miðvikudagur, júlí 26, 2006

forstýra?

Við heimkomu var mér vegna plássleysis plantað inn á skrifstofu aðstoðardeildarstjóra eðlisfræðideildar ÍSOR meðan hann rambaði um á tveim jafnfljótum um ægifagurt hálendi Íslands. Nú er hann væntanlegur til vinnu á morgun. Forstjóri ÍSOR er í frí til 21. ágúst (ég hætti að vinna 24. ágúst) en hann leit við til að spjalla um Potsdam-mælingarnar núna áðan. Hann sagði mér endilega að nota sína skrifstofu fyrst hann væri í fríi. Uuuu... hmm... tjah... kærar þakkir! En nei, ég held ég verði frekar á hálfgerðum vergangi en sitja á sjálfri forstjóraskrifstofunni, sama hversu tóm og ónotuð hún er ;D

mánudagur, júlí 24, 2006

frónbúinn

Jahá, næstum ein vika liðin síðan ég kom heim! Eina afsökun mín (sem er mjög góð afsökun) fyrir bloggleysi er sú að það er svo dásamlegt að koma heim í íslenskt veður, ferskt loft, göngtúra, sund, skokk (án þess að leka öll á gangstéttina), Sigurðarfaðm, pabba&mömmu-mat, sumarbústað, ... að alnetið gleymist svo til alveg. Ég mætti líka strax til vinnu eftir heimkomu (þ.e. á miðvikudaginn) og notaði allan fimmtudaginn í dagsferð og matarboð með þýskri kunningjakonu. Helgin leið hratt í leti, sundi, eldamennsku og hinu ljúfa lífi sumarbústaðarins: göngutúrum, ofáti, pottbleyti, sólböðum og spilamennsku. Annars held ég svei mér þá að ég hafi ekki legið almennilega í leti síðan um síðustu jól! Alla vega man ég ekki eftir slíkum degi síðan þá :P
En já, heima er bezt! ;)

sunnudagur, júlí 16, 2006

líður að heimför

Jú jú, það eru einungis tveir dagar í að ég kem heim. Ætti að vera á leiðinni til Schönefeld-flugvallar með lestinni um þetta leyti eftir tvo sólarhringa. Sjáum til hvort mér takist að pakka einhverri sól, sumri og aukagráðum með í ferðatöskuna - hefur heyrst að það vanti eitthvað þess konar í höfuðborginni a.m.k.

En dagarnir líða því hjá mér núna helst við að kveðja fólk, þakka fyrir mig og saxa á "það sem þarf að gera fyrir brottför"-listann minn. Er reyndar flest allt komið nema ganga frá ýmsum gögnum í vinnunni, skila lyklum, þrífa herbergið mitt og pakka. Mikil gleði :)

Sjáumst!

laugardagur, júlí 08, 2006

toppgoði - toppsund

Á fimmtudaginn var tróð ég marvaðann í um 2 metra fjarlægð frá fugli er nefnist toppgoði
í u.þ.b. hálfa mínútu áður en hann stakk sér á kaf í grænleitt og lítt tært Heilagavatn (Heiliger See). Fyrir utan að öll heila sundferðin var frábær þá var þetta eitt af betri augnablikum dagsins. Ég mæli annars með þessari fuglamyndasíðu; reglulega fallegar myndir þarna.

fimmtudagur, júlí 06, 2006

glóandiheitar kveðjur

Það er 29°C hiti á skrifstofunni minni. Valið stóð milli 26°C og súrefnissnauðs lofts eða 29°C og súrefnisríkara lofts. Svo býður móðir náttúra upp á glampandi sól og 32°C. Nýju steikjandi hitahágildi er náð og ég ætla bara að vona að það sé víðfeðmt... ;)

miðvikudagur, júlí 05, 2006

loftmyndir

Ykkur til ánægju og upplýsingar eru hér nokkrar loftmyndir frá Potsdam. Og þeim sem halda að ég hafi þurft að fara í yfirlitflug yfir Potsdam til að redda þessum myndum fyrir ykkur, er bent á hið bráðsniðuga kortagoogle ;)
Hér á myndinni er stærri rauði hringurinn um húsið þar sem skrifstofan mín er, sá smærri er um "saununa" (skáli þar sem er eins og í saunu þessa dagana) þar sem tækin og tólin eru. Rauða línan er leiðin um steinlagðan akveg til að komast í mötuneytið (græni hringurinn), aðalbygginguna (norðan mötuneytis) eða áfram í mælingaskálann. Græna línan sýnir aðra leið um skuggsælan skógarstíg, ahh... ;)
Nyrsti rauði depillinn er þar sem ég bý, rauða línan sýnir leiðina í vinnuna og hinir deplarnir sýna annars vegar skrifstofuna og hins vegar saununa.
Hér sést hvar ég bý (rautt), hvar er mjög gott að henda sér út í vatnið Heiliger See (gult) og svamla um í sólinni meðal kviknakins fólks (kommúnísk gildi þar enn í hávegum höfð og þá heitir það jú bara félagi Jón og félagi Gunna), Schloss Cecilienhof (blátt) þar sem m.a. skipting Þýskalands eftir seinna stríð var ákveðin og rétt aðeins út af kortinu (bleikt) er Glienicker-brú þar sem Sovétmenn og Bandaríkjamenn skiptust á njósnurum á dögum kalda stríðsins. Þarna á myndinni sést líka aðalbrautarstöðin, Pfingstberg, Russische Kolonie, Neuer Garten, Nuthe Park, Park Babelsberg, miðbærinn, Tiefer See og Jungfernsee og ... en ég ákvað að láta þetta fernt bara nægja...

Annars gengur vinnan hér hægt en fer í rétta átt, sem fyrr. Samt getur verið talsvert erfitt að gera eitthvað af viti í yfir 30°C ... En þá er jú eitt ráð að skella sér til sunds í Heiliger See og vel þess virði að grillast á leiðinni þangað á hjólinu. Stefni á slíka sundferð á morgun :)