sunnudagur, nóvember 30, 2008

dragið andann djúpt: myndablogg!

Eins og mín alvitra eldri systir hefur margsinnis bent á, þá er myndaskorturinn á síðunni agalegur. Hér kemur því dágóð romsa...

Byrjum í Þrándheimi (3.-5. nóv) þar sem ég fór að hlusta á, kynnast og kjafta við helling af eðlisfræðingum á Norðurlöndunum. Eðlisfræðingar er alþekktir fyrir grín og glens og lét þessi velhærði Rússi ekki sitt eftir liggja.


Að vísu vildi fartölvan hans fyrst ekki tengjast skjávarpanum, en hann kunni ráð við því: Hamra og berja hraustlega á lyklaborðið. Þetta líktist nokkurs konar hjartahnoði. Lífgunartilraunirnar báru árangur, eins og sést á myndinni hér að ofan, en eitthvað segir mér að sá skeggjaði þurfi u.þ.b. eitt nýtt lyklaborð á viku...

Að loknum öllum erindunum síðasta daginn gátum við fengið okkur göngutúr um bæinn áður en við héldum í flugið. Þar rákumst við meðal annars á þetta fyrirbæri


sem við skildum lítið í hvað væri, en viti menn


þetta reyndist vera hjólalyfta, til þess að flytja örþreytta hjólreiðamenn á þægilegan máta upp þessa hræðilega bröttu brekku


Erum við að tala um snillinga? :D Verst að lyftan var lokuð (kominn vetur), svo hjólreiðamaðurinn á efstu myndinni gat ekki tekið okkur í sýnikennslu...

Við litum auðvitað á og í dómkirkjuna - vá!


Svo eru hér nokkur okkar sem komum frá Lundi, að bíða eftir leigubíl á flugvöllinn: Claudio, Peter, Henri, Jonas, Frank og Sara.



Nújæja, myndavélar okkar Sigurðar voru orðnar svo slappar að ekki var lengur hægt að taka myndir með þeim, svona með góðu móti. Því var drifið í því að fá Bjarnheiði til að kaupa eina slíka í Þýskalandi. Hún tók auðvitað nokkrar prufumyndir



en mér fannst samt vissara að taka eina prufumynd til viðbótar og þá af herbergisskrímslinu.



Unnur Ósk kom í heimsókn til Lundar um miðjan mánuðinn. Við Sigurður vorum þá að vísu alveg á milljón, en okkur tókst þó að taka frá smá tíma til að mæta í óóóógurlega góðan mat hjá Silju og Hjalta og hitta Unni nú aðeins.



Þess má geta að þetta var í fyrsta skipti sem Unnur og Sigurður hittust, nokkuð magnað.

Svo kom Harpa í heimsókn til okkar akkúrat á réttum tíma, þ.e. aðalbrjálæðinu í skólanum lauk daginn sem hún kom. Smá klúður að þetta er eina myndin sem við tókum í Lundi af því tilefni :P


Harpa var hjá okkur frá mánudegi fram á miðvikudag en fór þá til vinkonu sinnar í Køben. Við tvö skelltum okkur svo til Køben laugardaginn fyrir viku og hittum Hörpu þar


og fórum á sýninguna Bodies.


Sú sýning er alveg hreint mögnuð. Ótrúlega flott! En ég skil vel að hún sé umdeild, maður er jú í rauninni að skoða lík... Á hinn bóginn verður að viðurkennast að sýningin er einhver skemmtilegasta líffræðikennsla sem ég hef kynnst.

Nú, eftir sýninguna og að hafa gengið af okkur lappirnar, þá stigum við um borð í sporvagn, kvöddum Hörpu (fór með okkur spottakorn í sporvagninum) og héldum í átt til Sissa og Ane í Rågeleje.







Þar nutum við þess að slappa af og borða og slappa af og spjalla og borða og slappa af og borða og spjalla og... klappa hundunum, þeim Freyju og Viktori.

Þetta er sófinn sem hundarnir mega liggja í. Freyja: "ZZZzzzz....."


Það gat verið svolítið erfitt að halda hundunum kyrrum meðan tekin var mynd (Freyja)


en möndlur eru pottþéttar til að þau sitji grafkyrr


Það verður seint sagt að þau Freyja (á myndinni) og Viktor hafi verið ósátt við klapp\&klór þjónustu Sigurðar og Líneyjar Höllu ;)


Við fórum í smá göngutúr með Sissa og hundunum á sunnudeginum áður en við héldum heim á ný.



Ég prófaði macro-stillinguna á myndavélinni við fyrsta tækifæri, auðvitað.



Núna síðasta fimmtudag tók Kaninn á ganginum sig til og steikti tvo kalkúna og útbjó allt tilheyrandi með svo úr yrði dýrindis þakkargjörðarmáltíð. Smjatt! Öllum á ganginum var boðið og nokkrum vinum að auki. Það var þétt setið og mikið kjaftað og kjammsað :)





Að lokum koma nokkrar myndir frá 1. des balli íslenska kórsins í Lundi sem var haldið í gærkvöldi (þema í ár: sveitaball!). Við Sigurður vorum voða pen og fín


og auðvitað sungum við í kórnum nokkur lög


Ég hló svo mikið að skemmtiatriði strákanna í kórnum að ég steingleymdi að taka myndir, en Sigurður klikkaði ekki þegar stúlkurnar stigu á stokk. Ætli við séum hér ekki í miðri ákaflega innilegri túlkun á "Hvítir mávar" ;) Asafínar - og á stígvélunum :D


Annað sem ég gleymdi að taka myndir af voru hinn röggsami veislustjóri Eiríkur, ræðumaður kvöldsins María Árnadóttir leikkona (ég svoleiðis lá í krampa - hvílík snilld! :D það hefði þurft að vera með upptökuvél þarna...), Sverrir og Sigrún að draga í happdrættinu (meðal vinninga voru ferðir með Sterling, hlutabréf í íslenskum einkabönkum, ókeypis heimsókn á slysó til Maríu... neeei bara grín, það var spurt hvort einhver kærði sig um svoleiðis vinninga áður en dregið var ;) en "eitthvað lítið, gult, ferfætt og loðið sem segir mjá!" var þegið með þökkum, ásamt konfektkössum, brennivínsflösku, matarkörfum, bókapökkum, málverki, skúlptúr og ýmsu fleiru :) ), allur maturinn (rófustappa og sviðasulta, íslenskt hangikjöt með öllu til heyrandi og kökubasar kvenfélagsins [til styrktar fjármálasnillingum]), skreytingarnar o.fl. o.fl. Ég er sem sé vonlaus ljósmyndari. Ég mundi þó eftir að taka mynd af einsmannshljómsveitinni Halla (brilljant)


fjörinu á dansgólfinu


og kjaftagangnum á barnum



Núna í morgun kom svo í ljós að fleiri höfðu skemmt sér rækilega í gærkvöldi. Látum myndirnar tala






Svo þetta sé nú alveg á hreinu, þá er gólfið venjulega ekki þakið dagblöðum, engin bílastæðiskilti finnast hér, hvorki ryðguð grindverk né rósarunnar og grenigreinar, ekki svartar ruslatunnur fyrir pappír, ekki vagnar fyrir mjólkurfernur, ekki rauðar viðvörunarkeilur... en þó kannski tröll og heeeeellingur af drasli. Á efstu myndinni sést hluti af hinum síkátu sökudólgum. Ah, við búum með svooooo þroskuðu fólki... ;)

Látum þetta gott heita í bili, góðar stundir.

Engin ummæli: