðamaðurinn á efstu myndinni gat ekki tekið okkur í sýnikennslu...

Við litum auðvitað á og í dómkirkjuna - vá!


Svo eru hér nokkur okkar sem komum frá Lundi, að bíða eftir leigubíl á flugvöllinn: Claudio, Peter, Henri, Jonas, Frank og Sara.



Nújæja, myndavélar okkar Sigurðar voru orðnar svo slappar að ekki var lengur hægt að taka myndir með þeim, svona með góðu móti. Því var drifið í því að fá Bjarnheiði til að kaupa eina slíka í Þýskalandi. Hún tók auðvitað nokkrar prufumyndir



en mér fannst samt vissara að taka eina prufumynd til viðbótar og þá af herbergisskrímslinu.



Unnur Ósk kom í heimsókn til Lundar um miðjan mánuðinn. Við Sigurður vorum þá að vísu alveg á milljón, en okkur tókst þó að taka frá smá tíma til að mæta í óóóógurlega góðan mat hjá Silju og Hjalta og hitta Unni nú aðeins.



Þess má geta að þetta var í fyrsta skipti sem Unnur og Sigurður hittust, nokkuð magnað.

Svo kom Harpa í heimsókn til okkar akkúrat á réttum tíma, þ.e. aðalbrjálæðinu í skólanum lauk daginn sem hún kom. Smá klúður að þetta er eina myndin sem við tókum í Lundi af því tilefni :P


Harpa var hjá okkur frá mánudegi fram á miðvikudag en fór þá til vinkonu sinnar í Køben. Við tvö skelltum okkur svo til Køben laugardaginn fyrir viku og hittum Hörpu þar


og fórum á sýninguna Bodies.


Sú sýning er alveg hreint mögnuð. Ótrúlega flott! En ég skil vel að hún sé umdeild, maður er jú í rauninni að skoða lík... Á hinn bóginn verður að viðurkennast að sýningin er einhver skemmtilegasta líffræðikennsla sem ég hef kynnst.

Nú, eftir sýninguna og að hafa gengið af okkur lappirnar, þá stigum við um borð í sporvagn, kvöddum Hörpu (fór með okkur spottakorn í sporvagninum) og héldum í átt til Sissa og Ane í Rågeleje.







Þar nutum við þess að slappa af og borða og slappa af og spjalla og borða og slappa af og borða og spjalla og... klappa hundunum, þeim Freyju og Viktori.

Þetta er sófinn sem hundarnir mega liggja í. Freyja: "ZZZzzzz....."


Það gat verið svolítið erfitt að halda hundunum kyrrum meðan tekin var mynd (Freyja)


en möndlur eru pottþéttar til að þau sitji grafkyrr


Það verður seint sagt að þau Freyja (á myndinni) og Viktor hafi verið ósátt við klapp\&klór þjónustu Sigurðar og Líneyjar Höllu ;)


Við fórum í smá göngutúr með Sissa og hundunum á sunnudeginum áður en við héldum heim á ný.



Ég prófaði macro-stillinguna á myndavélinni við fyrsta tækifæri, auðvitað.



Núna síðasta fimmtudag tók Kaninn á ganginum sig til og steikti tvo kalkúna og útbjó allt tilheyrandi með svo úr yrði dýrindis þakkargjörðarmáltíð. Smjatt! Öllum á ganginum var boðið og nokkrum vinum að auki. Það var þétt setið og mikið kjaftað og kjammsað :)





Að lokum koma nokkrar myndir frá 1. des balli íslenska kórsins í Lundi sem var haldið í gærkvöldi (þema í ár: sveitaball!). Við Sigurður vorum voða pen og fín


og auðvitað sungum við í kórnum nokkur lög


Ég hló svo mikið að skemmtiatriði strákanna í kórnum að ég steingleymdi að taka myndir, en Sigurður klikkaði ekki þegar stúlkurnar stigu á stokk. Ætli við séum hér ekki í miðri ákaflega innilegri túlkun á "Hvítir mávar" ;) Asafínar - og á stígvélunum :D


Annað sem ég gleymdi að taka myndir af voru hinn röggsami veislustjóri Eiríkur, ræðumaður kvöldsins María Árnadóttir leikkona (ég svoleiðis lá í krampa - hvílík snilld! :D það hefði þurft að vera með upptökuvél þarna...), Sverrir og Sigrún að draga í happdrættinu (meðal vinninga voru ferðir með Sterling, hlutabréf í íslenskum einkabönkum, ókeypis heimsókn á slysó til Maríu... neeei bara grín, það var spurt hvort einhver kærði sig um svoleiðis vinninga áður en dregið var ;) en "eitthvað lítið, gult, ferfætt og loðið sem segir mjá!" var þegið með þökkum, ásamt konfektkössum, brennivínsflösku, matarkörfum, bókapökkum, málverki, skúlptúr og ýmsu fleiru :) ), allur maturinn (rófustappa og sviðasulta, íslenskt hangikjöt með öllu til heyrandi og kökubasar kvenfélagsins [til styrktar fjármálasnillingum]), skreytingarnar o.fl. o.fl. Ég er sem sé vonlaus ljósmyndari. Ég mundi þó eftir að taka mynd af einsmannshljómsveitinni Halla (brilljant)


fjörinu á dansgólfinu


og kjaftagangnum á barnum



Núna í morgun kom svo í ljós að fleiri höfðu skemmt sér rækilega í gærkvöldi. Látum myndirnar tala






Svo þetta sé nú alveg á hreinu, þá er gólfið venjulega ekki þakið dagblöðum, engin bílastæðiskilti finnast hér, hvorki ryðguð grindverk né rósarunnar og grenigreinar, ekki svartar ruslatunnur fyrir pappír, ekki vagnar fyrir mjólkurfernur, ekki rauðar viðvörunarkeilur... en þó kannski tröll og heeeeellingur af drasli. Á efstu myndinni sést hluti af hinum síkátu sökudólgum. Ah, við búum með svooooo þroskuðu fólki... ;)

Látum þetta gott heita í bili, góðar stundir.

þriðjudagur, mars 04, 2008

rebbagrey

Við Sigurður vorum fyrir norðan um helgina. Til þess að nýta hana sem best, þá ákváðum við að aka eldsnemma á mánudagsmorgni með Hörpu systur hans inn á Akureyri og taka flug þaðan: Sigðurður um níu að morgni til að ná í tíma en ég, sem ekki er í neinum tímum á mánudögum, um hálf þrjú. Við vorum tiltölulega nýkomin framhjá staðnum þar sem eitt sinn var ekið upp Auðbjargarstaðabrekkuna þegar okkur sýndist minkur skjótast yfir veginn í myrkrinu. Sekúndubroti síðar birtist annar á miðjum veginum. Sá var ekki eins vitur og sá fyrri og hljóp á undan bílnum. Það var aðeins um tvennt að velja, annaðhvort aka yfir dýrið eða aka út af veginum. Harpa valdi auðvitað fyrri kostinn og smakk! steinrotaði þann loðna með stuðaranum og ók yfir trýnið á honum. Sigurður hljóp til baka til að ná í dýrið, en þá kom í ljós að þetta höfðu verið nær fullvaxta yrðlingar eða þá fullorðin dýr (voru hvorugt hvítt á feldinn, heldur brún/skollit) sem voru að þvælast þarna. Við ákváðum að hirða dýrið, svo Harpa gæti fengið greitt fyrir skottið. Sigurður sat því með steindautt rebbagrey milli lappanna það sem eftir var ferðarinnar. Ég er enn ekki viss hvort ég eigi að vera leið, glöð eða alveg sama um að lágfóta drapst...

Eftir að hafa skilað Hörpu í skólann og komið Sigurði í flugið, fór ég á bílnum hennar Hörpu til afa og ömmu í Grundargerðið. Þar byrjaði ég á því að fá almennilegan poka til að koma rebba fyrir í, svo það væri nú aðeins snyrtilegra í bílnum. Amma var hress en afi með einhverja bölvaða magakveisu. Hallur frændi og Dögun (verður 4 ára í júní) eru hjá þeim og verða fram yfir miðjan mánuð skildist mér á ömmu (þau búa annars í Kanada). Hallur var farinn í vinnu en Dögun var ennþá sofandi þegar ég kom. Afi fór fljótlega og lagði sig því hann svaf svo illa í nótt út af pestinni. Amma var heldur ekki lengi að snara sænginni sinni og koddanum í litla vinnuherbergið og þar steinsofnaði ég skömmu síðar. Ég skreið á lappir rúmlega hálf ellefu. Þá var Dögun komin á fætur og var að narta í brauðsneið hjá ömmu. Hún er mikil selskapsmanneskja hún Dögun svo hendinni var varla sleppt af þessum nýja leikfélaga allt þar til ég þurfti að fara út á flugvöll um hálf tvö. Reyndar var hún hálfmóðguð yfir að ég færi svona fljótt ;) Með fullan maga af fiskbollum í karrísósu, kartöflum og rúgbrauði, rambaði ég á heimavistina svo Harpa gæti komið með mér út á flugvöll og tekið við bílnum sínum. Flugið varð þetta líka fína útsýnisflug því það var léttskýjað allan seinni hluta ferðarinnar og flugstjórinn var duglegur að þylja upp örnefnin fyrir okkur farþegana. Punkturinn var svo settur yfir i-ið á Laugarnesveginum um kvöldið með dýrindis andabringum að hætti pabba. Slúúrrrp!

E.S. Rebbi reyndist fullorðinn og karlkyns. Það er því væntanlega tófuekkja á flækingi þarna fyrir norðan.

fimmtudagur, ágúst 30, 2007

alveg á milljón

Júbb, það er kominn tími á (langt) blogg. Ætli ég breyti ekki ofurlítið til og byrji á byrjuninni! Sum sé, Sigurður fór í vinnuferð á norðausturhorni landsins (hálendi meðtalið) vikuna áður en við fengum lyklana að paríbúðinni okkar afhenta. Það þýddi að hann kláraði að pakka öllu fyrir flutninginn áður en hann fór í ferðina og við fórum ofurlítið á haus í að þrífa íbúðina þeirra Palla. Nújæja, ég rétt slapp til að ná í íbúðarlyklana fyrir kl fjögur föstudaginn 17. ágúst (neibb, ég kann ekki nógu vel á þessa föstudagsumferð :P ). Seint um kvöldið komu svo Sigurður og vinnufélaginn Jón Ottó dauðþreyttir í bæinn með rúm (var í geymslunni heima hjá Sigurði á Ærlæk) á toppnum á vinnubílnum. Þegar því hafði verið skverað inn í íbúðina komust lúnir menn fljótlega í langþráða sturtu og mjúkt rúm með sæng og kodda í. Helgin flaug svo hjá við flutninga og þrif og flutninga og þrif o.s.frv. með góðri hjálp Hörpu systur Sigurðar og pabba og mömmu. Eftir vinnu héldu flutningarnir áfram og svo hið gífurlega mikla verk sem kallast að-koma-sér-fyrir.

Til þess að ná aftur smá skammti af eigin geðheilsu eftir þessa törn, þá brunuðum við Sigurður norður á Ærlæk strax eftir vinnu núna síðasta fimmtudag. Þar slöppuðum við af, fórum í dagsferð um þjóðgarðinn (Dettifoss að vestan, Hólmatungur, Hljóðaklettar, Vesturdalur) á fjórum hjólum og tveim jafnfljótum til skiptis, bökuðum pítsur, fórum í heita pottinn, röltum meðfram Brunná þar sem Sigurður var í vandræðum með að fá mig áfram vegna fagurblárra berja í hrönnum, nutum töðugjalda (nýslátrað lamb með tilheyrandi) með stórfjölskyldunni, fórum í ber (þ.e. ég og Guðný), röbbuðum við afa og ömmur, lögðum net fyrir silung og nutum lífsins! Á heimleiðinni buðum við okkur svo í mat til afa og ömmu (mín megin) á Akureyri þar sem við lögðum til aðalber í eftirmat. Þar voru fyrir Hallur Heiðar bróðir mömmu, Saga frænka mín frá Svíþjóð og Bjorn kærastinn hennar. Heilmikið gaman að hitta þau öll. Við rétt litum við til Hlyns og fjölskyldu í Ásabyggð áður en við héldum svo áfram í bæinn. Pabbi og mamma nutu berjanna með okkur Sigurði í fyrradag og svo hjálpaði Daníel "skáfrændi" Sigurðar okkur við að bera sófa í gær og fékk mexíkanska kássu og ber að launum ;) Við eigum samt einn berjaskammt eftir enn :D

Svo er skólinn barasta byrjaður! Jaminnsann. Upphafið hefur verið svolítið skrautlegt hjá mér því mér var eiginlega ekki ætlað að mæta í eitt fagið þ.s. fyrirlestrar sköruðust við önnur fög. Svo datt eitt þeirra út af stundatöflu (en, fjúh, verður sem betur fer kennt) og hægt var að flytja einn tíma til og volà! málum reddað. Lengi var ég að vandræðast með hvaða fjórða kúrs ég ætti að velja, en þar sem allt áhugavert skaraðist við þá fáu tíma sem fyrir voru (alveg dæmigert) þá er ég núna búin að koma mér í kennslu í verklegri eðlisfræði þ.a. fjórði áfanginn kemur ekki til. Ég hef þá vonandi tíma til að reikna þeim mun fleiri dæmi hjá ofurvirku kennurunum mínum ;) Þetta stefnir í prýðisönn. Og já, Bjarnheiður, brjálæðisönnin mín er ekki lengur svo brjáluð :) Ég vona bara að þessu flutningsstússi fari að ljúka svo ég geti farið að líta í bækurnar!

Nú klikka ég reyndar á einu, því ég enda á vondu fréttunum. Þær eru sum sé þær að á mánudaginn fékk ég staðfestingu á því að hnén á mér eru í hakk' og spagettí (hafa verið aum í a.m.k. rúm tvö ár). M.ö.o. það er sprunga í hvorum liðþófa og trosnað og tognað liðband í öðru hnénu. Nú hef ég átta vikur til að leika bölvaðan letingja í tilraun til að láta þetta jafna sig, ella verð ég send til bæklunarlæknis til að krukka meira í þessum gölluðu hnjám. Ég má sem sé ekki reyna á hnén sem þýðir engin hlaup, hjólreiðar, þungaflutninga, lyftingar með fótum, bringusund, harðar spyrnur frá sundlaugarbakka o.s.frv. Ég neita aftur á móti að taka lyftu og geng rólega upp og niður þá stiga sem á vegi mínum verða. Næsta skref er að kaupa sér glúkósamín & chondroitín til að hjálpa vesalings hnjáliðunum. Svo er bara að krossa putta með að þetta reddist eins og flest allt á Íslandi...

sunnudagur, ágúst 12, 2007

myndasúpa

Þessa helgi og næstu viku verð ég á kafi að flokka, henda og pakka niður dóti, mest megnis náttúrlega dóti sem ég var búin að gleyma að væri til ;) Þar sem slíkt er lítt í frásögur færandi, skelli ég því inn nokkrum myndum ykkur til ánægju og yndisauka.

Esjuganga á afmælisdegi pabba. Við eins léttklædd og siðsemi leyfði.

En á toppnum var betra að smeygja sér í bolinn. Þetta líka fína útsýni!

Þjórsárdalur - labbilabb.

Geitungarnir voru alveg æstir í geithvönnina og litu ekki við okkur (hjúkk!) - sáum allt upp í sjö stykki á einum svona vendi.

Nokkuð magnað útsýni.

Erum við ekki sæt? ;)


Jón Dór, Sylvía og Guðný mættu okkur á miðri leið.

Litla, fína tjaldið okkar.

Félagsvist gerði rokna lukku ;)

Út í Viðey um verslunarmannahelgi. Nei nei, við lágum ekki bara í leti - við lásum skiltið þarna OG fylgdum því! (bara í hina áttina.)

Blómin blíð, Esjan fríð...

Læt þetta gott heita. Loks skal þess getið að í dag er afmælisdagur mömmu og Matthíasar frænda :)