útilega
Við Sigurður drifum loks í því að vígja nýja tjaldið okkar (og svefnpokana og dýnurnar) um síðustu helgi. Við prófuðum að vísu að tjalda því í garðinum hjá afa og ömmu í Sigtúni í síðustu viku, en það telst auðvitað ekki með - það þarf að sofa í tjaldinu til að það teljist vígt. Svo skemmtilega vildi til að foreldrar hans Sigurðar luku heyskap á miðvikudaginn og ákváðu þá að leggja af stað með fellihýsið á fimmtudeginum. Við hittum þau fyrir algera tilviljun (*hóst*) á Selfossi núna á föstudaginn (tókum frí úr vinnunni þann dag til að framlengja helgina) og vorum með þeim um helgina í Þjórsárdal og víðar á Suðurlandi.
Mikið er annars tjaldstæðið gott þarna í Sandártungu! Þar eru stærri flatir fyrir hópana en líka lítil rjóður út um allt í kjarrinu/skóginum svo það er hægt að vera ágætlega út af fyrir sig. Það var heilt ættarmót (að vísu í smærra lagi) þarna á einni flötinni í grennd við okkur en við urðum varla vör við það þarna á milli trjánna. Heyrðum rétt óminn af leikgleðinni, kvöldsöngnum og barna(frekju/gleði)hrópunum. Klósettin voru líka snyrtileg og ágætar gönguleiðir út frá tjaldstæðinu. Ef maður þarf að skola af sér, þarf svo bara að renna innar í dalinn í Reykholt og svamla þar um í risastórum heitapotti.
Við ráfuðum aðeins um svæðið, litum á Þjóðveldisbæinn og Stöng og í heimsókn til fyrrum verknema á Ærlæk, busluðum í Reykholtslaug, grilluðum og átum heil ósköp, spiluðum félagsvist og Svarta-Pétur, kjöftuðum og slöppuðum af, renndum í Skálholt (þar sem ég hitti Áslaugu mömmu Dafnýjar æskuvinkonu og Þorgerði Eddu og Hildigunni Önnu systur Dafnýjar - alltaf gaman hvað Ísland er lítið ;) ) og heilsuðum loks upp á Halldóru systur Guðnýjar mömmu Sigurðar og fjölskyldu hennar sem voru í sumarbústað í Úthlíð.
Þrátt fyrir fremur takmarkaðan helgarsvefn stóðst ég svo ekki mátið og kláraði að lesa síðustu Harry Potter bókina um kvöldið. Augun lokuðust því ekki fyrr en um korter yfir eitt. Ég var heldur þreytt í gær. Dúddúrú...