stekkjastaur
Stekkjastaur kom fyrstur,
stinnur eins og tré.
Hann laumaðist í fjárhúsin
og lék á bóndans fé.
Hann vildi sjúga ærnar,
- þá var þeim ekki um sel,
því greyið hafði staurfætur,
- það gekk nú ekki vel.
Jæja, fyrsti jólasveinninn mættur til byggða. Ólíkt fyrri árum, þá fylgja engar frásagnir af jólaprófum með jólasveinunum hér á síðunni, enda fer ég ekki í próf fyrr en eftir jól. Nánar tiltekið eitt munnlegt próf í rafsegulfræði. Sigurði var tjáð að þetta væri killer-kúrsinn í eðlisfræðinni við LU. Jaså. Habblaha. Ekki hefur okkur virst svo vera. A.m.k. hafa dæmin verið sæmilega reiknanleg og jafnvel skiljanleg. Prófið hefur ósköp þægilega uppbyggingu, þ.e. settir verða saman nokkir 4-dæmaskammtar með dæmum af þessum 5 dæmablöðum sem við höfum fengið og svo á að kasta teningi upp á hvaða skammt maður fær í prófinu. Þar á að útskýra fyrir kennaranum hvers vegna hann setti fyrir hvert þessara fjögurra dæma og kannski reikna svona aðalatriðin í þeim. Taka má þriggja A4-síðna tossamiða með í prófið. Fjandakornið, þetta á ekki að vera svo hrikalega erfitt!
En aðeins yfir í jólin: Í gær fórum við Bergþóra (vinkona mömmu frá því hún var í námi í Lundi) á Lúsíutónleika í dómkirkjunni. Vá! Þetta voru svoleiðis tónleikarnir til að koma manni í jólaskap :) Hvorki fleiri né færri en 5 barna- og unglingakórar sáu um sönginn og auðvitað gengu þau með logandi kerti inn eftir kirkjunni í upphafi og við lok tónleikanna; stúlkurnar hvítklæddar með kransa á höfðinu og með sína Lúsíu í fararbroddi með kertakórónu, drengirnir prúðbúnir þar á eftir og þrír litlir hestasveinar (Staffan stalledräng) klæddir í rauð og grá föt með langa rauða prjónahúfu á kollinum trítlandi með þeim.
Annars tók ég einhverja sévítans kvefpest upp eftir Sigurði fyrir rúmri viku og hún virðist ekkert ætla sér að yfirgefa hálsinn og nefið á mér í bráð. Arg garg. Ég hafði það þó af að flytja lögheimilið til Svíþjóðar áður en pestin gerði mig óvirka í lok síðustu viku. Það gladdi mig mjög að það að sækja um lögheimilisflutninginn gekk eins og smurt án pappírs- og vottorðavandræða og án óendanlega langrar biðar - kennitalan tilbúin á einni viku! Hér skal tekið fram að ég hafði heyrt miklar skelfingarsögur af laaaangri bið eftir kennitölu eftir mikið pappírsflóð. En já, þetta gekk prýðilega og þ.a.l. fékk ég þessa fínu sænsku kennitölu með póstinum á miðvikudaginn. Ég fór í gær og náði í hana ásamt lyklinum að nýja herberginu mínu. Mikil gleði :)
Í dag mannaði ég mig svo upp í að fara í banka til að stofna reikning og fá greiðslukort og netbanka (svo ég þurfi ekki að bíða endalaust í bönkum eftir afgreiðslu og borga þjónustugjald upp á 60-80 SEK fyrir hvern einasta reikning sem þarf að greiða). Sparbanken Finn: "Nei, maður þarf ID kort [sænsk persónuskilríki] til að fá netbanka og skv. [óþolandi] reglum frá því fyrir um ári, þá fá einungis sænskir ríkisborgarar ID kort." Nordea: "Velkomin í viðskipti! Við rukkum þig svo einungis um 24 SEK/mán fyrir debetkortið og 12 SEK/mán fyrir netbankann..." Bless!!! SEB: "Nei, sænsk kennitala dugir ekki til að geta fengið netbanka." Handelsbanken: "Þú getur fengið reikning, debetkort og netbanka fyrir 150 SEK/ári, en þú getur ekki fengið kort sem nota má til netviðskipta." Fjandinn, ojæja, ég lét þó slag standa. En hvað er að??? Það hafa verið gapandi hálfvitar sem settu þessi lög um að einungis sænskir ríkisborgarar mættu fá ID-kort, því það gerir líf innflytjenda/útlendinga gersamlega óþolandi meðan allar þessar þúsund stofnanir sem krefjast ID-korta eiga eftir að breyta reglunum hjá sér (eða ákveða að breyta þeim ekki...). Þið getið svo rétt ímyndað ykkur hve lengi ég fékk að bíða í hverjum banka fyrir sig, braaah! Til að kæta mig ofurlítið í lok þessara útréttinga, þá þurfti ég ekki að bíða nema örskotsstund eftir afgreiðslu hjá tryggingastofnun Svíþjóðar. Þar var ég afgreidd af afar indælli konu sem skráði mig samviskusamlega í sænska tryggingakerfið - en tók ósköp leið og afsakandi fram að það myndi taka 3-6 mánuði að koma mér inn í kerfið. Hallelúja, jibbíjei. Mér skilst að á meðan sé ég í lausu lofti milli íslenska og sænska kerfisins, en geti þó reynt að veifa kennitölu-pappírunum frá skattinum framan í lækna og aðra ef þeir skyldu mögulega hugsanlega kannski taka þá sem næga sönnun þess að ég sé rétt að komast inn í kerfið. Urg.
Annars er það að frétta að ég lendi í Keflavík um hálf þrjú eftir viku. Þangað til mun ég fást við að losa mig við kvefpestina, klára ritgerð um tengsl takmörkuðu afstæðikenningarinnar og rafsegulfræði og flytja fyrirlestur um sama efni, reyna að flytja eins mikið af dóti og drasli yfir í nýja herbergið mitt og hægt er, skrifa nokkur jólakort, grufla í hvaða jólagjafir þurfi að kaupa inn þegar til Íslands er komið og sinna ýmsu öðru snatti. Mikið gaman, mikið grín.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli