heima
Komin heim eftir lúxusdvöl hjá afa og ömmu. Fór í sund á hverjum vinnudagsmorgni með ömmu, synti, gerði vatnsleikfimi með þeim gömlu ("fyrst á réttunni, svo á röngunni" í vatni með 7-9 konum á aldrinum 70-80 er æði, sérstaklega loka-"tjútjú"-ið) og sauð vel í heitasta pottinum. Nema á miðvikudagsmorgni; þá lék ég m.a. hákarl um alla gömlu laugina fyrir Fönn, 6 ára frænku mína ;) Annars liðu dagarnir í yndislegu tímaleysi.
Skíðafærið brást okkur Stiglunum, en ég gat þá verið með í hinum rosalega laugardagsgraut ömmu og afa. Þá koma Hallur frændi, Andrea konan hans og dæturnar Fönn (6) og Dögun (1) og fyrsta laugardag í mánuði (eins og núna) koma líka Hlynur frændi, Kristín konan hans og börnin Hugi (14), Lóa (7) og Una (2 mánaða). Grauturinn hjá ömmu er sko ekki bara hrísgrjónagrautur! Á borðum eru líka heil ósköp af áleggi og brauði og t.d. harðfiskur, steiktir sveppir, ... og svo náttúrlega kaffi og eftirréttur, sem í þetta sinn var pönnukökur og konfekt og líka ísstöng fyrir eldri krakkana. Úffpúff, ofát :P Eftir töluverða legu á meltunni, eina tapaða skák gegn Huga og skemmtilegt spjall fór ég svo í sund meðan afi og amma lögðu sig. Þá var skundað í jólaljósabíltúr með afa og ömmu og beint á Bautann til að hitta Stiglana. Svei mér þá, hið ótrúlega gerðist - ég var orðin svöng aftur ;) Svo var bara frábært að hitta Stiglana aftur og rifja upp vel steiktan einkahúmor :)
Einir skemmtilegustu atburðirnir fyrir norðan voru þegar ég fór í félagsvist með afa og ömmu og fékk setuverðlaunin (skammarverðlaun; ég sat 10 sinnum í röð á sama borði! hmm, óheppni í spilum, heppni í ástum, eh? - borgaði þannig fyrir mig með frímiðanum sem ég fékk í verðlaun) og svo þegar okkur var boðið í mat til Hlyns&fjölskyldu ásamt Halli&fjölskyldu þar sem spilað var púkk og Hugi reytti af sér fimmaurabrandarana. Ættingjar eru yndi, svona flestir a.m.k. ... ;)
Og nú er ég sem sé komin heim. Vaknaði óóóógurlega þreytt í morgun og skildi ekkert í því. Fékk skýringuna með flökurleika um hálftíma eftir að ég drattaðist á fætur. Ég að verða veik á fyrsta skóladegi? Fór samt í skólann í þessa einu kennslustund, en var komin með hroll í lok tímans. Hundskaðist svo heim seint og um síðir og hef ekkert gert nema slafra bláberjasúpu og sofa síðan þá. Djö**** mér líður eins og algerum aumingja >Þ Langar mest af öllu til að setjast niður og lesa/reikna í rafsegulfræði - spurning um að reyna? Held ég geri það bara og vonast til að/þykist vera að hressast ;P
Engin ummæli:
Skrifa ummæli