laugardagur, ágúst 06, 2005

ferðir og flakk

Sæl, hvernig hafið þið það? Vonandi glimrandi gott. Eins og alltaf. Ég sakna ykkar slatta mikið. Hef verið svo lítið heima og ekki komist í matarboð og partý og skemmtiferðir o.s.frv. Held ég hafi heldur aldrei ferðast jafn mikið um Ísland á einu ári. Vel við hæfi eftir langa fjarvist frá elsku gamla Fróni á síðasta ári.

Ég byrjaði á að segulmæla á Snæfellsnesinu í tvo daga. Þá tók við ættarmót í Ísafjarðardjúpi og að því loknu heilmikill flækingur um Hellisheiði og Hengil í smáskjálftamælingum. Næstu ferð var heitið á Kárahnjúkasvæðið (gist við Hraunaveitu og unnið undir Þrælahálsi), 5 daga segulmælingaferð þar sem allar Evrópureglur um vinnutíma voru þverbrotnar og svo endað með skoðunarferð um göng og stíflu í blíðskapar veðri. Áfram var segulmælt og nú í 3 daga í Skagafirði (Hrollleifsdal og Hjaltadal). Evrópureglum hent út um gluggann sem fyrr. Sú ferð endaði með tveim dýrðardögum hjá afa og ömmu á Akureyri og ferð á síldarævintýrið á Siglufirði með fjórum frændsystkinum. Enn er eftir ein segulmælingaferð í Eyjafjörðinn og aldrei að vita nema ég flakki eitthvað meira. Gaman gaman.

Og nú verð ég að hætta því við erum á leið upp í Mosfellsdal á grænmetismarkaðinn þar og að hlusta á upplestur á Gljúfrasteini. Sjáumst.

Engin ummæli: