fimmtudagur, maí 29, 2008

aaaaarrrrrgg!!!

Helv**** fíflin í háskólaþjónustumiðstöð Svíþjóðar (VHS) halda því fram að ég uppfylli hvorki kröfur um BS próf í eðlisfræði eða stærðfræði né kröfur um enskukunnáttu þótt ég hafi sent þeim alla nauðsynlega pappíra! Ég er búin að senda tölvupóst til eðlisfræðideildar Lundarháskóla og biðja þá um að kippa þessu í liðinn, því það er gersamlega vonlaust að hafa samband við VHS. Djö, hvað ég er orðin þreytt á þessum asnaskap. Grrrr....

mánudagur, maí 26, 2008

mætt á mölina

Júmms, ég er komin heim á ný, nývöknuð af "vetrarsvefninum" og endurnærð, með helling af alls kyns gúmmulaði kjöti í farteskinu og reyktan rauðmaga í lange baner, skrámuð og marin á höndum og fótum, lambalyktin farin að dofna heldur mikið í lúkunum en fjárhúsið þó hangandi enn í hárinu. Er hægt að hafa það betra?

Ég mætti til vinnu á ÍSOR í morgun. Er fyrsti sumarfuglinn til að mæta þangað, svei mér þá. Mér sem fannst ég vera að birtast svo seint! :P Skilst þó að einhverjir ætli að sýna sig í þessari viku, sem verður ágætt, það er jú alltaf skemmtilegra að hafa félagsskap þarna á sumarfuglasvæðinu. Ég á að halda áfram með þessa grein sem ég hélt ég hefði klárað (fyrir mitt leyti) síðasta sumar. En nei, nú á að bæta einhverju við. Ojamm-ojá. Sosum ágætt, en mig langar líka til að fá að skoppa eitthvað út í náttúruna í sumar með geggjaða mæla á herðunum. Held það hljóti að verða eitthvað um það, því ég efast um að greinarskrifin endist út sumarið, þetta er svoddan smotterí sem er eftir.

Pabbi skynjaði greinilega að manneskja sem er búin að brasa í sauðburði 14 tíma á sólarhring í heila viku hafi þörf fyrir kjarngóðan kvöldverð, því ég var bæði drifin að eldhúsborðinu þeirra pabba og mömmu í gær og í dag :) Kjamms-smjatt-kjúmms. Sigurður er jú fyrir norðan og það tekur því varla að elda mikið fyrir einn... ;) Þetta er annars merkilegt, í þriðja sinnið mistekst okkur að vera í sauðburði í sveitunum okkar á sama tíma, hann fer alltaf norður skömmu áður en ég kem heim að vestan. Við erum pínu spes í skipulaginu - eða er skipluagið með pínu spes meðferð á okkur?

E.S. Fríða: Amma þakkar kærlega fyrir sig og er strax farin að íhuga hvaða lit af pálíu hún eigi að senda þér næsta vor! ;)

sunnudagur, maí 18, 2008

sauðburður

Ég er búin með tölvueðlisfræðiverkefnið mitt (jei! :D ) og er núna í kapphlaupi við tímann að pakka, prenta verkefnið, skila bíl o.s.frv. o.s.frv. áður en ég stekk upp í rútu sem leggur af stað frá BSÍ klukkan eitt. Ég bið því bara að heilsa í bili!

fimmtudagur, maí 15, 2008

afmælisþrenna

Í gær áttum við Sigurður 2 ára afmæli saman - og gleymdum því bæði, blessaðir sauðirnir. Í dag fagnar Hugi frændi 17. afmælisdeginum sínum (til hamingju frændi!). Á morgun verður amma í Sigtúni 81 árs, en hún virkar reyndar 10 árum yngri en svo. Alltaf gaman um miðjan maí ;)

þriðjudagur, maí 13, 2008

einu sinni var...

http://www.procidis.com/. Ég elska þessa þætti :)

Annars gerði tölvueðlisfræðiverkefnið það sem við mátti búast - varð tímafrekara en ég kæri mig um :P Ég kemst sem sé ekki vestur á Stað í sauðburðinn fyrr en í fyrsta lagi á föstudagskvöld og get þ.a.l. ekki mætt til vinnu fyrr en mánudaginn 26. maí. Pínu bömmer, því ég hefði gjarna viljað klára verkefnið á morgun, bruna í sveitina á fimmtudagsmorgni og mæta í vinnuna fyrir helgi. En jæja, hvað um það, ég fæ þá kannski rúma viku í sauðburðinum ef ég næli mér í far á föstudagskvöldi eða laugardegi...

fimmtudagur, maí 08, 2008

jahúúúú!

Búin í prófum. Það sem meira er, ég er endanlega búin í prófum í HÍ! Trallirí... Tjah, nema ég ákveði einhvern tíma að drífa af kennsluréttindin, en það er í fjarlægri framtíð. Sjúbbídú, dúddúrúm, trallarallarí... Þetta er mjög góð tilfinning :D

Tökum eftir einu að lokum. Í dag, þegar ég klára mitt síðasta próf við HÍ, eru 63 ár liðin frá því heimstyrjöldinni síðari lauk. Það finnst mér mjög viðeigandi.

þriðjudagur, maí 06, 2008

allt á réttu róli

Sælinú, það er orðið svolítið langt síðan heyrðist frá mér síðast. Staðan er sú að ég fór í próf 30. apríl og 2. maí (sem bæði gengu prýðilega *krossa putta*) og er á leið í allra síðasta prófið mitt í B.S.-náminu hér við HÍ núna á fimmtudaginn. Get ekki sagt annað að ég sé húrrandi hamingjusöm að vera að verða búin með þessi #%$&"!$ próf. Mun dansa af gleði um hálf fimm þann 8. maí.

Ég ákvað að reyna ekkert að læra kvöldið eftir prófið 30. apríl og skellti mér frekar á frábæra burtfarartónleika fröken Ástu Heiðrúnar Elísabetar klarinettuleikara. Alltaf gaman að fara á tónleika á vegum Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar (notalegt andrúmsloft) og sérstaklega núna því ég hef ekki hitt TSDK fólkið svo lengi (hætti í TSDK árið 2005). Svo er Ásta náttúrlega snillingur á klarinettið :) Pælið í, hún er að klára B.S. í efnafræði núna í vor, klárar framhaldsstigið á klarinettið á sama tíma og er þar að auki líka að læra á píanó fyrir utan t.d. óstöðvandi lestrarbakteríu og félagslíf. Geri aðrir betur!

Annars finnst mér sumarið einhvern veginn vera komið - og fer þá auðvitað strax að búast við hreti. Maður er jú búinn að búa á Fróni í 24 ár og ætti að vera farinn að venjast þessu ;) En samt leyfi ég mér að vona að það komi ekkert hret, því það er svo notalegt að hafa hitastigið um 10 gráðurnar dag eftir dag og gróðurinn er líka kominn langt af stað. Ekki að það hafi eitthvað stoppað kuldaköstin undanfarin ár...

Farin að pota mér í bólið til að stunda lestur-til-að-halda-geðheilsunni-í-prófum, þ.e. lesa Harry Potter :D