mánudagur, mars 27, 2006

evróvisjón

Örstutt „fréttatilkynning“ í táknum og tónum:

Góðir hálsar.
Þrátt fyrir ófarir síðasta árs á tónlistarsviðinu læra ráðamenn þjóðarinnar ekki af mistökum sínum. Enn er fullkomlega óausturevrópuvænt lag á leið til Grikklands sem framlag íslensku þjóðarinnar til Júróvisjónkeppninnar. Þetta er fullkomlega óásættanlegt. Við látum ekki bjóða okkur þetta lengur. Tími er kominn til að bíta í skjaldarrendurnar, draga fram loðhúfurnar og hrópa öll sem eitt:

Til hamingju Austur-Evrópa!

Góðar stundir,

Við köllum okkur Helvíti góða,
Kristján Eldjárn & Grímur Hjörleifssynir

föstudagur, mars 24, 2006

dadda-radda-dadda-DAAD

Nei, þetta er ekki hrynæfing frá Jóni Hrólfi. Ég lauk tónfræði&tónheyrn fyrir nokkrum árum. Snillingurinn hún systir mín fékk hins vegar tilkynningu núna á þriðjudaginn um að hún hefði hlotið styrk frá "þýsku menntaskiptaþjónustunni" (DAAD - Deutscher akademischer Austauschdienst) til náms í Þýskalandi skólaárið 2006-2007 :D Hæhó-og-jíbbí-jei-og-jibbí-í-jei!

Það nýjasta af mér er annars að ég gleymdi því að ég átti miða á Sinfó núna í gærkvöldi. Mundi það kl 19.55 en tónleikarnir byrjuðu 19.30. Brunaði vestur eftir á (löglegu) spani. Missti af 9. sinfóníu Sjostakovítsj, en náði að heyra mest allan 2. píanókonsertinn hans (sitjandi í stiganum, huggulegra en ég bjóst við) og svo 10. sinfóníuna, alla, eftir hlé (þá sitjandi í eigin sæti...). Þetta eru sinfóníutónleikar númer tvö sem ég gleymi í ár. Hinum gleymdi ég alveg, enda voru þeir á óhefðbundnum tíma kl 15 á laugardegi - laugardegi eftir vöku til kl 5 að klára tölulega greiningu, laugardegi undirbúnings verklega hluta eðlisfræðikeppni framhaldsskólanema.
Annaðhvort er afneitun mín á því hversu djúpt í skítnum ég er, orðin svona öflug eða ég er orðin prófessorslegri en ég kæri mig um...

miðvikudagur, mars 15, 2006

hætt við

Í dag rann út umsóknarfrestur um Erasmus skiptinám. Í dag greiptist vikugömul ákvörðun mín í stein. Ég hætti við að fara til München.
Hvers vegna? Jú, ég ákvað að fara út áður en ég byrjaði í HÍ. Áður en ég fór á 2. ár. Áður en ég tók Eðlisfræði 3 (inngangur að skammtafræði) eða Eðlisfræði 4 (nútímaeðlisfræði-bland-í-poka) og áttaði mig á því að ársfrí frá skammtafræði er ekki sniðug hugmynd þegar maður lendir beint í gini ljónsins við heimkomu (Skammtafræði 1 með Þórði Jóns, úje!) og félagarnir búnir og farnir. Áður en ég fór í Mengi og firðrúm (1. árs námskeið) og komst að því að einhverra hluta vegna vinnur maður með sínum árgangi eða endar bara svolítið utanveltu, einn á báti. Áður en ég komst að því að upplýsingar á vefsetri TUM eru af skornum skammti og svör við fyrirspurnum berast seint eða aldrei. Áður en ég áttaði mig á því að ég hef engan áhuga á að fara út og læra og læra, án þess að vera viss um að fá áfangana metna sem hliðstæðu skyldunámskeiða í HÍ og geta kannski ekki útskrifast með stærðfræði B.Sc. Áður en ég sá að þetta allt saman er of hátt "gjald" fyrir að skoða einn mögulegan skóla til framhaldsnáms, anda að mér öðru lofti o.s.frv., miðað við að klára grunnnámið á sveigjanlegri hátt hér heima í góðra félaga hópi.
Kom í faðm minn, ástkæra íslenska eðlisfræðinám[sgeggjun]!
Sjáumst á Fróni :)

miðvikudagur, mars 08, 2006

sæl á ný

Hejsan, nú er pínkuponsu lægð milli toppa (sem er náttúrlega bara sjálfsblekking - ég á eftir að vinna allt upp frá síðustu 4-6 vikum ;P ). Törninni lauk með vinnu til kl 4 aðfaranótt laugardagsins...

Um helgina sáum við í eðlisfræðinni m.a. um verklega hlutann í úrslitum eðlisfræðikeppni framhaldsskólanna. Mjög skemmtilegt starf, en ALGER tímasuga: 14-18.30 á lau og 9-16.30 á sun. Sérstaklega þar sem eðlisfræðinemar eru misgleymnir og misfórnfúsir, eins og gengur, svo við vorum miklu færri í þessu en í fyrra og þ.a.l. meiri vinna og tími á mann. Pétur fórnaði samt mestum tíma og vann líka eitthvað að þessu á mið. Úffpúffpúff, einmitt það sem við þurftum á að halda ... eða EKKI! En ég steingleymdi að ég átti miða á Sinfó kl 15 á lau, úbbsasí... Svolítið lýsandi fyrir ástandið.

En það er sem sé allt á góðu róli á ný. Og ég hætt í Svaninum og farin að geta synt og spriklað á ný eftir kvefið.

Hafið þið annars tekið strætó nýlega? Held vagnstjórar séu annaðhvort orðnir galnir, ósáttir við nýja kerfið eða nýja kerfið sé lélegt. Ég hef tekið vagn 12 fjórum sinnum síðan 5. mars (þá var skipt um kerfi) og í fyrstu tvö skiptin var hann 10 mín of seinn, einu sinni á hárrétum tíma og einu sinni 15 mín of seinn (alls ekki 5 mín of fljótur!). Þegar vagninn var á réttum tíma var það rétt eftir endastöð. Hin skiptin voru heima á leið niður í bæ, þ.e. eftir alla ferðina upp í Breiðholt. Þar af var vagnstjórinn í eitt skiptið alveg stórskrýtinn - stoppaði á grænu ljósi og beið á hringtorgi þótt það væri autt: "Halló! úti að aka?"