fimmtudagur, apríl 10, 2008

stjörnulausn

Jæja, ég nenni ekki að bíða lengur eftir að rafrásafræðingarnir komi með lausn á stjörnunum hérna fyrir neðan. Svo að, hér eru lausnirnar:

1) Með því að skoða jafnspennupunkta, þá sést að enginn straumur rennur um þá leggi sem svara til hliðanna í sexhyrningnum innan í stjörnunni. Strokum þá út. Að því loknu er lítið mál að teikna jafngildisrás viðeigandi hlið- og raðtenginga milli A og B og rrrreikna ofurlítið. Útkoman er einn fjórðihluti R, þ.e. R/4.

2) Nú eru jafnspennupunktar rásarinnar ekki jafn augljósir og áður, en með hjálp samhverfu fáum við að tengipunktarnir tveir rétt fyrir neðan A eru jafnspennupunktar. Þ.a.l. rennur enginn straumur milli þessara punkta og við getum strokað út lárétta legginn milli þeirra. Sömu meðferð má beita á tengipunktana tvo fyrir neðan B og losa sig við tilheyrandi láréttan legg. Samhverfan gefur okkur nú ofurlítið meira, því ljóst er að enginn straumur getur runnið um neðsta stjörnuarminn. Strokum burt þessa tvo leggi og sitjum eftir með:
Nú má einbeita sér að öðrum helmingi rásarinnar (partarnir tveir eru jú hliðtengdir milli A og B). Teiknum jafngildisrás fyrir hann, sem ætti nú að takast með því að setja tungubroddinn tryggilega út í annað munnvikið. Viðnámið í helmingi rásarinnar fæst þannig eftir nokkra reikninga sem 86R/55. Þar með, eins og alþjóð veit, er heildarviðnámið milli A og B jafnt 43R/55. Töff tala.

Vona að þið hafið haft oggopínkuponsu gaman af þessu. Góðar stundir.

sunnudagur, apríl 06, 2008

epli

Hvað skal gera við þrjú risastór jónagoldepli sem eru orðin aðeins of hrukkótt til að vera girnileg, en þó ekki farin að rotna/mygla? Baka köku! Ég hringdi í ömmu í Sigtúni og fékk uppskriftina að hinni óbrigðulu eplaköku frú Madsen og snaraði fram tveim dýrindis eplakökum í gær. Amminamminamm... og ekki er verra að eplakaka er eitt besta tilefnið til þess að þeyta helling af rjóma ;)

fimmtudagur, apríl 03, 2008

Tíbet

Ég nenni ekki að þýða þetta hér að neðan yfir á íslensku, vona bara að ykkur dugi enskan ;) Mér þætti hins vegar indælt ef þið nenntuð að pára nafnið ykkar á Tíbet-listann hjá Avaaz, af fréttum að dæma þá virðist Tíbetum ekki veita af hverju einasta nafni sem kemst á undirskriftalistann...
____________________

Dear friends,

After decades of suffering, the Tibetan people have burst onto the streets in protests and riots. The spotlight of the upcoming Olympic Games is now on China, and Tibetan Nobel peace prize winner the Dalai Lama is calling to end all violence through restraint and dialogue--he urgently needs the world's people to support him.

China's leaders are lashing out publicly at the Dalai Lama--but we're told many Chinese officials believe dialogue is the best hope for stability in Tibet. China's leadership is right now considering a crucial choice between crackdown and dialogue that could determine Tibet's--and China's--future.

We can affect this historic choice--China does care about its international reputation, and we can help them choose the right path. China's President Hu Jintao needs to hear that the 'Made in China' brand and the upcoming Olympics in Beijing will succeed only if he makes the right choice. But it will take an avalanche of global people power to get his attention. Click below now to join 1.5 million others and sign the petition--and tell absolutely everyone you can right away--our goal is 2 million voices united for Tibet:

http://www.avaaz.org/en/tibet_end_the_violence/97.php/?cl=69452117

China's economy is dependent on "Made in China" exports that we all buy, and the government is keen to make the Olympics in Beijing this summer a celebration of a new and respected China. China is also a sprawling, diverse country with much brutality in its past. And it has good reasons to be concerned about stability -- some of Tibet's rioters killed innocent people. But President Hu must recognize that the greatest danger to Chinese stability and development today comes from hardliners who advocate escalating repression, not from those Tibetans seeking dialogue and reform.

We have presented the petition at protests, marches, rallies, and private meetings with Chinese diplomats around the world--and we will keep sending it as long as it keeps growing. Please forward this email to your address book with a note explaining to your friends why this is important, or use our tell-a-friend tool to email your address book--it will come up after you sign. The Tibetan people have suffered quietly for decades. It is finally their moment to speak--we must help them be heard.

With hope and respect,

The Avaaz team

Here are some links with more information on the Tibetan protests and the Chinese response:

"China softens Dalai Lama stand" -- Wen Jiabao calling for dialogue
http://www.telegraphindia.com/1080401/jsp/foreign/story_9081121.jsp

Dalai Lama expresses appreciation for world reaction, appeals for continued support; also sends appeal to the Chinese people:
http://dalailama.com/news.221.htm
http://dalailama.com/news.220.htm

China announcing support from governments around the world:
http://news.xinhuanet.com/english/2008-03/20/content_7829212.htm

Leaders across Europe and Asia starting to back dialogue as the way forward:
http://news.bbc.co.uk/1/hi/world/asia-pacific/7300157.stm

Chinese Prime Minister attacks "Dalai clique", leaves door open for talks:
http://news.xinhuanet.com/english/2008-03/18/content_7813194.htm

Other Chinese signals:
http://timesofindia.indiatimes.com/China_looks_at_India_to_talk_to_Dalai_Lama/articleshow/2875142.cms
------------------------------

ABOUT AVAAZ
Avaaz.org is an independent, not-for-profit global campaigning organization that works to ensure that the views and values of the world's people inform global decision-making. (Avaaz means "voice" in many languages.) Avaaz receives no money from governments or corporations, and is staffed by a global team based in London, Rio de Janeiro, New York, Paris, Washington DC, and Geneva.

sunnudagur, mars 30, 2008

stjörnur

Jæja, nú getið þið rifjað upp rafrásafræðin ykkar. Í báðum tilvikum felst verkefnið í því að finna heildarviðnámið milli punktanna A og B. Öll viðnámin (kassarnir) á myndunum eru jöfn R. Góða skemmtun!

Léttari rásin:


og sú flóknari:


Ég birti svörin svo kannski eftir 1-2 vikur, þ.e. ef þið verðið ekki búin að leysa þetta ;)

laugardagur, mars 29, 2008

síðustu forvöð

Til hamingju með afmælið, Baldur bróðir! :D

föstudagur, mars 28, 2008

smjatt

Jói kíkti í mat í gærkvöldi. Við matreiddum fylltar svínalundir með rösti kartöflum og steiktum eplum og svo var ís og velsveitt súkkulaðisósa í eftirrétt. Namm! Ég hjólaði gegn norðaustan-strekkingi til pabba og mömmu til að ræna tæpum desílítra af calvados (eplabrennivíni) af pabba til að steikja eplin upp úr (það sem maður leggur nú ekki á sig ;) ). Heimleiðin var aftur á móti ekkert nema sæla, svoleiðis flaug áfram án nokkurrar mótstöðu :D Fínn hjóltúr svona eftir á, þótt ég sótbölvaði Kára kallinum á austurleiðinni (og það ekki í fyrsta skipti!). Og eplin voru mjöööög góð :) Pétur Gordon kíkti svo inn áður en Jói yfirgaf staðinn. Við Sigurður töltum með Pétri í VR-III og sátum þar fram yfir miðnætti við að klambra saman dæmum fyrir úrslitakeppni framhaldsnema í eðslifræði, sem er haldin núna á morgun. Sosum gaman, en bvðah! tímafrekara en forritun í fortran, svei mér þá. Það verður svo ráðist í það á morgun að fara yfir keppnina. Spennandi að sjá hvað krakkarnir geta af þessu. Ég birti svo kannski eins og eina rafrás hérna fyrir ykkur að spreyta ykkur á ;)

miðvikudagur, mars 26, 2008

skammtalíkindi búin

Allt páskafríið fór í að skrifa um skammtalíkindi, fyrir utan 3 kvöld sem varið var í dásamleg fjölskyldumatarboð og svo gerði ég ekkert skólatengt á páskadag. Sí-jett hvað þetta var mikil drulla! ... svona svo við notum pent og fallegt orðalag *hóst*. Svo þið vitið það, þá er erfitt að þýða eðlisfræðísku og tilheyrandi kæruleysi yfir á formfasta og fullsannaða stærðfræðísku. Það er líka eiginlega ómögulegt að kynna skammtafræði með stærðfræðilegri framsetningu þannig að hún verði skemmtileg og upplýsandi. Það hafði enginn áheyrenda lært eða kynnt sér skammtafræði (nema eitthvað sem minnst var á í menntaskóla, en slíkt telst einfaldlega ekki með) svo ekki gátu þau tengt þetta við neitt sem þau þekktu. Sem sé, ég talaði í rúman klukkutíma um algerlega eða svotil glænýtt efni. Og þetta var ekki beint af léttustu gerð :P Svo að, Gunni, mig grunar að ég hafi rústað stigakeppninni. Ég stóð að vísu engan að því að sofna (þó það kæmi mér ekkert á óvart að slíkt hefði skeð ;) ) en af meir en 10 manns voru einungis 2-3 sem ekki voru fastir á rauðu ljósi á fáförnum sveitavegi. Hm, ég vona bara að einhverjir hafi haft pínu gaman af þessu. Alla vega, ef við lítum fram hjá að allt páskafríið fór í þetta svo ég komst ekki á skíði, þá var ansi gaman að skoða skammtalíkindin :) Skemmtilega geggjað og kófsveitt fag.

miðvikudagur, mars 19, 2008

skammtalíkindi

Páskafríið mitt mun að mestu leyti fara í að hnoða saman fyrirlestri um skammtalíkindi. Það er sem sé komið að mér í samæfingum í stærðfræði núna á miðvikudaginn eftir viku. Til þess að fjalla almennilega um skammtalíkindi, þ.e. án þess að fjalla bara um einföld sértilvik (eins og endanlegan fjölda mögulegra útkoma), þarf ég að notfæra mér tæki og tól (skilgreiningar og setningar) úr algebru II, fellagreiningu, mál- og tegurfræði, líkindafræði og að sjálfsögðu skammtafræði. Stór hluti þeirra sem munu hlusta á fyrirlesturinn hafa hvorki tekið algebru II, fellagreiningu né mál- og tegurfræði og í mesta lagi einn í salnum (fyrir utan mig) mun hafa lært eitthvað um skammtafræði. Fyrirlesturinn á að vera mesta lagi 1 klukkustund. Ég er í oggopínkuponsu bobba....

þriðjudagur, mars 18, 2008

bíó

Við Sigurður fórum á myndina In Bruges núna áðan í boði Græna ljóssins. Þvílík gargandi snilld! Ef þið hafið gaman af sótsvörtum breskum húmor (ekki aulahúmor!) þá skuluð þið endilega drífa ykkur í bíó. Líf mitt lengdist þarna um nokkra klukkutíma... ;)

laugardagur, mars 15, 2008

hnífar

Mér tókst loksins loksins að gefa Sigurði jólagjöf í gær. Leatherman Wave allrahanda-hníf. Hver segir svo að ég sé vandræðamanneskja þegar kemur að því að finna gjöf handa sjálfum sér?!? Ari Ólafs tjáði Sigurði svo í dag að það boðaði ógæfu að fá hníf að gjöf. Úbbosí. En þar sem Pétur vinur okkar fékk nú sams konar hníf í jólagjöf í fyrra (sömuleiðis í mars - skemmtileg tilviljun) og hefur ekki verið venju fremur ógæfusamur síðan þá, þá ætla ég að taka mátulega mikið mark á þessu. Annars kynntist Ari þessari hjátrú á skemmtilegan hátt: Hann fékk gjafabréf í afmælisgjöf sem hljóðaði upp á eitthvað margar krónur og var sagt að bæta við 10 kr úr eigin vasa, þá gæti hann - og ætti - að kaupa sér ákveðinn hníf í tiltekinni verslun. Þannig komst gefandinn hjá því að gefa honum hnífinn beint, það varð óbeint ;)

Annars er það í fréttum helst að í gær steikti ég dágott fjall af fiskibollum eftir óbrigðulli "slatti-slumma-slurkur"-uppskrift ömmu í Sigtúni (næst hringi ég í ömmu á Akureyri og sé hvort þetta sé ekki í grunninn sama uppskriftin - ekta ömmufiskibollur :) ), við Sigurður slógum met í upphæð einnar Bónus/Krónu-verslunarferðar, hentum okkur út í nokkurs konar vorhreingerningu (samt ekki alveg, skápahurðir og veggir voru t.d. ekki strokin) og okkur tókst að sofa í meira en 10 tíma síðustu nótt. Voða dugleg. Í dag litum við svo á óendanlega illa auglýst Raunvísindaþing (ef það er eitthvað sem raunvísindafólk kann hörmulega illa, þá er það að auglýsa/kynna sjálft sig og starfsemi sína!), ég kíkti á Kristínu Þóru á smakksýningu vöruhönnunarnema LHÍ og íslenskra bænda, við Sigurður þóttumst læra eitthvað ofurlítið og elduðum svo indverskan mat ofan í okkur og Hörpu systur Sigurðar sem er í höfuðstaðnum þessa dagana.

Prýðilegir dagar liðnir og prýðilegir dagar fram undan með risastóru lærdómsfjalli til að brytja niður og öðrum skemmtilegheitum.