sunnudagur, desember 27, 2009

jólin hér, jólin þar...

Jæja, allir komust jólasveinarnir til byggða þótt seint væri. Netið hérna fyrir norðan er töluvert inn og út en þó mest úti og agalega hægt þegar það er inni. Það verður svona þegar allir námsmennirnir flykkjast heim í sveitina ;) Svo sat ég í bíl með tveim kvefgemlingum (Sigurði og Hörpu) alla leiðina frá Reykjavík til Ærlækjar og því varla hjá því komist en ég smitaðist - sér í lagi þegar maður er knúsaður í tíma og ótíma af einum áðurnefndra gemlinga. Ég var því dulítið lasin á aðfangadag, í fyrsta skipti svo ég muni til (atburðaminni mitt er reyndar arfaslakt svo takið þessa fullyrðingu hæfilega alvarlega). Ég ætlaði að vera komin í Grundargerðið til afa og ömmu í dag, en það varð auðvitað ekkert úr því með svoddan kvefaumingjaskap. Ekki vil ég smita gömlu hjónin og ég er nú ekki neitt sérstaklega skemmtilegur félagsskapur, hálfsofandi og eins og með blýklump í hnakkanum... :P En kannski ég verði ferðafær á morgun. Svo er stefnan sett á höfuðstaðinn fyrir áramótin, því Gunna og Summi bjóða í kalkún á gamlárskvöld eins og venjulega og það er ekki hægt að sleppa því :) En jamm og já, yfir og út áður en netið dettur út á ný ;)

fimmtudagur, desember 24, 2009

kertasníkir


Þrettándi var Kertasníkir,
-þá var tíðin köld,
ef ekki kom hann síðastur
á aðfangadagskvöld.

Hann elti litlu börnin,
sem brostu glöð og fín,
og trítluðu um bæinn
með tólgarkertin sín.





-- Gleðileg jól! --

miðvikudagur, desember 23, 2009

ketkrókur


Ketkrókur, sá tólfti,
kunni á ýmsu lag. -
Hann þrammaði í sveitina
á Þorláksmessudag.

Hann krækti sér í tutlu,
þegar kostur var á.
En stundum reyndist stuttur
stauturinn hans þá.

þriðjudagur, desember 22, 2009

gáttaþefur


Ellefti var Gáttaþefur,
- aldrei fékk sá kvef,
og hafði þó svo hlálegt
og heljarstórt nef.

Hann ilm af laufabrauði
upp á heiðar fann,
og léttur, eins og reykur,
á lyktina rann.

mánudagur, desember 21, 2009

gluggagægir


Tíundi var Gluggagægir,
grályndur mann,
sem laumaðist á skjáinn
og leit inn um hann.

Ef eitthvað var þar inni
álitlegt að sjá,
hann oftast nær seinna
í það reyndi að ná.



Best að hleypa gjuggaranum að áður en hann gleymist. Ég er alvarlega farin að halda að ég hafi skilið heilann eftir í Lundi, a.m.k. þann hluta sem lýtur að skipulagi, minni og einbeitingu. Sem sé, varúð! óvenjurugluð Líney gengur laus...

sunnudagur, desember 20, 2009

bjúgnakrækir


Níundi var Bjúgnakrækir,
brögðóttur og snar.
Hann hentist upp í rjáfrin
og hnuplaði þar.

Á eldhúsbita sat hann
í sóti og reyk
og át þar hangið bjúga,
sem engan sveik.




Við mamma skruppum á jólamarkaðinn í Heiðmörk (þ.e. við Elliðavatn) og fundum þar nokkrar jólagjafir. Ekki gekk eins vel hjá okkur Sigurði sem skunduðum niður í bæ í leit að jólagjöfum fyrir hvort annað. Þ.e.a.s. það gekk ekki neitt :P Sjáum til hvort það reddist á morgun. Svo komu Bladur og Birte og Matthías og Bjarki í kvöldmat: hreindýrakæfu, svínasteik og vel vökvaða jólaköku. Eftir matinn spiluðum við púkk og Matthías hélt áfram sigurgöngu sinni, en hann segist aldrei hafa tapað í púkki. Magnað. Þetta stóð að vísu ansi tæpt hjá honum um tíma en hann slapp fyrir horn og endaði sem "stórbóndi héraðsins" ;)

laugardagur, desember 19, 2009

skyrjarmur


Skyrjarmur, sá áttundi,
var skelfilegt naut.
Hann hlemminn o´n af sánum
með hnefanum braut.

Svo hámaði hann í sig
og yfir matnum gein,
unz stóð hann á blístri
og stundi og hrein.



Í dag bakaði ég gyðingakökur. Það var svolítið skrautlegt þetta árið. Fyrir það fyrsta var deigið einhverra hluta vegna óvenju þurrt og leiðinlegt að vinna með. Í öðru lagi hljóp einhver sjálfstæður vilji í fjárans ofninn eftir að hann hafði verið þrifinn ósköp vel af henni móður minni. Þ.e. hann hitnaði vel, náði réttum hita og hélt honum um stund en slökkti svo barasta á sér og engin leið að tjónka við hann fyrr en hitinn var kominn niður fyrir um 120°C, þá loksins vildi hann hitna aftur. Það er ekkert sérlega gaman að baka þegar hitastigið rokkar milli 120°C og 200°C... Þetta hafðist þó allt á endanum en ef ofnar gætu hikstað, þá hefði þessi fengið krónískan hiksta í dag. Verst að lambahryggur kvöldsins verður lengi að steikjast (við 120-220°C) og eymingja pabbi þarf að steikja jólakæfu ársins hjá ömmu og afa í Sigtúni á morgun. Vesensmesen.

föstudagur, desember 18, 2009

hurðaskellir


Sjöundi var Hurðaskellir,
- sá var nokkuð klúr,
ef fólkið vildi í rökkrinu
fá sér vænan dúr.

Hann var ekki sérlega
hnugginn yfir því,
þó harkalega marraði
hjörunum í.




Búmm! Jú jú, Hurðaskellir mættur á svæðið. Una litla lýsti honum fyrir mér í gærkvöldi. Hann kæmi sko alveg "búmm!". En samt hélt hún að hann myndi ekki ná að vekja sig, hún svæfi alltaf svo vel ;) Í dag er útskriftarveisla klukkan fimm og afmælispartý klukkan níu á dagskránni. Æ já, og mögulega einhver vinna/lærdómur fram að því. Ég held samt satt best að segja að ég hafi skilið einbeitinguna eftir í Svíþjóð, því það gengur ósköp lítið eitthvað að læra hjá mér þessa dagana...

fimmtudagur, desember 17, 2009

askasleikir


Sá sjötti, Askasleikir,
var alveg dæmalaus. -
Hann fram undan rúmunum
rak sinn ljóta haus.

Þegar fólkið setti askana
fyrir kött og hund,
hann slunginn var að ná þeim
og sleikja á ýmsa lund.




Þá er það næsti jólasveinn, einum degi of seinn. Hef eiginlega enga afsökun fyrir því, var bara svolítið í ruglinu í gær og gleymdi mér við að lesa Harry Potter. Setti þó í og hengdi úr tveim þvottavélum, sko mig ;) Svo komu líka Hlynur, Kristín, Hugi, Lóa, Una og Númi litli í amminammi góðan silung um kvöldið. Alltaf svo indælt að fá þau í heimsókn :)

miðvikudagur, desember 16, 2009

pottaskefill


Sá fimmti, Pottaskefill,
var skrítið kuldastrá.
- Þegar börnin fengu skófir
hann barði dyrnar á.

Þau ruku upp, til að gá að
hvort gestur væri á ferð.
Þá flýtti' ann sér að pottinum
og fékk sér góðan verð.



Æ-æ-æ og ó-ó-ó, nú klikka ég alveg á blessuðum jólasveinunum. Þessi er tveim dögum of seinn :P Vandamálið er að ég man alltaf eftir að setja þá inn þegar ég er einvhers staðar víðsfjarri tölvum og netsambandi eða slíkar græjur eru uppteknar eða ég er aaaaalveg að fara að sofa. Úbbosí. En alla vega, daginn sem þessi sveinn hefði átt að birtast hérna var ég að jafna mig eftir seint flug auk eins og hálfs tíma seinkunar (við fórum að sofa rétt fyrir fjögur, þ.e. um fimm að morgni miðað við sænskan tíma :/ ). Skellti mér í jólaklippinguna og að ná í fyrirframjólagjafir handa Bjarnheiði og pabba og mömmu (Jólin hennar Hafdísar, sem er alger snilldardiskur) og kíkti líka til afa og ömmu í Sigtúnið.

þriðjudagur, desember 15, 2009

þvörusleikir


Sá fjórði, Þvörusleikir,
var fjarskalega mjór.
Og ósköp varð hann glaður,
þegar eldabuskan fór.

Þá þaut hann eins og elding
og þvöruna greip,
og hélt með báðum höndum,
því hún var stundum sleip.



Jei! Núna er alvöru snjókoma hérna :) Samt ekki svo mikil að nokkur hætta sé á að lestin okkar út á Kastrup komist ekki, það sést jú ennþá í grasið... Ah, það er svo jólalegt að horfa út um gluggann :) En best að halda áfram að vinna/læra/grúska - flutningar í nanóvírum, hér kem ég!

mánudagur, desember 14, 2009

stúfur



Stúfur hét sá þriðji
stubburinn sá.
Hann krækti sér í pönnu,
þegar kostur var á.

Hann hljóp með hana í burtu
og hirti agnirnar,
sem brunnu stundum fastar
við barminn hér og þar.



Það er ennþá snjóföl yfir hérna, en skærgrænt gras sést vel í gegn. Frekar skringilegt, en þetta snjósmotterí lýsir samt merkilega mikið upp í skammdeginu :) H&M og jólalagakóræfing núna eftir vinnu og hraðpökkun í tösku og jafnvel smávegis heimilisþrif í framhaldinu. Vinna á morgun og svo heim heim heim... :)

sunnudagur, desember 13, 2009

giljagaur


Giljagaur var annar,
með gráa hausinn sinn.
- Hann skreið ofan úr gili
og skauzt í fjósið inn.

Hann faldi sig í básunum
og froðunni stal,
meðan fjósakonan átti
við fjósamanninn tal.




Það snjóaði svolítið hérna í dag, svona aggapínkuponsulitlum snjókornum. Mjög útlenskt. En það var samt indælt, ég hef ekki séð snjókomu hérna þennan veturinn (tel klikkuðu hagléljademburnar í haust ekki með). Annars hefur dagurinn að mestu farið í þvottastúss, smá lærdóm og talsverða leti. Tveir dagar enn, og þá leggjum við af stað til Íslands - jei!

laugardagur, desember 12, 2009

stekkjastaur



Stekkjastaur kom fyrstur,
stinnur eins og tré.
Hann laumaðist í fjárhúsin
og lék á bóndans fé.

Hann vildi sjúga ærnar,
- þá var þeim ekki um sel,
því greyið hafði staurfætur,
- það gekk nú ekki vel.



Sko til, fyrsti jólasveinninn mættur :) Stekkjastaur klikkar ekki. Ehm-hm, og löööööngu kominn tími til að ég bloggi ofurlítið. Það hefur bara verið helst til mikið að gera og bloggstuðið ekkert alltof mikið eins og gengur.

Hvað um það. Ég fór til Hamborgar um síðustu helgi. Var sum sé á ráðstefnu þar á mánudag og þriðjudag og nýtti því tækifærið og skaust strax á laugardegi yfir í stórborgina svo ég gæti heimsótt hana Friederike Koch, sérlega indæla 85 ára þýska konu sem ég kynntist þegar ég var aupair í Hamborg fyrir 5 árum, en hún vann á heilsuhælinu í Hvergerði 1957-59 og hefur haldið tengslunum við Ísland síðan þá, talar m.a. ennþá íslensku! Þið spyrjið kannski hvers vegna ég heimsótti hana en ekki aupair-fjölskylduna mína, en málið er að ég varð að velja á milli og Friðrika hefur komið 3 sinnum í heimsókn síðan ég kynntist henni árið 2004 svo það var alveg kominn tími til að Friðrika fengi að vera gestgjafinn. Enda var hún yfir sig ánægð að fá mig þótt ekki væri nema í rúman sólarhring og dekraði svoleiðis við mig. Yndisleg alveg hreint :) Og ég gat slappað vel af áður en þessi líka þéttpakkaða (en afar skemmtilega) tveggja daga ráðstefna byrjaði. Ég flutti sjálf fyrirlestur á mánudeginum með tilheyrandi stressi. Kynnti meistaraverkefnið mitt fyrir fólkinu. Gekk sosum ágætlega, en ég var ekki alveg nógu sátt. Hvað um það, fyrirlestrarnir voru næstum allir nokkuð skiljanlegir eða a.m.k. áhugaverðir og ótrúlega fáir fóru út fyrir sín tímamörk. Svo er alltaf gaman að hitta stóran hóp af fólki sem er á sömu bylgjulengd og maður sjálfur, þ.e. einstakir eðlisfræðinördar ;)

Þriðjudaginn 1. desember fékk ég að vita svona óformlega að ég hefði náð doktorsnemastöðunni á eðlisfræðidieldinni minni (matfys) við LTH. Jahúúúú! Mikið var. En ég er enn ekki búin að fá formlegt bréf með þessari niðurstöðu og skil satt best að segja ekki hvað tefur fyrir. Raunar skil ég það engu betur en hversu seint staðan var auglýst (september) eða hve langur skilafresturinn var (15. október) eða hve seint ég var boðuð í viðtal (lok nóvember). Raunar er algert met í ljósi þessara endalausu tafa og seinagangs, að ákvörðun hafi verið tekin sama dag og viðtölin voru haldin. Athugið að það var byrjað að tala um að þessi staða yrði auglýst "bráðlega" í mars á þessu ári. Sömuleiðis sagði deildarstjórinn að auglýsingin væri "tæknilega séð tilbúin" og ætti bara eftir að senda hana á einhverj skrifstofu einhvern tíma í maí/júní (man ekki nákvæmlega). Það var greinilega afar erfitt að ýta á "send"-takkann... Og ef þið teljið ykkur lesa einhvern pirring þarna á milli línanna, þá hafið þið rétt fyrir ykkur - ég er búin að vera meira en dauðpirruð yfir þessum seinagangi síðan í byrjun sumars því það er aldrei öruggt að maður fái svona stöðu, samkeppnin getur verið hörð, og það er gersamlega óþolandi að lifa svo mánuðum skiptir í óvissu um hvort maður muni geta haldið áfram í námi eða vera algerlega í ruglinu næsta árið - Sigurður var jú búinn að komast í doktorsnám við LU frá og með september (og á hans deild var þetta greinilega ekki svona svakalega mikið mál, afgreitt á tæpum mánuði frá lokum umsóknarfrests!). Prófessorinn minn hún Steffi var löngu búin að segja að hún vildi hafa mig áfram, svo hvað var eiginlega málið? Alla vega, ég er komin með stöðu og afar litlar líkur á að það breytist þótt það sé allt óformlegt ennþá. En ég á eftir að benda þeim á deildinni á að þessi framkoma er þeim ekki beint til framdráttar þegar um erlenda nema er að ræða, sem ekki vita hvort þeir séu að koma eða fara, þótt þetta gangi mögulega hugsanlega kannski upp í tilviki Svía sem búa hvort eð er í Lundi. Eftir að það er búið mun ég einbeita mér að góðri Pollýönnu-hugsun: Ég fékk stöðuna! :)

Við Sigurður komum heim á klakann aðfaranótt 16. desember og förum aftur út 6. janúar. Okkar ágætu nágrannar ætla að líta eftir íbúðinni okkar og tæma póstkassann - frábært :) Dagarnir heima eru strax farnir að fyllast og hin árlega suður/norður tímaskipting farin að mótast (fyrir norðan um jól, sunnan um áramót). Jólagjafapælingarnar eru komnar á flug og sömuleiðis hvað skal kaupa hérna sem ekki fæst á Íslandi eða er margfalt dýrara á Íslandi en hér. M.ö.o. gróft/sterkt/sætt sinnep og norskan geitaost (Gudbrandsdalsost). Segi ekkert um niðurstöður gjafapælinganna og -kaupanna ;)

En jæja, ég er farin að sofa. Við eigum þvottatíma í fyrramálið kl 9 og eins gott að vera ekki of sein því annars gætum við misst af vélunum okkar. Góða nótt!

laugardagur, október 10, 2009

að spræna bleiku

Í dag eldaði ég rauðrófusúpu. Henni fylgja þær bráðskemmtilegu aukaverkanir að búast má við appelsínugulum, jafnvel skærbleikum lit í klósettskálinni morguninn eftir. Ég bíð spennt ;)

Annars er það helst í fréttum að við Sigurður eigum nú rúm og sofum þ.a.l. ekki lengur á sólskinsgulum svefnsófa og samanbrjótanlegum IKEA-bedda með örþunnri dýnu. Ó, ljúfa líf! Sömuleiðis vorum við að enda við að koma upp gardínum í svefnherberginu. Þá er bara eftir að kaupa sér bókahillur, tvö skrifborð, einn skrifborðsstól, potta, pönnur, fleiri eldhússtóla, meira leirtau, sófaborð, svefnsófa o.s.frv. o.s.frv. Þetta kemur allt með kalda vatninu. Eða öllu heldur fleiri launaumslögum og fleiri IKEA-ferðum.

Reyndar voru rúmkaupin okkar fremur skrautleg. Upphaflega ætluðum við nefnilega að leigja kerru hjá Statoil og reyna að fá lánaðan bíl með dráttarkúlu hjá einhverjum góðum kunningja, en svo kom í ljós að enginn dráttarkúlubíleigandi gat séð af bílnum sínum yfir miðjan daginn. Obbosí. Svo við enduðum á því að leigja stærsta mögulega fólksbílinn hjá Statoil í Lundi til að renna upp í Helsingborg (IKEA í Málmey er að flytja svo það fæst voða lítið þar þessa dagana). Bíllinn reyndist vera Audi A4 skutbíll. Þegar til kastanna kom reyndust tvær dýnur og einn rúmgafl frá IKEA smellpassa inn í Audi-inn hvað hæðina varðar. Mátti ekki vera millimetra þykkara. Glópalán! Afganginum af rúminu og helling af gardínustöngum og fleiru tókst að troða til hliðar við dýnurnar og gaflinn. Tveir kollar komust á gólfið aftur í ásamt öllu smádótinu sem við keyptum í IKEA, bakpokunum okkar og ýmsu fleiru. Tveir eldhússtólar komust einn til hvorrar hliðar í aftursætunum með því að Sigurður stillti pakkanum upp, ég hélt honum uppi og hann skellti hurðinni í snatri. Úje. Þá var eftir að festa skottlokið niðri. Það tók heillangan tíma að finna út úr því þ.s. það var eiginlega ekki hægt að krækja neins staðar í það. Audi er sem sé ekki hugsaður til flutninga, heldur til að vera lúxusbíll. En það hafðist á endanum með heilmiklu kollaklóri, humm-i og ha-i. Þá var yfirdýnan eftir og ökumannssætið of framarlega til að Sigurður gæti ekið. Hann tróð sér því í farþegasætið fram í með dýnuna samanpressaða í fanginu, svo þétt að hann gat varla andað almennilega inn. Ég held enginn hafi fyllt þennan bíl jafn rækilega og við gerðum. Svo ókum við af stað í hellidembu - það kom þetta líka rosalega skýfall rétt eftir að ég tróð yfirdýnunni á eftir Sigurði og skellti hurðinni á eftir. En þá kom babb í bát, því ég vissi ekki hvaða leið átti að fara til að koma sér til baka til Lundar og það voru engin skilti til að hjálpa. Þar að auki þurfti ég að nota Sigurð sem hægri hliðarspegil. Við enduðum því fyrst á hraðbrautinni upp til Ängelholm, sem sé í þveröfuga átt en við ætluðum. Út af hraðbrautinni, stoppa, kíkja á kort, horfa í kring, finna álitlegt skilti... Af stað héldum við á ný og í þetta sinn í rétta átt. Og allt í einu spratt upp hvítt skilti með "E20 S, E6 S". Sem betur fer var enginn bíll hægra megin við mig því ég þurfti að skipta strax um akrein til að elta skiltið áður en Sigurður gat tékkað. Fjúh. Og svo gekk vandræðalaust að elta uppi þessi hvítu skilti þar til við loks komumst á E20/E6 hraðbrautina niður eftir til Lundar. Við skulum segja að Sigurður hafi verið svaka mjög rosalega feginn að komast út úr bílnum þegar heim kom.

Smá pæling í lokin, svona þegar ég les síðasta pistil. Við Sigurður áttum bæði afmæli í ár á föstudegi og bæði urðum við 25 ára. Hvorugt okkar hélt partý. Það læðist að mér sá grunur að við séum svolítið spes... ;)

laugardagur, september 19, 2009

lífið utan lærdóms

Í gær átti Sigurður afmæli. Þar sem hann er alinn upp í sveit þar sem þessi tími ársins er undirlagður af leitum, réttum og slátrun og tilheyrandi stússi, þá er hann ekkert vanur því að halda upp á afmælið sitt neitt sérstaklega. Sem er mér náttúrlega æði illskiljanlegt. Mér tókst samt að lokka hið óviljuga afmælisbarn með á tælenskan veitingastað í hádeginu ásamt Francesc (nýdoktor, þ.e. postdoc, í hópnum mínum). Francesc og Jonas (annar leiðbeinandinn minn, doktorsnemi) höfðu svo skipulagt hópspilun á tölvuleiknum Counter Strike eftir hið vikulega föstudagskökukaffi. Ég held við höfum verið níu í leiknum þegar mest var, abbskaplega gaman. Við byrjuðum um fjögurleytið og hættum ekki fyrr en um hálf sjö. Þá brunuðum við Sigurður heim á leið til að þvo þvott og setja nautasteik inn í ofn. Roastbeef - amminamminamm! :) Eins og ykkur kannski grunar þá settumst við ekki að borðum fyrr en skömmu fyrir níu, orðin ansi soltin. Eftir matinn var svo eins og það hreinlega slokknaði á mér og ég skreiddist undir sæng, alveg búin eftir vikuna. Ég svaf eins og steinn í nótt, en afmælisbarnið sem át hraustlega af nautinu (hvað annað?) áttaði sig aðeins of seint á því hvað klukkan var margt þegar hann fyllti á belginn, og svaf því heldur illa. Úbbosí...

Í morgun skaust ég svo á flóamarkað með Bergþóru, mætti á kórstjórnarfund um tólf (já, ég slysaðist í stjórn kórsins í fyrradag) og slappaði aðeins af heima áður en við Sigurður röltum á alls kyns vísindabrall og -bauk í tilefni menningarnætur í Lundi. Við komum enn á ný seint heim, rétt ódáin úr hungri og með handónýtar lappir. En gaman var það, meira að segja þrátt fyrir óíslendingsvænar dæmigerðar endalausar sænskar biðraðir. Þar hélt ég uppi heiðri íslenskra prjónakellinga og prjónaði þar sem ég stóð í röðinni ;)

þriðjudagur, september 08, 2009

ah-búh!

Það er að verða kominn mánuður síðan ég kom hingað út til Lundar á ný og trúið þið mér, það hefur verið mikið að gera allan tímann síðan þá. Ég byrjaði á því að ná í lykla að nýju 3ja herbergja íbúðinni okkar Sigurðar, losa mig við farangurinn þangað og skoða alla króka og kima íbúðarinnar - sem reyndist hrein og fín og sérdeilis prýðileg, sérstaklega þegar tekið er tillit til þess að það á að mála hana alla bráðlega. Kórfélagi Jonas hennar Guðrúnar var svo indæll að lána mér fjögur hjól og tvær hendur til að flytja dótið mitt af gamla staðnum og upp á "Kjamma" (uppnefni Íslendinga á Kämnärsrätten þar sem við búum núna) og bætti svo um betur með því að fá mér örbylgjuofn til langtímaleigu. Alltaf gott að eiga góða að :)

Þá tók við lagleg törn við ritgerðarskrif og undirbúning fyrirlesturs með geðheilsubætandi djöfulgangi með kórnum og kvenhluta kórsins inn á milli. Meistararitgerðinni skilaði ég á mánudeginum fyrir rétt rúmum þrem vikum, djöfulgangurinn náði hámarki í fimmtugsafmælinu hans Sverris 29. ágúst (sjá t.d. hér; kröfur um klæðaburð voru litríkar) og fyrirlesturinn hélt ég mánudaginn fyrir um tveim vikum (gekk vel :) ). Sigurður mætti á svæðið daginn fyrir fyrirlesturinn; alltaf stundvís pilturinn sá, ehrm, ólíkt kærustunni ;)

Afslöppunin eftir þessa törn fólst í að elda og borða góðan mat, spá og spökúlera í fínu en ansi tómu íbúðinni okkar, sitja svo eins og klessur uppi í hroðalega gulum svefnsófa sem mér áskotnaðist, þar sem Sigurður leitaði á netinu að hentugum þráðlausum beini sem uppfyllti allar kröfur hans en ég hreinlega gleypti í mig dásamlega ljóðabók eftir Draumeyju (Fimm vörður á vegi ástarinnar) sem hún gaf mér í tilefni verkefnislokanna. Mjög svo notalegt.

Næsta dag hófst svo doktorsnámsumsóknartörn, þ.e. uppfærsla á ferilsskrá, lokasnurfus á meistararitgerðinni, sjálfshólsbréfaskriftir (bvðeh!), pappírsvesen og alls kyns meira vesen. Þetta hafðist allt og ég og Daniel (félagi úr meistaranáminu) röltum með umsóknirnar okkar til hans Everts sem sér um að fara í gegnum þær. Það vantaði eiginlega bara að við Daniel valhoppuðum þetta hönd í hönd, svo fegin vorum við að vera laus við umsóknirnar. Í staðinn þá dembdi ég mér í næstu verkefni en Daniel fór heim að sofa eftir ansi svefnlitla helgi vegna umsóknarskrifanna.

En já, nú er ég smátt og smátt að vakna til lífsins á ný. Svei mér þá, blogg! Verst að ég get ekki farið núna og heimsótt alla þá sem ég ætlaði að heimsækja í sumar en ekkert varð af. Ég fór ekkert vestur á Stað, leit ekki í Skál til Jóhönnu í Mosó, fór ekki aftur norður til að heilsa upp á afa og ömmu og Hlyn og fjölskyldu á Akureyri eða tengdó á Ærlæk og sá afa og ömmu í Sigtúni, MH-vinkonurnar og Stigla ekki nærri eins oft og ég vildi. Sömuleiðis klikkuðu öll útilegu- og gönguferðaplön og daglegar sundferðir. Tjah, þið sjáið að það verður nóg að gera á næsta ári við að bæta upp fyrir sumarfríleysi þessa árs... :P ;)

Og nú er ég búin og búin á því og farin að sofa. Góða nótt 3-)

föstudagur, júlí 31, 2009

góðar og vondar fréttir

Vondu fréttirnar eru þær að okkur Sigurði leiðast ritgerðaskrifin ógurlega mikið. Góðu fréttirnar eru að Sigurður hefur fundið út að það er ekki hægt að deyja úr leiðindum (annars væri hann löngu dáinn).

fimmtudagur, júlí 09, 2009

kostaðir tenglar

Nei nei nei, þetta blogg er ekki dautt! Það er bara í verkefnapásu...

Og minnst á verkefni. Þegar ég les tölvupóstþráðinn um fyrsta uppkastið að ritgerðinni minni, þá koma eftirfarandi tenglar/auglýsingar til hliðar í boði gmail:

Your Zodiac Horoscope
Insert Your Birthdate & Get Answers about Past-Present and Future. Free
www.AboutAstro.com/horoscope

Algae Biomass Companies
Private and Gov't Funding Boosts Algae's Profit Potential. New Rpt.
www.GreenChipStocks.com/Algae_Rpt

Energy harvesting kits
Wireless sensors with datalogging. Energy conversion gains up to 400%
www.ambiosystems.com

Natural Born Healer
Distance Healer of people, pets, and places. You'll love this work.
www.distancehealer.net

Spectral Solutions
We supply instruments for surface analysis like XPS and SIMS
www.spectral.se

Magnetic Energy Generator
Generate Your Own Free Electricity. DIY Step By Step &Tech Help.
www.Magni-Works.com

Modified Trypsin
Sequencing-Grade. Highly Stable. >70% activity after 24 hrs at 30°C
www.empbiotech.com

Waste2Tricity
electricity from MSW using proven gasification technology
www.Waste2tricity.com

Hydrogen From Water
Hydrogen gas electrolyzers Buy direct to save time and money
www.HGenerators.com
Stjörnuspá, heilun og trypsín (meltingarensím fyrir prótín) - uuuhh??? Ég vissi ekki að þetta kæmi ofursvölum bóseindum á snúningi nokkuð við ;)

laugardagur, maí 23, 2009

stiklað á stóru

Jæja, loksins nenni ég að blogga aftur. Ætli ég reyni ekki að muna eftir helstu atburðum og gefa smá yfirlit. Gleymi samt örugglega einhverju. En hvað um það...

Blá blómabreiða og hjól sem erfitt er að stela - og nota - fyrir framan háskólabókasafnið. Fólkið hérna er ekki húmorslaust, sko... ;)

Byrjum fyrir rétt tæpum mánuði, þ.e. 24. apríl. Þá áttum við Bjarnheiður systir afmæli. Þar sem þetta var föstudagur, þá var "fika" (þ.e. kaka með kaffinu) klukkan þrjú á ganginum mínum upp í skóla. Ég var búin að semja við kökuumsjónarmann vikunnar, hana Yvonne, um að ég mætti mæta með kringlu, en ég var ekkert að segja henni að þetta væri hin (hér um bil) árlega afmæliskringla okkar Bjarnheiðar ;) Kringlan rann ljúflega niður í alla eðlisfræðingana og ritarana og Bergþóru vinkonu mömmu (sem hringdi um morguninn til að plata mig á kaffihús en ég fékk bara til að mæta í föstudags-fiku í staðinn), ásamt ávaxtakökunum hennar Yvonne og slatta af kaffi og tei.

Krásirnar skömmu áður en fólk hrúgaðist inn í eldhúsið og stútaði þeim af bestu lyst.
Rétt fyrir fjögur stakk ég svo af yfir í eina verkfræðibygginguna, því Sverrir (í kórnum) og Þóra (konan hans) buðu mér í grillveislu í góða veðrinu. Þangað mættu líka Finnur sonur þeirra Sverris og Þóru, Haukur (í kórnum), sonur hans og María sonardóttir, Freyr (í kórnum) og tveir synir hans. Þóra vinnur sem sé á verkfræðibókasafninu og ég fékk far með henni og Finni til Hjärup. Úr varð dásamlegt kvöld með óvæntum afmælisgjöfum og afmælissöng (Sverrir er sem sé afar duglegur á fésbókinni og þefaði afmælisdaginn minn uppi ;) ), rosalega góðum grillmat og meðlæti, kátu og skemmtilegu fólki og svo hreinlega grét ég af hlátri þegar Sverrir setti diskinn "Hundur í óskilum" í græjurnar. Þessi hljómsveit (eða dúó) er alger snilld!

Amminammi grillmatur og sól og sumar (f.v. Líney, Sverrir, Haukur, Freyssonur yngri, María, Finnur, Haukssonur, Freyssonur eldri og Freyr í felum - nöfn á Freys- og Haukssonum eru vel þegin... :P)
Uppúr þessari helgi, þ.e. 24.-26. apríl, gerðist ég innipúki af verstu gerð í þessari líka bongóblíðu sem varði næstu vikurnar. Ég er með birkifrjóofnæmi sem er í fína lagi á Íslandi en er gersamlega óþolandi í löndum með alvöru birkitrjám. Ég ruslaðist ekki til læknis til að fá almennileg lyf við þessu fyrr en 5. maí. Þá byrjaði líka að rigna eftir 3 vikna þurrkatíð (þurrkar=martröð frjófnæmisfólksins, því þá hreinsast fjóið ekki reglulega úr loftinu). Úje. Ég er þó komin með almennilegar töflur við þessu sem ég tek samviskusamlega, svona til öryggis ef ég þoli grasfrjómagnið hérna ekki, og er voða kát með að geta rekið nefið undir bert loft og opnað gluggann án þess að fá hnerrakast ;)

Það var margt um manninn í Lundagård þegar karlakór Lundarháskóla söng inn vorið.
1. maí er mikill merkisdagur hérna í Svíþjóð. Við Bergþóra fórum þá að hlusta á karlakór Lundarháskóla syngja við Lundagård (þar sem aðalháskólabyggingarnar eru). Það var ro-sa-lega flott, nema hvað stöð 4 var með beina útsendingu þaðan og skaut inn einhverju aukaefni og auglýsingum á milli og þá heyrðum við sem stóðum þarna bara talið, sem var ótrúlega hallærislegt. En svo söng kórinn líka við styttuna af stofnanda sínum og þá var engin sjónvarpsútsending, bara grín og glens í kórfélögunum :) Þetta var um kvöld og svolítið kalt, svo við yljuðum okkur með tei heima hjá Bergþóru á eftir.

Við Bergþóra, kátar að hlusta á karlakórinn syngja við styttu stofnanda kórsins - kórinn var stofnaður fyrir 200 árum!
4. maí var síðasta eiginlega kóræfing vetrarins hjá Íslendingakórnum hérna. Hún var haldin heima hjá meistara Draumeyju og allir mættu með eitthvað að borða fyrir kaffihléið. Ég gleymdi (ótrúlegt en satt!) að borða kvöldmat áður en ég mætti á æfinguna en ég sá ekki eftir því, það var svo margt gott að borða - og mikið af því! Æfingin varð náttúrlega óvenjulöng því við þurftum að kjafta svo mikið í kaffihléinu og syngja mikið því þetta var jú síðasta æfingin. Mikið svakalega var gaman :)

Einhvern tíma á þessu tímabili spilaði ég líka tvisvar fótbolta með fótboltaliðinu hennar Guðrúnar, Sparkling Motion, í háskóladeildarkeppninni. Sérlega hressandi og skemmtilegt, þótt ég þurfi nauðsynlega að taka góða törn í að sparka bolta í vegg eða heyrúllur því hittnin er orðin agaleg af æfingarleysi. En ég gat gert fínasta gagn þarna í vörninni. Get reyndar ekki sagt að hálftíma hlaup, hopp og skopp úti í góða veðrinu hafi verið sniðug fyrir fjóofnæmið, en hva... ;)

Við Bergþóra skelltum okkur á kaffihús á laugardaginn fyrir viku til að fagna próflokum hjá henni. Hún er sem sé í spænskunámi í háskólanum. Meiri dugnaðurinn í henni :) Á eftir litum við á hústökumótmælendur sem höfðu hótað hústökum í miðbæ Lundar svo það voru lögreglumenn út um allt í stórum bílum, fótgangandi og á hestum meira að segja. Það hef ég aldrei séð áður. Magnað.

Þennan sama laugardag buðu Guðrún og Jonas í grill og söngvakeppnisgláp. Þangað mættu líka María, Helgi og Svavar litli. Svavar var reglulega hress með fyrstu keppendur kvöldsins en sveif fljótlega með Óla lokbrá í draumalandið eftir súp hjá mömmu sinni ;) Við hin fylgdumst hins vegar með spennt, allt til enda og hrópuðum öll (mishátt) upp yfir okkur þegar Ísland fékk síðustu tólf stigin og hreppti 2. sætið. Geggjað fjör ;)

Dýrðlegt ofát í undirbúiningi (f.v. Guðrún, Jonas, Helgi, Svavar og María)
Núna á uppstigningardag var árleg grillveisla kórsins haldin hjá Hauki og Siggu konunni hans, og þar var auðvitað mikið fjör. Kórstjórinn okkar, hún Hulda Birna, varð fimmtug daginn áður svo það var auðvitað búið að útbúa afmælisgjöf handa henni og breyta einum söngtextanum fyrir hana (Draumey hélt utan um það allt, hún er snillingur). Birna er á leið til Víetnam í sumar og fékk því baðhandklæði, sólhatt, sólgleraugu, stuttermabol með fílamynd á, snyrtiveski með helstu nauðsynjum, sólarvörn, örugglega eitthvað fleira sem ég er að gleyma og svo minnigabók frá öllum kórfélögunum. Draumey sá um að klippa og líma allt saman og fylla upp í bókina með ýmsum spakmælum og nótum (öllum texta breytt í "jú jú jú..." því við fáum varla að syngja með texta hjá Birnu, bara "jú jú jú..." ;D ) svo úr varð ótrúlega falleg og skemmtileg bók fyrir hana Birnu. Rigningin var svo indæl að halda aftur af sér þangað til við vorum að klára að borða svo öll garð-"verk" náðust á undan hellirigningunni og við flúðum inn í hús. Ég hins vegar hjólaði heim í dembunni og var eins og hundur af sundi dregin að því loknu því Haukur og Sigga búa í Åkarp sem er um 30 hjólamínútur í burtu þaðan sem ég bý. Sérlega hressandi að hjóla í sturtunni ;)

Þar fyrir utan er það helst í fréttum að meistaraverkefnið mitt mjaaaaakast áfram, Kishor (Indverjinn sem leigir eitt herbergið í íbúðinni) er kominn heim frá Indlandi eftir að hafa gift sig og honum leiðist nú sem aldrei fyrr, baðherbergið er loksins loksins orðið nothæft eftir margra vikna viðgerðir og endurnýjun, ég fór út að skokka í dag eftir að ég held árshlé (út af fjárans hnjánum) og fann ekki fyrir neinum eymslum - úje! (skokkaði voða varlega og bara eftir malar- og moldarstígum). Þvílík hamingja :) Svo eru bara rétt rúmar þrjár vikur í að ég komi heim og þótt það sé óraunhæft að ég klári meistaraverkefnið fyrir þann tíma, þá ætti ég að komast langleiðina með það og standa mest í snurfusi er heim kemur (ehrm-hm, *krossa putta*!).

Segjum þetta gott í bili.

fimmtudagur, maí 14, 2009

áreiðanleg veðurspá

Þið verðið að afsaka þögnina á þessu bloggi mínu. Þótt það sé frá nógu að segja, þá hef ég einfaldlega ekki verið í bloggstuði :P (og það er ekki flettismetti að kenna ;) ).

Ég kíkti á veðurspána núna áðan. Þótt ekki sé hægt að treysta henni einn sólarhring fram í tímann frekar en íslensku veðurspánni, þá er hún ágætis viðmið. Eitthvað virðast veðurfræðingarnir hins vegar hafa áttað sig á takmörkunum sínum miðað við spána fyrir laugardagsmorgun:


Nýjustu fréttir eru þær að ég flýg heim eftir nákvæmlega einn mánuð, þ.e. sunnudaginn 14. júní. Í tilefni þess að eiga eftir að búa á Sunnanväg í einungis einn mánuð enn, leiðrétti ég heimilisfangið hérna til hliðar - póstnúmerið var 22262, en á að vera 22226. Þótt Svíar geti verið leiðinlega smámunasamir, þá virðist starfsfólki póstsins hafa verið nokk sama um stafavíxlið í pósnúmerinu því öll bréf hafa borist mér, hvort númerið sem þau hafa nú borið.

laugardagur, apríl 18, 2009

sumar og sól

Sumarið er komið! Það kom fyrir um 2 vikum síðan. Svíarnir kalla þetta reyndar vor, en þeir eru jú svolítið skrýtnir blessaðir ;) Mér líkar prýðilega við þessar 10-15°C og glampandi sól nær alla daga. Prísa mig líka sæla með að Lundur skuli vera "rokrassgat" í augum Svíanna. Þeir kalla nefnilega 5-12 m/s rok, sjáið þið til. Eins gott að hafa smá kælingu fyrir svona mörgæsir eins og mig. Einhvern veginn þarf ferskt loft líka að komast inn um gluggann.

Ég fór og kaus í dag. Á að vísu eftir að kaupa frímerki og koma atkvæðinu í póst, en það verður gert á morgun. Ég fékk far með þeim Maríu og Helga úr kórnum og Svavari litla (8 vikna rúsína). Svavar var svo hrifinn af því að hafa nýtt andlit til að skoða að hann hætti við að lúlla í bílnum á leiðinni ;) Ræðismannsskrifstofan er í Höllviken, sunnan við Málmey. Þar hittum við nokkra kórfélaga og slatta af öðrum Íslendingum sem voru að kjósa. Fyrst við vorum nú komin þetta sunnarlega og veðrið fallegt og ekkert okkar að fara að gera neitt sérstakt þá tók Helgi okkur í smá bíltúr út á "nefbroddinn" á Svíþjóð að kosningu lokinni. Þarna má m.a. sjá helling af skútum, fallegum gömlum húsum í öllum regnbogans litum og hestum. Ekki amalegt. Svo varð María svöng (hún er jú með tvo í fæði ennþá) og við byrjuðum að svipast um eftir bakaríi til að fá okkur kosningakaffi. Enduðum inni á gistihúsi og þar sem klukkan var að verða fimm og María orðin glorsoltin og við Helgi líka svöng, þá enduðum við á því að fá okkur barasta kvöldmat. Fengum þessa líka fínu sjávarréttasúpu - slúrrrrp! Staðurinn heitir Gästgivaregården og er við Mellangatan í Skanör, mæli með honum ef þið eigið leið hjá. Þetta var sérlega skemmtilegur kosningadagur :)

Á morgun syngur kórinn í messu í Arlöv. Það verður örugglega gaman. Annars fer að hylla undir lok kórastarfsins, held það séu bara tvær eða þrjár æfingar eftir og svo grill, ef ég man rétt. Hmm... þarf að redda mér almennilegri dagskrá á morgun.

Ég er farin að verða óróleg með meistaraverkefnið mitt. Mér finnst ég aldrei komast í að vinna við það. Sat alla síðustu viku yfir því að lagfæra greinina sem ég skrifaði hjá ÍSOR síðasta sumar áður en hún verður birt. Ætla að klára það verk á morgun, segja búið og bless og henda mér af fullum krafti í meistaraverkefnið á mánudaginn. Vonum að það gangi eftir. Ég er búin að setja sjálfri mér tímamörk, þ.e. ég ætla að koma í síðasta lagi heim um miðjan júní. Ef mér tekst ekki að klára verkefnið fyrir þann tíma, tjah, þá verður það bara að bíða þar til í ágúst. Á reyndar eftir að tala við prófessorinn minn um þetta plan, hún dembdi sér nefnilega í eyrnabólgu beint eftir páskafríið eyminginn, svo ég hef ekki hitt hana lengi. Annars treysti ég á það að hlutirnir reddist, a.m.k. fara þeir einhvern veginn...

Ég fann aftur lestrarhestinn í mér um páskana. Ég ætlaði satt best að segja bara að taka frí laugardag og svo páskadag, en endaði með því að taka annan dag páska líka í frí. Ég sló meira að segja persónulegt met í næturlestri, þ.e. ég las til 8 að morgni páskadags. Laglegt ekki satt? ;) Svo las ég líka á páskadag og hluta af öðrum í páskum. Ljúfa líf. Ég held ég hafi ekki misst mig svona í lestri síðan ég var í grunnskóla, fyrir utan í veikindum. Verst að svona lestrartarnir stangast á við meistaraverkefnisvinnuna. Lestrarhesturinn verður því (vonandi) tjóðraður að mestu þar til ég kem heim í mitt langþráða frí.

sunnudagur, mars 29, 2009

bálreið

Ég er ekki pirruð, ekki megapirruð, ekki reið, nei, ég er bálreið. Ég asnaðist sem sé til að velja ömurlega lélegan verkefnisleiðbeinanda í einum kúrsi sem ég er í. Málið er bara að ég komst heldur seint að því hversu vanhæfur hann Sergei er. Núna sit ég sem sé með reyk út um eyrun af reiði út í þennan hálfvita (afsakið orðbragðið). Ég átti að skila verkefni 6. mars. Það gekk ágætlega að skrifa það framan af en svo strandaði ég skömmu fyrir skil svo ég sendi Sergei póst með beiðni um smá aðstoð. Ekkert svar. Sendi ítrekun 4. mars. Ekkert svar. Það var mikið að gera svo fyrst ekkert svar barst, þá skilaði ég engu verkefni 6. mars. Sendi enn á ný póst 16. mars og núna á tvö netföng hjá Sergei. Fékk svar samdægurs um að hann myndi svara mér um kvöldið. Sá póstur kom aldrei. Nú eigum við að flytja fyrirlestur á morgun, 30. mars, upp úr verkefnunum svo ég sendi enn á ný beiðni um athugasemdir 27. mars. Fékk svar um að ég fengi svar um kvöldið. Loksins loksins kom svar með athugasemdum í gær, 28. mars. Nema hvað, Sergei svaraði ekki þeim spurningum sem ég hafði spurt og kemur bara með athugasemdir við einn undirkafla í verkefninu sem inniheldur nokkrar forsendur fyrir aðalefnið. Athugasemdirnar hans Sergei annaðhvort biðja um eitthvað sem þegar er í þessum undirkafla eða eitthvað sem ég sleppti viljandi því það kemur aðalefninu barsta ekkert við. Svo toppar hann allt saman með tali um áframhaldandi samstarf eftir að kúrsinn er búinn. ER EKKI Í LAGI???? (E.S. Fyrirlestrarnir áttu upphaflega að vera 18. mars en vegna þess að Sergei kann ekki að skipuleggja sig varð að fresta þeim til 30. mars.)

En áður en ég spring af vonsku, þá er best að snúa sér að öðru. Allt öðru. Sigurður kom sem sé í heimsókn 20.-25. mars sem var alger snilld, frábært og æðislegt :) Það er ekkert gaman að vera bara í netsambandi í tvo mánuði :P Verst er að það eru 2 mánuðir enn í að við losnum úr þessari fjarbúð, en urg, best að bíta á jaxlinn og bölva í hljóði... Það er ekki eins og við séum ekki komin í æfingu í þessu eftir sumrin mín tvö í Potsdam. Bvðah! En hva, Pollýanna segir að það verði þá bara enn yndislegra þegar við komumst í sambúð á ný - og það er alveg rétt :)

Að vísu erum við svolítið úr fókus þarna (trén eru í fókus), með sólina í augun og svona, en hva...

Svo til að skemmta okkur í lokin, þá kemur hér ein Svía-staðreynd sem einhverra hluta vegna hefur enn ekki ratað hingað inn.
Svía-staðreynd dagsins - bréfabindi: Svíar, eins og svo margar þjóðir, trúa því að hjá þeim sé fyrirkomulagið á hlutunum það besta í heimi. Þeir hafa því enn ekki áttað sig á því að möppurnar sem þeir nota eru eitt stórt hönnunarklúður. Þeir gata blöðin heldur ekki eins og flestar (allar aðrar?) Evrópuþjóðir, en ég get reyndar fúslega viðurkennt að götunin hjá þeim er skynsamlegri en sú sem Íslendingar eiga að venjast (það eru alltaf fjögur göt og það eru 2 - 7 - 2 cm á milli gatanna). Hins vegar eru möppurnar alveg vonlausar. Þeim er varla hægt að lýsa í orðum, svo hérna eru myndir:

Opin mappa...

... galopin mappa

Sem sé þegar mappan er opin, þá eru blöðin svo kramin við kjölin að það er óþægilegt að fletta, illmögulegt að láta möppuna standa opna ófergða nema í miðjunni án þess að blöðin flettist til og ómögulegt að skrifa/glósa á blöðin í möppunni. Ef mappan er galopin þá er auðvitað ekki hægt að fletta í henni en það er mögulegt að skrifa/glósa á blöðin. Svo þegar maður ætlar að loka möppunni á ný þá getur það verið heilmikið púsluspil að koma pinnunum í blaðagötin á ný og í hvert sinn sem maður þarf að nota möppuna þarf að fara í gegnum sama púsluspilið. Þið skiljið hvað ég er að fara? Í venjulegum velhönnuðum möppum setur maður blöðin upp á pinnana og þarf ekkert að hugsa um það meir nema maður taki blöðin úr möppunni - ekki í hvert sinn sem maður opnar hana.

Venjuleg mappa!

Það er verulega freistandi að gera magnkaup á möppum í hvert sinn sem maður fer út fyrir landsteinana...

laugardagur, febrúar 28, 2009

allt á fullu

Jæja já. Kominn tími á blogg. Langt blogg. Ég hef verið á svolitlu flandri undanfarið og haft alveg hreint helling að gera. Sjáum nú til eftir hverju ég man...

Kaffihús og kjaftagangur

Föstudagsskyndiboðin héldu áfram með smá hliðrun. Þ.e. fyrsta laugardaginn í febrúar fékk ég sms frá Drífu (sérdeilis hressri bekkjarsystur úr grunnskóla, sem er líka í námi í Lundi) um að Tinna (ein besta vinkona mín í grunnskóla) væri í heimsókn og að þær ætluðu á kaffihús eftir um klukkutíma, einn og hálfan - hvort ég væri með? Ekki spurning. Var að vísu akkúrat þarna búin að koma mér í stellingar til að hrista eitt stykki fyrirlestur fyrir ráðstefnu í Potsdam (sjá síðar) fram úr erminni, en hva, glærurnar máttu alveg bíða ;) Mér tókst að finna stelpurnar innst í hinu ógnarlanga Ariman kaffihúsi þar sem þær sátu ásamt kærustu Drífu frá Belgíu (sem ég man ekki hvað heitir því ég er núorðið gersamlega vonlaus með nöfn á fólki sem ég hitti bara einu sinni - einhver sem veit nafnið?). Úr varð sérlega skondin og skemmtileg stund þar sem við skiptumst á helstu fréttum (ég held ég hafi ekki rabbað almennilega við Tinnu og Drífu síðan í gaggó, eh?!), fórum í keppnina "hver hefur kysst flesta?" þar sem ég skíttapaði (sá eini sanni dugir skammt í slíkum samanburði), nýttum spilastokk sem Drífa lumaði á til að rifja upp gaggóspilið mikla 'forseta' (hvað annað? ;) ) og kjöftuðum um heima og geima, en sem minnst um kreppu. Það er virkilega gaman finnst mér að hitta núna þá sem ég var með í grunnskóla og gaggó. Ég hef haldið sama sem engu sambandi við flest þeirra, því ég var á svo gersamlega annarri bylgjulengd en þau í gaggó. Það gerir það ennþá skemmtilegra að hitta þau núna því ég sé svo mikinn mun á þeim frá því, eh, 2000 (gavöð, á síðust öld!) og á móti finn ég náttúrlega hvað ég er allt önnur en þá. Þar fyrir utan eru "krakkarnir" upp til hópa sérlega skemmtilegt fólk. Mikið stuð :) Vonandi að ég nái 10 ára endurfundunum á næsta ári, ég missti af þeim síðustu út af sumarvinnunni...

Gautaborg

Nú jæja, svo var það bara vinna vinna vinna vinna... allt til fimmtudagsins 19. febrúar þegar 12 manna hópur hélt frá Lundi til Gautaborgar til að gera (þ.e. horfa á) verklega tilraun í skammtaupplýsingatækni (quantum information, QI). Fimmtudagurinn fór eingöngu í ferðalög, fyrirlestur um tilraunina og að fara út að borða með QI-fólkinu í  Chalmers. Ég náði þó að hitta Jóa í hádeginu og skófla niður hádegisverði með honum. Á föstudeginum fórum við í skoðunarferð kringum hreinherbergið í Chalmers (hreinherbergið í HÍ er eins og kústaskápur í samanburði...), skoðuðum tæki og tól og horfðum á sýnitilraunina sem dró okkur til Gautaborgar.

Ég var laus upp úr klukkan eitt og hafði þá allan heimsins tíma til að draga Jóa frá skrifstofunni og öllum lestarpælingum (meistaraverkefnið hans snýst um eyðingu út frá samskeytum lestarteina). Eftir að ég var búin að losa mig við bakpokann upp í íbúðina hans skelltum við okkur niður í bæ. Jói í leit að langermabol og nýrri íþróttatösku og ég í leit að púðursykri (sjá síðar) og myndavélartösku. Okkur tókst að finna þetta allt saman, húrra fyrir okkur! ;) Við fórum á pítsu/kebabstað um kvöldið með Palla þar sem Palli og Jói fengu sér stærsta kebab sem ég hef séð. Palli gat ekki klárað sitt, sem segir held ég allt um stærðina á rúllunni. Skömmu fyrir níu byrjaði svo fólk að tínast inn í íbúðina hans Jóa í það sem varð sérdeilis skemmtilegt Íslendingapartý. Það er sem sé hellingur af fólki sem ég þekki eða kannast við í Gautaborg að læra m.a. verkfræði og stærðfræði. Þvílíkt gaman að hitta liðið aftur :) Við vorum um 20 í ponsulitlu stúdíóíbúðinni hans Jóa þegar mest var. Þröngt mega sáttir sitja ;) Þarna var tónlistin hæfilega hátt stillt, ólíkt því sem gerist í sænskum partýum, og kjaftagangurinn þvílíkur. Fatta Svíar ekki að þetta er langskemmtilegasta fyrirkomulagið - eða hafa þeir kannski ekkert að tala um? Maður spyr sig... Aumingja Jói var dauðþreyttur eftir að hafa vaknað snemma til að mæla lestarteina fyrir hádegi í 10 gráðu frosti og sat í lok partýsins um kl hálf tvö með fjórum stærðfræðingum að kjafta um m.a. mál- og tegurfræði og líkindafræði. Úbbs... ;)

Daginn eftir kíktum við Jói aðeins í bæinn með Sveinbirni (sem hafði lánað mér dýnu til að lúra á, takk!) og hittum svo Ragga og Elínu á ljósmyndunarsölusýningu um tvöleytið. Þar skoðuðum við ógrynni af myndavélum, myndavélatöskum, ljósmyndum, linsum og ég veit ekki hvað og hvað þar til lappirnar voru við það að detta af okkur fimmmenningunum. Fjúff! En gaman var það :) Eftir þau átök var málið að sporðrenna einum hammara á mann. Að því loknu var kominn tími fyrir mig að bruna í lestina til Lundar sem hafðist allt á tilsettum tíma, úje.

Potsdam og púðursykur

Ég hafði þá einn dag til að kasta ferðamæðinni, því eldsnemma á mánudagsmorgni var ferðinni heitið á tveggja daga jarðeðlisfræðiráðstefnu í Potsdam, þ.e. lokaráðstefnu um I-GET samvinnuverkefni fjölmargra stofnana og fyrirtækja tengdum jarðhitarannsóknum. Sumarvinnuverkefnið mitt síðustu þrjú sumurin er sem sé hluti af I-GET, svo ég átti næst síðasta erindið á ráðstefnunni. Kishor, Indverjinn sem leigir hérna í sömu íbúð og ég (sko mig, búin að ná nafninu hans ;) ), flaug fyrir tilviljun með sömu vél og ég til Berlínar. Við vorum því auðvitað samferða til Kastrup, en jiminn eini hvað ég hefði verið til í að vera laus við það. Hver er með munnræpu klukkan sex að mánudagsmorgni??? Þegar ég þarf að vakna um fimm til að mæta í flug, þá vil ég helst bara horfa út um gluggann á lestinni og þegja, jafnvel fá mér kríu. En nei, Kishor var í banastuði svo ég neyddist til að vera með eyrun sperrt allan tímann til að skilja enskuna hans og koma með "yes", "no", "interesting" og "wow, great!" á færibandi því hann fattaði alls ekki að ég vildi rólegheit. Mikið var ég glöð að losna við hann í hendur vinnufélaga hans á Kastrup! Fjúff.

I-GET ráðstefnan var svo alger snilld. Heilmikið af áhugaverðum erindum sem ég skildi heilmikið af (ólíkt erindunum á ráðstefnunni í Þrándheimi, dúddúrú...) og svo var auðvitað algert æði að hitta allt fólkið í GFZ aftur (þar sem ég vann sumurin 2006 og 2007 í 6 vikur í senn). Þar fyrir utan gekk erindið mitt vel og við fengum talsverð viðbrögð jafnvel þótt við hefðum átt tvö síðustu erindin á ráðstefnunni (Harald GFZ-vinnufélagi minn átti síðasta erindið). Frábært :)

Nú kem ég að púðursykrinum. Bjarnheiður systir er algert yndi, eins og allir vita. Hún kynntist henni Anne í Freiberg og þær eru prýðisgóðar vinkonur. Anne er núna að vinna lokaverkefnið sitt hjá GFZ í Potsdam. Anne þykir púðursykur mjög góður, en hann fæst ekki í Potsdam eða Berlín (eða a.m.k. hefur hann ekki fundist þar). Því þótti Bjarnheiði alveg tilvalið að ég myndi færa Anne púðursykur til Potsdam fyrst ég var á leið þangað. Fullkomið plan ;) Anne var reyndar á námskeiði í Berlín alla síðustu viku en ætlaði að ná af mér í lok umræðna á mánudagskvöldinu. Það hafðist ekki, því ég gleymdi að svipast um eftir Anne og hún var svolítið sein. En hún hitti hina ofurindælu Angelu sem gaf mér eitt sinn kakóbolla (sjá neðst hérna) og Angela bauð Anne barasta að vera með í kvöldverðarboði ráðstefnunnar. Þar hitti ég því Anne og sat og kjaftaði við hana og Harald allt kvöldið sem gerði það að verkum að kvöldið gat ekki klikkað.

Heima á ný

Anne gaf mér baðolíukúlur fyrir að færa sér púðursykurinn. Það var algert skot úr í loftið hjá henni sem hitti beint í mark, því ég hef loksins baðkar á heimilinu í fyrsta skipti í mörg ár. Ég elska að komast í sjóðandiheitt, langt bað með svona baðolíukúlum :) Skellti mér í svoleiðis á þriðjudagskvöldið eftir langan dag og slakaði vel á. Afslöppunin krafðist þess reyndar að ég skrúbbaði baðkarið með lítið þynntu ajax-i áður en ég fyllti það af vatni, en bara betra að reyna aðeins á vöðvana fyrir slökun ;)

miðvikudagur, febrúar 18, 2009

brrr...

Ég leit út um gluggann í morgun og hugsaði: "Prýðilegt, frost úti, engin agaleg hálka, ég get hjólað upp í skóla án vandræða." Nokkru síðar gekk ég út í ullargammosíum og þykkum hlaupabuxum, ullarbol og flíspeysu og hugsaði: "Brr... það hlýtur að vera um 5 gráðu frost." Eftir að hafa dröslað hjólinu upp úr hjólakjallaranum og fest töskuna tryggilega á ótrygga bögglaberann minn (vantar eina skrúfu) hjólaði ég af stað. "Sjett, skyldi vera minna en 5 gráðu frost?" var hugsunin þá. Mig kól nú ekkert á leiðinni hingað upp eftir, en kroppmiðstöðin var á fullu allan tímann og fingurnir hálffreðnir þrátt fyirr tvöfalda vettlinga. Það var um 10 gráðu frost um þetta leyti skv. vefsíðu sænsku veðurstofunnar. Guði sé lof að það var logn...

þriðjudagur, febrúar 17, 2009

smá grín

... svona fyrst ég er þetta ódugleg að blogga.

sunnudagur, febrúar 01, 2009

bændablaðið

Ég vissi að ég hefði gleymt einhverju í gær. Greinilega svona hógvær (ekkert gleymin, sei sei nei... ;) ) því ég ætlaði að monta mig ofurlítið. Í síðasta tölublaði Bændablaðsins á Hugi frændi forsíðumyndina, Kristín mamma hans skrifar grein sem birtist á síðu 18 og svo er viðtal við Fríðu á Stað um reykskemmuna þeirra á bls 11. Þar fyrir utan sýnist mér vera ágætlega uppsett í blaðinu hvers vegna innganga í ESB er slæm fyrir íslenska bændur. Ég þarf greinilega að vera duglegri við að lesa Bændablaðið :)

laugardagur, janúar 31, 2009

skyndimatarboð

Haha, haldið þið að leikurinn frá því á föstudaginn fyrir viku hafi ekki barasta endurtekið sig í gær :) Sem sé, klukkan rúmlega fimm í gærkvöldi hringdi hún Guðrún og spurði hvort ég væri til í að snæða hjartarsteik klukkan sjö. Ekki spurning! Það hafði einhver snilldarafgreiðslukona ekki tekið í mál annað en að Jonas maðurinn hennar keypti kíló af hreinu kjöti handa fjórum fullorðnum (Gummi Hreiðars og Kata eru í heimsókn hjá þeim núna yfir helgina). Taddaramm, sú er góð í sölunni ;) Guðrún fékk nett áfall þegar risakjötbitinn barst í hús, mundi eftir frásögn minni af lambalærinu og hafði samband. Alger snilld. Þvílík lúxusmáltíð og félagsskapurinn ekki verri :) Nú er bara spurning, hver býður sig fram til að bjóða mér í skyndi í mat næsta föstudag? ;D

Svía-staðreynd dagsins - dyr: Á Íslandi opnast allar útidyr þannig að hurðin gengur inn, enda væri annað ómögulegt í þau skipti sem snjóar allhressilega. Hér í Svíþjóð er þessu öfugt farið. Eða a.m.k. svona yfirleitt. Afleiðingin er sú að ég stranda ansi oft í nokkrar sekúndur við lokaðar sænskar dyr með tilheyrandi pirringi, því það eru jú ekki allar sænskar dyr sem opnast út, svo það er ekki einu sinni hægt að koma sér upp sænskri hurðarútínu. Ég hef lengi pælt í hvers vegna í fjáranum sænskar hurðir eru svona öfugsnúnar. Skýringuna fékk ég hjá Hjalta og Silju fyrir viku síðan: Ef húsið brennur, þá er verra að þurfa að draga hurðina að sér, auðveldara að brjóta hana upp í flóttastefnuna. Tat var ok. Hins vegar þegar kemur að nær öllum öðrum praktískum hlutum þá er þetta meingallað kerfi. T.d. er gersamlega óþolandi að dröslast með hjólið niður í hjólakjallarann hérna, þar sem tröppurnar liggja alveg niður að hurðinni og pallurinn fyirr framan hurðina (sem opnast út) er ekki mikið meira en fermetri að stærð, sem þýðir að maður þarf að halda hjólinu föstu í hallanum (mikill halli) meðan maður treður lyklinum í skráargatið og opnar hurðina. Hva, smá fimleikaæfingar á hverjum degi... Sjáum til hversu langan tíma það tekur mig að venjast þessu. Enn sem komið er hugsa ég alla vega "Bvðaaahh...!#$" þegar ég kem að "öfugum" hurðum og "Aaahhh... :)" í þau fáu skipti sem ég hitti fyrir "rétta" hurð.

mánudagur, janúar 26, 2009

lúxusíbúð

Ég minntist eitthvað á að lýsa "höllinni" sem ég leigi herbergi í. Sömm sé, þetta er lítið herbergi, um 12 fermetrar að stærð, í 3ja herbergja íbúð (þ.e. 3 herbergi og eldhús). Konan sem leigir mér herbergið, Birgitte, býr í stærsta herberginu (þó undir 20 m2) og svo býr indæll Indverji í því þriðja, sem er álíka stórt og mitt herbergi. Baðherbergin eru tvö. Annað er einkaklósett Birgitte og hitt samnýtum við Indverjinn (veit ekki alveg hvað hann heitir), nema hvað við notum öll þrjú baðkarið/sturtuna sem þar er. Milli allra þessara herbergja, þ.e. herbergis Birgitte, herbergis Indverjans, baðherbergisins, einkaklósettsins, eldhússins og herbergisins míns er þröngur L-laga gangur (forstofa innifalin í honum).

Jæja, þá er komin svolítil yfirsýn yfir íbúðina. Þá er að byrja á skondnu atriðunum við hana. Íbúðin er í stuttu málli sagt úr sér gengin. Síðan ég flutti hingað hef ég myndað mér þá skoðun að Birgitte sé sérlega indæl manneskja en eigi við "sjúkdóminn" framtaksleysis magnum að stríða. Hún hefur búið hérna lengi. Leigði íbúðina framan af, en keypti hana fyrir 1-2 árum. Þegar maður leigir íbúð, þá gerir maður athugasemdir ef eitthvað þarf að laga eða endurnýja sökum elli, sérstaklega þegar maður býr þar ekki bara tímabundið. Það virðist Birgitte hafa gert í aaaafar takmörkuðum mæli. Eftir að hún eignaðist íbúðina sjálf hugsa ég að enn ólíklegra sé að nokkuð gerist, því nú þarf hún jú að redda hlutunum sjálf.

Tökum dæmi. Eldavélin hérna er prýðilegur gripur með víðum ofni. Hins vegar er hún eins og flest gömul rafmagnstæki komin með eigin sál og því þarf að læra nokkur trikk. Það þarf sem sé borðhníf eða eitthvað álíka til að tjónka við barnalæsinguna á ofninum svo hann opnist. Sömuleiðis ef maður vill stilla hitann á ofninum eitthvað hærra en 50°C, þá snýr maður ekki takkanum. Nei, maður tekur takkann af, opnar skúffu, nær í litla töng og notar hana til að snúa járntittinum sem eftir stendur þegar takkinn er kominn af. Svo þarf að máta við takkann hversu hátt hitinn er kominn. Þetta er vegna þess að grópin í takkanum fyrir járntittinn er lúin og gefur eftir þegar maður vill hækka hitann. Stuð. Ætla að athuga hvort ekki sé hægt að fá annan takka, því ég treysti Birgitte til að finnast það of erfitt.

Fleiri dæmi? Jú jú, baðkarið er þannig að ef maður færir þungann á öðrum fæti frá hæl og fram í táberg þá rymur það og stynur með miklum málmhljóðum. Þið getið ímyndað ykkur sinfóníuna sem hljómar þegar maður tekur stígur í það eða upp úr því. Þetta er sem sé svona baðkar sem er venjulega með flísalögðum kanti meðfram a.m.k. þrem hliðum. En nei, það stendur eitt og óstutt á gólfinu. Anginn litli. Við hérna, öll þrjú, notum sturtuna en látum alla jafna ekki renna í bað. Samt er enginn sturtuhaldari, bara hausinn. Jei.

Aðeins fleiri dæmi? Endilega. Íbúðin er veggfóðruð með einhverju mjög einföldu pappírsveggfóðri. Frammi á gangi má sjá þess greinileg merki að hér hafi einhvern tíma búið köttur, því viðkomandi hefur notað tvo "veggrenninga" milli herbergja sem klórustaur. Þar af leiðandi er veggfóðrið þar rifið og tætt og eiginlega næstum horfið frá gólfi og upp í um 80 cm hæð. Eitthvað segir mér að þetta sé búið að vera svona lengi...

Það má alveg halda áfram að lýsa eldhúsinnréttingunni (eldri en 60 ára, ekki spurning), baðskápnum, hillunum fyrir utan herbergisdyrnar hjá mér (sem þrengja þær talsvert því þær eru fullar af vínylplötum á báða bóga) o.s.frv. Læt hér samt staðar numið. Og þó, gleymdi að minnast á hve illa einangruð þessi blokk er, bæði hvað hljóð og varma varðar. Herbergið mitt er við hliðina á eldhúsinu og ef einhver er þar að bardúsa eitthvað, þá hljómar það eins og ég búi í eldhúsinu (sem betur fer nota þau Birgitte og Indverjinn eldhúsið mjög takmarkað snemma á morgnana og seint á kvöldin...). Þegar farið er í sturtu, en baðherbergið er næstum í hinu horni íbúðarinnar, þá heyri ég það mjög vel. Bæði vatnsniðinn og svo auðvitað sönginn í baðkarinu. Gleðitónlist ;) Loks, fyrir utan að veggirnir virðast halda varmanum illa inni í húsinu, þá hefur einhver snillingur verið að spara þéttilistann við að þétta gluggana svo það blæs alltaf ferskt, en kalt, loft inn um eitt hornið á glugganum hjá mér. Það kemur sér reyndar vel, því þá hef ég alltaf sæmilega gott loft á nóttunni (það er ekki hægt að hafa gluggann opinn á nóttunni því ég er á jarðhæð og það er engin læsing á glugganum). Lán í óláni.

Samantekt: Ef við Sigurður keyptum þessa íbúð, þá myndi hann byrja á því að rífa allt út úr henni, veggfóðrið og gólfdúkinn auðvitað með, og gera hana svo upp. Basta. Samt finnst mér voðalega notalegt að búa hérna. Myndi helst vilja fá öflugri matvörubúð í nágrennið...

Smelli inn myndum af herberginu við tækifæri. Þarf bara að ná þeim úr myndavélinni, en klukkan er því miður orðin of margt fyrir svoleiðis bras. Yfir-og-út.

laugardagur, janúar 24, 2009

kökur, lambalæri og semlan

Í gær var föstudagur og þar af leiðandi var kaka í boði klukkan þrjú á hæðinni minni í K-byggingu eðlisfræðihúss LU. Þetta er svo vinsæll atburður að það dugði ekkert minna en þrjár kökur. Namm! Um fimm var ég svo boðuð í skyndi í hjálparstörf klukkan sjö um kvöldið - Silju og Hjalta bráðvantaði aðstoð við að kjammsa á bláberjalegnu lambalæri sem móðir Silju hafði kippt með sér til Svíþjóðar. Hehe, til var ég! :) Svo var svo gaman að sitja hjá þeim og rabba að ég steingleymdi tímanum og meira að segja því að ég var suddalega þreytt. Ég hér um bil datt ofan í rúmið þegar ég kom heim.

Í dag fór ég um tvöleytið úr skólanum niður eftir til Bergþóru þar sem ég fékk að skilja eftir tölvubakpokann, en við röltum svo áfram í bakaríið Ramklints. Þar beið okkar hún Guðrún Rútsdóttir (sem einhver ykkar gætuð tengt við básúnuleik). Við fengum okkur allar þrjár 'semlu', þ.e. sænska bolludagsbollu (gerdeigsbolla með marsipani og þeyttum rjóma). Ha? Bíddu bíddu, það er ekkert kominn bolludagur! Nei, ég veit, en Svíar eru svo agalega hrifnir af semlunni sinni að þær eru á boðstólum frá áramótum og fram yfir bolludag. Mér finnst þær líka sérlega góðar, svo ég skil þá vel að vilja lengja bollutímabilið. Frá áramótum er nú samt kannski einum of... en jæja, þeir eru stundum einum of blessaðir Svíarnir, bara á öðrum sviðum en við Íslendingar ;) En minnst á Svía:

Svía-staðreynd dagsins - fatnaður: Eftirfarandi skrifaði ég í pósti til Bjarnheiðar systur 13. janúar síðastliðinn: "Við vorum samferða einum svona 17-18 ára strákling í strætó í morgun í páskagulum þröngum buxum, með aflitað hár í allar áttir og helling af augnmálningu. Ýkt töff! Í gær var Sigurður samferða öðrum þannig, nema hvað hann var í neongulum þröngum buxum með tösku úr gulu leðri og með megakúl risastór heyrnatól á höfðinu. Mér heyrðist hann hafa vinninginn í töffheitum. Ætli það sé til félag 17-20 ára stráka í gulum þröngum buxum í Lundi? (Þú sérð að ástandið er verulega slæmt, því Sigurður tekur alla jafna ekkert eftir útliti fólks í kringum sig! Við þurfum að fara að senda út neyðarkall eftir Heiðari snyrti, gavöð...)". Jebb, ástandið er slæmt. Síðan þetta var hef ég rekist á þriðja Svíann í gulum buxum en hann var rúmlega tvítugur. Þetta hlýtur því að vera félagsskapur 17-25 ára stráka. Ég er að spá í að finna mér einhver skemmtileg verðlaun til að veita sjálfri mér þegar ég hef náð upp í 10 sænska stráka í þröngum gulum buxum. Miðað við síðustu tvær vikur ætti ekki að líða á löngu þar til ég get veitt mér þau ;)

miðvikudagur, janúar 21, 2009

þreytt

Jæja, þetta hefur verið langt og mikið bloggfrí hjá mér. Best að grípa upp þráðinn þar sem frá var horfið.

Jólin liðu ljúf og góð í faðmi fjölskyldunnar. Að kvöldi annars í jólum flugum við Sigurður norður til Akureyrar þar sem við mættum Hörpu systur hans og skiptumst á bíllyklum við hana - hún fékk lykilinn að eigin bíl hjá okkur en Sigurður tók við lyklum að bíl foreldranna af Hörpu. Hún tók vélina til baka til Reykjavíkur, Sigurður skutlaði mér upp í Grundargerði til afa og ömmu og ók svo áfram austur í Öxarfjörð.

Það var gott að komast í rólegheitin hjá afa og ömmu. Verst að ég var með eitthvert kvefslen og slappleika síðustu 1-2 dagana, en hvað um það, ég smitaði hvorki afa né ömmu, náði að spila við þau manna, missti ekki matarlystina og gat því borðað á mig gat af matnum hennar ömmu, hitti Boggu og Boga (hrikalega langt síðan ég sá þau síðast!), naut þess að sitja og rabba við fjölskylduna í Ásabyggð o.s.frv. Ég tók svo rútuna til Ærlækjar 30. desember, var skutlað heim í hlað meira að segja :) Þar tók við meiri afslöppun og át, smá fjárhúsastúss, pínkulitlir hvolpar (voru eiginlega enn of litlir til að vera með eitthvert fjör, en þeim mun meiri krútt ;) ), heitapottslega, gítarplokk (Sylvía er í fullum gangi með að pikka upp hvert lagið á fætur öðru), flugeldar, nýtt ár, göngutúrar. Einfaldlega ofurnotalegir dagar hjá tengdó.

Við brunuðum suður (þ.e. "brunuðum", færðin bauð ekki upp á mikinn hraða) á gamla góða hvíta Legacy 3. janúar, beint í matarboð hjá Gullu og Óla Hauki. Þ.e.a.s. ég, Bjarnheiður, pabbi og mamma fórum þangað, en Sigurður var hálfslappur enn á ný og ákvað að taka því rólega heima. Spes kvef. Daginn eftir efndum við Bjarnheiður jólagjöf okkar til Matthíasar og Bjarka, þ.e. vörðum heilum degi með þeim. Við kíktum á stóra Íslands-líkanið í ráðhúsinu (að vísu bara inn um gluggann - þar opnaði ekki fyrr en kl 12! :P), röltum í kolaportið fyrir pabba á leiðinni upp í Þjóðmenningarhúsið til að sjá sýningu um Surtsey. Sú sýning gerði töluverða lukkur hjá strákunum, sem var reglulega gaman. Við fórum svo heim á Laugarnesveg í hádegismat og spiluðum Cluedo, skelltum okkur í diskókeilu í Öskjuhlíðinni og stunduðum m.a. pictionary af miklum móð fram undir kvöldmat þegar Baldur og Birte komu. Pabbi klikkaði ekki í matargerðinni frekar en fyrri daginn. Svo lauk góðum degi. Ég var reyndar svo þreytt að ég held ég hafi sofnað um átta eða níu og sofið til að verða ellefu. Úbbs! Uppsöfnuð þreyta eftir aksturinn og slakan svefn.

Eftir heilmikið snatt í Reykjavík, flugum við Sigurður aftur út til Lundar á sérlega ókristilegum tíma að morgni þrettándans. Við tóku síðustu skref flutninganna milli Spörtu og Sunnanväg og svo var maraþonpróflestur og vinnufundur að auki hjá mér (en ég fór bara í eitt próf en ekki tvö eins og Sigurður og þurfti ekki að halda neinn fyrirlestur). Einhvern veginn flaug tíminn út í buskann og allt í einu var kominn brottfarardagur hjá Sigurði, 19. janúar. *Væææl...* Með einstökum hæfileikum mínum tókst mér reyndar að kaupa mér um korter aukalega með honum, en ég sem sé slapp ekki út úr lestinni sem hann tók frá Lundi (hjálpaði til við að bera inn farangurinn, heilt hjól er enginn smáfarangur...) áður en dyrnar lokuðust og sat því föst þar (miðalaus) þangað til í Málmey. Dúbbídú...

Síðan hef ég reynt að vinna eins og brjálæðingur. Það gengur ágætlega, en á morgun ætla ég að útrétta aðeins eftir venjulegan vinnutíma og mun því borða kvöldmatinn heima, svona til tilbreytingar (hef haft með mér afganga til að hita upp síðustu tvo daga). Svo er planið að halda áfram þessari vinnuhörku með einum frídegi í viku, eða svona þar til kroppurinn (aðallega heilinn) vælir um of yfir meðferðinni, þá endurskoða ég skipulagið. Ætlunin er sem sé að koma meistaraverkefninu frá sem fyrst með þessari árlegu ógurlega girnilegu gulrót: sauðburður í lok maí! Í ár bætist við ein öllu meiri, þ.e. Sigurður Ægir Jónsson. Það sem setur strik í reikninginn er að ég er ennþá í einum áfanga sem er langt í frá búinn (verkefni, fyrirlestur, tvær verklegar æfingar með tilheyrandi skýrslum, skiladæmi) en á að klárast fyrir lok mars. Þetta er aðalástæðan fyrir brjálæðisplaninu. Ég skal samt lofa að slaka á áður en geðheilsan er horfin og sömuleiðis ætla ég að borða eins og fíll svo ég hrynji nú ekki í sundur (í alvöru, ég ætti að láta tékka hvort ég sé með orma eins og tengdafjölskyldan benti á að þau væru löngu búin að gera ef ég væri búfé... ;) ).

En nú er ég ógurlega þreytt og ætla í bólið. Ætli ég bloggi ekki næst um þessa kostulegu íbúð sem ég leigi herbergi í og sömuleiðis lauma að einni Svía-staðreynd. Þær eru ekkert búnar þótt ég hafi tekið mér frí ;) Þið minnið mig á ef ég virðist ætla að gleyma þessu...