sunnudagur, maí 29, 2005

skemmtilegt

Gleymdi að segja ykkur frá því hvað margt skemmtilegt kemur til af því að við Íslendingar erum svo lítil þjóð. Fyrir 2-3 árum komst ég að því að þáverandi kærasti Hörpu (yngri dóttirin á Stað, '82 módel) væri eldri sonur umsjónarkennarans míns í 5.-7. bekk, Þóru Melsted. Yngri sonur Þóru, Bjarki, var svo kúarektor á Stað í a.m.k. tvö sumur, enda held ég að það séu fáir sem heillast ekki af því að vera á Stað. (Ég var kúarektor á Stað sumurin '97-99'). Ég hafði ekki hitt Þóru síðan ég lauk 7. bekk, jafnvel þótt hún kenndi enn við Laugarnesskóla og ég hjólaði reglulega þar framhjá næstu 7 árin. En þegar ég var núna fyrir vestan, skutluðust Þóra og pabbi hennar með Bjarka að Stað (Bjarki í æfingaakstri). Svo var ég svo heppin að fá far með Bjarka og foreldrum hans til Reykjavíkur þegar þau komu að ná í hann.
Merkilegt hversu langt maður þarf að ferðast til að hitta fólk sem þó er svo nálægt...

Annars er það að frétta af mér að ég er farin að gera eitthvað gagnlegt í vinnunni (vona ég a.m.k. ... ;) ) og klossfestist í Harry Potter í vikunni. Las fjórðu og fimmtu bókina (á ensku). Á síðustu blaðsíðunum í bók fimm, í dag kl 14.15, hringdi góð vinkona pabba. Jamm, sonur hennar, prófessor Finnur, hafði gleymt að hringja í m.a. okkur og bjóða okkur í útskriftarveisluna sína kl 15.00 í dag (ákaflega líkt Finni, hehe). Pabbi og mamma eru núna um það bil að lenda (voru í Svíþjóð og Danmörku) en Bjarnheiður var að vinna á Árbæjarsafni í dag. Svo ég gleypti í mig það sem eftir var af Harry Potter, blaðaði í ljóðabókum Sigfúsar Daðasonar (pabba finnst hann góður, ég treysti smekk hans) og fann prýðilegt ljóð fyrir nýstúdent. Sem betur fer áttum við gjafakort sem hentaði því ég hafði engan tíma til að hrista eitt slíkt fram úr erminni, litum og pappír. Ég skrifaði upp ljóðið, nagaði pennan *smjatt*, skrifaði (vonandi) eitthvað viturlegt í kortið og setti í umslagið *sleik*. Skipti um föt í snatri o.s.frv., hækkaði hnakkinn á hjólinu (Bjarnheiður á bílnum) og hentist af stað á Skeiðarvog með aðra hönd á stýri en hina á mjöðminni svo faldurinn á sumarkjólnum fyki örugglega ekki upp... Mætti í veisluna rúmlega fjögur. Og var ekki svikin. Finnur og fjölskylda eru yndisleg. Og vinir og ættingjar þeirra afar skemmtilegt og indælt fólk. Jafnvel þótt ég sjái þau varla nema þriðja hvert ár eða svo (vinina og ættingjana sko), þannig að þau muna tæpast eftir mér, þá er alltaf gaman að spjalla við þau og hlusta á þau. Svo var líka svo gott veður og við sátum úti og sleiktum sólskinið. Bjarnheiður kom að verða kl sex, dauðþreytt úr vinnunni með vinnukonufléttur út í loftið en var fljótt lífguð við með veitingum og spjalli. Hjólinu potuðum við í skottið á bílnum...

mánudagur, maí 23, 2005

komin heim

Ég er komin heim með lambalykt á höndunum, óhrein vinnuföt í fulla þvottavél, strigaskó sem lykta eins og heilt fjárhús og roða í kinnum. Dásamlegt. Hef reyndar ekki sofið neitt ákaflega mikið síðustu vikuna (fór alltaf á fætur kl 7 til að taka við af næturvaktarfólkinu í fjárhúsunum og yfirleitt ekki að sofa fyrr en um eða yfir miðnætti vegna skemmtilegra bóka) og var því heldur sybbin svona fyrsta vinnudaginn í dag :-S En það var svosem allt í fína. Mér líst ágætlega á þetta á ÍSOR, en það er nú voða lítið hægt að dæma um það eftir einn dag. Get fyrst farið að gera mér hugmynd um hvernig sumarið verður eftir svona viku eða tvær...

fimmtudagur, maí 12, 2005

eftir-próf plan

Það er alltaf svo skemmtilegt með prófin hvað maður man eftir mörgu skemmtilegu sem hægt er að gera. Bækur (allar aðrar en námsbækur) og bíómyndir verða alveg einstaklega áhugaverðar ásamt gönguferðum, spjalli og vefrápi. Sem betur fer á ég engan tölvuleik sem ég hef sérstakan áhuga á...

Og auðvitað er ég komin með skemmtilega "eftir-próf" dagskrá:
fös. 13.5.
- kl 16.30 klára síðasta prófið (hæ hó og jibbíjei og jibííjei!)
- kl 17.00 síðasti trompettími vetrarins, og sá síðasti í TSDK (í bili a.m.k.)
- [kvöldmatur]
- kl 19.00 hlusta á tvo fiðlunemendur í hálfgerðu vorprófi
- sundsprettur
- afmæli hjá Hófí (stærðfræðidömu)
lau. 14.5.
- pakka í snarhasti og bruna vestur í sveitasæluna fyrir hádegi
15.5. - 22.5. hlaða batteríin og gleyma flestu öðru en sauðburði, mjöltum og öðrum sveitastörfum
mán. 23.5. fyrsti vinnudagurinn á ÍSOR

Ég hlakka til!!!

sunnudagur, maí 08, 2005

Llamist af hlátri

Góða skemmtun:

The Llama Song