gemsi
Líney Halla er komin í tölu gemsaeigenda, þrátt fyrir langa og harðvítuga baráttu. En látið ykkur ekki detta í hug að ég muni hafa friðarspillinn á mér! Heimilisgemsum á Laugalæk 3 hefur fjölgað um einn.
En jú, ég fékk tólið í jólagjöf frá ástkærum foreldrum mínum (því miður, grettan/mæðusvipurinn þegar ég opnaði pakkann náðist ekki á mynd ;) ). Mömmu var víst farið að finnast þessi "samgemsanotkun" orðin eitthvað óhentug t.d. þegar hún fékk skeyti, stödd lengst uppi á fjöllum, um að dóttir hennar skyldi gera svo vel og mæta á tangókvöld. Hmm... Og þegar ég var svo sokkin niður í hið mikla lærdómssvarthol fram yfir 21. desember og alls ófær um að hugsa upp eitthvað sem mig vantaði og passaði í jólapakka þá var þetta útkoman. 1+1 samasem, eh, 2.1 ;)
Nýja númerið má finna hér og bráðum líka hér.
Ég er enn með magaverk af hlátri yfir "jólakortinu" frá Kristjönu (Líkamsrækt með Jane Fonda, útgefin 1983, og spá fyrir árið 2006 sem segir m.a. að það muni innihalda mikið af eplum og tómötum ;D ). Einnig er ég alveg að rifna af stolti yfir útskornu klukkunni sem ég fékk frá afa og ömmu í Sigtúni (afi sker út í tré; ef ykkur vantar flotta gjöf þá getið þið haft samband við afa, hann hefur svolitlar áhyggjur af því að hann sé að fylla allt hjá afkomendum og öðrum ættingjum af útskornu dýrgripunum sínum; afi vill alls ekki fá borgað nema fyrir efniskostnaði, hitt er bara gaman :) ). Það skondnasta við jólagjafirnar í ár var hins vegar að ég gaf Bjarnheiði Amélie á DVD - sem hún hefði einmitt gefið mér ef hún hefði ekki barasta gleymt að kaupa diskinn ;D Ég pantaði einfaldlega Chaplin og/eða Buster Keaton úr Tiger í staðinn...
Mjög óvísindalegar rannsóknir sýna að því færri jólagjafir/-kort sem ég fæ, þeim mun lukkulegri verði ég með þær. Bunkinn minn hefur aldrei verið jafnlítill og ég aldrei jafnánægð með innihaldið :)
Annars vona ég að þið hafið það ákaflega gott yfir hátíðarnar :) og leggist ekki í bólið með kvef eins og aumingjans Bjarnheiður systir. Hún missti af allra besta ofáti ársins - jólasúkkulaði ömmu og afa í Sigtúni!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli