hætt við
Í dag rann út umsóknarfrestur um Erasmus skiptinám. Í dag greiptist vikugömul ákvörðun mín í stein. Ég hætti við að fara til München.
Hvers vegna? Jú, ég ákvað að fara út áður en ég byrjaði í HÍ. Áður en ég fór á 2. ár. Áður en ég tók Eðlisfræði 3 (inngangur að skammtafræði) eða Eðlisfræði 4 (nútímaeðlisfræði-bland-í-poka) og áttaði mig á því að ársfrí frá skammtafræði er ekki sniðug hugmynd þegar maður lendir beint í gini ljónsins við heimkomu (Skammtafræði 1 með Þórði Jóns, úje!) og félagarnir búnir og farnir. Áður en ég fór í Mengi og firðrúm (1. árs námskeið) og komst að því að einhverra hluta vegna vinnur maður með sínum árgangi eða endar bara svolítið utanveltu, einn á báti. Áður en ég komst að því að upplýsingar á vefsetri TUM eru af skornum skammti og svör við fyrirspurnum berast seint eða aldrei. Áður en ég áttaði mig á því að ég hef engan áhuga á að fara út og læra og læra, án þess að vera viss um að fá áfangana metna sem hliðstæðu skyldunámskeiða í HÍ og geta kannski ekki útskrifast með stærðfræði B.Sc. Áður en ég sá að þetta allt saman er of hátt "gjald" fyrir að skoða einn mögulegan skóla til framhaldsnáms, anda að mér öðru lofti o.s.frv., miðað við að klára grunnnámið á sveigjanlegri hátt hér heima í góðra félaga hópi.
Kom í faðm minn, ástkæra íslenska eðlisfræðinám[sgeggjun]!
Sjáumst á Fróni :)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli