þriðjudagur, desember 23, 2008

ketkrókur


Ketkrókur, sá tólfti,
kunni á ýmsu lag. -
Hann þrammaði í sveitina
á Þorláksmessudag.

Hann krækti sér í tutlu,
þegar kostur var á.
En stundum reyndist stuttur
stauturinn hans þá.


Finnið þið skötuiiilminn?
Svía-staðreynd dagsins - hjól: Lundur hefur nýlega nælt sér í þann vafasama heiður að vera með mestan hlutfallslegan fjölda hjólastulda í Svíþjóð. Svo sem ekki skrýtið þar sem bærinn er lítill og tiltölulega flatur, sem þýðir að þar er alveg tilvalið að ferðast um á hjóli, auk þess sem bærinn er stútfullur af fátækum (og "fátækum") stúdentum, sem gerir það að verkum að markaður fyrir hræódýra margnotaða hjólgarma blómstrar. Það að stela hjólum er því ansi hreint arðsöm "atvinnugrein" þarna í Lundi. Nú ef eigandi einhvers hjólsins hefur vit á að læsa því með gegnheilum U-lás (bömmer!), þá má gjarna athuga hvort hjólahnakkurinn sé nú ekki álitlegur, framhjólið sé ólæst, einhverjar luktir hafi gleymst á hjólinu o.s.frv. Það má alltaf pilla eitthvað af... Þetta gerir það að verkum að fólk tímir gjarna ekki að eiga svo dýrt hjól, svona ef því yrði nú stolið, og finnst jafnvel kostur að hjólið sé sérlega ófrítt svo minni líkur séu á að því verði nappað. Þar með eru kengbognir ryðgarmar og hjól alveg frá tímum síðari heimsstyrjaldarinnar (með tréhöldum) ekkert svo óalgeng sjón. Sannkallaðir forngripir sem gjarna kippa eins og öðru munnvikinu aðeins upp fyrir hvíldarstöðu. Svo er nú ekki verra, í hinni endalausu lundísku rigningu, að mæta prúðbúnum prófessor á hjóli með aðra hönd á stýri og hina trygga utan um handfang útspenntrar regnhlífar ;)

Engin ummæli: