föstudagur, desember 24, 2010
fimmtudagur, desember 23, 2010
ketkrókur
Ketkrókur, sá tólfti,
kunni á ýmsu lag. -
Hann þrammaði í sveitina
á Þorláksmessudag.
Hann krækti sér í tutlu,
þegar kostur var á.
En stundum reyndist stuttur
stauturinn hans þá.
Þetta er búinn að vera ansi annasamur dagur, a.m.k. miðað við heimsókn hjá ömmu á Akureyri. Við Inga komum jólatrénu upp og skreyttum það, ég skellti mér í Bónus og Blómaval með ömmu (sem tekur náttúrlega um þrefalt til fimmfalt lengri tíma en venjulega því amma er amma og þar fyrir utan hitti hún frænku okkar og þá er amma líka amma og hefur gaman af að rabba lengi lengi - jafnvel þótt það sé t.d. ís og frostpinnar í skottinu á bílnum... ;) ) og svo brunaði ég í bæinn til að kaupa allra síðustu jólagjafirnar sem nást fyrir jól (jú jú, það verða 1-2 eftir-jólagjafir í ár). Bráðlega mun ég svo bruna áfram austur á bóginn í Ærlæk í Öxarfirði til Sigurðar míns og fjölskyldu. Yfir og út!
Ritað af Líneyju Höllu
um klukkan
20:30
0
epli
Merkimiðar: daglegt líf, jólasveinar
miðvikudagur, desember 22, 2010
gáttaþefur
Ellefti var Gáttaþefur,
- aldrei fékk sá kvef,
og hafði þó svo hlálegt
og heljarstórt nef.
Hann ilm af laufabrauði
upp á heiðar fann,
og léttur, eins og reykur,
á lyktina rann.
Ritað af Líneyju Höllu
um klukkan
15:19
1 epli
Merkimiðar: jólasveinar
þriðjudagur, desember 21, 2010
gluggagægir
Tíundi var Gluggagægir,
grályndur mann,
sem laumaðist á skjáinn
og leit inn um hann.
Ef eitthvað var þar inni
álitlegt að sjá,
hann oftast nær seinna
í það reyndi að ná.
Aumingja amma fékk ælupest í nótt og líður ósköp illa í dag, þótt hún sé hitalaus. Ósköp leitt :( Við Inga virðumst hafa sloppið hingað til (krossa putta!) Við skelltum okkur tvær í sund í morgun og ég tók þátt í sundleikfiminni fyrir ömmu. Við vorum bara þrjár, enda hefur snjórinn bara aukist. Risaskaflar og ruðningar upp um allt. Stuð að vera krakki á Akureyri núna ;) Við Inga ætlum að fá okkur bæjarrölt og sjá hvort einhverjar fleiri jólagjafir rati ofan í poka.
Ritað af Líneyju Höllu
um klukkan
13:05
0
epli
Merkimiðar: daglegt líf, jólasveinar
mánudagur, desember 20, 2010
bjúgnakrækir
Níundi var Bjúgnakrækir,
brögðóttur og snar.
Hann hentist upp í rjáfrin
og hnuplaði þar.
Á eldhúsbita sat hann
í sóti og reyk
og át þar hangið bjúga,
sem engan sveik.
Við Inga frænka sváfum út í morgun meðan amma skellti sér í sund og sundleikfimi eins og venjulega. Þær voru þó bara þrjár í leikfiminni, snjór og jólastúss virðist halda mörgum heima. Við Inga fórum í sund eftir síðbúinn morgunmat, með viðkomu á pósthúsinu þar sem ég kom jólakortum í póst á síðasta degi til að senda kort innanlands, hvað annað ;) Sundið var yyyyyndislegt. Best í heimi :) Svo stússuðumst við Inga ýmislegt fleira, kíktum í bæinn þar sem ég fór í jólaklippinguna, litum við í Ásabyggðinni og komum svo við í Hrísalundi til að kaupa fisk í matinn. Það er alltaf svo notalegt hjá ömmu á Akureyri :)
Ritað af Líneyju Höllu
um klukkan
12:59
1 epli
Merkimiðar: daglegt líf, jólasveinar
sunnudagur, desember 19, 2010
skyrjarmur
Skyrjarmur, sá áttundi,
var skelfilegt naut.
Hann hlemminn o´n af sánum
með hnefanum braut.
Svo hámaði hann í sig
og yfir matnum gein,
unz stóð hann á blístri
og stundi og hrein.
Flugið okkar var 8 klst of seint. IcelandExpress eru sem sé bara með eina flugvél í notkun milli Köben og Íslands. Vélin átti að fara Keflavík->Köben->Akureyri->Köben->Keflavík á einum degi - hefja flug frá Keflavík 07:00 að morgni og stoppa í 50 mínútur á hverjum flugvelli milli fluga. Vélin lagði ekki af stað fyrr en 14:57 frá Keflavík... Þessi seinkun virðist svo bara vinda upp á sig því þessi flugvél er í dag (21. des.) orðin 14 og hálfum tíma of sein. Bjarnheiður átti flug með IE frá Berlín sem átti að lenda rétt eftir miðnætti en er nú áætluð 17:20 til Keflavíkur - 17 tíma seinkun! Þetta er snargalið.
Ritað af Líneyju Höllu
um klukkan
12:53
0
epli
Merkimiðar: jólasveinar
laugardagur, desember 18, 2010
hurðaskellir
Sjöundi var Hurðaskellir,
- sá var nokkuð klúr,
ef fólkið vildi í rökkrinu
fá sér vænan dúr.
Hann var ekki sérlega
hnugginn yfir því,
þó harkalega marraði
hjörunum í.
Dagurinn í dag fór nær allur í jólasveinaleiðangur hingað og þangað um bæinn. Við höfðum ýmislegt upp úr krafsinu en best að segja sem minnst um það ;) Svo var að redda hinu og þessu á síðustu mínútu og pakka. Ég byrjaði ekki á því fyrr en rétt fyrir tíu. Úbbs. Þegar töskugarmurinn var fullur mundi ég svo eftir hvers vegna ég þarf að endurnýja hann - stöngin til að draga töskuna er föst niðri og haldið orðið grunsamlega laust. Meira úbbs. Nú er að nálgast miðnætti svo það er hætt við að ég verði ansi lúin í fyrramálið. Aðeins meira úbbs. En tjah, þetta reddast ;)
Ritað af Líneyju Höllu
um klukkan
22:43
0
epli
Merkimiðar: jólasveinar
föstudagur, desember 17, 2010
askasleikir
var alveg dæmalaus. -
Hann fram undan rúmunum
rak sinn ljóta haus.
Þegar fólkið setti askana
fyrir kött og hund,
hann slunginn var að ná þeim
og sleikja á ýmsa lund.
Askasleikir sleppur inn á réttum degi miðað við íslenskan tíma ;) Dagurinn er búinn að vera svooolítið þéttpakkaður: Þvottatími kl. 7 í morgun, mjög áhugaverður fyrirlestur kl 9:15, jólaglögg og nemendakynningar í framhaldi af því, útbúa mitt eigið kennsluyfirlit ársins, hádegismatur, doktorsvörn Jonasar, maraþon tiltekt á skrifborðinu mínu og ákvarðanataka um hvað ég þyrfti að taka með heim, slembin strætóferð heim (strætó kemur bara þegar hann kemur þessa snjóþungu daga), fataskipti í einum hvelli, slembin strætóferð niður í bæ í veisluna hans Jonasar, heimferð um tíu, símtal í foreldrahús, síðustu umferðir á ungbarnateppinu handa krílinu hennar Hönnu, frágangur, skolun, hárnæringarbleytir, skolun og útbreiðsla teppisins til þerris, rabb við Bjarnheiði systur, jólasveinn dagsins. Sofa. Jólasveinaleiðangur niður í bæ á morgun.
Ritað af Líneyju Höllu
um klukkan
23:43
0
epli
Merkimiðar: daglegt líf, jólasveinar, skóli
fimmtudagur, desember 16, 2010
pottaskefill
Sá fimmti, Pottaskefill,
var skrítið kuldastrá.
- Þegar börnin fengu skófir
hann barði dyrnar á.
Þau ruku upp, til að gá að
hvort gestur væri á ferð.
Þá flýtti' ann sér að pottinum
og fékk sér góðan verð.
Jæja, þetta hafðist allt. Fluginu seinkaði um rúmlega hálftíma, svo ég komst heim um ellefu og í bólið um hálf eitt, þ.e. ekkert svo rosalega seint. Ég náði því að skvera mér nógu snemma á lappir í morgun og með prófverkefnin upp í skóla í tæka tíð, fyrir klukkan 8:00. Það var allt í lagi veður í morgun en fljótlega fór að snjóa og hefur snjóað nær sleitulaust síðan svo nú er hægt að segja að það sé vetrarveður hérna. Spurning hvort ég muni hjóla eða spóla heim? Það verður alla vega stuð.
Annars beið mín óvænt ánægja þegar ég kom heim því Sigurður var búinn að taka íbúðina í jólatiltekt og -hreingerningu og meira að segja taka til á skrifborðinu sínu (við skulum ekkert minnast á ástandið á skrifborðinu mínu, dúddírarírei...). Ég ætti kannski að bregða mér oftar í burtu í svona nokkurra daga skreppitúra? ;)
Ritað af Líneyju Höllu
um klukkan
14:39
0
epli
Merkimiðar: daglegt líf, jólasveinar, skóli
miðvikudagur, desember 15, 2010
þvörusleikir
Sá fjórði, Þvörusleikir,
var fjarskalega mjór.
Og ósköp varð hann glaður,
þegar eldabuskan fór.
Þá þaut hann eins og elding
og þvöruna greip,
og hélt með báðum höndum,
því hún var stundum sleip.
Ég sit núna upp á skrifstofu í háskólanum hjá Bjarnheiði og reyni að gera eitthvað af viti (haha...) þar til ég þarf að taka strætó út á flugvöll (17:48). Það er ekki enn búið að tilkynna um neina seinkun á fluginu, svo nú er bara að krossa putta. Snjórinn gerir mönnum enn lífið leitt hérna og því mikið um seinkanir :P Það er endurtektarpróf klukkan 8:00 í fyrramálið í kúrsinum sem ég var dæmatímakennari í fyrr í haust og ég þarf að mæta þar galvösk með prófblöðin upp í háskóla í tæka tíð. Þétt dagskrá, ha? Púff, ég vona svo sannarlega að fluginu seinki ekki mikið svo ég verði ekki eins og draugur allan daginn á morgun :-o
Ritað af Líneyju Höllu
um klukkan
14:37
0
epli
Merkimiðar: jólasveinar
þriðjudagur, desember 14, 2010
stúfur
Stúfur hét sá þriðji
stubburinn sá.
Hann krækti sér í pönnu,
þegar kostur var á.
Hann hljóp með hana í burtu
og hirti agnirnar,
sem brunnu stundum fastar
við barminn hér og þar.
Tók sannkallaðan eðlisfræði- og blaðurþoldag í dag. Hélt fyrirlestur um Wigner-staðbindingu í nanóvírum (e. Wigner localization in nanowires) í morgun. Bjarnheiður systir skildi að mestu hvað ég var að tala um - jíha! Steffi, leiðbeinandinn minn, hélt líka fyrirlestur seinna um daginn um skammtapunkta og hvirfla í þeim. Þess utan reyndi ég að fylgja eftir samræðum hjá Steffi og "eðlisfræði-gestgjafanum" okkar honum Alejandro Saenz (hvorugt kann að enda samræður þegar umræðuefni eru uppurin, æ-ó-æ) og fræddist um rannsóknirnar sem eru gerðar í hópnum hans Alejandro (ósköp áhugavert). Á morgun reyni ég að vinna úr upplýsingaflóði dagsins í dag og flýg svo aftur til Lundar um kvöldið. Vona að snjórinn valdi ekki svaka töfum eins og þegar ég flaug hingað til Berlínar :P
Ritað af Líneyju Höllu
um klukkan
20:48
0
epli
Merkimiðar: jólasveinar
mánudagur, desember 13, 2010
giljagaur
með gráa hausinn sinn.
- Hann skreið ofan úr gili
og skauzt í fjósið inn.
Hann faldi sig í básunum
og froðunni stal,
meðan fjósakonan átti
við fjósamanninn tal.
Við Bjarnheiður erum ákaflega þægar og góðar systur. Sönnuðum það enn og aftur í dag þegar okkur tókst á innan við 2 klukkutímum að finna okkur sín hvor leðurstígvélin en leit að slíkum stígvélum hefur staðið í um 3 ár hjá mér og eitthvað aðeins minna hjá Bjarnheiði. Við fengum sem sé beiðni frá foreldrunum í gær um að ljúka slíkum innkaupum af í hvelli því við ættum að fá leðurstígvél/kuldaskó í jólagjöf. Sko okkur!
Ritað af Líneyju Höllu
um klukkan
21:07
0
epli
Merkimiðar: jólasveinar
sunnudagur, desember 12, 2010
stekkjastaur
Stekkjastaur kom fyrstur,
stinnur eins og tré.
Hann laumaðist í fjárhúsin
og lék á bóndans fé.
Hann vildi sjúga ærnar,
- þá var þeim ekki um sel,
því greyið hafði staurfætur,
- það gekk nú ekki vel.
Úbbs, Stekkjastaur komst ekki til bloggbyggða sökum dagsferðar til Dresden. Ég er sem sé í heimsókn hjá Bjarnheiði systur í Berlín og við skelltum okkur í dagsferð til Dresden í gær með félagi erlendra doktorsnema við Humboldt-háskólann, til að skoða borgina sem eitt sinn var á á heimsminjaskrá UNESCO og elsta jólamarkað Þýskalands. Ég var að vísu hálflasin og raddlaus og því hálfsofandi eins og gengur, en hva, ég hélt augunum opnum á réttum stöðum og augnablikum... Verð þekkt hér eftir sem þögla og sofandi systir hennar Beu (Bjarnheiðar) ;)
Ritað af Líneyju Höllu
um klukkan
20:59
0
epli
Merkimiðar: ferðir, jólasveinar












