skammtalíkindi búin
Allt páskafríið fór í að skrifa um skammtalíkindi, fyrir utan 3 kvöld sem varið var í dásamleg fjölskyldumatarboð og svo gerði ég ekkert skólatengt á páskadag. Sí-jett hvað þetta var mikil drulla! ... svona svo við notum pent og fallegt orðalag *hóst*. Svo þið vitið það, þá er erfitt að þýða eðlisfræðísku og tilheyrandi kæruleysi yfir á formfasta og fullsannaða stærðfræðísku. Það er líka eiginlega ómögulegt að kynna skammtafræði með stærðfræðilegri framsetningu þannig að hún verði skemmtileg og upplýsandi. Það hafði enginn áheyrenda lært eða kynnt sér skammtafræði (nema eitthvað sem minnst var á í menntaskóla, en slíkt telst einfaldlega ekki með) svo ekki gátu þau tengt þetta við neitt sem þau þekktu. Sem sé, ég talaði í rúman klukkutíma um algerlega eða svotil glænýtt efni. Og þetta var ekki beint af léttustu gerð :P Svo að, Gunni, mig grunar að ég hafi rústað stigakeppninni. Ég stóð að vísu engan að því að sofna (þó það kæmi mér ekkert á óvart að slíkt hefði skeð ;) ) en af meir en 10 manns voru einungis 2-3 sem ekki voru fastir á rauðu ljósi á fáförnum sveitavegi. Hm, ég vona bara að einhverjir hafi haft pínu gaman af þessu. Alla vega, ef við lítum fram hjá að allt páskafríið fór í þetta svo ég komst ekki á skíði, þá var ansi gaman að skoða skammtalíkindin :) Skemmtilega geggjað og kófsveitt fag.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli