mánudagur, desember 15, 2008

þvörusleikir


Sá fjórði, Þvörusleikir,
var fjarskalega mjór.
Og ósköp varð hann glaður,
þegar eldabuskan fór.

Þá þaut hann eins og elding
og þvöruna greip,
og hélt með báðum höndum,
því hún var stundum sleip.


Hm, ég hugsa að ég gefi mér ekki tíma til að skrifa öll skondnu og skrýtnu atriðin um Svía í einu lagi, svo ég hugsa að ég komi með svona "Svía-staðreynd dagsins"... Hér kemur sú fyrsta:
Svíum finnst að því er virðist æðislegt og fullkomlega eðlilegt að bíða í biðröð og því lengri sem röðin er, þeim mun betra. Tökum dæmi: Ætlir þú þér að hringja og panta tíma hjá heimilislækni, þá skaltu taka frá góðan tíma, vera viss um að eiga hellings inneign á gemsanum (ef þú notar ekki fastlínusíma) og nota handfrjálsan búnað svo þú getir unnið eitthvað meðan þú bíður - venjulegur biðtími eftir að komast að hjá símastarfsfólkinu er um 1 klst. Á heilsugæslustöðinni hér í Norður-Lundi þótti ástandið vera orðið nokkuð slæmt, en þar er biðtíminn um 2 klst og alls ekkert víst að nokkur tími finnist. Annað dæmi: Ef þú sendir tölvupóst til einhverrar stofnunar eða fyrirtækis þá má yfirleitt ekki búast við svari fyrr en í fyrsta lagi eftir tvo daga og jafnvel berst aldrei neitt svar.

Engin ummæli: