Jæja, ég nenni ekki að bíða lengur eftir að rafrásafræðingarnir komi með lausn á stjörnunum hérna fyrir neðan. Svo að, hér eru lausnirnar:
1) Með því að skoða jafnspennupunkta, þá sést að enginn straumur rennur um þá leggi sem svara til hliðanna í sexhyrningnum innan í stjörnunni. Strokum þá út. Að því loknu er lítið mál að teikna jafngildisrás viðeigandi hlið- og raðtenginga milli A og B og rrrreikna ofurlítið. Útkoman er einn fjórðihluti R, þ.e. R/4.
2) Nú eru jafnspennupunktar rásarinnar ekki jafn augljósir og áður, en með hjálp samhverfu fáum við að tengipunktarnir tveir rétt fyrir neðan A eru jafnspennupunktar. Þ.a.l. rennur enginn straumur milli þessara punkta og við getum strokað út lárétta legginn milli þeirra. Sömu meðferð má beita á tengipunktana tvo fyrir neðan B og losa sig við tilheyrandi láréttan legg. Samhverfan gefur okkur nú ofurlítið meira, því ljóst er að enginn straumur getur runnið um neðsta stjörnuarminn. Strokum burt þessa tvo leggi og sitjum eftir með:
Nú má einbeita sér að öðrum helmingi rásarinnar (partarnir tveir eru jú hliðtengdir milli A og B). Teiknum jafngildisrás fyrir hann, sem ætti nú að takast með því að setja tungubroddinn tryggilega út í annað munnvikið. Viðnámið í helmingi rásarinnar fæst þannig eftir nokkra reikninga sem 86R/55. Þar með, eins og alþjóð veit, er heildarviðnámið milli A og B jafnt 43R/55. Töff tala.
Vona að þið hafið haft oggopínkuponsu gaman af þessu. Góðar stundir.