föstudagsfjör
Ég horfði fram á þennan feita og pattaralega dag á fimmtudagskvöldi og hugsaði innst inn: "úff..." Kæruleysi á föstudagskvöldi og ljúfur svefn á laugardagsmorgni ekki í boði þessa helgina. Svo var þetta nú ekki svo slæmt:
Mætt vestur í háskóla um hálf níu og farið beint upp á bókasafn að leysa skiladæmi í algebru I. Tími í algebru I milli 10 og hálf tólf, þá hádegishlé og svo rúmlega fjórfaldur skammtafræðidæmatími milli 13.20 og klukkan að verða fimm - með einu 20 mín hléi. Mikil þörf á næringu eftir það; fór út í féló og át appelsínu. Sat þar og sötraði næstum einn lítra af hvítölinu hans Sigurðar (sem honum fannst ekki gott) meðan ég hlustaði á einstaklega skemmtilegar bollaleggingar Ásu, Atla og fleiri Stigla um hvað væri hægt að gera milljón sinnum (eitthvað sem ekki hver sem er myndi gera milljón sinnum) og krafsaði meira í algebruna mína. Eftir að niðurstaða var fengin um
- að engum myndi endast aldur til að drekka milljón kaffibolla (jafnvel þótt þeir væru á stærð við expresso-bolla),
- hversu mörg baðkör af kaffi Atli væri búinn að drekka um ævina,
- að þar sem það munaði hlutfallslega svo litlu í kostnaði á því að keyra milljón kílómetra á Toyota Aygo eða eyðslumeiri og þægilegri bíl, þá myndi maður nú frekar velja þægindin...
...og algebrudæmin mín voru samasem leyst, skottaðist ég aftur upp á safn til að kíkja á tölvupóst og tex-a algebrudæmin (pikka á tölvu). Skammtafræðin sat greinilega enn eitthvað í mér, því ég skrifaði tvisvar sinnum Heisenberg í stað Eisenstein. Haldið heim á leið. Kvöldmatarafgangar runnu ljúflega niður og svo var pikkinu haldið áfram um hálf níu. Viljinn til þess þó greinilega eitthvað farinn að dala, því smáhlé til ýmissra annarra smáverka, dunds og slæpings urðu ansi mörg... Var þó lokið klukkan tíu. Þá tók við tilraun til að rúlla upp gömlu prófi í stærðfræðigreiningu: aukatími til að reikna gegnum tvö gömul próf framundan klukkan 9-12 að morgni laugardags. Þeirri vitleysu hætt á miðnætti og farið að sofa. Og svei mér þá ekki neitt gífurlega erfitt að vakna að morgni. Enda ekki verra að vakna við íslensk sönglög í flutningi Kristins Sigmundssonar og Jónasar Ingimundarsonar á gömlu góðu Gufunni... ;)