bjúgnakrækir
Níundi var Bjúgnakrækir,
brögðóttur og snar.
Hann hentist upp í rjáfrin
og hnuplaði þar.
Á eldhúsbita sat hann
í sóti og reyk
og át þar hangið bjúga,
sem engan sveik.
Úbbs! Bjúgnakrækir gleymdist. Ég er búin að vera svo dugleg í dag að slappa af og baka gyðingakökur og borða nammigóðan mat og mæta í partý... Já já já.
Svía-staðreynd dagsins - endurskinsmerki: Á Íslandi (eða a.m.k. í Reykjavík) gengur varla nokkur sála með endurskinsmerki. Enda er hér afar góð götulýsing og a.m.k. í Reykjavík gerir heilvita fólk ekki ráð fyrir því að bílar stoppi fyrir því við gangbraut svo það anar ekkert yfir götuna nema hún sé því sem næst bíllaus. Í Lundi eru menn samtaka í því að nota ekki endurskinsmerki. Þar er hins vegar götulýsingin ósköp dauf og ökumenn hafa þann "ósið" að stöðva fyrir gangandi vegfarendum við gangbrautir. Fólkið er orðið svo ofdekrað að það varla lítur eftir því hvort bíll nálgist eður ei og bara veður út á næstu gangbraut. Þetta er sannkölluð sjálfsmorðsárátta í myrkrinu því ökumenn hafa varla nokkurn möguleika á að sjá viðkomandi göngufólk, ef það er endurskinsmerkjalaust, fyrr en það er komið hér um bil beint fyrir framan bílinn. Það mætti alveg athuga hvort tíðni hjartaáfalla undir stýri sé meiri í Svíþjóð en á Íslandi, og þá sér í lagi tíðni hjartaáfalla í grennd við gangbrautir...

Engin ummæli:
Skrifa ummæli