mánudagur, maí 22, 2006

dagsetning

Ég mætti í vinnuna í dag eftir hádegið. Eftir rabb og ráp og humm og ha bókaði ég flug til Berlínar 1. júní-18.júlí, í samráði við Knút. Rúmum klukkutíma síðar hringdi ég og breytti flugmiðanum í brottför 8. júní, eftir að hafa spjallað við Óla Fló... Hehe, þarna er ÍSOR í hnotskurn ;) Hversu oft ætli dagsetningin muni breytast þar til ég fer? Vona nú að þetta sé fyrsta og eina breytingin... Svo eiga að taka við hinar og þessar mælingar og forritun og ýmis skemmtilegheit þegar heim kemur. Heyrist að þá stefni í að það verði einhver lifandis ósköp og hellings hellingur að gera. Ekki slæmt :)

Loks nokkrar myndir frá Stað:




















Védís Fríða með pínkuponsusmálambið Þumalínu


Þumalína


Aníta Hanna


Snati


Ég með risalamb sem krafðist reiptogana til að komast í heiminn. Berið saman við Þumalínu!


Móbotnótta lambið fær sér súp


Védís Fríða


Rebekka (Védís tók myndina af mömmu sinni, þ.e. ýtti á takkann ;) )

sunnudagur, maí 21, 2006

heima

Komin heim. Kát og glöð og jarðtengd eftir atvikum, blá og marin eftir móðursjúka ferfætlinga á hormónatrippi, lambalykt á lúkunum, harðsperrur í upphandleggjum, ofurlítið sigg í greipunum, öll heilu fjárhúsin í poka innan um drullugallann (á leiðinni út í sjó þessa stundina, af völdum þvottavélar og hellings af sápu og vatni), 12 reyktir lundar í frystinum og eitthvað álíka af reyktum rauðmaga. Frábær jarðtenging eftir klikkun vetrarins, mæli svo sannarlega með þessu.

- Ég og móbotnótt hetja. Eitt af mörgum lömbum sem er afturfóta í burði og af þeim sökum næstum kafnað inni í mömmu sinni. Þurfti að spyrna í og toga í lambið af öllum kröftum. Það hafði það af. Ótrúlega seigt í þessum krílum! -

þriðjudagur, maí 16, 2006

sauðburður

Búin í prófum og komin á kaf í sauðburð. Mæti svo til vinnu 24. maí en hef enn enga dagsetningu á Potsdam-för. Vona að hún fari nú að koma... Sumarhjólin eru farin að snúast :)

föstudagur, maí 12, 2006

allt er vænt sem vel er grænt

Hvað á betur við en að senda Líneyju Höllu til vinnu í rannsóknarstöð inni í iðjagrænum skógi, ég bara spyr?


Fyrir utan að í byrjun júní verður birki- og heslifrjótíminn liðinn... :D

fimmtudagur, maí 11, 2006

ferðalangar

Norður yfir hafið, alla leið frá Póllandi, barst mikill lofthiti. Yfir hafið barst mikið og merkilegt mistur. Yfir hafið barst heilmikið magn birkifrjóa. "Aaaaatsjúhh!" sagði Líney, og hætti að geta borðað epli án þess að hnerra á eftir. Mikil mæða, mikil mæða. En svo komu almennileg ský sem hlömmuðu sér á jörðina í morgun, Líneyju og gróðri jarðar til mikillar gleði. Og Líney getur borðað epli á ný, án þess að hnerra.

Jammojæja, fyrstu (og vonandi einu) ofnæmiseinkenni sumarsins liðin hjá. Fyrir ykkur sem rekið upp stór augu vegna eplahnerrans, þá ku epli valda ofnæmisviðbrögðum hjá þeim sem hafa ofnæmi fyrir birki og hesli, þegar ofnæmiskerfið er þegar komið í gang af þeirra völdum. Sem sé, þegar ég fer að hnerra af því að borða epli, þá veit ég að það er birki- eða heslifrjó í loftinu.

Í fyrradag fékk ég líka staðfestingu á því að ég muni leggja land undir fót í sumar. Potsdam mun það vera, einhvern tíma í byrjun júní. Nánari dagsetning ákveðin síðar. Stundvís og ofurskipulagður Þjóðverji færi yfirum að vinna á þessum stað...

Síðasta prófið er núna á laugardaginn. Get varla beðið að verða búin með þessi leiðindi, en er líka að fara yfirum því það gengur ekki neitt að komast yfir efnið. Ekki að það virðist skipta miklu máli, því þetta er einhver mesti skítamix-kúrs sem ég hef farið í: "Þetta virkar svona... Af hverju? Nú, okkur hentar það bara svo vel!" Og ekki reyna að lesa kennslubókina: Introduction to the Structure of Matter, eftir Brehm&Mullin. Ágæta lýsingu á þeirri bók má finna hér.

föstudagur, maí 05, 2006

almannaálit

Skemmtilegt hvað margir hafa mikið álit á stærð- og eðlisfræðinemum. Við erum jú furðufuglar og félagsfælur upp til hópa, ekki satt? ;)
Þessi móðir orðaði þetta mjög pent í bón um aukakennslu:

Komið þið sæl.

Mig bráðvantar hressan og þolinmóðann nema til að taka dóttur mína sem er
á öðru ári í Menntaskólanum við Sund í aukakennslu í eðlis -og efnafræði
(koma henni í gegn um prófið)

Endilega látið mig vita ef þið vitið um einhvern sem vill vinna sér inn
aukapening.

Verður helst að vera opinn og yfirvegaður einstaklingur sem nær til
annarra :)

Bestu kveðjur,
...

Svo skal engan undra að Stigull (félag stærð- og eðlisfræðinema HÍ) fékk skeyti með áskorun um þátttöku í FC Nörd...

Hehe, svona hlutir lengja lífið um margar mínútur :D