rúmlega hálfnuð
Enn gerist lítið í teppaheklinu, en þó er ég búin að hekla saman rúmlega helming ferninganna. Nóg annað að brasa, líka allt í lagi að klára teppið bara á Íslandi. Mér reiknast til að það séu svona um 2 vinnudagar eftir sem ég þurfi til að klára það. Það er ekki neitt neitt :)
Og þá er ég held ég hætt í leikfiminni. Kúlan er farin að þvælast aðeins of mikið fyrir. Venjulega er ég endurnærð og voða hress og kát með að drífa mig í leikfimi, en síðustu skipti hef ég meira verið stolt af sjálfri mér að geta þetta ennþá... Hef á tilfinningunni að nú sé komið gott, svona áður en ég fer að asnast til að gera eitthvað af mér eða misstíga mig illa eða eitthvað álíka skemmtilegt. Svo er líka svo stutt í að ég komist í íslenskt sund sund sund (víííí!), ekkert mál að brúa bilið á milli með gönguferðum og smá hjóltúrum.
Annars er krílið bara hresst. Hnoðast til daginn út og inn en virðist gefa mér frí á nóttunni. Alla vega vakna ég a.m.k. ekki við bröltið þá. Það reyndi eitthvað að teygja á sér - og bumbunni þar með - í dag. Það hefur virkað áður, þá stækkaði legið slatta svo það fékk meira pláss. Ég er hrædd um að litli fjörkálfurinn verði fyrir vonbrigðum í þetta sinn, því mér skilst að legið geti ekki stækkað neitt voðalega mikið meira.
Í morgun var rafmagnslaust uppi í skóla milli 8 og 12. Einstaklega hljóðlátt og notalegt uppi á skrifstofu þá ;) Á morgun er svo þjóðhátíðardagur þeirra Svía og þar með frídagur. Ég ætla samt að vinna, því ég þarf væntanlega að taka einn dag frí fyrstu vikuna á Íslandi, gott að eiga frídag inni. Sigurður er líka í Ameríku á ráðstefnu, svo ég væri hvort eð er bara ein heima að rolast... Er svo á leiðinni í munnlegt próf á fimmtudaginn, sem á að fylgja eftir 5 tíma skriflegu prófi síðasta miðvikudag. Af frásögn þeirra sem eru búnir með sitt munnlega próf er það samt bara létt rabb, gjuggað í próflausnirnar en ekkert spurt út í efnið að ráði. Sem er svo sem ágætt, því skriflega prófið var aaaaaalltof langt. Grey kennarinn misreiknaði sig svona svakalega, prófið hefði þurft að vera 8 tímar í stað 5... En hann er annars svo ljúfur og góður að allir áttuðu sig á því að prófið yrði skalað, við bara sátum sveitt allan tímann og þurftum svo kælingu fyrir skrifhöndina á eftir ;)
Við förum í sónar eftir viku. Víhú! ég hlakka til :) Það er venjan að fara í sónar eftir 32 vikur hérna í Lundi, þ.e. ef maður kemst að áður en barnið fæðist... En frumbyrjur eins og ég komast víst eiginlega alltaf að á 33.-34. viku, sem stóðst líka hjá okkur :)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli