föstudagur, nóvember 30, 2007

þróunaraðstoð

Þetta er ansi athyglisverð grein. Hafið þið nokkurn tíma hugsað um þróunaraðstoð út frá þessu sjónarhorni? Hvers vegna í ósköpunum hef ég aldrei orðið vör við þessa skoðun í umræðum um þróunaraðstoð hér á Íslandi? Síðast þegar ég vissi vorum við Íslendingar samansaumaðir nískupúkar út af því að við létum svo lágt hlutfall af þjóðarframleiðslunni renna til þróunaraðstoðar. Það er kannski eins gott að svo er - eða hvað?

fimmtudagur, nóvember 29, 2007

ha, búið?

Ég var að átta mig á því núna áðan að ég skilaði síðustu skiladæmum annarinnar í morgun. Sem þýðir að próflestur fer að hefjast hvað úr hverju, a.m.k. ekki seinna en að einni viku liðinni. Sum sé, enn eitt misserið einfaldlega flogið hjá á ógnarhraða. Hvar er lögreglan núna? Hún ætti að stoppa þennan hraðafíkil...

þriðjudagur, nóvember 20, 2007

að borða sér til óbóta

Við Sigurður fórum á villibráðarhlaðborðið í Perlunni í kvöld til þess að fagna því að hann fékk afhent í gær verðlaun úr Verðlaunasjóði Guðmundar P. Bjarnasonar frá Sýruparti fyrir afburða námsárangur á B.S.-prófinu (húrra fyrir Sigurði!!! :D). Úff, talandi um ofát! Það fyrsta sem ég gerði við komuna heim var nokkuð sem velflestir kvenmenn kannast vel við - dreif mig úr sokkabuxunum ;) Það næsta var að skríða undir sæng svo eymingja magagreyið fengi að vinna í friði. Sigurður hreinlega þorði ekki að leggjast upp í rúm af hættu á að geta ekki staðið á fætur aftur... Já, þetta hlaðborð þeirra í Perlunni er hættulega gott og úr svo mörgu að velja að maður verður ágætlega saddur bara af súpunni og forréttunum. Kjamms mjamms smjatt. Við borðuðum mögulega fyrir alla vikuna á þessu eina kvöldi. Alla vega glottum við þegar stúlkan í fatahenginu spurði hvort okkur vantaði leigubíl, því þrátt fyrir að hvorugt hefði bragðað vín, þá vorum við eiginlega bæði óökufær sökum ofáts ;D

Annars leið helgin við margt annað en lærdóm, því foreldrar og báðar systur Sigurðar komu á föstudagskvöldið. Við buðum þeim fjórum, Magga kærastanum hennar Hörpu og mömmu (pabbi er úti í Aþenu að "olíumálaráðherrast") í mat á sunnudagskvöldið. Fyrsta matarboðið hér á Eggertsgötunni :) Og jamm, átta manns í mat er algert hámark. Við fengum nokkra diska, hnífa og gaffla og kökugaffla lánaða hjá mömmu, notuðum alla stóla sem til voru og skeyttum litla skrifborðinu sem Sigurður notar við endann á eldhúsborðinu. Hehe, og notuðum gömul gluggatjöld frá mömmu (sem ég var nýbúin að ræna nokkrum bandspottum úr) sem borðdúk :D Ofan í fólkið runnu ljúflega 2,5 kíló af nauta- og folaldapiparsteik ásamt átta risastórum bökunarkartöflum, piparsósu og stórri skál af salati. Mamma sá um eftirréttinn, þ.e. gúmmulaðigómsæta gulrótaköku. Svo má segja að Jón Dór (pabbi Sigurðar) hafi séð um skemmtiatriðin því hann er snilldarsögumaður (að öðrum gestum ólöstuðum). Vel valdar Torfasögur eru hápunkturinn :D Þessi máltíð var eiginlega upphitun fyrir hlaðborðið í kvöld því bæði héldum við Sigurður að við hefðum etið yfir okkur þarna á sunnudaginn. Ehm, svo var ekki miðað við núna ;)

fimmtudagur, nóvember 08, 2007

ah búh

Síðustu dagar hafa verið ansi vel pakkaðir. Sveitt safneðlisfræðidæmi, feit og pattaraleg ritgerð í mál&tegur (ojú, það er vel hægt að skrifa ritgerð í stærðfræði), verkbókaryfirferð (sú síðasta, jibbí-jibbí-jei), lokalokalokahönd lögð á sérverkefnið mitt o.s.frv. Þetta kláraðist sem sé í gær. Þá gat ég loksins ryksugað íbúðina (vikutöf) og brotið saman hreinan þvott sem lá í annarri óhreinatauskörfunni (líka vikutöf). Mikil gleði. Í dag hef ég svo loksins loksins loksins ... komist í það að brasa eitthvað í tölvueðlisfræðinni. Enn þá meiri gleði. Raunar ekki seinna vænna, því það eru einungis 4 vikur til prófa - og ég er ekki byrjuð á aðalverkefninu. Ehm. Einhverra hluta vegna hef ég á tilfinningunni að tölvueðlisfærðin muni dragast fram yfir áramót. Eins gott að ég geti skilað sérverkefninu núna og eigi einingar inni, annars yrðu námslánin eitthvað rýr :P