klukk!
Bloggeltingarleikurinn æsispennandi berst víða... En ég hef sem sé verið klukkuð af Kristjönu sem þýðir að ég verð að segja 5 staðreyndir um sjálfa mig.
1) Ég átti að vera strákur og heita Einar eftir föðurafa mínum. En ég varð stelpa og fékk því nafnið Líney eftir móðurafasystur minni (lést í bílslysi 39 ára, 1958) og Halla eftir móðurafa mínum (Hallur). Einar afi hefur líka fengið nafnið sitt því einn langafastrákurinn hans heitir Einar Páll (býr við götuna Einarsnes í húsi að nafni Pálshús, sem, ótrúlegt en satt, er algerlega óviðkomandi nafninu hans). Það passar meira að segja við postulana því afi heitir Einar Pétur :)
2) Ég er svo lík systur minni (Bjarnheiður, tveim árum eldri) að margra mati, að fólk ruglast ákaflega oft á okkur. Annað dæmi um að foreldrar mínir kunna bara eina barnauppskrift...
3) Ég var 8 ára þegar ég ákvað að ég vildi læra á trompet. Píslin ég, óendanlega feimin, var meira að segja svo ákveðin að ég talaði við lúðrasveitarstjóra skólans, Stefán Þ. Stephensen, og spurði hvort ég mætti ekki byrja strax, þótt yfirleitt mætti ekki hefja námið fyrr en 9 ára. Í stuttu máli leit hann vinalega niður á krílið og sagði að ég skyldi bíða í eitt ár, ég væri of smá og svo væri ekkert kornett (trompet sem hefur lent í smá bílslysi) laust. Ég beið, bekkjarsystir Bjarnheiðar systur skilaði kornettinu sínu (takk, Stefanía!), ég byrjaði 9 ára og var komin á kaf í litla og stóra lúðrasveit í lok vetrar. Hef spilað á trompet síðan ég var 11 ára, í mismiklum mæli þó.
4) Ég eeeelska sund, þótt ég þurfi einstaka sinnum að taka mér 5-7 daga frí til að fá ekki leið á því. Ótrúlegt hvað pirringur og leiðindi geta minnkað mikið á einum kílómetra...
5) Til er einhver formúla út frá hæð barna þegar þau eru tveggja ára, sem segir hversu há þau loks verða (*2 fyrir stelpur og *2+10cm fyrir stráka, að mig minnir). Mamma trúði því varla þá að ég myndi rétt slefa yfir 1,60m. Ég er 1,57m í dag.
Ég klukka Örnu og Kötlu, Gunna hinn, Gunna Silla og Bjarnheiði (sem hér með skal stofna blogg eða upplýsa hvar það er að finna!).
Engin ummæli:
Skrifa ummæli