sunnudagur, janúar 29, 2006

þróun

1. skólavika: Bíðum nú við, hvernig var þetta...? Ah! svona: tilraunir til skipulags, lítill svefn, strætó, ... Gott að vera komin aftur.
2. skólavika: Hjálp!!! Varla ein vika liðin og komin eftir á í öllum fögum; *skelfing*
3. skólavika: Æææji, skítt með það.....

Ætli þetta þróist svo ekki smátt og smátt í átt til brjálæðis, eins og venjulega ;P

sunnudagur, janúar 22, 2006

netleit

Ég hef stundað mikla leit á netinu þessa helgi. Hef leitað logandi ljósi að áfangalýsingum í TUM (Tækniháskólanum í München). Þetta er einn stór óþolandi frumskógur. Hvers vegna getur þessi skóli ekki haft almenna kröfu um að a.m.k. stutt áfangalýsing fylgi með þeim áföngum sem birtast í kennslugagnagrunninum??? Ég hef þurft að "googla" og leita uppi heimasíður kennara og fara krókaleiðir og týna síðum aftur og berja höfðinu við vegginn og ... Kennsluskrá HÍ er tær snilld. Fólkið í TUM mætti sko taka sér hana til fyrirmyndar! Þetta er einhver mesta tímasuga sem ég hef lent í. Næsta námsvika geldur fyrir frumskógaleiðangur helgarinnar >þ



Fyrir utan það er allt ágætt að frétta, ekkert sérstaklega slæmt og ekkert sérstaklega gott. Mamma er á Kanarí með ömmu á Akureyri (mömmu mömmu) og Sollu systur hennar. Allir þrír eiginmennirnir guðslifandifegnir að hafa sloppið við að fara með ;D Ég er alvarlega að hugsa um að taka að mér hina vikulegu ryksugun heimilisins, þetta er alveg frábær líkamsrækt og ekki slæmt að hita sig vel upp á milli þess að kólna og stirðna yfir námsbókunum. Þetta er annars stórmerkilegt í ljósi þess að þegar við Bjarnheiður vorum litlar þá fór pabbi með okkur í heimsókn til afa og ömmu eða út að leika eða e-ð álíka meðan mamma ryksugaði, því við hreinlega þoldum ryksuguna og hljóðið í henni alls ekki; ég hef heldur aldrei verið þekkt fyrir að vera dugleg við að ryksuga eigið herbergi... :P

laugardagur, janúar 14, 2006

snjór

Það að moka snjó er einhver skemmtilegasta líkamsrækt sem ég þekki - ferskt loft, heilmikill tilgangur og gjarna nettar harðsperrur á óvenjulegum stöðum. Sundið hefur samt vinninginn til lengri tíma litið... ;)

miðvikudagur, janúar 11, 2006

bón

Mig langar til að biðja ykkur um þrennt.

1. Skrifa undir hérna:



2. Aldrei nokkurn tíma kaupa DV; a.m.k. meðan núverandi ritstjórnarstefna er í gildi.

[Skv. ábendingu Bjarnheiðar: ]
3. Aldrei nokkurn tíma kaupa auglýsingar í DV; með sama varnagla.

Takk.

mánudagur, janúar 09, 2006

heima

Komin heim eftir lúxusdvöl hjá afa og ömmu. Fór í sund á hverjum vinnudagsmorgni með ömmu, synti, gerði vatnsleikfimi með þeim gömlu ("fyrst á réttunni, svo á röngunni" í vatni með 7-9 konum á aldrinum 70-80 er æði, sérstaklega loka-"tjútjú"-ið) og sauð vel í heitasta pottinum. Nema á miðvikudagsmorgni; þá lék ég m.a. hákarl um alla gömlu laugina fyrir Fönn, 6 ára frænku mína ;) Annars liðu dagarnir í yndislegu tímaleysi.

Skíðafærið brást okkur Stiglunum, en ég gat þá verið með í hinum rosalega laugardagsgraut ömmu og afa. Þá koma Hallur frændi, Andrea konan hans og dæturnar Fönn (6) og Dögun (1) og fyrsta laugardag í mánuði (eins og núna) koma líka Hlynur frændi, Kristín konan hans og börnin Hugi (14), Lóa (7) og Una (2 mánaða). Grauturinn hjá ömmu er sko ekki bara hrísgrjónagrautur! Á borðum eru líka heil ósköp af áleggi og brauði og t.d. harðfiskur, steiktir sveppir, ... og svo náttúrlega kaffi og eftirréttur, sem í þetta sinn var pönnukökur og konfekt og líka ísstöng fyrir eldri krakkana. Úffpúff, ofát :P Eftir töluverða legu á meltunni, eina tapaða skák gegn Huga og skemmtilegt spjall fór ég svo í sund meðan afi og amma lögðu sig. Þá var skundað í jólaljósabíltúr með afa og ömmu og beint á Bautann til að hitta Stiglana. Svei mér þá, hið ótrúlega gerðist - ég var orðin svöng aftur ;) Svo var bara frábært að hitta Stiglana aftur og rifja upp vel steiktan einkahúmor :)

Einir skemmtilegustu atburðirnir fyrir norðan voru þegar ég fór í félagsvist með afa og ömmu og fékk setuverðlaunin (skammarverðlaun; ég sat 10 sinnum í röð á sama borði! hmm, óheppni í spilum, heppni í ástum, eh? - borgaði þannig fyrir mig með frímiðanum sem ég fékk í verðlaun) og svo þegar okkur var boðið í mat til Hlyns&fjölskyldu ásamt Halli&fjölskyldu þar sem spilað var púkk og Hugi reytti af sér fimmaurabrandarana. Ættingjar eru yndi, svona flestir a.m.k. ... ;)

Og nú er ég sem sé komin heim. Vaknaði óóóógurlega þreytt í morgun og skildi ekkert í því. Fékk skýringuna með flökurleika um hálftíma eftir að ég drattaðist á fætur. Ég að verða veik á fyrsta skóladegi? Fór samt í skólann í þessa einu kennslustund, en var komin með hroll í lok tímans. Hundskaðist svo heim seint og um síðir og hef ekkert gert nema slafra bláberjasúpu og sofa síðan þá. Djö**** mér líður eins og algerum aumingja >Þ Langar mest af öllu til að setjast niður og lesa/reikna í rafsegulfræði - spurning um að reyna? Held ég geri það bara og vonast til að/þykist vera að hressast ;P

mánudagur, janúar 02, 2006

norður

Ég er flogin norður yfir heiðar að hitta afa og ömmu og ættingjana, sjá hvernig Víking bruggar bjórinn sinn og renna mér á skíðum. Sjáumst, heyrumst, eitthvað... ;)

sunnudagur, janúar 01, 2006

2006

Gleðilegt nýtt ár, öllsömul, og takk fyrir það gamla! :)