allt á réttu róli
Sælinú, það er orðið svolítið langt síðan heyrðist frá mér síðast. Staðan er sú að ég fór í próf 30. apríl og 2. maí (sem bæði gengu prýðilega *krossa putta*) og er á leið í allra síðasta prófið mitt í B.S.-náminu hér við HÍ núna á fimmtudaginn. Get ekki sagt annað að ég sé húrrandi hamingjusöm að vera að verða búin með þessi #%$&"!$ próf. Mun dansa af gleði um hálf fimm þann 8. maí.
Ég ákvað að reyna ekkert að læra kvöldið eftir prófið 30. apríl og skellti mér frekar á frábæra burtfarartónleika fröken Ástu Heiðrúnar Elísabetar klarinettuleikara. Alltaf gaman að fara á tónleika á vegum Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar (notalegt andrúmsloft) og sérstaklega núna því ég hef ekki hitt TSDK fólkið svo lengi (hætti í TSDK árið 2005). Svo er Ásta náttúrlega snillingur á klarinettið :) Pælið í, hún er að klára B.S. í efnafræði núna í vor, klárar framhaldsstigið á klarinettið á sama tíma og er þar að auki líka að læra á píanó fyrir utan t.d. óstöðvandi lestrarbakteríu og félagslíf. Geri aðrir betur!
Annars finnst mér sumarið einhvern veginn vera komið - og fer þá auðvitað strax að búast við hreti. Maður er jú búinn að búa á Fróni í 24 ár og ætti að vera farinn að venjast þessu ;) En samt leyfi ég mér að vona að það komi ekkert hret, því það er svo notalegt að hafa hitastigið um 10 gráðurnar dag eftir dag og gróðurinn er líka kominn langt af stað. Ekki að það hafi eitthvað stoppað kuldaköstin undanfarin ár...
Farin að pota mér í bólið til að stunda lestur-til-að-halda-geðheilsunni-í-prófum, þ.e. lesa Harry Potter :D
Engin ummæli:
Skrifa ummæli