föstudagur, mars 28, 2008

smjatt

Jói kíkti í mat í gærkvöldi. Við matreiddum fylltar svínalundir með rösti kartöflum og steiktum eplum og svo var ís og velsveitt súkkulaðisósa í eftirrétt. Namm! Ég hjólaði gegn norðaustan-strekkingi til pabba og mömmu til að ræna tæpum desílítra af calvados (eplabrennivíni) af pabba til að steikja eplin upp úr (það sem maður leggur nú ekki á sig ;) ). Heimleiðin var aftur á móti ekkert nema sæla, svoleiðis flaug áfram án nokkurrar mótstöðu :D Fínn hjóltúr svona eftir á, þótt ég sótbölvaði Kára kallinum á austurleiðinni (og það ekki í fyrsta skipti!). Og eplin voru mjöööög góð :) Pétur Gordon kíkti svo inn áður en Jói yfirgaf staðinn. Við Sigurður töltum með Pétri í VR-III og sátum þar fram yfir miðnætti við að klambra saman dæmum fyrir úrslitakeppni framhaldsnema í eðslifræði, sem er haldin núna á morgun. Sosum gaman, en bvðah! tímafrekara en forritun í fortran, svei mér þá. Það verður svo ráðist í það á morgun að fara yfir keppnina. Spennandi að sjá hvað krakkarnir geta af þessu. Ég birti svo kannski eins og eina rafrás hérna fyrir ykkur að spreyta ykkur á ;)

Engin ummæli: