mánudagur, maí 21, 2012

þrír fjórðu

Sem sé þrír fjórðu í meðgöngu, ekki í teppinu. Teppið hefur staðið í stað síðustu vikur, vantar 3 ferninga í að vera búin að hekla saman helminginn. Þetta skotgengur svona þegar ég kem mér í það, en það er búið að vera svo margt annað í gangi og á prjónunum undanfarið.

Kórinn lauk vetrarstarfinu með árlegum tónleikum á 1. maí í Konsthallen í Lundi og grillveislu á eftir. Það var fallegasta veður, þótt það væri ekki neitt svo hlýtt nema í sólinni. Alla vega mun hentugra veður til grillunar en í fyrra (þá byrjaði að rigna í fyrsta skipti í heilan mánuð akkúrat um það leyti sem fór að hitna í kolunum...). Tónleikarnir gengu líka ágætlega. Alltaf jafngaman að komast í sal með almennilegum hljómburði - ekki kennslustofu sem drepur allan óm niður eins og rýmið sem við æfum í :S

Í syngjandi sveiflu ;)

Svolítið oflýst, en notalegt í sólarblíðunni.

Ég fór í sykurþolspróf fyrir um einni og hálfri viku síðan. Það kom auðvitað allt glimrandi út úr því. Það kom mér annars á óvart að sykursulldrykkurinn sem maður þarf að drekka á fastandi maga var ekkert slæmur, svona þegar ég var búin að kreista úr eins og einni sítrónu út í hann. Bragðaðist þá bara eins og einhver íþróttadrykkur. Ég heklaði svo sama ferninga eins og vindurinn, þessa tvo tíma sem þurfti að bíða þar til blóðsykurinn var mældur.

Við Sigurður áttum 6 ára afmæli saman fyrir viku síðan. Ætluðum af því tilefni út að borða kvöldið áður, en ég nældi mér í eitthvert nebbkvebb þá helgina og var voða tuskuleg, svo við frestuðum þeim plönum. Við fórum í útskriftarveislu á föstudagskvöldið, hún Iskra úr hópnum hans Sigurðar var að klára doktorinn. Ósköp notalegt það. Létum svo verða af því að fara út að borða á laugardag, fórum strax klukkan fimm í rólegheitunum eftir búðarráp (jebbs, við erum voða rómantísk ;) ). Fórum á stað sem heitir Meat og fengum sæti við glugga þar sem verið var að heilsteikja grís á stéttinni fyrir utan. Ekkert slor útsýni það :) Og maturinn náttúrlega mjöööög góður.

Sumarið kom núna í gær, sunnudag. Sól og blíða og yfir 20°C. Í dag fór hitinn upp undir 25°C og það er sama í boði á morgun. Púff, hvað það verður gott að komast heim í íslenskar 10-15°C... :P Jebb, ég er mörgæs.

Annars líður tíminn við að gera lista yfir það sem búið er að redda og þarf að redda. Pælingar yfir burðarpokum, skiptitöskum, taubleyjum o.s.frv. og við bætist endalaus hringsnúningur í þvottavélamálum. Þar fyrir utan er náttúrlega vinnan og námið og próf í næstu viku (kræst!). Svolítið mikið að gera í augnablikinu. Ætli það verði það ekki alveg þar til við komum á klakann.

Að lokum, bumban eftir 30 vikur og 1 dag: