fimmtudagur, desember 18, 2008

hurðaskellir


Sjöundi var Hurðaskellir,
- sá var nokkuð klúr,
ef fólkið vildi í rökkrinu
fá sér vænan dúr.

Hann var ekki sérlega
hnugginn yfir því,
þó harkalega marraði
hjörunum í.



Ég er búin að vera svolítið á fullu í dag. Ætla núna að ljúka við að pakka. Vá! ég blogga næst frá Íslandi :D En, hm, Svía-staðreynda dagsins verður víst að bíða þar til á morgun. Er með a.m.k. tvær í handraðanum, svo örvæntið eigi... ;)

miðvikudagur, desember 17, 2008

askasleikir


Sá sjötti, Askasleikir,
var alveg dæmalaus. -
Hann fram undan rúmunum
rak sinn ljóta haus.

Þegar fólkið setti askana
fyrir kött og hund,
hann slunginn var að ná þeim
og sleikja á ýmsa lund.



Í dag flyt ég að mestu yfir í nýja herbergið. Það er ekki mikið verk, en þó betra að bretta upp ermarnar og láta hendur standa fram úr þeim...
Svía-staðreynd dagsins - enska: Svíar tala upp til hópa afar góða ensku. Hafa bæði góðan orðaforða og að mestu prýðilegan framburð. Alla vega nýt ég þess yfirleitt að hlusta á kennarana (allt kennt á ensku í framhaldsnámi) og gæti alveg haldið að sumir væru Englendingar... svona þar til þeir hnjóta um orð eins og 'general', 'check' og change'. Guð minn góður, hvílíkt áfall! Framburðurinn er ekki [dsjeneral], [tsjekk] og [tsjeinds], nei onei, á sænsk-ensku útleggst þetta [jeneral], [shjekk] og [shjeinds]. Úff. En eins og við Íslendingar höfum gjarna húmor fyrir okkar harða framburði a la Halldór Ásgrímsson, þá hafa Svíar einnig húmor fyrir sjálfum sér. Ímyndið ykkur, svona með hliðsjón af dæmunum hér að ofan, hvernig Svíar bera fram orðið 'cheap'. Jújú, kindur hvað??? Eitt ódýra símafélagið hérna gerir út á þessa skemmtilegu afleiðingu rangs framburðar. Auglýsingarnar þeirra eru á sænsk-ensku. Samkvæmt þeim starfa sem sé einungis mórauðar kindur við fyrirtækið - "born to be sheep", nei afsakið, "born to be cheap" átti það að vera ;)

þriðjudagur, desember 16, 2008

pottaskefill


Sá fimmti, Pottaskefill,
var skrítið kuldastrá.
- Þegar börnin fengu skófir
hann barði dyrnar á.

Þau ruku upp, til að gá að
hvort gestur væri á ferð.
Þá flýtti' ann sér að pottinum
og fékk sér góðan verð.


Jahá, jarðskjálfti? Í Lundi??? Auðvitað svaf ég hann af mér - pfff, bara 4.7 á Richter ;) En engu að síður, stærsti skjálftinn á svæðinu síðan 1904. Tat var ok.
Svía-staðreynd dagsins - sænskir strákar: Ef tekinn væri frekar venjulegur sænskur strákur á aldrinum 13-22 ára og hann fluttur beinustu leið inn í íslenskt þjóðfélag, þá yrði hann tafarlaust metinn sem samkynhneigður og væri líklega að einni viku liðinni búinn að eignast fleiri vinkonur en karlkyns vini. Hvers vegna? Jú, sænskir strákar virðast nota almennt um 1 geldollu í hárið á dag, passa sig að klæða sig í fín föt samkvæmt tískunni og eru ótrúlega pempíulegir. Frekar miklir stelpustrákar. Auðvitað er þetta ekki algilt, en hlutfall töffara og pempíulegra vöðvarýrra Selfoss-hnakka (afsakið Selfyssingar, þið losnið víst ekki við þetta hugtak frekar en Hafnfirðingar við Hafnarfirðingabrandarana) er þveröfugt hérna miðað við Ísland. Ég veit ekki hvort sé betra... Alla vega hef ég ekki smekk fyrir sænsku týpunni, er hæstánægð með minn Sigurð og dauðfeginn að fyrr myndi hann ganga nakinn en klæða sig eins og þeir (jafnvel þótt hann kæmist í níðþröngu innvíðu buxurnar þeirra og gæti látið þær leka hæfilega mikið niður á rassinn svo sæist í litríku Björn Borg nærbuxurnar - comm'on!!!).

mánudagur, desember 15, 2008

þvörusleikir


Sá fjórði, Þvörusleikir,
var fjarskalega mjór.
Og ósköp varð hann glaður,
þegar eldabuskan fór.

Þá þaut hann eins og elding
og þvöruna greip,
og hélt með báðum höndum,
því hún var stundum sleip.


Hm, ég hugsa að ég gefi mér ekki tíma til að skrifa öll skondnu og skrýtnu atriðin um Svía í einu lagi, svo ég hugsa að ég komi með svona "Svía-staðreynd dagsins"... Hér kemur sú fyrsta:
Svíum finnst að því er virðist æðislegt og fullkomlega eðlilegt að bíða í biðröð og því lengri sem röðin er, þeim mun betra. Tökum dæmi: Ætlir þú þér að hringja og panta tíma hjá heimilislækni, þá skaltu taka frá góðan tíma, vera viss um að eiga hellings inneign á gemsanum (ef þú notar ekki fastlínusíma) og nota handfrjálsan búnað svo þú getir unnið eitthvað meðan þú bíður - venjulegur biðtími eftir að komast að hjá símastarfsfólkinu er um 1 klst. Á heilsugæslustöðinni hér í Norður-Lundi þótti ástandið vera orðið nokkuð slæmt, en þar er biðtíminn um 2 klst og alls ekkert víst að nokkur tími finnist. Annað dæmi: Ef þú sendir tölvupóst til einhverrar stofnunar eða fyrirtækis þá má yfirleitt ekki búast við svari fyrr en í fyrsta lagi eftir tvo daga og jafnvel berst aldrei neitt svar.

sunnudagur, desember 14, 2008

stúfur



Stúfur hét sá þriðji
stubburinn sá.
Hann krækti sér í pönnu,
þegar kostur var á.

Hann hljóp með hana í burtu
og hirti agnirnar,
sem brunnu stundum fastar
við barminn hér og þar.


Ji, ég næstum gleymdi að setja hann Stúf inn á bloggið í dag - uppáhalds jólasveininn minn! En ég slepp miðað við íslenskan tíma ;)

laugardagur, desember 13, 2008

giljagaur


Giljagaur var annar,
með gráa hausinn sinn.
- Hann skreið ofan úr gili
og skauzt í fjósið inn.

Hann faldi sig í básunum
og froðunni stal,
meðan fjósakonan átti
við fjósamanninn tal.



Í gær talaði ég um nýja herbergið mitt og áttaði mig seinna á að ég var alls ekkert búin að segja frá því að ég fann herbergi! Ég splæsi inn núna á eftir nýja heimilisfanginu hérna til hliðar. Í byrjun nóvember fann ég sem sé loksins herbergi á góðum kjörum hjá indælli konu og ekki lengst út í buska. Fjúff! Eini gallinn er sá að ég varð líka að leigja herbergið í desember, þótt ég þyrfti það ekki fyrr en í janúar. En skítt með það, þá getum við flutt mest af dótinu þangað yfir fyrir jól og því verið í minna flutningsstressi þegar við komum til baka (nóg ætti prófstressið að verða...). Svo var ekkert mál að Sigurður fengi að vera í rúma viku hjá mér í janúar meðan hann klárar tvö munnleg próf og heldur einn fyrirlestur, og það er jú alls ekkert sjálfsagt að allir leyfi.

Annars er alveg hreint magnað hvað fólk reynir að leigja pínkuponsu kytrur dýrt hérna, bara út af því að það er viðvarandi leiguhúsnæðisskortur. Eðlileg mánaðarleiga (að mínu mati) er um 150 SEK/m2 fyrir herbergi með aðgang að eldhúsi og baði, en margir klína vel yfir 200 SEK, jafnvel 300 SEK, á fermetrann. Herbergið sem ég fann er líkast til um 15m2 og er á 2500 SEK/mán, með hita, rafmagni og interneti inniföldu. Slík herbergi eru verðlögð á allt að 4500 SEK/mán - án rafmagns og internets. Snargalið!

föstudagur, desember 12, 2008

stekkjastaur



Stekkjastaur kom fyrstur,
stinnur eins og tré.
Hann laumaðist í fjárhúsin
og lék á bóndans fé.

Hann vildi sjúga ærnar,
- þá var þeim ekki um sel,
því greyið hafði staurfætur,
- það gekk nú ekki vel.



Jæja, fyrsti jólasveinninn mættur til byggða. Ólíkt fyrri árum, þá fylgja engar frásagnir af jólaprófum með jólasveinunum hér á síðunni, enda fer ég ekki í próf fyrr en eftir jól. Nánar tiltekið eitt munnlegt próf í rafsegulfræði. Sigurði var tjáð að þetta væri killer-kúrsinn í eðlisfræðinni við LU. Jaså. Habblaha. Ekki hefur okkur virst svo vera. A.m.k. hafa dæmin verið sæmilega reiknanleg og jafnvel skiljanleg. Prófið hefur ósköp þægilega uppbyggingu, þ.e. settir verða saman nokkir 4-dæmaskammtar með dæmum af þessum 5 dæmablöðum sem við höfum fengið og svo á að kasta teningi upp á hvaða skammt maður fær í prófinu. Þar á að útskýra fyrir kennaranum hvers vegna hann setti fyrir hvert þessara fjögurra dæma og kannski reikna svona aðalatriðin í þeim. Taka má þriggja A4-síðna tossamiða með í prófið. Fjandakornið, þetta á ekki að vera svo hrikalega erfitt!

En aðeins yfir í jólin: Í gær fórum við Bergþóra (vinkona mömmu frá því hún var í námi í Lundi) á Lúsíutónleika í dómkirkjunni. Vá! Þetta voru svoleiðis tónleikarnir til að koma manni í jólaskap :) Hvorki fleiri né færri en 5 barna- og unglingakórar sáu um sönginn og auðvitað gengu þau með logandi kerti inn eftir kirkjunni í upphafi og við lok tónleikanna; stúlkurnar hvítklæddar með kransa á höfðinu og með sína Lúsíu í fararbroddi með kertakórónu, drengirnir prúðbúnir þar á eftir og þrír litlir hestasveinar (Staffan stalledräng) klæddir í rauð og grá föt með langa rauða prjónahúfu á kollinum trítlandi með þeim.

Annars tók ég einhverja sévítans kvefpest upp eftir Sigurði fyrir rúmri viku og hún virðist ekkert ætla sér að yfirgefa hálsinn og nefið á mér í bráð. Arg garg. Ég hafði það þó af að flytja lögheimilið til Svíþjóðar áður en pestin gerði mig óvirka í lok síðustu viku. Það gladdi mig mjög að það að sækja um lögheimilisflutninginn gekk eins og smurt án pappírs- og vottorðavandræða og án óendanlega langrar biðar - kennitalan tilbúin á einni viku! Hér skal tekið fram að ég hafði heyrt miklar skelfingarsögur af laaaangri bið eftir kennitölu eftir mikið pappírsflóð. En já, þetta gekk prýðilega og þ.a.l. fékk ég þessa fínu sænsku kennitölu með póstinum á miðvikudaginn. Ég fór í gær og náði í hana ásamt lyklinum að nýja herberginu mínu. Mikil gleði :)

Í dag mannaði ég mig svo upp í að fara í banka til að stofna reikning og fá greiðslukort og netbanka (svo ég þurfi ekki að bíða endalaust í bönkum eftir afgreiðslu og borga þjónustugjald upp á 60-80 SEK fyrir hvern einasta reikning sem þarf að greiða). Sparbanken Finn: "Nei, maður þarf ID kort [sænsk persónuskilríki] til að fá netbanka og skv. [óþolandi] reglum frá því fyrir um ári, þá fá einungis sænskir ríkisborgarar ID kort." Nordea: "Velkomin í viðskipti! Við rukkum þig svo einungis um 24 SEK/mán fyrir debetkortið og 12 SEK/mán fyrir netbankann..." Bless!!! SEB: "Nei, sænsk kennitala dugir ekki til að geta fengið netbanka." Handelsbanken: "Þú getur fengið reikning, debetkort og netbanka fyrir 150 SEK/ári, en þú getur ekki fengið kort sem nota má til netviðskipta." Fjandinn, ojæja, ég lét þó slag standa. En hvað er að??? Það hafa verið gapandi hálfvitar sem settu þessi lög um að einungis sænskir ríkisborgarar mættu fá ID-kort, því það gerir líf innflytjenda/útlendinga gersamlega óþolandi meðan allar þessar þúsund stofnanir sem krefjast ID-korta eiga eftir að breyta reglunum hjá sér (eða ákveða að breyta þeim ekki...). Þið getið svo rétt ímyndað ykkur hve lengi ég fékk að bíða í hverjum banka fyrir sig, braaah! Til að kæta mig ofurlítið í lok þessara útréttinga, þá þurfti ég ekki að bíða nema örskotsstund eftir afgreiðslu hjá tryggingastofnun Svíþjóðar. Þar var ég afgreidd af afar indælli konu sem skráði mig samviskusamlega í sænska tryggingakerfið - en tók ósköp leið og afsakandi fram að það myndi taka 3-6 mánuði að koma mér inn í kerfið. Hallelúja, jibbíjei. Mér skilst að á meðan sé ég í lausu lofti milli íslenska og sænska kerfisins, en geti þó reynt að veifa kennitölu-pappírunum frá skattinum framan í lækna og aðra ef þeir skyldu mögulega hugsanlega kannski taka þá sem næga sönnun þess að ég sé rétt að komast inn í kerfið. Urg.

Annars er það að frétta að ég lendi í Keflavík um hálf þrjú eftir viku. Þangað til mun ég fást við að losa mig við kvefpestina, klára ritgerð um tengsl takmörkuðu afstæðikenningarinnar og rafsegulfræði og flytja fyrirlestur um sama efni, reyna að flytja eins mikið af dóti og drasli yfir í nýja herbergið mitt og hægt er, skrifa nokkur jólakort, grufla í hvaða jólagjafir þurfi að kaupa inn þegar til Íslands er komið og sinna ýmsu öðru snatti. Mikið gaman, mikið grín.

sunnudagur, nóvember 30, 2008

dragið andann djúpt: myndablogg!

Eins og mín alvitra eldri systir hefur margsinnis bent á, þá er myndaskorturinn á síðunni agalegur. Hér kemur því dágóð romsa...

Byrjum í Þrándheimi (3.-5. nóv) þar sem ég fór að hlusta á, kynnast og kjafta við helling af eðlisfræðingum á Norðurlöndunum. Eðlisfræðingar er alþekktir fyrir grín og glens og lét þessi velhærði Rússi ekki sitt eftir liggja.


Að vísu vildi fartölvan hans fyrst ekki tengjast skjávarpanum, en hann kunni ráð við því: Hamra og berja hraustlega á lyklaborðið. Þetta líktist nokkurs konar hjartahnoði. Lífgunartilraunirnar báru árangur, eins og sést á myndinni hér að ofan, en eitthvað segir mér að sá skeggjaði þurfi u.þ.b. eitt nýtt lyklaborð á viku...

Að loknum öllum erindunum síðasta daginn gátum við fengið okkur göngutúr um bæinn áður en við héldum í flugið. Þar rákumst við meðal annars á þetta fyrirbæri


sem við skildum lítið í hvað væri, en viti menn


þetta reyndist vera hjólalyfta, til þess að flytja örþreytta hjólreiðamenn á þægilegan máta upp þessa hræðilega bröttu brekku


Erum við að tala um snillinga? :D Verst að lyftan var lokuð (kominn vetur), svo hjólreiðamaðurinn á efstu myndinni gat ekki tekið okkur í sýnikennslu...

Við litum auðvitað á og í dómkirkjuna - vá!


Svo eru hér nokkur okkar sem komum frá Lundi, að bíða eftir leigubíl á flugvöllinn: Claudio, Peter, Henri, Jonas, Frank og Sara.



Nújæja, myndavélar okkar Sigurðar voru orðnar svo slappar að ekki var lengur hægt að taka myndir með þeim, svona með góðu móti. Því var drifið í því að fá Bjarnheiði til að kaupa eina slíka í Þýskalandi. Hún tók auðvitað nokkrar prufumyndir



en mér fannst samt vissara að taka eina prufumynd til viðbótar og þá af herbergisskrímslinu.



Unnur Ósk kom í heimsókn til Lundar um miðjan mánuðinn. Við Sigurður vorum þá að vísu alveg á milljón, en okkur tókst þó að taka frá smá tíma til að mæta í óóóógurlega góðan mat hjá Silju og Hjalta og hitta Unni nú aðeins.



Þess má geta að þetta var í fyrsta skipti sem Unnur og Sigurður hittust, nokkuð magnað.

Svo kom Harpa í heimsókn til okkar akkúrat á réttum tíma, þ.e. aðalbrjálæðinu í skólanum lauk daginn sem hún kom. Smá klúður að þetta er eina myndin sem við tókum í Lundi af því tilefni :P


Harpa var hjá okkur frá mánudegi fram á miðvikudag en fór þá til vinkonu sinnar í Køben. Við tvö skelltum okkur svo til Køben laugardaginn fyrir viku og hittum Hörpu þar


og fórum á sýninguna Bodies.


Sú sýning er alveg hreint mögnuð. Ótrúlega flott! En ég skil vel að hún sé umdeild, maður er jú í rauninni að skoða lík... Á hinn bóginn verður að viðurkennast að sýningin er einhver skemmtilegasta líffræðikennsla sem ég hef kynnst.

Nú, eftir sýninguna og að hafa gengið af okkur lappirnar, þá stigum við um borð í sporvagn, kvöddum Hörpu (fór með okkur spottakorn í sporvagninum) og héldum í átt til Sissa og Ane í Rågeleje.







Þar nutum við þess að slappa af og borða og slappa af og spjalla og borða og slappa af og borða og spjalla og... klappa hundunum, þeim Freyju og Viktori.

Þetta er sófinn sem hundarnir mega liggja í. Freyja: "ZZZzzzz....."


Það gat verið svolítið erfitt að halda hundunum kyrrum meðan tekin var mynd (Freyja)


en möndlur eru pottþéttar til að þau sitji grafkyrr


Það verður seint sagt að þau Freyja (á myndinni) og Viktor hafi verið ósátt við klapp\&klór þjónustu Sigurðar og Líneyjar Höllu ;)


Við fórum í smá göngutúr með Sissa og hundunum á sunnudeginum áður en við héldum heim á ný.



Ég prófaði macro-stillinguna á myndavélinni við fyrsta tækifæri, auðvitað.



Núna síðasta fimmtudag tók Kaninn á ganginum sig til og steikti tvo kalkúna og útbjó allt tilheyrandi með svo úr yrði dýrindis þakkargjörðarmáltíð. Smjatt! Öllum á ganginum var boðið og nokkrum vinum að auki. Það var þétt setið og mikið kjaftað og kjammsað :)





Að lokum koma nokkrar myndir frá 1. des balli íslenska kórsins í Lundi sem var haldið í gærkvöldi (þema í ár: sveitaball!). Við Sigurður vorum voða pen og fín


og auðvitað sungum við í kórnum nokkur lög


Ég hló svo mikið að skemmtiatriði strákanna í kórnum að ég steingleymdi að taka myndir, en Sigurður klikkaði ekki þegar stúlkurnar stigu á stokk. Ætli við séum hér ekki í miðri ákaflega innilegri túlkun á "Hvítir mávar" ;) Asafínar - og á stígvélunum :D


Annað sem ég gleymdi að taka myndir af voru hinn röggsami veislustjóri Eiríkur, ræðumaður kvöldsins María Árnadóttir leikkona (ég svoleiðis lá í krampa - hvílík snilld! :D það hefði þurft að vera með upptökuvél þarna...), Sverrir og Sigrún að draga í happdrættinu (meðal vinninga voru ferðir með Sterling, hlutabréf í íslenskum einkabönkum, ókeypis heimsókn á slysó til Maríu... neeei bara grín, það var spurt hvort einhver kærði sig um svoleiðis vinninga áður en dregið var ;) en "eitthvað lítið, gult, ferfætt og loðið sem segir mjá!" var þegið með þökkum, ásamt konfektkössum, brennivínsflösku, matarkörfum, bókapökkum, málverki, skúlptúr og ýmsu fleiru :) ), allur maturinn (rófustappa og sviðasulta, íslenskt hangikjöt með öllu til heyrandi og kökubasar kvenfélagsins [til styrktar fjármálasnillingum]), skreytingarnar o.fl. o.fl. Ég er sem sé vonlaus ljósmyndari. Ég mundi þó eftir að taka mynd af einsmannshljómsveitinni Halla (brilljant)


fjörinu á dansgólfinu


og kjaftagangnum á barnum



Núna í morgun kom svo í ljós að fleiri höfðu skemmt sér rækilega í gærkvöldi. Látum myndirnar tala






Svo þetta sé nú alveg á hreinu, þá er gólfið venjulega ekki þakið dagblöðum, engin bílastæðiskilti finnast hér, hvorki ryðguð grindverk né rósarunnar og grenigreinar, ekki svartar ruslatunnur fyrir pappír, ekki vagnar fyrir mjólkurfernur, ekki rauðar viðvörunarkeilur... en þó kannski tröll og heeeeellingur af drasli. Á efstu myndinni sést hluti af hinum síkátu sökudólgum. Ah, við búum með svooooo þroskuðu fólki... ;)

Látum þetta gott heita í bili, góðar stundir.

fimmtudagur, nóvember 27, 2008

rykfallið klukk

Ég rambaði niður eftir bloggsíðunni hennar Ástu áðan og var þá minnt á að ég átti eftir að svara smávegis klukkleik. Svona er að taka sér frí frá því að lesa og skrifa blogg... en hva, betra seint en aldrei ;)

1. Fjögur störf sem ég hef unnið:
kúarektor,
au-pair stúlka,
ýmiss konar aðstoðarkennsla,
sérfræðingur í bergeðlisfræði (ehmhm...)

2. Fjórar bíómyndir sem ég held uppá:
Stella í orlofi,
Bend it like Beckham,
The Hunt for Red October,
Amelie

3. Fjórir staðir sem ég hef átt heima á:
Laugarneshverfi í Reykjavík,
Baden-Baden (Þýskalandi),
Hamborg,
Lundur

4. Fjórir sjónvarpsþættir sem ég horfi helst á:
Boston Legal,
South Park,
Spaugstofan (ef ég er á Íslandi),
Kastljós (ef ég er á Íslandi)

5. Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
Staður á Reykjanesi við Breiðafjörð,
Akureyri,
Ærlækur,
Svíþjóð uppúr og nið'rúr (ók í húsbíl frá Skáni norður til Kiruna og svolítið norðar ef ég man rétt og svo niður eftir aftur)

6. Fjórar síður sem ég heimsæki daglega (reglulega):
mbl.is
gmail.com
m5.is
afb.se

7. Fjórir réttir sem mér finnst góðir:
grillaður silungur (í ofni eða á grilli, alveg sama),
grjónagrautur,
coq au vin (hani í rauðvíni) að hætti pabba,
hong kong þorskur að hætti mömmu

8. Fjórar bækur sem ég les amk. árlega:
Pride and Prejudice,
Harry Potter 1-7,
Jane Eyre,
Þegar Brandur litli týndist

Ég klukka Bjarnheiði systur (auðvitað), Sylvíu Dröfn og Gunna.

laugardagur, nóvember 01, 2008

jæja...

Kominn tími til að blogga. Ég hef varla afsökun lengur, því verkefna-, skýrslu- og prófatímabil síðustu fjögurra vikna er hérumbil búið. Já, hérumbil, því þótt nýr fjórðungur með nýjum kúrsum sé í raun hafinn þá er enn eftir að skrifa eina skýrslu og reikna haug af heilavindandi dæmum úr hálfleiðarafræðum fyrir annan af kúrsunum á síðasta fjórðungi. Brrraaa...

Nú, hvað er helst í fréttum? Líkast til ein hundgömul frétt sem gleymdist að flytja ykkur í bloggsneyðinni: Við Sigurður höfum ákveðið að halda okkur hér í Lundi næstu 4-6 árin. Með öðrum orðum á að kýla á doktorsprófið hérna næsta haust, en ekki í Bandaríkjunum. Viðar Guðmundsson benti mér á þennan fína rannsóknarhóp hér í LU/LTH síðasta vor, sem ég er þegar farin að grúska aðeins með, þótt ég gefi ekki alveg fullkomlega í fyrr en eftir jól líkast til (er enn 100% í kúrsum). Sigurður þefaði svo uppi rannsóknarhóp í nanó-lífeðlisfræði (nanobiophysics) sem er meir en til í að fá hann í lið með sér. Okkur líkar líka prýðilega við okkur hérna (lítill bær, stutt í allt, allt til alls, IKEA í Málmey rétt hjá, Köben spottakorn í burtu...) enda menningin ekki svo ólík þeirri íslensku. Reyndar hef ég safnað saman ýmsum "hneykslanlegum" atriðum í fari/menningu Svía, en það kemur allt í sérpistli síðar - bíðið spennt ;) En já, Lundur er á heildina litið alveg brill, nema þegar kemur að því að finna leiguhúsnæði. Það er eintóm þrautaganga og bras. Þetta reddaðist í haust því Sigurður er skiptinemi og fékk því úthlutað herbergi hjá alþjóðaskrifstofunni. Það herbergi missir hann auðvitað eftir jól, enda aðeins skiptinemi á haustönn. Mig vantar því einhverja kompu fyrir næstu önn og trúið mér, það er ekkert gaman að vera að leita að svoleiðis. Ef þið þekkið einhvern (sem þekkir einhvern [sem þekkir einhvern]) sem gæti átt laust herbergi, endilega látið mig vita! Huggun harmi gegn er að næsta haust ættum við að vera komin fremst í röðina hjá stúdentagörðunum hérna og þ.a.l. fljúga inn í þá íbúð sem okkur hentar, úje.

Nýjasta fréttin er svo sú að ég er á leið til Þrándheims núna á mánudaginn og verð þar fram á miðvikudag. Það er svona samráðsfundur meðal ýmissa samstarfsmanna/-hópa rannsóknarhópsins míns og verður örugglega gaman. Svo gaukaði Bjarnheiður því að mér að Þrándheimur sé á sömu breiddargráðu og Ísland, svo mér ætti að líða svolítið eins og heima ;)

Við Sigurður munum svo líkast til renna til Köben helgina 22.-23. nóvember, heilsa upp á Sissa frænda og Ane í Gry og gista hjá þeim. Munum líka örugglega draga Pétur Gordon með okkur í eitthvert brall þarna á laugardeginum áður en við stingum af til Sissa - eða verður þú ekki örugglega í Köben 22. nóvember, Pétur? Hugmyndin er að fara a.m.k. á sýninguna Bodies (líkamspartasýningin). Þeir sem hafa áhuga að fljóta með eru velkomnir!

Læt þetta duga í bili. Skal reyna að muna eftir að vera duglegri með myndavélina, Bjarnheiður, en ég lofa engu! ;)

E.S. Minnst á Bjarnheiði systur: Hún er á lokasprettinum með diplómuritgerðina sína sem á að vera tilbúin til prentunar eftir rúma viku (10. nóvember). Þar sem Bjarnheiður er m.a. með gersamlega algerlega fullkomlega óhæfa leiðbeinendur, þá er þetta töluvert bras. Þess vegna eiga allir sem vettlingi geta valdið að senda henni helling af góðum hugsunum og kannski smá línu sem segir henni hversu ógurlega klár hún er og dugleg og metnaðarfull og einfaldlega dásamleg. Takk fyrir :)