stóratá
Núna ligg ég upp í sófa með púða undir hægri fæti og þykist vera alger prinsessa. Sendi meira að segja Sigurð aaaaleinan að versla. Ekki hafa áhyggjur, þessi merkikertisháttur er bara til bráðabirgða. Ég sum sé fór og hitti skurðlækni í dag sem deyfði á mér stórutána þar til ég hélt hún myndi detta af og sneiddi svo af henni eins og sosum hálfa nöglina. Hvers vegna í ósköpunum gerði ég það? Nú, fyrir páska þá skarst þessi nögl heldur langt inn í húðina við hliðina á sér og bjó til sár. Skemmst er frá því að segja að þetta sár hefur ekki gróið hingað til og ljóst var fyrir um mánuði að sneiða þyrfti af aðra hliðina á nöglinni. Þá tók við indælt íslenskt heilbrigðiskerfi. Ég hringdi og pantaði tíma hjá heimilislækni og þurfti að bíða í 5 daga til að komast að (undanfarin ár hefur þetta tekið mest 2-3 daga, en foreldrar ku vera mun duglegri við að leyfa börnum sínum að heilsa upp á lækninn þennan veturinn, sosum gott og blessað). Læknirinn minn staðfesti grun minn góðlátlega, pantaði tíma hjá skurðlækni sem var laus eftir 8 daga og rukkaði mig um 1000 kr. Allt í góðu með það nema biðina. Loks hitti ég skurðlækninn sem leit á tána, samþykkti að skera þyrfti naglarfjandann burt, sagði mér að koma eftir viku á skurðstofuna sína og rukkaði mig um tæpar 4000 kr fyrir þetta 5 mínútna viðtal. Jei. Svo loooooksins var það í dag sem ráðist var á stórutána. Ég lá upp á legubekk og las Harry Potter and the Prisoner of Azkaban meðan læknirinn dundaði við að stútfylla tána af deyfingu og skemmta sér við sitt fag. Hann bað mig svo vinsamlegast um að millifæra rúmar 6000 kr á reikning hjá Heill ehf. Jessörí. Núna þarf ég bara að dæla nokkrum smáaurum í heilbrigðiskerfið og þá er ég komin með næga inneign fyrir afsláttarkorti TR. Get þó ekki sagt að það sé mitt helsta markmið í lífinu...
Engin ummæli:
Skrifa ummæli