Sýnir færslur með efnisorðinu handavinna. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu handavinna. Sýna allar færslur

miðvikudagur, júlí 18, 2012

ah-búh og hva, rúmir tíu dagar eða svo

Já, blómateppið er tilbúið og meira að segja tæpar tvær vikur síðan það kláraðist :)


Tengdó komu líka með ákaflega fallegt teppi auk heimferðarpeysu og húfu. Ég fékk það verkefni að finna tölur á peysuna og þær leyndust í talnaboxi ömmu í Sigtúni :) Sömuleiðis er ég búin með peysuna sem ég var að prjóna (í dulítið stærri stærð) og sauma eitt sængurver utan um litlu ungbarnasængina sem amma á Akureyri lumaði á. Þar að auki prjónaði mamma svona líka fínan ermapoka með hettu, tilvalinn í vagninn. Ég á hins vegar alveg eftir að taka myndir af öllum þeim myndarskap, obbobobb...

Við höfum haft ýmislegt fyrir stafni síðan við komum til Íslands um miðjan júní. Hér eru nokkrar myndir til að bæta upp fyrir myndaleysið í síðasta bloggi:



Ásta vinkona var gæsuð með stæl. Verst ég missti af öllu fjörinu því ég var eiginlega lasin og þurfti að sooooofa. Ég rétt kíkti á gæsina í lok morgdegismatarins (þar sem grunlaus Ásta hélt að hún myndi hitta ömmu sína en ekki hóp af prökkurum sem klæddu hana í skrítin föt og drifu svo með í klifur, kanósiglingu, snú-snú, pylsugrill, sund og fajitas-partý).

Eftir ofátið á Silfurtunglinu (sjá síðasta blogg) fórum við með tengdó í labbitúr út á Laugarnestanga til að láta aðeins sjatna í okkur. Þau eru einstaklega myndarleg fjölskyldan:



Það þyrfti bara að líma Sylvíu einhvern veginn inn á myndirnar...

Sigurður náði líka ansi skemmtilegri skuggamynd af kúlunni.



Við fórum í innluttnings-/brúðkaupsgrillveislu hjá Unni og Krissa...



...sem auðvitað kallaði á innfluttnings-/brúðkaupstertu ;)



Þar var heldur betur gaman og mikið borðað og enn meira spjallað.

Þá eru ótaldar heilmargar heimsóknir í Sigtúnið, sund- og ísferðir og matarboð hjá pabba og mömmu, afmælisveisla 8 ára hnátu í Hveragerði, bumbuhittingar, pottasaumó (þ.e. saumó í heitapotti - verst ég missti af hinum dömunum í pottinum því ég var sú eina sem mætti á réttum tíma, ótrúlegt en satt!! en náði þeim í ísbúðinni síðar :) ) og bíóferð (Intouchables er frrrrrábær!). Nóg að gera... Á laugardaginn er svo brúðkaup Ástu og Tótu sem ég vona að ég komist í. Býst líka svo sem við að ganga einhverja daga fram yfir, svona miðað við fæðingasögu mömmu og tengdó. Tel mig a.m.k. vera búna að semja við krílið um að bíða í bumbunni fram yfir helgi. Fyrst ég komst ekki í gæsunina, þá verð ég nú að komast í brúðkaupið! ;)

Loks, fínasta bumbumynd í upphafi 39. viku:


(Nei, ég er langt í frá alltaf svona kát í bumbumyndatöku - spyrjið Sigurð! ;) )

En merkilegt nokk, þá stækkar kúlan bara og stækkar (hér þegar 35, 36, 37 og 38 vikum er náð)...


...en samt sést sama og ekki neitt sé litið beint aftan á mig. Ég verð að viðurkenna að ég hef lúmskt gaman af því!

föstudagur, júní 29, 2012

þrír fjórðu og einn mánuður

Í dag er síðasti dagurinn sem ég ætla að þrjóskast við að reyna að vinna. Nokkuð viðeigandi því í dag er akkúrat mánuður í settan dag(!). Í næstu viku verð ég því komin í sumarfrí og get loksins spýtt í lófana með að klára blómateppið, litlu peysuna, lopapeysuna hennar Láru frænku, barnateppið úr blómateppisafgöngunum o.s.frv. Ekki það, ég hef sosum verið í hálfgerðu fríi þessa viku líka, en þó náð að gera eitthvað vinnutengt. Þarf "bara" að klára hlutina af í dag og koma þeim áfram á vinnufélagana...

Annars er náttúrlega ýmislegt búið að gerast síðan ég bloggaði þarna fyrir löngu. Það tókst að gera svona næstum allt fyrir Íslandsför. Einhvern veginn tókst okkur að troða öllu okkar hafurtaski ofan í tvær töskur, flugfreyjutösku og bakpoka án þess að vera með yfirvigt (í innrituðum farangri, það er að segja, ehemm... ;) ). Svo fór brottfarardagurinn í tiltekt og maraþonþrif á íbúðinni. Svo sannarlega hægt að mæla með því að fara í burtu í lengri tíma og leigja út íbúðina sína á meðan - leiðir til þess að afskekktustu krókar og kimar eru þrifnir og ótrúlegasta samansafn af (hálf)ónýtu dóti trillar út í ruslagám. Eina sem pirrar mig er að við náðum ekki að þrífa gluggana... En hvað um það, við lögðum af stað í rólegheitum og komumst stresslaust út á flugvöll tæpum 3 tímum fyrir brottför. Þurftum meira að segja að bíða í um korter þar til opnað var í farangursmóttökunni. Svo var nægur tími til að rölta um Kastrup, fá okkur að borða og svona. Við reyndumst svo heppin að fá eina sætaröð út af fyrir okkur í flugvélinni, svo ég gat kúrt mig niður í tvö sæti mest alla leiðina - orðin ansi þreytt eftir hasar daganna á undan. Þar sem ég lá þarna á bakinu skemmti krílið Sigurði með því að hendast um bumbuna og stinga hælunum lengst út í loftið. Gasalegt fjör ;)

Svo hefur tíminn farið í þetta venjulega, hitta fjölskylduna, borða skyr og fisk og lakkrís, fara í sund o.s.frv. ásamt því að vinna og koma sér smátt og smátt fyrir í íbúðinni hennar Bjarnheiðar systur (sem hún náði að skrifa undir kaupsamning á 6 klst áður en hún tók flugið yfir á meginland Evrópu!). Þetta er fallegasta íbúð, allt ytra byrðið nýuppgert (þ.e. útveggir, gluggar, svalir) en innréttingin og gólfefnið eru orðin ansi lúin, auk þess sem þarf að mála hana. En það er allt eitthvað sem má endurnýja og laga í rólegheitum allan ársins hring. Það var bara skverað inn rúmi, eldhúsborði, tveim stólum, eldhúsdóti og smá samansafni af húsgögnum í stofuna - svona þegar Sigurður var búinn að jafna sig að mestu á kvefinu sem tók á móti honum á Íslandi og ég var tekin við því...

Tengdó renndu í bæinn í gær í smá kaupstaðarferð áður en heyskapur fer á fullt skrið. Við fórum með þeim út að borða á Silfurtunglinu þar sem Maggi kærasti Hörpu systur Sigurðar kokkar. Ansi hreint notalegur veitingastaður. Það var rólegt þar í gærkvöldi, svo Maggi hafði tóm til að koma og sitja með okkur og rabba um stund. Ekki amalegt það og maturinn auðvitað sva-ha-ha-kalega góður. Mæli með þriggja rétta tilboðinu á Silfurtunglinu! (Sjávarréttasúpa, lungamjúkir lambaskankar og súkkulaðikaka með súkkulaðimús og hnetuís á bara 4000-kall.)

Jæja, best að koma sér að verki, svona ef ég á að ná að klára allt í dag! ;)

mánudagur, júní 11, 2012

fimm áttundu

Jæja, þá er ég búin að hekla saman fimm áttundu af blómateppinu, allt á réttri leið þar.

Sigurður galdrakarl náði að tengja þvottavélina við bæði rafmagn og vatn. Notaðist þar m.a. við garðslöngu eins og nágrannar okkar þau Jara og Garðar. Já, maður reddar sér þegar "pípulagningar" eru annars vegar ;) Við settum vélina í gang núna í kvöld og hún malaði eins og köttur, hljóðlát og fín. Víííí! :)

Og ennþá meira "víííí": Sónar í fyrramálið! :D

þriðjudagur, júní 05, 2012

rúmlega hálfnuð

Enn gerist lítið í teppaheklinu, en þó er ég búin að hekla saman rúmlega helming ferninganna. Nóg annað að brasa, líka allt í lagi að klára teppið bara á Íslandi. Mér reiknast til að það séu svona um 2 vinnudagar eftir sem ég þurfi til að klára það. Það er ekki neitt neitt :)

Og þá er ég held ég hætt í leikfiminni. Kúlan er farin að þvælast aðeins of mikið fyrir. Venjulega er ég endurnærð og voða hress og kát með að drífa mig í leikfimi, en síðustu skipti hef ég meira verið stolt af sjálfri mér að geta þetta ennþá... Hef á tilfinningunni að nú sé komið gott, svona áður en ég fer að asnast til að gera eitthvað af mér eða misstíga mig illa eða eitthvað álíka skemmtilegt. Svo er líka svo stutt í að ég komist í íslenskt sund sund sund (víííí!), ekkert mál að brúa bilið á milli með gönguferðum og smá hjóltúrum.

Annars er krílið bara hresst. Hnoðast til daginn út og inn en virðist gefa mér frí á nóttunni. Alla vega vakna ég a.m.k. ekki við bröltið þá. Það reyndi eitthvað að teygja á sér - og bumbunni þar með - í dag. Það hefur virkað áður, þá stækkaði legið slatta svo það fékk meira pláss. Ég er hrædd um að litli fjörkálfurinn verði fyrir vonbrigðum í þetta sinn, því mér skilst að legið geti ekki stækkað neitt voðalega mikið meira.

Í morgun var rafmagnslaust uppi í skóla milli 8 og 12. Einstaklega hljóðlátt og notalegt uppi á skrifstofu þá ;) Á morgun er svo þjóðhátíðardagur þeirra Svía og þar með frídagur. Ég ætla samt að vinna, því ég þarf væntanlega að taka einn dag frí fyrstu vikuna á Íslandi, gott að eiga frídag inni. Sigurður er líka í Ameríku á ráðstefnu, svo ég væri hvort eð er bara ein heima að rolast... Er svo á leiðinni í munnlegt próf á fimmtudaginn, sem á að fylgja eftir 5 tíma skriflegu prófi síðasta miðvikudag. Af frásögn þeirra sem eru búnir með sitt munnlega próf er það samt bara létt rabb, gjuggað í próflausnirnar en ekkert spurt út í efnið að ráði. Sem er svo sem ágætt, því skriflega prófið var aaaaaalltof langt. Grey kennarinn misreiknaði sig svona svakalega, prófið hefði þurft að vera 8 tímar í stað 5... En hann er annars svo ljúfur og góður að allir áttuðu sig á því að prófið yrði skalað, við bara sátum sveitt allan tímann og þurftum svo kælingu fyrir skrifhöndina á eftir ;)

Við förum í sónar eftir viku. Víhú! ég hlakka til :) Það er venjan að fara í sónar eftir 32 vikur hérna í Lundi, þ.e. ef maður kemst að áður en barnið fæðist... En frumbyrjur eins og ég komast víst eiginlega alltaf að á 33.-34. viku, sem stóðst líka hjá okkur :)

laugardagur, apríl 14, 2012

66 ferningar

Eitthvað mjakast heklið rólega áfram. Hef reyndar klórað mér svolítið í kollinum yfir hvernig ég vil tengja ferningana og gert prufur í gærkvöldi og í dag, er orðin nokkuð viss um hvernig ég ætla að hekla þá alla saman. En ég hef hreinlega ekki fundið tíma fyrir sjálfa ferningana síðustu daga, frekar heldur en bloggið. Enda ýmislegt í gangi.

Í morgun ætlaði ég svoleiðis að sofa út eftir heldur lítinn svefn undanfarna daga. Því var hins vegar lítill ólátabelgur ósammála. Ég rumsakði sem sé skömmu fyrir átta og nokkrum mínútum síðar upphófust þessar líka leikfimiæfingar hjá krílinu sem stóðu fram eftir morgni með nokkrum hléum. Svo ég gat ekki sofnað og ekki leið á löngu þar til garnagaul bættist í hóp friðarspilla. Þá þýddi ekki annað en lufsast á fætur og fá sér eitthvað í gogginn. Ég skreið reyndar aftur upp í rúm til að reyna að lúlla aðeins, en fékk þá bara aðra gusu af leikfimiæfingum til þess að skemmta mér við. Það er því greinilegt hverju þarf að taka á í uppeldinu... ;) Baunin hefur annars verið frekar róleg síðustu tvær vikurnar, svo dagurinn í dag er tekinn með trompi til að vinna upp afslappelsið.

Við Sigurður tókum því fremur rólega um páskana. Litum reyndar á handverkssýningu nokkurra íslenskra kvenna á litlu sveitakaffihúsi rétt hjá Veberöd.


Tókum strætó mest alla leiðina og gengum þá tæpan 1,5 km fram hjá túnum og í gegnum skóg til að komast á kaffihúsið. Röltum þar hjá hópi dádýra, voða gaman það.

Þegar að kaffihúsinu kom, kom í ljós að þar voru alls kyns dýr: villigöltur, kindur með lömb (gotlandsfé, ákaflega líkt því íslenska), geit með hoppandi káta 5 daga gamla kiðlinga, endur, gæsir, hænur og hanar, hundur og kanínur. Ég held ég sé ekki að gleyma neinu(?)






Við hittum þar líka Maríu og Helga kórfélaga mína og 3 ára guttann þeirra hann Svavar, sem voru svo indæl að bjóða okkur far aftur til Lundar.

Barn eltir hana - sá síðarnefndi hafði ekki svo gaman af þeim leik ;)

Við vorum hins vegar svo lengi úti í kuldanum (um 4°C) að skoða öll dýrin og svo var svo napurt að hjóla heim frá strætóstöðinni við sjúkrahúsið, að það dugði ekkert annað en bolli af heitu kakói og heitt bað til að hita kroppinn þegar heim kom. Brrr... páskahret.

Á páskadag tókum við því rólega með morgdegisverði, ég kláraði að prjóna litla peysu á krílið (á eftir að hekla lista og svona, mynd kemur síðar), við kíktum í ræktina/leikfimi, elduðum fínasta lambahrygg um kvöldið og fengum okkur heimagerðan toblerone-ís í eftirmat. Sllllúrp!


Annar í páskum fór að mestu hjá mér í það að sauma hlíf fyrir hrærivélina. Be-eh, hvílíkt maus sem mér tókst að gera þetta að :P

Eftir talsverða yfirlegu á blocket.se duttum við niður á vel meðfarinn og lítið notaðan barnavagn. Ég skellti mér til Málmeyjar á þriðjudagsmorgni til að kíkja á gripinn og kom heim vagninum ríkari, en nokkrum sænskum þúsundköllum fátækari. Þetta var reyndar bara vagn með kerrustykki, þ.e. það vantaði burðarrúm/vagnstykki á hann. Það er hins vegar fundið, sömuleiðis á blocket.se, alla leið norður í Skaraborg. Ætti að berast með póstinum í næstu viku. Það saxast smám saman á innkaupalistann...

sunnudagur, apríl 01, 2012

33+30 ferningar

Já, ég hef alls ekki verið nógu dugleg við að hekla ferninga undanfarið. En, þeir duga samt núna í teppi sem er um 70x90 cm að stærð. Einn ferningur í viðbót og þá næ ég í 80x80 cm teppi. Níu í viðbót og teppið verður 80x90 cm. Það er ekki svo slæmt að hugsa til þess :)

Og nei, ég hef heldur ekki verið nógu dugleg við að blogga. Við vörðum síðustu helgi að mestu við að þræða verslanir í Lundi, Málmey og á netinu. Úff púff púff, ég var eiginlega alla vikuna að ná mér andlega eftir það :P Nú, og hvað geri ég þá þessa helgina? Jú, skelli mér í fleiri verslunarferðir! Jámms, sjálfspíningarhvöt á háu stigi hérna ;)

Við erum sem sé farin að skoða ýmislegt sem tengist komu litla krílisins. Efst á blaði þar er barnavagn, og ómæ ómæ hvílíkur frumskógur!!! Ég verð bara uppgefin við það eitt að hugsa orðið "barnavagn" :-o Hins vegar höfum við (held ég) komist að niðurstöðu um hvaða barnavagnar koma til greina og þá er bara að liggja á Blocket (vefsíða fyrir smáauglýsingar) og bíða eftir að "draumavagninn" detti inn á sölu í sæmilegu ástandi og ekki í einhverjum fáránlegum lit.

Annað sem er á innkaupalistanum er þvottavél. Helst þvottavél sem krefst þess ekki að við þurfum að kalla til marga iðnaðarmenn og ráðast í svakalegar framkvæmdir. Í augnablikinu þýðir það frekar nett og lágvaxin þvottavél inni í eldhúsi. Það eru nefnilega hvergi jarðtengdar innstungur í íbúðinni, nema í eldhúsinu. Bögg...

Svo verður næsti hausverkur væntanlega rimlarúm. Já já já, þetta er sko heilmikið fyrirtæki að fara út í barneignir ;)

Af náminu er það helst að við erum að leggja lokahönd á grein númer tvö í doktorsnáminu hjá mér. Stefnan er að senda hana inn til birtingar (eða höfnunar...) á morgun. Það verður mjööög ljúft að losna við greinina í smá tíma!

Að lokum, bumbumynd frá í dag þegar 23. vikan er að baki og tæpir fjórir mánuðir eftir. Mér skilst að eftir eina viku þá verði fóstrið nógu þroskað til að miklar líkur séu á því að það lifi af komi það í heiminn strax þá. Við skulum nú samt vona að það bíði í a.m.k. 14 vikur enn, engin ástæða til að flýta sér :)

laugardagur, mars 17, 2012

25+30 ferningar

Pabbi kom til okkar í dag í smá helgarheimsókn (er á leið á fund í Brussel) og hafði þá með sér ferningana frá mömmu - váháhá, heil 30 stykki! (Já, og svo leyndist auðvitað ein bók um meðgöngu/fæðingu/fyrstu vikurnar og nauðsynjar eins og lakkrís og svona líka í töskunni hans pabba ;) ). Hér er ég búin að blanda saman öllum ferningunum:


Aldeilis fínt og fallegt! Nú er "bara" að hekla um 25-45 ferninga í viðbót og hekla svo allt saman í heilt teppi :)

sunnudagur, mars 11, 2012

blómateppi

Spurning um að endurvekja bloggið? Eða alla vega gera tilraun til þess, látum þar við sitja í bili ;)

Byrjum á núinu. Þessa helgi endurtókum við í Íslenska kórnum í Lundi leikinn frá í fyrra og skunduðum í kóræfingabúðir með Hreiðari Inga Þorsteinssyni. Svaka stuð, heilmikið puð, mikil gleði. Kórinn er alger áhugamannakór svo við hljótum að svahahakaleg viðbrigði fyrir Hreiðar ;) Í fyrra vorum talsvert fjær Lundi svo langflestir gistu og því var mikil stemmning á kvöldvökunni. Sófahornið hjálpaði þar líka til. Núna í ár vorum við mjög nálægt Lundi, og ekkert sófahorn, svo kvöldvakan var eitthvað hálfendaslepp. En það var þá þeim mun meira af rabbi og spjalli og súpi og prjónaskap og afsleppelsi, sem er líka ágætt.

Þessa dagana og vikurnar er ég með ýmislegt á prjónunum, að vanda, og meira að segja heklunálinni líka. Er að klára ungbarnahúfu, með tvær litlar peysur í huga, eina lopapeysu og svo blómstrað ungbarnateppi sem er sem sé heklverkefnið. Ég fékk hugmyndina að blómateppinu þegar við stelpurnar í saumó skelltum saman í ömmuferningateppi sem sængurgjöf fyrir eina okkar síðasta sumar. Ég lét það því eftir mér að missa mig í kambgarninu núna í jólafríinu. Verst að það er búið að vera heilmikið bras að fá marga kambgarnslitina frá því í haust, því það klikkaði eitthvað hjá Ístex. Til dæmis á ég engan fjólubláan. En ég á eina 25 liti af 38, sem verður að teljast ansi gott ;)



Nú er bara að krossa putta að mér takist að töfra fram 3-4 sinnum fleiri ferninga en ég er þegar komin með á næstu mánuðum. Ég hef reyndar fulla trú á að það hafist. Mamma er líka með í að hekla ferningana, mjög hentugt til að nota kambgarnsafganga sem hún átti. Saman ættum við að ná upp í 80-100 ferninga sem er þá mátulegt í mömmu-ömmu-teppi fyrir krílið sem hefur boðað komu sína í lok júlí :)

Minnst á krílið, kúlan tók þennan líka vaxtarkipp í þessari viku, fannst eins og hægt væri að sjá mun milli daga hreinlega. Enda bætti ég á mig 2 kg á innan við viku, jafn miklu og ég bætti á mig á fyrstu 19 vikum meðgöngunnar, takk fyrir pent! Í tilefni þessa er hér ein bumbumynd, tekin í dag þegar ég er gengin akkúrat 20 vikur - hálfnuð! :)


Þá er við hæfi svona að lokum að skella inn sónarmynd af bumbubúanum, tekin fyrir rúmum 2 vikum síðan.