þriðjudagur, október 30, 2007

doktor hvað?

Mig langar til að fara beint í doktorsnám eftir B.Sc.-ana mína. Stefnan er sett á Evrópu. En hvaða fag á ég að velja??? Hvaða rannsóknarhóp??? Ég veit ekkert í minn haus. Þarf að leggjast í allsherjar naflaskoðun.

Af hverju get ég ekki bara haft gífurlegan áhuga á deildajöfnum? Nú eða strengjafræði? Þá væri lífið svo miklu einfaldara. Ég þyrfti bara að finna evrópskan rannsóknarhóp á því sviði, ekki "evrópskan rannsóknarhóp á einhverju mögulega áhugaverðu sviði". Úgg. Minn vera galinn.

sunnudagur, október 28, 2007

bloggskí

Það er kominn tími á blogg. Verst að mér finnst ég ekki hafa neitt sérstakt að segja frá. Bara kveffréttir. Smákvefið sem ég var með í um tvær vikur og hélt ég væri laus við dreif sig nefnilega til og gerðist alvöru grábölvuð (afsakið, grænbölvuð) sýking í hálsi á laugardagskvöldið var. Ég neyddist því til að slappa af af alvöru (afar erfitt...). Var meira að segja sett á sýklalyf og lá og svaf nær allan síðasta mánudag með rúmlega 38°C hita. Blúbb. En þá er bara að reyna að gera gott úr hlutunum. Svo vel vildi til að mál- og tegurfræði kennarinn (Ragnar) var í Ameríku þessa vikuna, svo ég missti bara af tímum í safneðlisfræði og Sigurður neyddist til að kenna verklegt fyrir mig. Þegar heilinn hrökk í gang á ný, gat ég dundað í rólegheitunum við forritun í tölvueðlisfræði og að undirbúa verkefni sem Ragnar skildi okkur eftir með (safneðlisfræðin reyndi um of á þetta heilagrey), milli þess sem ég horfði ótæpilega mikið á Boston Legal þætti og fleira. Einnig hef ég gert margar góðar tilraunir til að hósta upp lifur og lungum (spyrjið Sigurð) auk þess sem sólarhringurinn hefur hallast ofurlítið út á hlið. Heilinn meðtekur sem sé ekki á kvöldin að svefnþörfin er um 10 klst og fattar það fyrst á morgnana. Lúr fram til 10 eða 11, jafnvel 12 er því að gerast fastur liður. Hmmm, andsk*****, ég þarf að mæta kl 8:20 á mið, fim og fös :P Farin að sofa... ;)

laugardagur, október 20, 2007

meee

Ég gleymdi haustfagnaði Stiguls í gær! Það eru tvö partý á vegum Stiguls sem ég mæti alltaf í (nema ég sé veik), þ.e. haustfagnaðurinn og fyrirpartý árshátíðarinnar. Ég er guðs útvaldur sauður, n.t.t. guðs sérlega útvaldur sauður... Við Sigurður röltum hins vegar til Ingu Dóru frænku hans í gærkvöldi og röbbuðum við hana og Símon, manninn hennar. Trufluðum þau reyndar yfir föstudagssjónvarpshuggulegheitum ásamt dætrum þeirra, en þeim var nokk sama. Tíminn þar flaug hjá á nánast ljóshraða. Ákaflega notalegt að sitja þarna í eldhúsinu hjá þeim Ingu Dóru og Símoni og þau líka svo indæl og skemmtileg. Ég er því eiginlega í vandræðum með hvort ég eigi að pirra mig svo mikið yfir þessum sauðshætti, því það að rabba við tvo indæla fjölskyldumeðlimi í litlum eldhúskrók og narta í súkkulaði, rúsínur og furuhnetur á óneitanlega betur við okkur Sigurð heldur en að þvælast í kjaftagangi milli hífaðra Stigla í tugatali ;) Ætli ég láti mér ekki nægja að hrista höfuðið ofurlítið og segja meee.

föstudagur, október 19, 2007

(segul)magnað

Sigurður fékk loksins heyrnatólin (Sennheiser PXC 350) sem hann hefur beðið svo lengi eftir í gær. Þau eru náttúrlega alger snilld með sínum suðdeyfi (noise cancelling) og miklu hljómgæðum. Þar sem að ég er ekki eigandi heyrnatólanna og sé þau því sjaldnar en sjálfan eigandann, þá ættu þessi tól ekki að vera svo mikið í frásögur færandi á bloggsíðunni minni. Nema hvað í kassanum sem heyrnatólin komu í leyndust fjórir litlir skífuseglar (voru notaðir til þess að halda niðri pappaspjaldi með frekari upplýsingum um hin mögnuðu heyrnatól). Ég reif seglana náttúrlega úr í snatri, pillaði allt límið af þeim og - jibbíjei! algert snilldar leikfang fyrir eðlisfræðinörda ;D Með því að leggja þá á slétta borðplötu og snúa segluninni á þeim öllum í sömu átt þannig að þeir hrinda hver öðrum frá sér, er hægt að láta þá þjóta um borðplötuna þvera og endilanga. Nú eða snúa segluninni sitt á hvað þannig að þeir festast saman á brúninni og mynda ýmis mynstur. Sum sé, (segul)magnað stuð hjá mér þessa dagana ;)

Seglarnir mínir eru um 1cm í þvermál og 1mm á þykkt.

fimmtudagur, október 11, 2007

æ ó æ

Vaknaði í morgun með einhvern skít í hálsinum. Úbbs. Hafði það af að klára mál- og tegurfræði skiladæmi fyrir hádegi en eftir hádegi hefur heilinn neitað að puða. M.ö.o. hann neitar að reikna fyrir dæmatíma í mál- og tegurfræði í fyrramálið. Mér tókst þó að fá hann til að lagfæra og pikka inn glósur í þessu fagi, svo hann er til einhvers nýtur... En nú er í gildi hvítlaukviðvörun í 1 km radíus utan um mig því ég át heilt hvítlauksrif og skellti öðru slíku í hvítlauks-engifer-sítrónusafa-hunangs-drykk sem ég hellti ofan í mig skömmu eftir hádegi (vona að þú hafir komist lífs af, Pétur ;) ). Svo er að sjá hvort það virki. Ég er a.m.k. nógu hress til að langa í heitan pott í Árbæjarsundlauginni meðan Sigurður skeiðar 10 km í Poweradehlaupi í Elliðaárdal. Ehm, en er engu að síður einnig nógu skynsöm til að láta það ekki eftir mér ;)

fimmtudagur, október 04, 2007

varúð! námsmannareikningar

Ég vil biðja alla námsmenn um að athuga annaðhvort í heimabanka, á reikningsyfirlitum eða hjá þjónustufulltrúa hvort tékkareikningurinn þeirra sé ekki alveg örugglega skráður sem námsmannareikningur!

Fyrir tæpum mánuði sendi ég í forvitni minni fyrirspurn til eins af viðskiptabönkunum mínum um hvers vegna ég hefði greitt mismikið fyrir nokkrar debetkortafærslur á árinu. Fékk skýringuna til baka: Námsmannatékkareikningurinn sem ég stofnaði skömmu eftir fermingu hafði verið skráður úr "námsmannakjörum" í janúar 2004 og settur aftur í námsmannakjör í apríl 2007.

Hafið þið einhvern tíma skoðað muninn á vöxtunum sem eru á almennum tékkareikningi og námsmannareikningi (í hvaða banka sem er)? Sá munur er heilmikill. Ég varð alveg hreint sjóðbullandibandbrjálaðsbálreið. Hvað átti bankinn með að skrá mig úr námsmannakjörum? Hann hafði ekki nokkurn rétt eða möguleika á að fá lista yfir nemendur sem brautskráðust úr MH um jólin 2003. Tæknilega séð var ég líka námsmaður meðan á aupair-dvöl minni stóð þarna janúar-ágúst 2004, því ég var í þýskunámi svotil allan tímann. Svo lufsaðist bankinn ekki til að skrá mig í námsmannakjör fyrr en í apríl 2007, þótt það hafi t.d. verið fullljóst að ég væri námsmaður í júní 2006 þegar ég fékk ISIC-kreditkort hjá þeim - sem engir aðrir en námsmenn mega fá! Arg.

Ástæðan fyrir afskráningunni er sú að það var lítil hreyfing á reikningnum mínum. Bankinn sum sé notar sem mat á hvort fólk sé ekki lengur námsmenn:
1) mánaðarlegar háar launaupphæðir koma inn á reikninginn;
2) hreyfing á reikningnum er lítil (=fólk er með aðalviðskipti við annan banka);
og ef annað af þessu tvennu er uppfyllt, þá einfaldlega skráir hann fólk úr námsmannakjörum án þess að láta nokkurn vita. Ég á ekki til orð!

Ég sendi auðvitað harðort svar og krafðist þess að fá vextina af reikningnum leiðrétta aftur í tímann, því bankinn átti ekkert með að skrá námsmanninn mig úr námsmannakjörum. Vextina fékk ég í síðustu viku. Þetta voru rúmar 7000 krónur, þ.e. stór matarkarfa hér á Eggertsgötu 20. Ef ekki væri fyrir einn einstakan þjónustuþátt þessa banka (sem sparar mér þónokkra þúsundkalla á ári), þá hefði ég hætt viðskiptum við hann í fússi!

mánudagur, október 01, 2007

smá nöldur

Lífið snýst ekki um annað þessa dagana en skóla, kennslu, mat, innkaup, þvott, þrif, ... Það er ekki einu sinni hægt að skella sér í kæruleysi fyrir framan sjónvarpið nema rétt í bláendann á föstudagskvöldum (ekki að það hafi verið hægt síðustu 3 árin, en ég er orðin þreytt á þessu endalausa spani). Ragnar kaffærir okkur í mál&tegur, Þórður kennir safneðlisfræði fyrir 2. árs BS-nema eins og masterskúrs, ég eyði alltof miklum tíma í að fara yfir verkbækur minna misklóku nemenda og þess á milli er ég að farast úr pirringi yfir að ég komi tölvueðlisfræðinni varla nokkur staðar að. Nöldur... Merkilegt nokk, þá er þetta nú samt skítsæmilegt - oftast nær að minnsta kosti. Maður er jú kominn með þriggja ára þjálfun í þessum bransa ;)

E.S. Hvað á ég líka sosum með að nöldra þegar ég fæ að gera það sem ég vil, þ.e. læra eðlisfræði og stærðfræði? Maður getur stundum verið ansi skrýtinn...