fimmtudagur, ágúst 30, 2007

alveg á milljón

Júbb, það er kominn tími á (langt) blogg. Ætli ég breyti ekki ofurlítið til og byrji á byrjuninni! Sum sé, Sigurður fór í vinnuferð á norðausturhorni landsins (hálendi meðtalið) vikuna áður en við fengum lyklana að paríbúðinni okkar afhenta. Það þýddi að hann kláraði að pakka öllu fyrir flutninginn áður en hann fór í ferðina og við fórum ofurlítið á haus í að þrífa íbúðina þeirra Palla. Nújæja, ég rétt slapp til að ná í íbúðarlyklana fyrir kl fjögur föstudaginn 17. ágúst (neibb, ég kann ekki nógu vel á þessa föstudagsumferð :P ). Seint um kvöldið komu svo Sigurður og vinnufélaginn Jón Ottó dauðþreyttir í bæinn með rúm (var í geymslunni heima hjá Sigurði á Ærlæk) á toppnum á vinnubílnum. Þegar því hafði verið skverað inn í íbúðina komust lúnir menn fljótlega í langþráða sturtu og mjúkt rúm með sæng og kodda í. Helgin flaug svo hjá við flutninga og þrif og flutninga og þrif o.s.frv. með góðri hjálp Hörpu systur Sigurðar og pabba og mömmu. Eftir vinnu héldu flutningarnir áfram og svo hið gífurlega mikla verk sem kallast að-koma-sér-fyrir.

Til þess að ná aftur smá skammti af eigin geðheilsu eftir þessa törn, þá brunuðum við Sigurður norður á Ærlæk strax eftir vinnu núna síðasta fimmtudag. Þar slöppuðum við af, fórum í dagsferð um þjóðgarðinn (Dettifoss að vestan, Hólmatungur, Hljóðaklettar, Vesturdalur) á fjórum hjólum og tveim jafnfljótum til skiptis, bökuðum pítsur, fórum í heita pottinn, röltum meðfram Brunná þar sem Sigurður var í vandræðum með að fá mig áfram vegna fagurblárra berja í hrönnum, nutum töðugjalda (nýslátrað lamb með tilheyrandi) með stórfjölskyldunni, fórum í ber (þ.e. ég og Guðný), röbbuðum við afa og ömmur, lögðum net fyrir silung og nutum lífsins! Á heimleiðinni buðum við okkur svo í mat til afa og ömmu (mín megin) á Akureyri þar sem við lögðum til aðalber í eftirmat. Þar voru fyrir Hallur Heiðar bróðir mömmu, Saga frænka mín frá Svíþjóð og Bjorn kærastinn hennar. Heilmikið gaman að hitta þau öll. Við rétt litum við til Hlyns og fjölskyldu í Ásabyggð áður en við héldum svo áfram í bæinn. Pabbi og mamma nutu berjanna með okkur Sigurði í fyrradag og svo hjálpaði Daníel "skáfrændi" Sigurðar okkur við að bera sófa í gær og fékk mexíkanska kássu og ber að launum ;) Við eigum samt einn berjaskammt eftir enn :D

Svo er skólinn barasta byrjaður! Jaminnsann. Upphafið hefur verið svolítið skrautlegt hjá mér því mér var eiginlega ekki ætlað að mæta í eitt fagið þ.s. fyrirlestrar sköruðust við önnur fög. Svo datt eitt þeirra út af stundatöflu (en, fjúh, verður sem betur fer kennt) og hægt var að flytja einn tíma til og volà! málum reddað. Lengi var ég að vandræðast með hvaða fjórða kúrs ég ætti að velja, en þar sem allt áhugavert skaraðist við þá fáu tíma sem fyrir voru (alveg dæmigert) þá er ég núna búin að koma mér í kennslu í verklegri eðlisfræði þ.a. fjórði áfanginn kemur ekki til. Ég hef þá vonandi tíma til að reikna þeim mun fleiri dæmi hjá ofurvirku kennurunum mínum ;) Þetta stefnir í prýðisönn. Og já, Bjarnheiður, brjálæðisönnin mín er ekki lengur svo brjáluð :) Ég vona bara að þessu flutningsstússi fari að ljúka svo ég geti farið að líta í bækurnar!

Nú klikka ég reyndar á einu, því ég enda á vondu fréttunum. Þær eru sum sé þær að á mánudaginn fékk ég staðfestingu á því að hnén á mér eru í hakk' og spagettí (hafa verið aum í a.m.k. rúm tvö ár). M.ö.o. það er sprunga í hvorum liðþófa og trosnað og tognað liðband í öðru hnénu. Nú hef ég átta vikur til að leika bölvaðan letingja í tilraun til að láta þetta jafna sig, ella verð ég send til bæklunarlæknis til að krukka meira í þessum gölluðu hnjám. Ég má sem sé ekki reyna á hnén sem þýðir engin hlaup, hjólreiðar, þungaflutninga, lyftingar með fótum, bringusund, harðar spyrnur frá sundlaugarbakka o.s.frv. Ég neita aftur á móti að taka lyftu og geng rólega upp og niður þá stiga sem á vegi mínum verða. Næsta skref er að kaupa sér glúkósamín & chondroitín til að hjálpa vesalings hnjáliðunum. Svo er bara að krossa putta með að þetta reddist eins og flest allt á Íslandi...

föstudagur, ágúst 17, 2007

á leið í vinnuna

Ég fór óvenjusnemma af stað í vinnuna í morgun því ég þarf að hætta fyrr í dag til að ná í lyklana að íbúðinni. Það þýðir jú afar litla umferð og götuljós sem verða græn á hárréttum tíma fyrir mann sjálfan. Þó var þarna ásamt mér og VW-bíl, rennilegur silfurlitur Audi sem renndi fram úr okkur tveim löglegu bílunum. Audi-inn lenti hins vegar í óvenjulegri morgunlögreglu skömmu síðar: gæsir á veginum! Sum sé á afreininni af Suðurlandsbraut inn á Grensásveg stóðu tvær pollrólegar grágæsir en nokkrir vinir þeirra vöppuðu á grasinu til hliðar. Svo þegar sá silfraði kom brunandi og ætlaði að beygja inn á Grensás litu þær nú bara á hann hálfmóðgaðar, hvað var þetta fyrirbæri að vilja? Audi-inn tók þennan líka fína skyndisveig um gæsirnar og snarhægði á sér, bara alveg eins og í kappakstri. Þegar ég fylgdi skellihlæjandi í kjölfarið nokkrum sekúndum síðar voru hefðargæsirnar tvær búnar að færa sig virðulega (allt í rólegheitunum, höfuðið reist með hæfilegum þóttasveig) út í kant og voru á leið upp á grasið á ný. Snillingar.

sunnudagur, ágúst 12, 2007

myndasúpa

Þessa helgi og næstu viku verð ég á kafi að flokka, henda og pakka niður dóti, mest megnis náttúrlega dóti sem ég var búin að gleyma að væri til ;) Þar sem slíkt er lítt í frásögur færandi, skelli ég því inn nokkrum myndum ykkur til ánægju og yndisauka.

Esjuganga á afmælisdegi pabba. Við eins léttklædd og siðsemi leyfði.

En á toppnum var betra að smeygja sér í bolinn. Þetta líka fína útsýni!

Þjórsárdalur - labbilabb.

Geitungarnir voru alveg æstir í geithvönnina og litu ekki við okkur (hjúkk!) - sáum allt upp í sjö stykki á einum svona vendi.

Nokkuð magnað útsýni.

Erum við ekki sæt? ;)


Jón Dór, Sylvía og Guðný mættu okkur á miðri leið.

Litla, fína tjaldið okkar.

Félagsvist gerði rokna lukku ;)

Út í Viðey um verslunarmannahelgi. Nei nei, við lágum ekki bara í leti - við lásum skiltið þarna OG fylgdum því! (bara í hina áttina.)

Blómin blíð, Esjan fríð...

Læt þetta gott heita. Loks skal þess getið að í dag er afmælisdagur mömmu og Matthíasar frænda :)

miðvikudagur, ágúst 08, 2007

tóm borg

Mjah, eða svona næstum því. En ég sem sé hélt mig í bænum um verslunarmannahelgina. Við Sigurður byrjuðum strax á fimmtudagskvöldið að njóta borgarinnar með því að skella okkur í Vatnsmýrarhlaupið (5 km með tímatöku og girnilegt ávaxtahlaðborð á eftir). Fórum í keilu, þythokkí og (gallaðan, en skemmtilegan) snóker upp í Öskjuhlíð á föstudaginn. Dunduðum hitt og þetta á laugardeginum (ég m.a. rifjaði það upp hvernig það var að gleyma sér í tölvuleiknum Day of the Tentacle). Fórum út í Viðey í glampandi sól á sunnudegi og sporðrenndum sitt hvorri rjómavöfflunni ásamt ekta súkkulaði áður en við héldum í land á ný, nutum dásamlegs kvöldmatar pabba ásamt afa og ömmu í Sigtúni og enduðum daginn á bíóferð (ég mæli með Die Hard 4, Brúsi kallinn bara batnar með aldrinum ;) ). Baldur, Birte, Matthías og Bjarki komu í hádegismat á mánudeginum til að athuga með stærðina á gömlu kojunum okkar Bjarnheiðar. Kojan hans Bjarka brotnaði sem sé nýlega og þar sem pabbi og mamma eru að fara að flyta bráðlega, var kærkomið að koma kojunum ofan af háalofti og í gagnið á góðum stað. Við Sigurður renndum um kvöldið með kojuna í Kópavoginn og hjálpuðum til við að setja hana upp. Það tókst, þótt litið hafi út fyrir að litla mjóa herbergið hans Bjarka ætlaði að springa utan af kojunni um tíma ;)

Foreldrarnir að flytja í smærra húsnæði og hvað verður þá um litlu Líneyju? Jú, við Sigurður fengum inni á görðunum. Eggertsgata 20-206 skal það vera. Sigurður er á leið í vikulanga mælingaferð á laugardaginn, en við fáum íbúðina einmitt á föstudaginn eftir rúma viku. Meðan ég sit og pikka, grettir hann sig því yfir því að pakka niður því helsta í herberginu sínu. Herberginu þarf hann nefnilega að skila strax á hádegi mánudaginn eftir að við fáum paríbúðina svo það er eins gott að hafa sem flest tilbúið áður en dótinu er skverað hér yfir bílastæðið og gamla herbergið/íbúðin þrifin, bónuð og ég veit ekki hvað. Næsta helgi hjá mér verður hins vegar undirlögð af því að pakka öllu mínu hafurtaski og fara í gegnum heldur betur marga kassa af gömlu dóti ofan af háalofti. Gavöð hjálpi mér. Þetta verður hins vegar enn meira stuð hjá þeim pabba og mömmu. Að flytja eftir 16 ár, hmmm...

Jú jú, allt að gerast.