þvörusleikir
Sá fjórði, Þvörusleikir,
var fjarskalega mjór.
Og ósköp varð hann glaður,
þegar eldabuskan fór.
Þá þaut hann eins og elding
og þvöruna greip,
og hélt með báðum höndum,
því hún var stundum sleip.
Ég sit núna upp á skrifstofu í háskólanum hjá Bjarnheiði og reyni að gera eitthvað af viti (haha...) þar til ég þarf að taka strætó út á flugvöll (17:48). Það er ekki enn búið að tilkynna um neina seinkun á fluginu, svo nú er bara að krossa putta. Snjórinn gerir mönnum enn lífið leitt hérna og því mikið um seinkanir :P Það er endurtektarpróf klukkan 8:00 í fyrramálið í kúrsinum sem ég var dæmatímakennari í fyrr í haust og ég þarf að mæta þar galvösk með prófblöðin upp í háskóla í tæka tíð. Þétt dagskrá, ha? Púff, ég vona svo sannarlega að fluginu seinki ekki mikið svo ég verði ekki eins og draugur allan daginn á morgun :-o

Engin ummæli:
Skrifa ummæli