sunnudagur, apríl 20, 2008

síspilun

Ég get hlustað á lagið On suuri sun rantas autius í flutningi Graduale Nobili aftur og aftur og aftur og aftur og... Reyndar gildir það um fleiri lög á disknum þeirra, sem heitir einfaldlega Graduale Nobili (og fæst t.d. í 12 tónum og í Langholtskirkju) en þetta lag stendur barasta upp úr. Ég reyndi að finna einhverja sambærilega útgáfu á netinu svo ég þyrfti nú ekki að birta þetta ólöglega, en það bara tókst ekki! Þessi hér komst næst því að vera jafngóð, en röddin í einsöngvaranum er barasta of óperusöngkonuleg fyrir minn smekk :P Raunar er hægt að hlusta á lagið á MySpace-síðu eðalgrallaranna ásamt fleiri góðum lögum. Gat bara ekki sent krækju beint í þetta.

Annars voru stúlkurnar í Graduale Nobili að gefa út nýjan disk og héldu útgáfutónleika núna fyrir viku síðan. Grábölvað að ég gaf mér ekki tíma til að mæta á tónleikana :( En þá er bara að redda sér disknum... og vona að það verði fleiri tónleikar einhvern tímann í sumar ;)

Engin ummæli: