fíkniefnin í lífi mínu
Endorfín og súkkulaði. Læt þar staðar numið.
Var að borða tvær ristaðar brauðsneiðar með dökku súkkulaðikremi sem Bjarnheiður systir gaf mér. Mér líður ákaflega vel. Alveg sama þótt ég hafi verið að klára kremið (svoleiðis sleikti krúsina að innan). Alveg sama þótt ég hafi ekki gert allt sem gera átti í vikunni. Alveg sama þótt það sé alltof stutt í próf. Alveg sama þótt ég þurfi að fara að versla eftir 1½ klst (á föstudegi!). Dökkt súkkulaði er snilld.
Og nú ætla ég að bæta smávegis endorfíni ofan í súkkulaðikikkið með því að skila bílnum þeirra pabba og mömmu á réttan stað og arka til baka á ný.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli