fimmtudagur, október 26, 2006

húbbla

Kominn tími til að sýna smá lífsmark. Það er bara eitthvað svo lítið að frétta :S En kannski hægt að tína eitthvað til...

Fór á hádegistónleika í Norrænahúsinu í gær. Hljómsveit Hafdísar Bjarnadóttur lék þar 6 lög eftir Hafdísi (þar af eitt aukalag því þótt klukkan væri orðin eitt, þá bara urðum við að fá að heyra meira ;) ). Leitt hversu dræm mæting var. En lögin hennar Hafdísar eru brill. Ótrúlega fjölbreytt. Alls kyns stefnur og stílar :)

Að öðru leyti er ég á kafi í hinum breiða og stóra og (núorðið) venjulega námssúpupotti. Sit yfir tugblaðsíðna-löngum skammtafræðidæmum með harðsperrur á við hraustlega Vadim-"dry land"-æfingu (síðan í sundinu) eftir að hafa tekið vel á axla-, brjóst- og bakvöðvum, þríhöfða og tvíhöfða í fyrradag. Þarf nauðsynlega að komast í sund í dag til að liðka aumingjans vöðvafrumurnar mínar og tilheyrandi sinar.

Mamma verður með frænkukvöld annað kvöld og keppist við að baka kökur og smyrja brauðrúllutertur. Maginn í mér hoppar af kæti við tilhugsunina um alla afgangana ;)

En annars ef ég týni blogginu á ný innan um skammtakerfi, grúpur, bauga og afleiðujöfnur, þá má alltaf leita þangað sem margt er að frétta: draga andann djúúúúpt og skella sér í eina maraþonfærslu hjá Bjarnheiði systur ;D

mánudagur, október 09, 2006

sko

Ég hef yfirgefið Símann og flutt mig yfir til SKO. Ef þið reynduð að hringja eða senda sms í dag frá 12-20, þá var það árangurslaust því sauðurinn Líney skildi nýja sim-kortið eftir heima hjá sér. Sé svo til hvernig SKO stendur sig eftir áramót, hvort ég flytji mig aftur yfir til Símans.
Bara láta ykkur vita af flutningunum...

sunnudagur, október 01, 2006

margt og mikið

Um það leyti sem ég skrifaði síðustu færslu var fyrsta skammtafræðiógeðsskammti annarinnar nýlokið. Síðan þá hefur annar skammtur runnið í gegn, töluvert þægilegri en sá fyrsti, ásamt ógrynni annarra verkefna. Ég hef líka steikt afmælispönnsur (með misgötóttum árangri), stýft taglið af við teygjuna, keypt mér fartölvu (sem ég sit við núna), kynnt undur eðlisfræðinnar fyrir gestum Vísindavöku, legið ofurlítið í leti, vafstrast í uppsetningu fartölvunnar (sem annars var í höndum Sigurðar nokkurs), spilað fótbolta og vakið við það hálsbólgu úr tveggja vikna dvala (arg!), hjálpað oggopínkuponsulítið við undirbúning kveðjuteitis Bjarnheiðar systur, setið í því um klukkutíma áður en ég stakk af á góðan en heldur langan Raunveru-fund (hagmunafélag nemenda í raunvísindadeild), kvatt Bjarnheiði systur og knúsað (farin til náms í stærðfræði við þýðverskan háskóla í Freiberg) og rænt rúminu hennar, passað húsið í fjarveru foreldranna (í Búlgaríu, endalaust flandur á fólkinu...), farið í abbskaplega notalegt afmæli til Ástu og soðið árlega tómatsósu úr 5,3 kg af tómötum (með þrem tilraunum til að sneiða af mér jafnmarga fingur og heilmiklum laukgráti).
Ojá, það er alltaf meir en nóg að gera ;)