Sýnir færslur með efnisorðinu fréttir. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu fréttir. Sýna allar færslur

laugardagur, nóvember 01, 2008

jæja...

Kominn tími til að blogga. Ég hef varla afsökun lengur, því verkefna-, skýrslu- og prófatímabil síðustu fjögurra vikna er hérumbil búið. Já, hérumbil, því þótt nýr fjórðungur með nýjum kúrsum sé í raun hafinn þá er enn eftir að skrifa eina skýrslu og reikna haug af heilavindandi dæmum úr hálfleiðarafræðum fyrir annan af kúrsunum á síðasta fjórðungi. Brrraaa...

Nú, hvað er helst í fréttum? Líkast til ein hundgömul frétt sem gleymdist að flytja ykkur í bloggsneyðinni: Við Sigurður höfum ákveðið að halda okkur hér í Lundi næstu 4-6 árin. Með öðrum orðum á að kýla á doktorsprófið hérna næsta haust, en ekki í Bandaríkjunum. Viðar Guðmundsson benti mér á þennan fína rannsóknarhóp hér í LU/LTH síðasta vor, sem ég er þegar farin að grúska aðeins með, þótt ég gefi ekki alveg fullkomlega í fyrr en eftir jól líkast til (er enn 100% í kúrsum). Sigurður þefaði svo uppi rannsóknarhóp í nanó-lífeðlisfræði (nanobiophysics) sem er meir en til í að fá hann í lið með sér. Okkur líkar líka prýðilega við okkur hérna (lítill bær, stutt í allt, allt til alls, IKEA í Málmey rétt hjá, Köben spottakorn í burtu...) enda menningin ekki svo ólík þeirri íslensku. Reyndar hef ég safnað saman ýmsum "hneykslanlegum" atriðum í fari/menningu Svía, en það kemur allt í sérpistli síðar - bíðið spennt ;) En já, Lundur er á heildina litið alveg brill, nema þegar kemur að því að finna leiguhúsnæði. Það er eintóm þrautaganga og bras. Þetta reddaðist í haust því Sigurður er skiptinemi og fékk því úthlutað herbergi hjá alþjóðaskrifstofunni. Það herbergi missir hann auðvitað eftir jól, enda aðeins skiptinemi á haustönn. Mig vantar því einhverja kompu fyrir næstu önn og trúið mér, það er ekkert gaman að vera að leita að svoleiðis. Ef þið þekkið einhvern (sem þekkir einhvern [sem þekkir einhvern]) sem gæti átt laust herbergi, endilega látið mig vita! Huggun harmi gegn er að næsta haust ættum við að vera komin fremst í röðina hjá stúdentagörðunum hérna og þ.a.l. fljúga inn í þá íbúð sem okkur hentar, úje.

Nýjasta fréttin er svo sú að ég er á leið til Þrándheims núna á mánudaginn og verð þar fram á miðvikudag. Það er svona samráðsfundur meðal ýmissa samstarfsmanna/-hópa rannsóknarhópsins míns og verður örugglega gaman. Svo gaukaði Bjarnheiður því að mér að Þrándheimur sé á sömu breiddargráðu og Ísland, svo mér ætti að líða svolítið eins og heima ;)

Við Sigurður munum svo líkast til renna til Köben helgina 22.-23. nóvember, heilsa upp á Sissa frænda og Ane í Gry og gista hjá þeim. Munum líka örugglega draga Pétur Gordon með okkur í eitthvert brall þarna á laugardeginum áður en við stingum af til Sissa - eða verður þú ekki örugglega í Köben 22. nóvember, Pétur? Hugmyndin er að fara a.m.k. á sýninguna Bodies (líkamspartasýningin). Þeir sem hafa áhuga að fljóta með eru velkomnir!

Læt þetta duga í bili. Skal reyna að muna eftir að vera duglegri með myndavélina, Bjarnheiður, en ég lofa engu! ;)

E.S. Minnst á Bjarnheiði systur: Hún er á lokasprettinum með diplómuritgerðina sína sem á að vera tilbúin til prentunar eftir rúma viku (10. nóvember). Þar sem Bjarnheiður er m.a. með gersamlega algerlega fullkomlega óhæfa leiðbeinendur, þá er þetta töluvert bras. Þess vegna eiga allir sem vettlingi geta valdið að senda henni helling af góðum hugsunum og kannski smá línu sem segir henni hversu ógurlega klár hún er og dugleg og metnaðarfull og einfaldlega dásamleg. Takk fyrir :)

miðvikudagur, janúar 23, 2008

borgar-ó-stjórn

Eruð þið líka búin að fá nóg af klækjunum í borgarstjórn? Þá getið þið fengið smá útrás hérna... Annars minntist amma í Sigtúni á það að einhver í útvarpinu hefði talað um soldið skemmtilegan lið í sveitarstjórnarlögum: Ef illa gengur að koma saman stjórn í einhverju sveitarfélaginu, þá ku nágrannasveitarfélög mega koma inn í dæmið. Ðaldég Gunnar I. Birgisson myndi fíla sig vel í Reykjavík: "Það er gott að búa í Kópavogi... hm, og Reykjavík".

föstudagur, nóvember 30, 2007

þróunaraðstoð

Þetta er ansi athyglisverð grein. Hafið þið nokkurn tíma hugsað um þróunaraðstoð út frá þessu sjónarhorni? Hvers vegna í ósköpunum hef ég aldrei orðið vör við þessa skoðun í umræðum um þróunaraðstoð hér á Íslandi? Síðast þegar ég vissi vorum við Íslendingar samansaumaðir nískupúkar út af því að við létum svo lágt hlutfall af þjóðarframleiðslunni renna til þróunaraðstoðar. Það er kannski eins gott að svo er - eða hvað?

fimmtudagur, mars 22, 2007

jahá

Ég get svo svarið það! Á þetta að heita dómari? Ég væri reyndar til í að sjá rökin fyrir þessu, en fyrr má nú aldeilis vera...

Fór annars í ræktina áðan, í fyrsta skipti eftir árás hins fastsetna víruss. Ansi góð tilfinning :)