laugardagur, ágúst 12, 2006

úbbs, hvert flaug tíminn?

Jæja jæja, heldur langt liðið frá síðasta pikki. Ekki að það hafi verið eitthvað tíðindalítið, ég er einfaldlega að rembast við að lesa fyrir sumarpróf eftir vinnu og um helgar, sem gengur að vísu eitthvað brösulega. En þá er blogg sem sé ekki efst á dagskrá...

Fyrir rúmri viku, þ.e. á fim. og fös., tölti ég ásamt Sæma (sumarmanni á ÍSOR) á eftir Rússanum Nikolai um fríðar grundir Hengilssvæðisins og klöngraðist yfir heldur óblíð hraun í Þrengslunum. Með misþungan bakpoka á bakinu og í misgóðu veðri (mest megnis rigningarsuddi og vindur/rok), eins og gengur. Tók mig einungis 5 kílómetra labb í gönguskóm að næla mér í þessi líka myndarlegu hælsæri. Skipti yfir í öllu mýkri stígvél og svo fór það bara eftir duttlungum líkamans hvort hann kvartaði yfir hælsærum, eymslum í vinstra hné, kulda eða hita :P Gekk m.a. tvisvar upp snarbratta hlíð Lambafells til að koma fyrir/ná í mælistöð. Sem betur fer blés vindurinn kröftuglega upp fjallshlíðina, ekki niður... En hvað sem öllu volki og aumingjaskap líður, þá var alveg óskaplega hressandi að komast í svolitla útivinnu :)

Sit annars allan heila vinnudaginn við tölvuna og reyni að skrifa skýrslu um mælingarnar úti í Potsdam. Það gengur mjöööööög hægt. Og þar að auki verð ég að skrifa skýrsluna í Word, út af linux-fötlun samstarfsmannanna úti í Potsdam. Arg.

En í dag eiga bæði mamma og Matthías hálfbróðursonur minn afmæli. Matthías meira að segja sitt fyrsta merkisafmæli - hann er 10 ára :) Til hamingju, mamma og Matthías! Slíkum tímamótum fylgja auðvitað miklar veitingar með tilheyrarndi ofáti. Sérstaklega þar sem afmælisbörnin eru tvö. En ég hef svo sem aldrei átt í vandræðum með að kýla vömbina... ;) Smjatt!

þriðjudagur, ágúst 01, 2006

fjölgun

Á skrifstofunni við hliðina sitja tveir skemmtilegir náungar. Nú í vetur hafa þeir sett upp vel stórt fiskabúr og hafa þar 20-30 gullfiska af ýmsum stærðum og gerðum ásamt sniglum. Vitanlega er þess gætt að vatnadýrin hafi almennilegt landslag - stóra mynd af Reykjaneshryggnum :) Núna rétt áðan heyrðust mikil gleðióp frá þeim félögum. Fjórum litlum gullfiskaafkvæmum (af um 30) hafði tekist að komast af, þ.e. sleppa frá því að vera étnir af stóru fiskunum. Trikkið að vera með grófa möl í botninum þar sem smábörnin geta falið sig fyrst um sinn. Svo nú sitja þarna kampakátir nýbakaðir "feður". Alltaf gaman í vinnunni... ;)