Hengillinn
Þessa vikuna mun ég aðstoða hóp kennara og nemenda frá UNC (University of North Carolina) í smáskjálftamælingum á Hengilssvæðinu. Í dag rúntuðum við um svæðið og settum upp mælistöðvar. Aumingja fólkið vann víst líka í því í gær í öllu rokinu og rigningunni. Það er líka alveg dæmigert að þau höfðu séð myndir frá hópnum sem kom hingað í fyrra (voru í Kröflu) þar sem sást endalaus sól og blíða og þar sem veðrið var skaplegt fyrir hádegi í gær, áður en þau fóru af stað "út í náttúruna", þá héldu þau að það myndi ekkert rigna og urðu hundrennandidrullublaut og köld. Úgh! Í dag voru þau öll með regnjakka...
Þetta er reglulega skemmtilegt fólk og gott að vinna með þeim. Drepfyndið að byrja að vinna með þeim í morgun þegar einn eldri nemendanna, Matt, sýndi mér hvernig þau setja saman mælistöðvarnar. Það var svo hriiiiikalega "idiot proof" hvernig hann fór í gegnum þetta skref fyrir skref. Alveg skelfilegt. Hann afsakaði sig að vísu, en virtist samt þurfa á því að halda sjálfur því þótt öll tengi væru þannig að það var ekki hægt að setja þau í vitlausar innstungur, þá reyndi hann einstaka sinnum að stinga þeim inn á vitlausum stað ;) Svo kenndi ég Matt að segja "takk", "bless", "bjór" og "einn" (honum fannst mikilvægt að geta beðið um "einn bjór"). Sé til hvort hann muni þetta á morgun :) Svo tvítékkar, þrítékkar, krosstékkar og "ég veit ekki hvað"-tékkar fólkið hlutina. Soldið óskipulagt. En alveg svakalega flottur búnaður.
Á morgun munum við setja niður eina til tvær stöðvar, kannski færa nokkrar og ná í gögn úr öðrum. Nóg að gera. Kennararnir fara svo eftir u.þ.b. viku, á sun. og þri., en þá verða nemendurnir eftir (fram í ágúst) og sjá um að rúnta á milli mælistöðvanna, ná í gögnin og athuga hvort allt sé í lagi.
Upphaflega átti ég að vera með þeim í tvær vikur, en sú áætlun breyttist (eins og allar aðrar áætlanir á ÍSOR ;) ) því stór hópur mælingafólks frá ÍSOR er að fara á Kárahnjúka 11. júlí (hmm, það var alla vega dagsetningin síðast þegar ég vissi :P). Ragna, sem sér um að halda utan um tímasetningar verkefna og pota saman áætlunum, þorði held ég ekki að prenta út áætlunina sem gilti frá síðustu viku því hún var viss um að hún myndi breytast þá og þegar. Sem var svo auðvitað raunin: Inn rann nýtt verkefni. Einhvern tíma eftir Kárahnjúkaverkefnið (1 vika) förum við Tobba í rúma viku í Skagafjörðinn í segulmælingar. Það er sko nóg að gera hjá okkur í segulstússinu - mælingar, gagnavinnsla og skýrslugerð. Svo á Tobba líka að aðstoða einhvern rannsóknarhóp í Kröflu í júlí/ágúst en þar sem við vitum enn ekki með vissu hvenær sá hópur kemur og Tobba mun að öllum líkindum fara í eitt keppnisferðalag í viðbót í sumar (óvíst hvenær), þá er þetta allt fremur óljóst enn! Sumarvinnan mín er yndi :)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli