skammtalíkindi
Páskafríið mitt mun að mestu leyti fara í að hnoða saman fyrirlestri um skammtalíkindi. Það er sem sé komið að mér í samæfingum í stærðfræði núna á miðvikudaginn eftir viku. Til þess að fjalla almennilega um skammtalíkindi, þ.e. án þess að fjalla bara um einföld sértilvik (eins og endanlegan fjölda mögulegra útkoma), þarf ég að notfæra mér tæki og tól (skilgreiningar og setningar) úr algebru II, fellagreiningu, mál- og tegurfræði, líkindafræði og að sjálfsögðu skammtafræði. Stór hluti þeirra sem munu hlusta á fyrirlesturinn hafa hvorki tekið algebru II, fellagreiningu né mál- og tegurfræði og í mesta lagi einn í salnum (fyrir utan mig) mun hafa lært eitthvað um skammtafræði. Fyrirlesturinn á að vera mesta lagi 1 klukkustund. Ég er í oggopínkuponsu bobba....
Engin ummæli:
Skrifa ummæli