föstudagur, desember 19, 2008

skyrjarmur


Skyrjarmur, sá áttundi,
var skelfilegt naut.
Hann hlemminn o´n af sánum
með hnefanum braut.

Svo hámaði hann í sig
og yfir matnum gein,
unz stóð hann á blístri
og stundi og hrein.


Jahúúú! Ég er komin heim og það er meira að segja allt fullt af snjó :D Svo ógurlega gaman. Nú ætla ég að hnoða saman deig í gyðingakökur og kannski krota á eitt eða eitt jólakort - sem munu berast til viðtakenda eftir jól... ;) En fyrst þetta:
Svía-staðreynd dagsins - partý: Ég hef farið í tvö partý í Svíþjóð (ji, svo dugleg!) og bæði höfðu séreinkenni sænskra partýa á sér. Tónlistin er svo hátt stillt að það er gersamlega vonlaust að tala saman. Helst mætti ætla að Svíum þyki hver annar svo leiðinlegur með víni (því í öllum partýum er staðfastlega drukkið) að þeir útiloki öll samtöl með þessum hætti. Hvað veit ég. Verst er þó að mér skilst að á skemmtistöðunum sé tónlistin enn hærra stillt, sleiki hættumörk desibelskalans stöðugt. Svo slæmt er það að hljóðhimna kórfélaga míns sprakk á djamminu í Lundi og síðan hefur hún neyðst til að nota eyrnatappa þegar hún vill fá sér snúning þar í bæ. Glæsilegt, ekki satt?

Engin ummæli: