Er veðrið ekki yndislegt í dag? Vindurinn er hlýr! Ég fer bara að halda að það sé komið almennilegt vor og [krossa puta] bráðum sumar! Svei mér, ef ég tími nokkuð að vera hjátrúarfull og óska þess að það komi næturfrost aðfaranótt fimmtudagsins (sumardagurinn fyrsti...) ;)
Á sunnudegi fyrir rúmum tveim vikum fluttu pabbi og mamma næstum allt úr þvottahúsinu. Á mánudagsmorgni fyrir viku huldi Bjarnheiður stigapallinn við forstofuna, stigann niður í kjallara og gólfið í kjallaraholinu með byggingaplasti og límdi sem vitlaus væri með málaralímbandi upp á vegg. Þetta var allt gert vegna „yfirvofandi“ skólplagnaframkvæmda í raðhúsalengjunni okkar. Borunin hófst svo í okkar húsi ekki fyrr en núna í gærmorgun. [Við erum rosalega fegin að vera úti á enda og vera þar með síðust í röðinni, því þvottahúsgólfið er búið að vera opið í að verða tvær vikur hjá þeim fyrstu í röðinni núna (t.d. ekki hægt að þvo þvott o.fl.).] Við Bjarnheiður klæðum okkur því í útiskó til að komast í herbergin okkar til að sofa. Nokkuð sérstakt. En mamma er arfapirruð og undin eins og gaddavír yfir framkvæmdunum, borhávaðanum og öllu rykinu og veseninu. Hvernig væri hún ef við hefðum verið fyrst í borunarröðinni?
Ég flúði hins vegar til ömmu og afa í Sigtúni í gær eftir skóla og steinsofnaði á sófanum hjá þeim, við tifið í klukkunni í stofunni; tikk takk tikk takk. Enn soldið slöpp eftir að smá kvefpest um helgina.
Hugi frændi fermdist borgaralega á sunnudaginn. Bjarnheiður var fulltrúi okkar fjölskyldu við athöfnina og skemmti sér konunglega. Tvær bráðefnilegar rokksveitir úr röðum fermingarbarna, Felix Bergsson, Halldóra Geirharðsdóttir / Barbara trúður, Sigrún Valgarðsdóttir o.fl. Það óð svoleiðis á henni þegar hún var að lýsa öllu fyrir okkur :D Við gáfum Huga 50+10 lítra bakpoka og buff fyrir hárlubban í fermingargjöf. Við Bjarnheiður pökkuðum þessu inn eins og skútu (Hugi er siglingakappi) með buffið sem [landa]kort. Skútan hét náttúrlega Gjöf EA ;) Hugi var reglulega ánægður með Gjöfina og við þá auðvitað líka :) Svo var líka ákaflega skemmtilegt að amma kom með Huga og fjsk. frá Akureyri og hún gisti hjá okkur þessa daga, mið.-sun. (Hlynur, Kristín, Hugi og Lóa gistu hjá Gunna og Huldu).