miðvikudagur, ágúst 08, 2007

tóm borg

Mjah, eða svona næstum því. En ég sem sé hélt mig í bænum um verslunarmannahelgina. Við Sigurður byrjuðum strax á fimmtudagskvöldið að njóta borgarinnar með því að skella okkur í Vatnsmýrarhlaupið (5 km með tímatöku og girnilegt ávaxtahlaðborð á eftir). Fórum í keilu, þythokkí og (gallaðan, en skemmtilegan) snóker upp í Öskjuhlíð á föstudaginn. Dunduðum hitt og þetta á laugardeginum (ég m.a. rifjaði það upp hvernig það var að gleyma sér í tölvuleiknum Day of the Tentacle). Fórum út í Viðey í glampandi sól á sunnudegi og sporðrenndum sitt hvorri rjómavöfflunni ásamt ekta súkkulaði áður en við héldum í land á ný, nutum dásamlegs kvöldmatar pabba ásamt afa og ömmu í Sigtúni og enduðum daginn á bíóferð (ég mæli með Die Hard 4, Brúsi kallinn bara batnar með aldrinum ;) ). Baldur, Birte, Matthías og Bjarki komu í hádegismat á mánudeginum til að athuga með stærðina á gömlu kojunum okkar Bjarnheiðar. Kojan hans Bjarka brotnaði sem sé nýlega og þar sem pabbi og mamma eru að fara að flyta bráðlega, var kærkomið að koma kojunum ofan af háalofti og í gagnið á góðum stað. Við Sigurður renndum um kvöldið með kojuna í Kópavoginn og hjálpuðum til við að setja hana upp. Það tókst, þótt litið hafi út fyrir að litla mjóa herbergið hans Bjarka ætlaði að springa utan af kojunni um tíma ;)

Foreldrarnir að flytja í smærra húsnæði og hvað verður þá um litlu Líneyju? Jú, við Sigurður fengum inni á görðunum. Eggertsgata 20-206 skal það vera. Sigurður er á leið í vikulanga mælingaferð á laugardaginn, en við fáum íbúðina einmitt á föstudaginn eftir rúma viku. Meðan ég sit og pikka, grettir hann sig því yfir því að pakka niður því helsta í herberginu sínu. Herberginu þarf hann nefnilega að skila strax á hádegi mánudaginn eftir að við fáum paríbúðina svo það er eins gott að hafa sem flest tilbúið áður en dótinu er skverað hér yfir bílastæðið og gamla herbergið/íbúðin þrifin, bónuð og ég veit ekki hvað. Næsta helgi hjá mér verður hins vegar undirlögð af því að pakka öllu mínu hafurtaski og fara í gegnum heldur betur marga kassa af gömlu dóti ofan af háalofti. Gavöð hjálpi mér. Þetta verður hins vegar enn meira stuð hjá þeim pabba og mömmu. Að flytja eftir 16 ár, hmmm...

Jú jú, allt að gerast.

Engin ummæli: