mánudagur, apríl 25, 2005

eftirá

Skemmtilegt hvað kemur út úr svona nafnamaskínum. Minnir svolítið á stjörnuspána í Mogganum ;)

Ég steingleymdi að blogga frama minn síðustu vikur:
1) Ég fékk sumarvinnu á ÍSOR (Íslenskum orkurannsóknum) við að forrita í Linux-skeljum og fara í vinnuferðir út á land.
2) Ég var kosin skorarfulltrúi 1. árs eðlisfræðinema.

Vinnuna á ÍSOR fékk ég, skilst mér, vegna þess að sá sem sá aðallega um ráðningarnar þekkir pabba og veit að hann er klár í Linux (= dóttirin er það líklega líka) en svo vona ég að það sé líka vegna þess að áhugi minn á forritun kom fram í starfsumsókninni. Svo þið getið ímyndað ykkur um hvað umræðurnar við matarborðið munu snúast hjá okkur pabba í sumar ;) En ég hlakka gríðarlega til :D Þekki líka a.m.k. helming hinna sumarkrakkanna héðan úr HÍ, sem eru allir sérlega skemmtilegt fólk.
Skorarfulltrúi þýðir svo að ég mæti á skorarfundi í eðlisfræðiskor þegar þarf að halda þá. Hef þar atkvæðarétt, tek þátt í umræðum um það sem er að gerast í skorinni og gæti hagsmuna okkar nemendanna, ásamt Ómari sem er fulltrúi 2. árs nema. Ég er búin að mæta á einn fund og líst ágætlega á þetta. Kynnist líka nýrri hlið á prófessorunum og hækka kynjahlutfallið á fundunum úr 0% í ca. 9% ;)

Annars er ég að reyna að byrja í próflestri en gengur hálfbrösulega. Ég er alltof róleg eitthvað enda sýnist mér ég hafa 6 daga til að lesa fyrir erfiðasta prófið, 5 fyrir það næsterfiðasta og 3 fyrir sitthvort meðalþunga prófið, ef ég gef skít í það léttasta og rifja upp í ½-1 dag fyrir það (held ég þurfi svei mér þá ekkert að lesa fyrir prófið...).

Loks mæli ég með útiveru þessa dagana, t.d. trjásetu eins og Ásta vinkona stundaði um daginn. Um að gera að sækja sér krafta í vorið eftir veturinn :)

Engin ummæli: