að borða sér til óbóta
Við Sigurður fórum á villibráðarhlaðborðið í Perlunni í kvöld til þess að fagna því að hann fékk afhent í gær verðlaun úr Verðlaunasjóði Guðmundar P. Bjarnasonar frá Sýruparti fyrir afburða námsárangur á B.S.-prófinu (húrra fyrir Sigurði!!! :D). Úff, talandi um ofát! Það fyrsta sem ég gerði við komuna heim var nokkuð sem velflestir kvenmenn kannast vel við - dreif mig úr sokkabuxunum ;) Það næsta var að skríða undir sæng svo eymingja magagreyið fengi að vinna í friði. Sigurður hreinlega þorði ekki að leggjast upp í rúm af hættu á að geta ekki staðið á fætur aftur... Já, þetta hlaðborð þeirra í Perlunni er hættulega gott og úr svo mörgu að velja að maður verður ágætlega saddur bara af súpunni og forréttunum. Kjamms mjamms smjatt. Við borðuðum mögulega fyrir alla vikuna á þessu eina kvöldi. Alla vega glottum við þegar stúlkan í fatahenginu spurði hvort okkur vantaði leigubíl, því þrátt fyrir að hvorugt hefði bragðað vín, þá vorum við eiginlega bæði óökufær sökum ofáts ;D
Annars leið helgin við margt annað en lærdóm, því foreldrar og báðar systur Sigurðar komu á föstudagskvöldið. Við buðum þeim fjórum, Magga kærastanum hennar Hörpu og mömmu (pabbi er úti í Aþenu að "olíumálaráðherrast") í mat á sunnudagskvöldið. Fyrsta matarboðið hér á Eggertsgötunni :) Og jamm, átta manns í mat er algert hámark. Við fengum nokkra diska, hnífa og gaffla og kökugaffla lánaða hjá mömmu, notuðum alla stóla sem til voru og skeyttum litla skrifborðinu sem Sigurður notar við endann á eldhúsborðinu. Hehe, og notuðum gömul gluggatjöld frá mömmu (sem ég var nýbúin að ræna nokkrum bandspottum úr) sem borðdúk :D Ofan í fólkið runnu ljúflega 2,5 kíló af nauta- og folaldapiparsteik ásamt átta risastórum bökunarkartöflum, piparsósu og stórri skál af salati. Mamma sá um eftirréttinn, þ.e. gúmmulaðigómsæta gulrótaköku. Svo má segja að Jón Dór (pabbi Sigurðar) hafi séð um skemmtiatriðin því hann er snilldarsögumaður (að öðrum gestum ólöstuðum). Vel valdar Torfasögur eru hápunkturinn :D Þessi máltíð var eiginlega upphitun fyrir hlaðborðið í kvöld því bæði héldum við Sigurður að við hefðum etið yfir okkur þarna á sunnudaginn. Ehm, svo var ekki miðað við núna ;)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli